Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is RÁÐIST verður í endurskoðun og breytingar á almannatryggingakerf- inu eftir kosningar ef marka má stefnuyfirlýsingar og áherslur stjórnmálaflokkanna í velferð- armálum. Þannig hljóma að minnsta kosti loforð flestra flokka, án þess að þau séu yfirleitt útfærð í þaula. Eftir bankahrunið hefur áhersla verið lögð á að verja grunnþjón- ustuna og bíður stjórnvalda ærið verkefni í þeim efnum; að tryggja fjármagn til að halda velferð- arkerfinu gangandi og verja stöðu hinna verst stöddu. Um miklar fjárhæðir er að ræða en samkvæmt gildandi fjárlögum eru greiðslur vegna trygginga, bóta og félagslegrar aðstoðar áætlaðar hið minnsta um 100 milljarðar króna, eða um fimmtungur allra fjárlaganna. Útgjöld til heilbrigðismála eru áætl- uð um 120 milljarðar króna. Niðurskurður ekki vinsæll Tillögur um breytingar á heil- brigðiskerfinu eru hins vegar ekki fyrirferðarmiklar en sem kunnugt er hefur sá málaflokkur verið mikið í umræðunni í vetur. Í byrjun árs kynnti Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra um- fangsmiklar tillögur til að taka á vandanum en arftaki hans, Ögmund- ur Jónasson, hefur meira og minna afturkallað eða breytt þeim áform- um, um leið og boðuð hefur verið kjaraskerðing hjá heilbrigðisstarfs- fólki. Skera þarf niður um sjö millj- arða á þessu ári og enn meira á því næsta. Í þessum stærsta útgjaldalið rík- isins blasir því við sársaukafullur nið- urskurður en í fljótu bragði virðist Sjálfstæðisflokkurinn sá eini sem nefnir niðurskurð yfirleitt á nafn. Tekur flokkurinn fram að nið- urskurðurinn megi ekki bitna á ör- yrkjum, lífeyrisþegum og hinum efnaminni og líkt og hjá flestum öðr- um flokkum er talað um að tryggja beri jafnan aðgang að heilbrigð- isþjónustunni og heilsugæslunni í landinu. Bæði Vinstri grænir og Samfylk- ingin nefna aukið samstarf við sveit- arfélögin og að þau beri að efla í sinni grunnþjónustu í mennta- og velferð- armálum. Borgarahreyfingin nefnir velferð- armál ekki sérstaklega á nafn í sinni stefnuyfirlýsingu þó að vafalítið hafi hreyfingin skoðun á þeim. L-listi full- veldissinna hefur sem kunnugt er dregið framboð sitt til baka. Allir vilja verja velferðina  Endurskoðun almannatryggingakerfisins er fyrirferðarmikil í stefnu flokkanna  Áhersla lögð á að verja grunnþjónustuna en lítið ber á tillögum um niðurskurð Velferðarkerfið og heilbrigðismál Áherslur flokka fyrir þingkosningar 25. apríl 2009 X-B Framsóknarflokkurinn X-D Sjálfstæðisflokkurinn X-F Frjálslyndi flokkurinn X-S Samfylkingin X-O Borgarahreyfingin X-V Vinstrihreyfingin – grænt framboð Tryggja hag öryrkja, fatlaðra og aldraðra með lægstar tekjur. Endurskoða almannatryggingakerfið og einfalda, m.a. í samráði við lífeyrissj. Draga úr tekjutengingum og skerðingum bóta örorku- og ellilífeyrisþega. Tryggja jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu, óháð búsetu og efnahag. Styrkja enn frekar uppbyggingu núverandi hátæknisjúkrahúsa. Efla heilsugæsluna og ná niður lyfjakostnaði. Hugsa heilbrigðis- og menntamál upp á nýtt og útvista verkefnum og þjónustu. Við niðurskurð verði tekið tillit til öryrkja, lífeyrisþega og þeirra efnaminni. Dregið úr millifærslum til þeirra sem geta séð sér og sínum farborða. Sveitarfélög hvött til að stuðla að frekari samfellu í skóla- og íþróttastarfi. Innflytjendur og fatlaðir njóti jafnra tækifæri á við aðra í þjóðfélaginu. Foreldrajafnrétti verði tryggt með breytingu á barnalögum. Rík áhersla á að fólki sé hjálpað til sjálfshjálpar. Verja þarf heilbrigðisþjónustuna með ráðum og dáð. Stjórnkerfi heilbrigðiskerfisins verði endurskoðað og fjármunir vel nýttir. Standa ber vörð um hag fjölskyldna. Atvinnulaust fólk hvatt til að stunda vinnu með samfélagslegu markmiði. Sett verði á stofn víðtæk aðstoð við atvinnulausa um allt land. Auka hlutverk sveitarfélaga í þjónustu við börn, fatlaða, aldraða og fjölskyldur. Endurskoða styrkjakerfi barnagreiðslna frá almtryggingum og skattkerfi. Gera börnum kleift að stunda íþróttir og listnám án tillits til efnahags. Hraða endurskoðun almannatryggingakerfisins og einfalda það. Endurskoða örorkumat, einnig með tilliti til möguleika og getu fólks. Tryggja aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag og búsetu. Minnka greiðsluþátttöku almennings í heilbrigðisþjónustu, s.s. vegna lyfja. Verja störf í heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Efla sveitarfélög og styrkja grunnþjónustu í mennta- og velferðarmálum. Tryggja að kreppan bitni ekki á börnum og ungmennum. Taka upp gjaldfrjálsar og hollar skólamáltíðir í grunnskólum landsins. Hækka atvinnuleysisbætur fjölskyldu- og barnafólks. Standa vörð um grunnheilsugæslu og tryggja aðgang að heilbrigðisþjónustu. Í HNOTSKURN »„Standa vörð um“ er al-gengt orðalag í stefnu- skrám flokkanna um velferð- armálin. Ef þeim orðum er slegið upp í Google-leitarvél- inni koma þau upp 52 þúsund sinnum, oftar en „það er alveg ljóst“. »Hér til hliðar er aðeinstæpt á helstu áherslum en flestir flokkar hafa mun fleiri tillögur fram að færa. »Á morgun verður fjallaðum ESB og myntmálin. Meirapróf Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 Næsta námskeið byrjar 15. apríl 2009 SKÍÐAMAÐURINN sem sóttur var af þyrlu Landhelgisgæslunnar á laugardag er á batavegi og er ástand hans gott, samkvæmt upp- lýsingum frá Landspítalanum. Sóttur af þyrlu Maðurinn var staddur ásamt gönguskíðahópi við Dúfunefsfell, sem er um 6 kílómetra norðaustur af Hveravöllum. Hafði hann fengið aðsvif og sjóntruflanir og var kallað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar því ekki þótti ráðlegt að bíða með læknisaðstoð. Sótti þyrla Landhelg- isgæslunnar, TF-EIR, þá manninn og lenti hún við Landspítalann – há- skólasjúkrahús í Fossvogi um klukkan átta á laugardagskvöldið. Var þetta annað útkall gæsl- unnar þann daginn, en áður hafði hún sinnt útkalli vegna Krist- bjargar HF-177 sem var vélarvana við Krísuvíkurbjarg. Skíðamaðurinn á batavegi Sóttur Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti skíðamann. GÖNGUHÓPURINN Göngum, göngum gekk yfir Fjarðarheiði á laugardag. Gengið var frá Seyð- isfirði og tók ferðin fjóra og hálfa klukkustund, en leiðin er 27 km. Tuttugu og þrír gengu að þessu sinni. Hópurinn áði við sæluhús og fékk sér nesti í blíðskaparveðri. Björgunarsveitin Ísólfur fylgdi hópnum eftir. Ákveðinn tilgangur Gönguhópurinn ætlar að ganga ársfjórðungslega yfir heiðina og var þetta fyrsta ganga ársins. Hóp- urinn, sem var stofnaður síðastliðið haust, segir tilganginn vera að vekja athygli á þessum hættulega fjallvegi og þörfinni fyrir verulegar samgöngubætur, sem felist í jarð- göngum til nærliggjandi þétt- býlisstaða. sigrunerna@mbl.is Gengið yfir Fjarðarheiði Dugnaður Hópurinn gekk 27 km. Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is TRYGGVI Þór Herbertsson, hagfræð- ingur, segir að ríflega 1.000 manns hafi sótt um greiðsluerfiðleikaaðstoð frá Íbúðalánasjóði á fyrstu þremur mán- uðum ársins. „Þetta er víst algjör sprengja,“ segir Tryggvi Þór. Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann hefði ekki nákvæma tölu þeirra, sem sótt hafa um aðstoð að undanförnu, á takteinum. Hann taldi þó töluna sem Tryggvi nefndi ekki fjarri lagi. „Fólk sækir um þessi hefðbundnu úrræði sem Íbúða- lánasjóður hefur boðið upp á alla tíð; frystingu lána, skuldbreytingu van- skila og svo framvegis,“ sagði Guð- mundur. Þann 30. mars síðastliðinn voru sam- þykkt ný lög um greiðsluaðlögun og í greinargerð sem þeim fylgir er gert ráð fyrir að um 100-200 manns muni sækja um og þurfa greiðsluaðlögun. Lánin þiðna Tryggvi segir þessa tölu vera frá- leita og að þúsundir muni þurfa slíka aðlögun. „Það má ekki gleymast að nú eru lánin að þiðna, sem fryst voru í 4-6 mánuði strax eftir bankahrunið. Núna munu þau dynja aftur af fullum þunga á fólki og afleiðingarnar geta orðið al- varlegar.“ Margir óska eftir aðstoð vegna greiðsluerfiðleika Guðmundur Bjarnason Tryggvi Þór Herbertsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.