Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 2
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is MÁLEFNI norðurslóða fengu sinn sess í lokaályktun leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins, NATO, eftir baráttu Íslendinga og Norð- manna fyrir því. „Það var tekist töluvert á um þetta ákvæði í álykt- uninni. Við vildum að það yrði fastar að orði kveðið, en einhverjar þjóðir voru ekki alveg sammála þessu. Þetta var samt niðurstaðan og þetta er í fyrsta skipti sem lögð er áhersla á frumkvæði Íslendinga og mik- ilvægi norðurslóða með þessum hætti,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Í lokaályktuninni segir að þróunin á norðurslóðum hafi dregið að sér aukna athygli á alþjóðavettvangi. Ís- lendingar hafi átt frumkvæði að því að vekja athygli bandalagsþjóðanna á öryggismálum á norðurslóðum, ekki síst vegna loftslagsbreytinga. „Þetta skiptir miklu máli fyrir okkur því eitt af því sem var sam- þykkt á þessum fundi var að nú færu menn að ákveða framtíðarþróun bandalagsins,“ segir Össur, sem fjallaði í ræðu sinni um bráðnun heimskautaíssins, opnun nýrra sigl- ingaleiða og aðgang að nátt- úruauðlindum á hafsbotni. Tengiliður við Hvíta húsið Össur fundaði í einrúmi með for- seta Bandaríkjanna, Barack Obama, á laugardag. Þegar hann hitti for- setann í fyrsta skipti deginum áður lýsti Obama strax yfir áhuga á því Málefni norðurslóða í lokaályktun NATO Barack Obama lýsir yfir áhuga á Íslandsheimsókn að koma til Íslands í heimsókn. Á fundi þeirra vakti Össur svo máls á jarðhitamálum og kvaðst Obama þekkja til forystu Íslendinga í þeim málum. Afréðu þeir að koma upp formlegum tengilið í Hvíta húsinu við Ísland, og daginn eftir sagði Orkumál Össur Skarphéðinsson ræddi meðal annars um orkumál við Bar- ack Obama Bandaríkjaforseta á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins. Obama Össuri hvern hann hefði sett í það starf, ráðgjafa einn sem var í fylgdarliði hans. „Þeir vita af okkar þekkingu og reynslu. Þarna eru ákveðin tæki- færi. Hann var kappsamur um að nýta þessa reynslu,“ segir Össur. |15 2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009 segðu smápestum stríð á hendur! Fæst í apótekum og heilsubúðum um land allt. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is SJÖ voru handteknir úr hópi 20-30 sem mótmæltu fyrir utan heimili Hauks Guðmundssonar, forstjóra Útlendingastofnunar, í gær. Að sögn vitna fóru mótmælin frið- samlega fram þar til lögregla bað mótmælendur um að yfirgefa vett- vang. Sjö létu fyrirmæli lögreglu sér í léttu rúmi liggja og voru handteknir í kjölfarið. Í tilkynningu segir að mótmæla hafi átt meðferð íslenskra stjórn- valda á hælisleitendum á Íslandi. Mótmælendur höfðu einnig átt fund með Hauki um málið í liðinni viku. Haukur var ekki heima þegar mótmælendur bar að garði. „Ég var búinn að ákveða að láta hvorki halda mér í gíslingu á heimili mínu né flæma mig burt af því. Ég var einfaldlega í fermingarveislu eins og svo margir aðrir á þessum degi og ákvað að láta þetta ekki á mig fá.“ Haukur segir tilganginn ekki geta helgað meðalið í þessum efn- um. „Burtséð frá málstaðnum, sem kann að hafa ýmislegt til síns ágæt- is, þá getur samfélagið ekki liðið að fólk safnist saman fyrir utan heimili einstakra manna sem fást við erfið mál, hvort sem það eru dómarar, lögreglumenn eða blaðamenn. Slíkt getur bara endað með ósköpum.“ Forstjórinn í fermingarveislu Morgunblaðið/Jakob Fannar Handtaka Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók sjö manns úr hópi 20-30 sem mótmæltu við heimili forstjóra Útlendingastofnunar í gær. Ekki kom til átaka milli lögreglu og mótmælenda.  Á þriðja tug manna mótmælti fyrir utan heimili forstjóra Útlendingastofnunar  Segir ekki geta liðist að fólk safnist saman við heimili einstakra manna AÐFARANÓTT sunnudags var ráðist á mann á þrítugsaldri við strætóskýlið til móts við Stjórn- arráðið í Lækj- argötu í Reykja- vík. Maðurinn ligg- ur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítala en er kominn úr önd- unarvél. Karlmaður var handtekinn í gær vegna gruns um stórfellda líkams- árás og játaði hann aðild sína að henni. Vitni gaf sig fram við lög- reglu og leiddi vitnisburður þess til handtöku mannsins. Liggur þungt hald- inn á gjörgæslu „Þetta var ekki neinn formlegur fundur. Ég og breski for- sætisráðherrann höfum nú ekki verið að hlaupa upp um hálsinn hvor á öðrum,“ segir Össur, sem hitti Gordon Brown stuttlega á leiðtogafundi NATO. Ekki gafst færi á að ræða við Brown um skýrslu fjárlaganefndar breska þingsins um hrun íslensku bankanna. „Hann var í hópi með Nicolas Sarkozy og Steve Harper frá Kanada þegar við hittumst. Við gengum í flasið hvor á öðrum svo ekki var annað hægt en að heilsast. Ég ætlaði mér að ná tali af þeim betur, honum og David Miliband utanríkisráðherra, en þessi fundur tafðist mikið vegna stimpinga að tjaldabaki í tengslum við kjörið á nýjum framkvæmdastjóra bandalagsins. Þessir menn voru meira og minna á fundum til að leysa það mál. Dagskránni seinkaði allri svo ekki gafst tóm til að ræða við ýmsa sem við vorum búnir að setja upp fundi með.“ Ekki gafst færi á Gordon Brown Gordon Brown ELDUR kviknaði í gaskút í Aspar- felli laust fyrir níu í gærkvöld. Hús- ráðandi, Magnea Norðquist Magneu- dóttir, var að grilla en hafði brugðið sér inn. ,,Skyndilega hrópaði eldri sonur minn að það væri kviknað í grillkútnum!“ segir Magnea. Hún hraðaði sér út á svalir og sá þá að kút- urinn stóð í ljósum logum. ,,Ég reyndi að kæfa eldinn með mottum sem voru á svölunum en það var þýðingarlaust. Ég bað þá strákana mína tvo og bróð- urdóttur að taka símann og koma sér út. Við hringdum svo í 112,“ segir hún. Síðan barði hún á dyrnar hjá ná- grönnunum og bað þá að fara niður í anddyri því hún óttaðist að kúturinn gæti sprungið. ,,Ég var skelfingu lost- in því eldurinn var mikill.“ Magnea segir að slökkvilið hafi verið snöggt á vettvang. ,,Það gekk vel að slökkva í og ekkert skemmdist nema motturn- ar tvær.“ Kúturinn sprakk ekki og stendur enn á svölunum. Ég ætla að losa mig við hann við fyrsta tækifæri og ætla ekki að grilla í bráð. Að minnsta kosti ekki með gasi!“ segir Magnea. sigrunerna@mbl.is Gaskúturinn í ljósum logum  Kviknaði í meðan húsráðandi var að grilla  Grillar ekki með gasi í bráð Morgunblaðið/Kristinn Bruni Húsráðandi reyndi að kæfa eldinn með mottum, án árangurs. ÞRJÁR pakkningar fíkniefna hafa skilað sér frá belgískum karlmanni sem situr í gæsluvarðhaldi vegna tilraunar til innflutnings á fíkniefn- um. Pakkningarnar eru nú hjá tæknideild lögreglunnar sem sér um að vigta og efnagreina. Áfram verður fylgst vel með manninum. Maðurinn kom til landsins á fimmtudag. Hann var stöðvaður og handtekinn í Leifsstöð en slapp úr haldi lögreglu á leið í gegnumlýs- ingu. Maðurinn fannst á nýjan leik á föstudagsmorgun. Maðurinn var með efni innvortis, bæði sem hann hafði gleypt og geymt í endaþarmi. Fíkniefnin eru á hægri niðurleið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.