Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 25
Umræðan 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009 MARGT stendur at- vinnulausum til boða núna og eru haldin námskeið á vegum ým- issa aðila. Má þar nefna Rauða krossinn, kirkj- una, stéttarfélög o.fl. Hlutverkasetur býður líka upp á marga val- kosti. Þar er byggt á þeirri hugmyndafræði að hvert og eitt okkar sé í mörgum hlutverkum. Við erum atvinnan okkar, t.d. vél- stjóri eða arkitekt, eiginmenn/konur, dætur, synir, foreldrar, systkini o.s.frv. Tiltölulega sjaldan leiðum við hugann að þessum hlutverkum, tök- um þau sem sjálfsagðan hlut í lífinu. Því getur það verið mikið áfall að missa mikilvægt hlutverk. Hlutverkin ráða á margan hátt sjálfsmynd okkar. Við erum hlut- verkin að eigin mati. Sérstaklega verða þessi hlutverk áberandi þegar við skilgreinum okkur sjálf og kynn- umst nýju fólki. Við erum gjörn á að svara með atvinnunni okkar séum við spurð að því hver við erum. Eða ef við erum að kynnast nýjum aðila. Spurn- ingin: „Hvað gerir þú“ er yfirleitt með fyrstu spurningunum sem ganga á milli aðila. Fæst okkar eru tilbúin til að kynna okkur sem atvinnulausa eða öryrkja, jafnvel þótt sú sé raunin. Ég mun t.d. aldrei gleyma því að missa það hlutverk sem vinnan mín var árið 1992. Það var ein af erfiðari raunum sem ég hef lent í. Þetta gerð- ist um sumar, á mildum júlídegi. Veðrið hafði verið einstaklega gott og ég hæstánægð með tilveruna. Sonur minn var nýkominn í rúmið og við hjónin vorum að tala saman þegar síminn hringdi. Vinnuveitandi minn var í símanum og var fljótur að tjá sig. Mér var sagt upp vinnunni, end- urskipulagning væri framundan og ég væri sú sem hefði skemmsta starfsreynslu á staðn- um. Ég var höggdofa, frekar átti ég von á dauða mínum en þessu. Vissi ekki betur en ég hefði staðið mig vel í vinnunni. Þetta kom því eins og þruma úr heið- skíru lofti og ég varð sem dofin. Þetta gat ekki verið að gerast. Allar helstu ákvarðanir okkar hjónanna hrundu með þessu. Fríin okkar, stærra húsnæði og aðrir hlutir sem við vorum búin að ákveða. Jafnvel af- borganir af því húsnæði sem við vor- um í myndu reynast erfiðar. Hvað var ég núna, atvinnuleysingi? Ekki vant- aði fordómana hjá mér sem fyrstu viðbrögð. Ég þurfti ekki að vinna lengri tíma af uppsagnarfrestinum en mánuð. Hvað svo vissi ég ekki. En það var erfitt að mæta í vinnuna og horfa framan í vinnufélagana. Til að kóróna þetta fyrir mér þá var ég eina konan á vinnustaðnum, mér hafði ekki þótt það erfitt áður. Sennilega tengdist þetta því að þá þyrfti ég að bera höf- uðið enn hærra, innan um karlmenn, en ef hópurinn hefði verið blandaðri. En mér tókst að halda höfði og vera sterk á yfirborðinu og á vinnustaðn- um var uppsögn mín ekki rædd. Tilfinningar mínar voru hins vegar í uppnámi, ég sveiflaðist á milli von- leysis og reiði. Ég hafði verið stolt af vinnunni minni. Þetta var starf eins og ég vildi þá og ég hafði verið heima- vinnandi, í skóla og með ungan son. Það gaf mér mikið að fara að vinna aftur og geta svarað stolt öllum spurningum um vinnu. Núna langaði mig til að vera með hauspoka og forð- ast fólk. Uppsögnina tengdi ég líka beint við gildi mitt sem manneskju, ég varð minna virði. Eftir að uppsagnartímanum lauk vildi ég halda mig heima. Ég vildi ekki eiga það á hættu að fá óþægileg- ar spurningar. Nú tók við hlutverkið „atvinnulaus“. Ekkert stóð til boða sem gæti komið í staðinn. Miðstöð fólks í atvinnuleit var reyndar ný- stofnuð en ég rambaði ekki strax á hana. Ég sótti um önnur störf en hræddist höfnun. Atvinnumissirinn virkaði á mig sem mikil höfnun og ég varð ekki nógu virk á eftir. Vorkunn- semi réð miklu um viðbrögð annara og ég þoldi það illa. Mig vantaði eitt- hvað til að hafa fyrir stafni. Eftir að hafa leiðst og vorkennt sjálfri mér í bak og fyrir datt mér í hug að gott væri að hitta aðra í sömu sporum. Þar með rambaði ég inn á miðstöð fólks í atvinnuleit. Ég hefði betur komið þarna fyrr, þar sem að þarna hitti ég aðra með sömu reynslu. Hins vegar var ekki um nein verkefni að ræða. Mikilvægt var samt að hitta aðra og deila reynslu. Enn betra og miklu betra hefði verið að hafa viðfangsefni. Samt reyndist þessi reynsla mér mjög vel. Hún víkkaði sjóndeild- arhringinn eftir á og ég fór að átta mig á að fleiri hlutverk stæðu til boða. Þegar einar dyr lokast opnast aðrar. Ég uppgötvaði að ég hafði hæfileika í annað en það sem ég hafði unnið við. Margt var líka enn ólært. Að lokum fékk ég vinnu á öðru sviði. Það hlut- verk varð mér enn mikilvægara en fyrri vinna. En ég hefði aldrei endað þar sem ég er í lífinu í dag hefði mér ekki verið sagt upp á þessum tíma. Ég vinn núna í Hlutverkasetri, þar sem eru haldin margvísleg námskeið og fólki hjálpað til að fá ný hlutverk sem misst hefur vinnuna. Við höfum öll hæfileika. Það er bara að uppgötva þá eða styrkja í sessi. Vinnan þín er hlutverk Védís Drafnardóttir segir frá reynslu sinni er henni var sagt upp störfum » Sérstaklega verða þessi hlutverk áber- andi þegar við skil- greinum okkur sjálf og kynnumst nýju fólki. Védís Drafnardóttir Höfundur viðskiptafræðingur og rekstrarstjóri Hlutverkaseturs. Koltvísýringur, CO2, er veigamesta loftteg- undin sem er að valda breytingum á loftslagi jarðar. Breytingar sem leggjast ofan á hinar náttúrulegu sveiflur og gera þær mun öfgafyllri. Um 2/3 af aukningu CO2 í lofthjúpnum frá upp- hafi iðnbyltingarinnar stafa af bruna jarðefnaeldsneytis, en um þriðjungur er vegna hnignunar landkosta í heim- inum. Fyrir því fer minna í um- ræðunni. Vegna jarðvegseyðingar og ann- arrar landhnignunar á liðnum öldum hafa vistkerfi Íslands tapað gífurlegu magni af kolefni, mörg hundruð sinn- um meira en nemur árlegri losun gróðurhúsalofttegunda vegna núver- andi athafna manna. Það er því ekki aðeins hægt, heldur afar brýnt verk- efni, að skila hluta þessa kolefnis aft- ur til jarðar með landgræðslu og öðr- um landbótum. Landbætur eru lífsnauðsyn Skila verður hluta af kolefninu aft- ur til jarðar, til varanlegrar geymslu í gróðri og jarðvegi. Orðið kolefn- isbinding hefur því miður á sér ein- hvern torskilinn blæ, en er í raun ekkert annað en það að með ljós- tillífun umbreytir gróður kolefninu úr CO2 í lífræn efni og losar frá sér súrefnið. Við þær að- stæður sem ríkja á Ís- landi geymast um 70- 80% af kolefninu sem gróðurinn bindur í jarð- vegi og er undirstaðan að frjósemi lands. Kolefni í jarðvegi er grundvöllurinn að fjöl- þættri þjónustu vist- kerfa og öflugum land- búnaði hvar sem er í heiminum. Rýrnun þessa kolefnisforða, m.a. vegna jarðvegs- eyðingar og rányrkju næringarefna, má kalla hina þöglu kreppu heimsins. Sú athygli sem loftslagsmálin njóta hefur því miður orðið til að yf- irskyggja þá staðreynd að fæðu- kreppa, m.a. vegna skorts á kolefni í jarðvegi, gæti hugsanlega bitnað fyrr og harkalegar á jarðarbúum en af- leiðingar loftslagsbreytinga af mannavöldum. Tvöfalda verður matvælafram- leiðslu heimsins til ársins 2050. Það verður erfið áskorun á sama tíma og ört gengur á nær allar þær und- irstöður sem matvælaframleiðslan byggist á, s.s. frjósaman jarðveg, vatn og næringarefni. Það er lífsnauðsyn fyrir framtíð- arhagsæld Íslendinga að vernda og bæta frjósemi jarðvegs til að geta aukið matvælaframleiðsluna þegar þörf krefur. Það er óhjákvæmilegur liður í að treysta fæðuöryggi þjóð- arinnar, og um leið til að vera betur í stakk búin til að geta mætt aukinni eftirspurn annarra landa eftir hollum landbúnaðarafurðum. Íslenskur landbúnaður þarf að gegna lykilhlut- verki í landbótum gegn loftslags- breytingum. Kolefnishlutlaust Ísland Ísland hefur einstæða möguleika til að geta orðið leiðtogi í samfélagi þjóðanna í vörnum gegn loftslags- breytingum. Kappkosta þarf að láta endurnýjanlega orku taka sem fyrst við af olíu og öðru jarðefnaeldsneyti, þ.e. koma loftmenguninni í lóg. Það þarf að gera hvort eð er í ljósi þess að hratt gengur á forða heimsins af slíkri orku. Samhliða er áríðandi að minnka magn þess CO2 sem safnast hefur í lofthjúpinn og koma hluta af kolefn- inu í varanlega geymslu, fyrst og fremst í jarðveginum. Landgræðsla og aðrar landbætur eru ekki flótta- leið frá því að takast á við loftslags- vandann, heldur óhjákvæmilegt verkefni til að treysta fæðuöryggi þjóðarinnar og lífsskilyrði Íslendinga í framtíðinni. Kolefnisbinding til að hamla gegn loftslagsbreytingum af manna völdum er sjálfgefin auka- afurð slíkra verkefna. Koltvísýringur – Auðlind á villigötum Andrés Arnalds segir að koma þurfi kolefni í varanlega geymslu í jarðveg- inum til að treysta fæðuöryggi þjóð- arinnar » Á næstu 70 árum þarf meira af mat í heiminum en samanlagt á síðustu 10.000 árum. Græða þarf land og sporna um leið gegn loftslagsbreytingum. Andrés Arnalds Höfundur er fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins. Landbúnaðarráðu- neytið tilkynnti Sam- bandi garðyrkju- bænda (SG) í byrjun desember að það mundi einhliða skerða vísitöluhækkun samn- inga sem ríkið hefur gert við það um bein- greiðslur til framleið- enda tómata, gúrku og papriku. Sú ráðstöfun mun þýða 2-3% skerðingu tekna grænmet- isframleiðenda. Þar sem aðgerð- inar voru hluti af ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar vegna fjár- málakreppunnar var hins vegar ákveðið að leita ekki réttar síns að svo stöddu. Í byrjun árs 2009 barst SG síðan bréf frá ráðuneyt- inu þar sem óskað var eftir um- ræðum um niðurskurð á nið- urgreiðslu dreifingarkostnaðar rafmagns til garðyrkjubænda. Á fundi var tilkynnt að skerðingin yrði 30% og að SG hefði enga samningsstöðu né heldur að rök okkar um afleiðingarnar hefðu áhrif á niðurstöðuna. Áhrif skerð- ingarinnar leiða til 25% hækkunar á raforkukostnaði grænmet- isframleiðenda og blómabænda. Hækkanir á gjaldskrám Forsaga málsins er sú að vegna breytinga á lögum um raforku ár- ið 2005 gerði SG samning við rík- ið um 95% niðurgreiðslu á kostn- aði við dreifingu rafmagns. Fyrirséð var að lagasetningin myndi leiða til 30% hækkunar á rafmagnskostnaði garðyrkju- bænda. Kostnaður ríkisins af þessum niðurgreiðslum jókst úr 100 milljónum króna í 210 millj- ónir á árunum 2005-2009. Fyrir því voru tvær ástæður: notkun bænda (og þar með framleiðsla) jókst sem nam 32 milljónum en 77 milljónir stöfuðu af gjald- skrárhækkunum raforkufyr- irtækja sem eru í eigu ríkisins. Á árunum 2002-2007 hefur raf- magnsnotkun í garðyrkju aukist um 115% úr tæpum 32 MWh í 68,7 MWh. Aðlögunarsamningur Árið 2002 gerði ríkið samning við SG sem m.a. innihélt ákvæði um niðurfellingu tolla á tómata, gúrkur og paprikur. Tollar voru felldir niður en í staðinn var kom- ið á beingreiðslum til bænda. Þær eru fastar krónutölur og hafa sí- fellt minna vægi í heildartekjum þeirra vegna aukinnar fram- leiðslu. Þó framleiðslan aukist þá hækkar styrkurinn ekki. Samn- ingurinn var hvatning um hag- ræðingu og nútímavæðingu fram- leiðslunnar. Sett voru fjögur markmið með samningnum. Þau voru: Að lækka verð til neytenda, að auka hag- kvæmni og samkeppnishæfni inn- lendrar grænmetisframleiðslu, að treysta tekjugrundvöll grænmet- isframleiðenda, að styðja fram- leiðslu- og markaðsmöguleika inn- lendrar framleiðslu. Markmiðin hafa öll náðst nema eitt. Sam- kvæmt tölum úr könnunum Hag- stofunnar frá 2002-2006 lækkaði verð á gúrkum um 31%, tómatar lækkuðu um 43% og paprikan um 55%. Framleiðsla jókst á gúrkum um 50%, tómötum um 72% en að- eins um 6% á paprikum. Vegna m.a. fjármagnskostnaðar hefur það markmið að treysta afkomu grænmetisframleiðenda ekki náðst að fullu. Framleiðsla grænmetis og blóma krefst mikillar orku. Í sam- anburði við aðra atvinnustarfsemi þá er garðyrkjan í 4. sæti á eftir fiskimjölsverksmiðjum, bygginga- starfssemi (tölur fyrir hrunið) og mjólkuriðn- aði. Öll notkun í salt- fiskframleiðslu og mjólkuriðnaði er rúm- lega heildarnotkun garðyrkjunnar. Sam- anlögð orkunotkun í sláturhúsum, kjötiðn- aði, brauð- og köku- gerð, drykkjarvöruiðn- aði og fóðurframleiðslu er á við notkun í garð- yrkju. Ég staðhæfi því að garðyrkjan sé stórnotandi raf- orku. Garðyrkjan er atvinnuskapandi Garðyrkja er mannfrek atvinnu- grein. Í dag hafa tæplega 900 manns lífsafkomu sína af garðyrkju auk afleiddra starfa. Á tímabilinu apríl-nóvember útheimtir útiræktun grænmetis mikinn mannafla. Það er hætta á því að þau störf glatist að hluta ef fyrirtækjum vegnar illa í niðurskurði ríkisins. Í frjórri um- ræðu sem fylgdi hruninu síðastliðið haust var töluvert rætt um nýsköp- un í atvinnulífinu og að styrkja ís- lenska framleiðslu. Sérstök áhersla var á matvæli í þessu sambandi og oft minnst á garðyrkju. Í svona stöðu má velta því fyrir sér hvort vilji sé til þess að framleiða íslenskt grænmeti. Garðyrkjan er gjaldeyrissparandi Á síðasta ári var flutt inn græn- meti fyrir 1,6 milljarða króna (FOB-verð) og af því voru tómatar, gúrkur og paprikur að verðmæti 340 milljónir króna en 58% af seldu grænmeti eru innflutt. Framleiðsla blóma í gróðurhúsum á Íslandi ann- ar nánast allri eftirspurn. Garð- yrkjubændur hafa verið viljugir að auka framleiðslu sína til þess að mæta mikilli og stöðugri eftirspurn neytenda eftir íslensku grænmeti og blómum. Ríkisstjórnin hætti við stórhækkun Stjórn Sambands garðyrkju- bænda krefst þess að landbún- aðarráðuneytið dragi til baka þá fyrirætlan sína að hækka raf- magnskostnað garðyrkjubænda um 25%. Óttast SG að annað tveggja muni gerast; að verð til neytenda hækki eða gjaldþrot í garðyrkju blasi við. Það eina sem garð- yrkjubændur fara fram á er að rekstrarumhverfi þeirra verði ekki raskað með afgerandi hætti eins og nú stefnir í. Vegna mikilla fjárfest- inga er það krafa garðyrkjubænda að þeir hafi möguleika á að gera áætlanir til langs tíma þegar þær eru metnar til þess að auka fram- leiðslu. Hættan er sú að duglegir garðyrkjubændur hreinlega gefist upp og hætti rekstri. Ég fullyrði að Ísland hafi ekki efni á því. Ríkið grefur garð- yrkjubændum gröf Bjarni Jónsson fjallar um garð- yrkjubændur og rafmagnsverð Bjarni Jónsson » Stjórn Sambands garðyrkjubænda krefst þess að landbún- aðarráðuneytið dragi til baka þá fyrirætlan sína að hækka rafmagns- kostnað garðyrkju- bænda um 25%. Höfundur er framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda. @ Fréttirá SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.