Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 13
Kosningastefnuskrá Framsókn- arflokksins var kynnt í fyrradag. MEÐAL þess sem framsóknarmenn setja á oddinn í kosningabaráttunni er að vextir verði lækkaðir sem allra fyrst, að höfuðstóll húsnæð- islána og lána fyrirtækja verði lækkaður um 20%, með hugsanlegu hámarki, og afskriftir erlendra kröfuhafa renni þannig til íslenskra skuldara. Þá vilja framsóknarmenn m.a. að stjórnskipun Íslands verði endur- skoðuð á sérstöku stjórnlagaþingi um stjórnarskrá Íslands og eftir ástæðum viðeigandi lög um stjórn- sýslu, dómstóla, löggjafarstarf og kosningar. Vextir lækki Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009 Kynntu þér úrræði í greiðsluerfiðleikum www.ils.is Borgartúni 21, 105 Reykjavík Sími: 569 6900, 800 6969, fyrirspurnir@ils.is Upplýsingar er að finna á vef Íbúðalánasjóðs, www.ils.is · Samningar · Skuldbreyting vanskila · Greiðslujöfnun · Frestun afborganna · Lenging lánstíma · Greiðslufrestur vegna sölutregðu Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti Húsgögn Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 verðhrun mikið úrval af sófum og sófasettum 10-50% afsláttur af völdum vörum Eftir Andra Karl andri@mbl.is NÝJAR reglugerðir um lögreglu- stjórasátt og um sektir og önnur við- urlög við umferðarlagabrotum hafa tekið gildi. Auk þess hefur ríkissak- sóknari gefið út nýja skrá um brot sem heimilt er að ljúka með lög- reglustjórasátt. Með breytingunum er m.a. unnt að ljúka máli með sátt ef ökumaður ekur endurtekið eða veru- lega undir áhrifum áfengis eða undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sektaðir um 140 þúsund Til dæmis má taka einstakling sem ákveður að setjast undir stýri eftir notkun kannabisefna. Aki hann með 2 ng/ml af THC – sem er virka efnið í kannabis – í blóði eða meira verður honum gert að greiða 140 þúsund krónur í sekt og skila inn ökuleyfi sínu í eitt ár. Sé sami ein- staklingur með allt að 2 ng/ml af sama efni þarf hann að greiða 70 þúsund kr. í sekt og er sviptur öku- leyfi í fjóra mánuði. Einnig hafa verið ákveðin viðmið vegna annarra fíkniefna; amfeta- míns, kókaíns og MDMA. Sömu sektir liggja við neðri og efri mörk- um. Greinist ökumenn með ávana- og fíkniefni í þvagi greiða þeir 70 þúsund kr. í sekt og missa ökurétt- indi í þrjá mánuði. Viðurlög vegna ölvunaraksturs Einnig hefur verið bætt við við- urlögum vegna ölvunaraksturs. Í stað þess að skalinn næði aðeins að 1,01 prómilli eða meira hafa viðurlög verið ákveðin fyrir 2,01 eða meira. Sá sem stöðvaður var með eitt prómill fyrir áramót greiddi 160 þúsund kr. í sekt og var sviptur ökuleyfi í tvö ár. Hefði hann verið stöðvaður í dag þyrfti hann að greiða 100 þúsund kr. og mætti ekki stjórna ökutæki í átta mánuði. Fleiri mál kláruð með sátt Í HNOTSKURN »Í eldri reglugerð um lög-reglusátt var miðað við að hægt væri að ljúka málum með sátt ef viðurlög færu ekki fram úr sviptingu ökuréttinda allt að einu ári eða sektin ekki fram úr 100 þúsund kr. » Í nýju reglugerðinni er bú-ið að hækka viðmiðið í 500 þúsund kr. sekt og að við- urlögin fari ekki fram úr tíma- bundinni ökuréttindasviptingu.  Ný reglugerð um lögreglusátt hefur tekið gildi  Hægt að ljúka fleiri málum með skjótari hætti  Skýrari sektir vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna Morgunblaðið/ÞÖK Há sekt Ef blóðsýni leiðir í ljós kannabisneyslu ökumanns er hægt að sekta viðkomandi um 140 þúsund krónur. Hann missir ökuleyfi í eitt ár. Mosfellsbær | IMPRA og forsvars- menn tveggja nýsköpunarsetra í Mosfellsbæ hafa gert með sér sam- starfssamning, en vonast er til þess að verkefnin verði lyftistöng fyrir at- vinnulífið í Mosfellsbæ og nær- sveitum. Um er að ræða tvö aðskilin ný- sköpunarverkefni, V6 Sprotahús og Frumkvöðlasetur Mosfellsbæjar sem rekið verður í samstarfi við Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Setrin verða staðsett í nýuppgerðu atvinnu- húsnæði sem hefur verið innréttað sérstaklega með tilliti til þeirrar starfsemi sem þar mun fara fram. Að sögn Birgis Grímssonar, for- svarsmanns V6 Sprotahúss, er V6 Sprotahús, að því er hann best veit, fyrsta sjálfstæða og einkarekna sprotasetrið á Íslandi með þessu ákveðna sniði. Innan veggja Sprota- hússins sé að finna allt sem þarf til að gera hugmynd að veruleika og að vel reknu fyrirtæki. Á Frumkvöðlasetri verður sjónum einkum beint að úrræðum fyrir at- vinnulausa og stuðningi við við- skiptahugmyndir þeirra í samræmi við markmið frumkvöðlasetra Ný- sköpunarmiðstöðvar Íslands. Sjá nánar: www.mos.is. Ætlað að styrkja atvinnulífið Samstarf í atvinnumálum í Mosfellsbæ Ljósmynd/Hilmar Nýsköpun Aðstandendur verkefnisins undirrituðu samstarfssamning í hús- næðinu að Völuteig 6 í Mosfellsbæ þar sem setrin tvö verða til húsa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.