Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Íslendingarhafa fullaástæðu til að vera ánægðir með niðurstöður leið- togafundar Atl- antshafsbanda- lagsins, NATO, í Frakklandi og Þýzkalandi. Undanfarin ár hafa stjórn- völd í norrænum aðildar- ríkjum NATO haft nokkrar áhyggjur af því að bandalagið beini sjónum um of til suðurs og austurs, en vanræki sitt gamla kjarnasvæði, Norður- Atlantshafið. Þar hafa mál hins vegar þróazt þannig, meðal annars vegna hlýnunar loftslags, að óvissa um fram- tíðina hefur aukizt. Kapp- hlaup um yfirráð yfir auðlind- um virðist yfirvofandi, jafnframt aukin olíu- og gas- vinnsla á norðurslóðum og stóraukin skipaumferð. Allt hefur þetta áhrif á öryggis- hagsmuni Íslands, Noregs og Danmerkur. Í lokaályktun leiðtogafund- arins er staðfest með skýrum hætti að NATO beinir nú aug- um til norðurs á ný. Þar er tekið fram að athyglin beinist nú að málefnum norðurslóða á nýjan leik. Íslenzkum stjórn- völdum er þar þakkað sér- staklega það frumkvæði að efna til málþings um ýmsa þróun, sem tengist öryggis- málum á norðurslóðum, þar með taldar loftslagsbreyt- ingar. Fráfarandi framkvæmda- stjóri NATO, Jaap de Hoop Scheffer, hefur sýnt mál- efnum norðurslóða umtalsverðan skilning. Nú tekur við starfi hans Anders Fogh Rasmussen, fyrsti Norðurlandabúinn í framkvæmdastjórastóli bandalagsins. Hann hefur frá fyrstu hendi þekkingu og skilning á þeim viðfangs- efnum, sem við er að fást í norðurhöfum, sem er auðvitað mikilsvert fyrir norrænu að- ildarríkin. Leiðtogafundur NATO fagnaði tveimur nýjum aðild- arríkjum, Albaníu og Króatíu. Leiðtogarnir undirstrikuðu sömuleiðis að bandalagið væri áfram opið öllum lýðræð- isríkjum í Evrópu. Þar með er sagt skýrt að ekki sé látið undan andstöðu Rússa við frekari stækkun bandalagsins. Mikilvægi sambandsins við Rússa er hins vegar einnig ítrekað. Þetta er rétta stefnan gagnvart Rússlandi á vett- vangi NATO; að leggja áherzlu á samstöðu og sam- vinnu, en láta rússnesk stjórnvöld ekki í neinu segja NATO fyrir verkum. Það skiptir máli fyrir nor- rænu NATO-ríkin að Rússar finni að á norðurslóðum sé ekkert öryggispólitískt tóma- rúm. Þess vegna er mikilvægt að bandalagið ítrekar skýr- lega að það hefur augun á þessum heimshluta. Nýr framkvæmda- stjóri hefur skilning á viðfangsefnunum í norðurhöfum} NATO og norðurslóðir Það er nýmæli áÍslandi að mót- mælendur fylki liði að heimilum fólks og raski fjölskyldu- friðnum. Nú hefur það ítrekað gerst á skömmum tíma. Fyrst gengu mótmæl- endur að heimili dóms- málaráðherra á sunnudegi fyrir viku og í gær að heimili for- stjóra Útlendingastofnunar, þar sem sjö voru handteknir fyrir að fara ekki að tilmælum lögreglu. Og dæmin eru fleiri frá liðnum mánuðum um að ruðst hafi verið inn í einkalíf fólks. Þetta er alvarleg þróun og hún stangast gróflega á við þau gildi sem íslenskt samfélag er reist á. Það er undirstaða heil- brigðrar samfélagsgerðar að fólki í ábyrgðarstöðum sé gert kleift að taka erfiðar ákvarð- anir og fylgja sannfæringu sinni í þeim efnum, án þess að heimilisfriðurinn sé úti og það setji jafnvel ugg að fjölskyld- unni og nánustu vinum. Höfum í huga að börn eru sérstaklega berskjölduð á slík- um stundum, sem hafa jafnvel fylgst með aðförum mót- mælenda á Aust- urvelli í byrjun árs- ins og fyllast ótta þegar mótmælendur streyma inn götuna við heimili þeirra. Ef slík framkoma verður lát- in viðgangast, þá er enginn lög- reglumaður, embættismaður, stjórnmálamaður eða blaða- maður óhultur fyrir dómstól götunnar. Vel má ímynda sér að Hæstiréttur felli dóm í erf- iðu sakamáli þar sem dómstóll götunnar er annarrar skoð- unar. Ef hæstaréttardómarar eiga það á hættu að heimili þeirra verði umsetin, þá er að- eins ein leið til þess að losna við þá ógn og það er að láta undan þessum kröfum. Almenningi ber að fordæma slík mótmæli. Óháð því hvaða mál er undir hverju sinni. Í lýð- ræðissamfélagi eru margar aðrar leiðir til þess að koma óánægju á framfæri. Og yf- irvöld gera rétt í því að tryggja að mótmælendur virði í hví- vetna friðhelgi einkalífsins. Almenningi ber að fordæma slík mótmæli} Virðum friðhelgi einkalífsins S amkvæmt skoðanakönnun Gallup hafa landsfundir Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar ekki haft í för með sér fylgisaukningu flokkanna. Þetta ætti ekki að koma neinum á óvart sem fylgdist með þessum samkundum. Á landsfundi sínum malaði Samfylkingin af ánægju yfir hverju orði formanns síns. Þar á bæ er mönnum farið að líða eins og ekkert geti skaðað þá á meðan Jóhanna Sigurðardóttir nennir að púla fyrir flokkinn. Þess vegna hefur flokkurinn ekki haft fyrir því að koma með sér- stakar lausnir í efnahagsmálum þjóðarinnar aðra en þá að segja orðið „Evrópusambandið“ nægilega oft til að fá almenning til að halda að Samfylkingin viti hvað hún ætli að gera – svona einhvern tímann seinna. Sú vonda hugs- un læðist of oft að manni að þegar til komi þá muni Samfylkingin ekki taka slaginn við vinstri-græna um Evrópumálin heldur lulla með þeim flokki í átt til ein- angrunar og afturhalds. Sjálfstæðismenn stóðu sig enn verr en Samfylkingin á sínum landsfundi. Þar voru allir svo ánægðir að vera saman að enginn nennti að horfa út fyrir Laugardalshöll- ina. Og Evrópusinnarnir í flokknum ákváðu snarlega að það væri ekki við hæfi að saurga samkomuna með því að víkja talinu að Evrópusambandinu. Það hefði bara orðið til að móðga harðlínumennina í flokknum og eyðilagt öll kokteilpartýin sem haldin voru þá daga sem landsfund- urinn stóð. Og Bjarni Benediktsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem eiga að vera fulltrúar hins nýja Sjálfstæðisflokks komu ekki fram með neitt sem skiptir máli fyrir þjóðina og létu eins og þau hefðu aldrei opnað fyrir umræðu um Evrópumálin. Og flokkurinn varð svona líka lukkulegur með það að nýi formaðurinn og varaformaðurinn væru ekki með neitt ves- en. Allir héldu kátir heim eftir vel heppnað partý. En þjóðin var engu nær. Enginn hefði veitt þessum landsfundi Sjálf- stæðisflokksins sérstaka athygli nema vegna þess að Davíð Oddsson ákvað að flytja eina af fallbyssuræðum sínum. Eins og alkunna er má Davíð ekki opna munninn án þess að fjöl- miðlar rjúki upp til handa og fóta og dembi yf- ir almenning ítarlegum fréttaskýringum um það hverja Davíð hafi móðgað. Í þetta sinn gekk Davíð svo hraustlega til verks að það tók Stöð 2 þrjár sólarhringa að gera móðgunum hans full skil. Að flestu leyti voru landsfundir Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar furðulegar samkomur. Þar gleymdist að búa til stefnumál og engin skilaboð voru send til þjóð- arinnar. En sjálfsagt hafa þetta verið afar notalegir rabb- fundir fyrir innvígða og innmúraða. Nú þykjast báðir flokkar reiðubúnir í kosningar án þess að hafa nokkurn skapaðan hlut að segja við kjós- endur. Það er ekkert einkennilegt þótt margir hafi á orði að þeir nenni vart að rölta á kjörstað til að kjósa stjórn- málamenn sem virðast ekki eiga svör við vanda þjóð- arinnar. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Furðulegar samkomur Gersemar og drasl í söfnum bankanna FRÉTTASKÝRING Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is Þ egar viðskiptabankarnir þrír fóru í þrot í fyrra- haust og ríkið yfirtók starfsemi þeirra beindu menn sjónum sínum að verðmætum listaverkasöfnum bank- anna. Sú spurning vaknaði eðlilega hvort ríkið og þar með þjóðin hefði eignast þessi listaverk. Bent var á það, að þegar ríkið seldi einkaaðilum bankana á sínum tíma, hafi lista- verkin fylgt með í kaupunum. Ýmsir töldu að það hefðu verið mistök og ríkið hefði átt að halda listaverk- unum eftir í sinni eigu. Á Alþingi voru lögð fram tvö mál þessu tengd, annars vegar frumvarp og hins vegar þingsályktunartillaga. Var það vilji flutningsmanna, að listaverkin kæmust í eigu þjóð- arinnar, enda var talið að a.m.k. sum listaverkanna væru gersemar, sem eðlilegt væri að þjóðin ætti. Þar sem verkin voru í eigu bank- anna, kom málið til kasta viðskipta- nefndar Alþingis. Að sögn Álfheiðar Ingadóttur, formanns nefndarinnar, var leitað umsagna frá mörgum að- ilum, þar á meðal bönkunum, Lista- safni Íslands, Sambandi íslenskra myndlistarmanna og listfræðingum. Einróma niðurstaða nefndarinnar var sú að leggja til við ríkisstjórnina að fram fari mat listfræðinga á lista- sögulegu og þjóðmenningarlegu gildi listaverkanna og því mati verði lokið á þessu ári. Markmiðið er að greina frá þau verk sem teljast vera þjóðargersemar og Listasafni Ís- lands verði gert kleift að eignast verkin og varðveita þau. Mörg verkanna lítils virði Einn þeirra sem gaf álit var Að- alsteinn Ingólfsson listfræðingur. Aðalsteinn sagði, í samtali við Morg- unblaðið, að hann teldi það miklar ýkjur að öll verk í söfnunum væru mikils virði. „Ég fullyrði að einn þriðji af þessum verkum er lítils virði myndlistarlega séð og sumt af þessu er raunar algert drasl,“ segir Aðalsteinn. Hann segir að vissulega séu miklar perlur í öllum söfn- unum.„Ég hef lagt til að listaverkin verði áfram í bönkunum og þeir taki ábyrgð á þeim. Listasafn Íslands hafi hins vegar óskoraðan rétt til að nota þau verk til sýninga sem það vill,“ segir Aðalsteinn. Hann varar við því að setja verkin á markað því kaupendamarkaður í dag sé ekki stór. Það yrði stór- hættulegt að setja verkin á mark- aðinn í einu lagi, þá yrði algert verð- hrun. Hugmyndir í þessa átt, sem m.a. komu fram hjá einum alþing- ismanni í vetur, væru tóm steypa. Ýmis lögfræðileg álitamál hafa komið upp varðandi listaverkin, og hafa þau verið til skoðunar hjá menntamálaráðuneytinu allt frá því bankarnir hrundu í haust. Eitt atriði sem er til skoðunar er hvort ríkið þurfi að greiða fyrir verkin, vilji það eignast þau. Upplýst hefur verið að við skipt- ingu bankanna var allt lausafé, þar á meðal listaverkin, flutt í nýju bank- ana. Það á alveg eftir að reyna á það, hvort kröfuhafar í bú gömlu bank- anna, sem nú eru í greiðslustöðvun, muni sætta sig við að verðmæti séu flutt úr búum þeirra með þessum hætti. Á þetta mun væntanlega ekki reyna fyrr en gömlu bankarnir verða annaðhvort seldir eða settir í þrot að loknum greiðslustöðv- unartímanum. Sá möguleiki er fyrir hendi að kröfuhafarnir óski eftir því að verkin verði seld svo þeir fái meira upp í kröfur sínar. Kann þetta álitamál að enda fyrir dómstólum. Morgunblaðið/Sverrir Naglfast Sum frægustu verk bankanna eru naglföst á veggjunum og fara hvergi. Þar á meðal þessar teikningar eftir Kjarval í Landsbankanum. LISTAVERKASÖFN bankanna eru mikil að vöxtum og lætur nærri að þau geymi um 4.000 verk. Listaverkasafn Landsbankans er stærst. Í því eru um 1.700 verk. Í safninu eru mörg mjög merkileg verk eftir gömlu meistarana. Til dæmis eru í safninu um 60 verk eftir Jóhannes Sveinsson Kjarval. Fyrrverandi eigendur bankans bættu um 400 verkum við safnið. Í safni Kaupþings eru um 1.200 verk sem flest voru keypt í tíð gamla Búnaðarbankans. Þar er að finna margar perlur gömlu meist- aranna. Einnig á safnið dýrmætar myndir eftir helstu málara seinni hluta síðustu aldar, svo sem Karl Kvaran, Svavar Guðnason og Þor- vald Skúlason. Á síðustu árum hefur bankinn keypt mörg verk eftir þekkta nútímamálara. Í safni Glitnis eru 1.087 verk, að stofni til úr gamla Útvegsbankanum MIKILL FJÖLDI ››

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.