Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009 Einbeiting Vöruhönnuðir sýndu hvers þeir eru megnugir síðastliðinn laugardag þegar þeir leystu ýmis vandamál hversdagsins á klukkustund. Kristinn Hildur Helga Sigurðardóttir | 4. apríl Og hvað með það? Er ástæða til þess að sjá ofsjónum yfir launa- greiðslum til Evu Joly, eða aðstoðarfólks henn- ar? Ekki geri ég það. Hélt einhver að manneskjan ætlaði að stinga sér í þennan haug ókeypis? Af því að við er- um svo krúttleg og sæt? Því miður er tími Íslands sem alheimskrútts bara ein- faldlega liðinn. Var hvort sem er aldrei til nema í okkar eigin hugskoti. (Reyndar ekki mínu, en sumra …) Hvað voru þeir annars aftur margir, milljarðarnir, sem bankaráðsmenn gömlu bankanna voru búnir að soga út úr þeim þegar þeir féllu ? Jú, 150 og „óvíst með heimtur krafna“. Spyr eins og börnin: „Má það?“ Eftir allt sem á undan er gengið, eig- um við að vera hneyksluð á því að Eva Joly skuli eiga að vera á því sem varla flokkast undir sendlakaup 2007? Og að- stoðarmaðurinn með 6,7 millur yfir tólf mánuði? Þetta fólk er að fara að takast á við eitt erfiðasta - og mikilvægasta - verk- efni í sögu íslenska lýðveldisins. Meira: hildurhelga. blog.is Sigurður Ingólfsson | 4 apríl Og hver er svo eftirtekjan? Við Íslendingar höfum ekki séð hann svartari í langan tíma. Fyrir rúmu hálfu ári vissum við ekki betur en að allt væri í stakasta lagi. Nú sjáum við ekki til botns í skuldafeninu. Sem betur fer tókst að mynda nýja stjórn sem gat tekið að sér björgunaraðgerðir eftir strand þjóð- arskútunnar. Það hefur aldrei gefist vel að þeir sem eftir standa hálflamaðir á strandstað taki þau verkefni að sér. Þau hafa þó verið að mestu leyti hjálp- söm, undanskilið er málþófið um stjórnarskrána og stjórnlagaþingið sem leiðir til þess að kosningabaráttan verður í skötulíki, en í dag eru tæpar þrjár vikur til þeirra. Meira: siggus.blog.is Ómar Ragnarsson | 4 apríl Styttri fermingarathafnir Alltaf er jafn ánægjulegt að vera viðstaddur já- kvæðar kirkjuathafnir með skírn, fermingu eða brúðkaup sem meg- instef. Þetta átti við í morgun þegar bráð- efnilegur og góður dóttursonur var fermdur. Fermingarguðsþjónusturnar hafa þó þá sérstöðu að þar koma margfalt fleiri við sögu en í hinum tveimur og þar af leiðandi vilja þær verða miklu lengri. 18 fermingarbörn fermdust með dóttursyni mínum í dag og athöfnin stóð alls í hálfa aðra klukkustund. Lengsti kaflinn var þegar nær allir kirkjugestir gengu til altaris með ferm- ingarbörnunum, tveimur og tveimur í einu. Kirkjubekkir eru nokkurn veginn einu sætin sem boðið er upp á í íslenskum samkomuhúsum sem hægt er að líkja við pínubekki. Ég tel að ferming- arathafnir gætu orðið ánægjulegri ef þær væru ekki svona óskaplega langar. Meira: omarragnarsson.blog.is STJÓRNENDUR fyrirtækja standa nú frammi fyrir erfiðari rekstrartímum en elstu menn muna – og að öllum líkindum erfiðari en yngstu þegnar þessa lands munu nokkurn tíman þurfa að glíma við. Þær efnahagslegu hamfarir sem nú ríða yfir viðskiptalíf veraldar verða vonandi algjört einsdæmi í hag- fræðisögu heimsins. Vissulega lær- dómsrík lexía – en afar dýrkeypt nám. Verkefnin sem blasa við atvinnu- rekendum nú eru ærin. Mörg fyrirtæki eru þegar fallin, önnur á hnjánum og enn fleiri styðjast við hækjur. Okkar bíður það verkefni að reisa við ís- lenskt viðskiptalíf – finna á ný þann kraft sem í okkur býr og endurreisa orðspor okkar. Stað- reyndin er nefnilega sú að þó langflestir sem stunda viðskipti geri það eftir bestu sannfæringu og reki sín fyrirtæki af myndugleik, þá hefur orð- spor allra sem tengjast íslensku viðskiptalífi beðið mikinn hnekki. Framferði fárra hefur svert ímynd stéttarinnar – okkar allra sem vinnum við verslun og viðskipti. Skyndilega tilheyrum við einhverri stétt sem á að hafa það að aðalmarkmiði að greiða sér of- urlaun, keyra á lúxusjeppum, fara í frí í einkaþot- um og snekkjum, „víla og díla“ fram og til baka – til þess eins að geta tekið enn hærri lán, grætt enn meira og borgað út enn hærri arð. Þessu neita ég einfaldlega að sitja undir ... og lái mér hver sem vill! Íslenskir atvinnurekendur eru upp til hópa harðduglegt fólk, sem hefur það eitt að leiðarljósi, að gera sitt besta fyrir fyrirtæki sitt, starfsfólk og viðskiptavini. Íslenskir atvinnurekendur eru hins vegar ekki englar með hvíta vængi og innan okkar raða eru menn sem hafa dottið illa á siðferðissvell- inu og munu væntanlega taka afleiðingum gjörða sinna. En þegar rætt er um framkomu þessara að- ila þá krefst ég þess, að það sé ekki gert undir for- merkjum íslenskra atvinnurekenda. Fyrir hönd þeirra hundruða atvinnurekenda sem leggja metn- að sinn í að skapa störf, borga mannsæmandi laun og veita viðskiptavinum sínum góða þjónustu fráb- ið ég mér að vera skipað á bekk með þeim sem stjórnast hafa af allt öðrum hvötum í sínum rekstri. Engu að síður átta ég mig á því að við, sem enn er- um uppistandandi, þurfum að ná sáttum við ís- lensku þjóðina og vinna traust hennar á ný. Það gerum við best með því að sýna henni að við erum traustsins verð. Hinir, sem liggja kylliflatir á svell- inu verða hins vegar að gera mun meira en það. Þó vissulega sé áhugavert að horfa í baksýnis- spegilinn og reyna að skilja hvernig og hvers vegna „heimurinn hrundi“ með ógnarhraða síðastliðið haust er mun brýnna fyrir okkur sem rekum fyr- irtæki að horfa fram á veginn og leita lausna. Stjórnvöld munu nefnilega ekki – og eiga ekki – að koma með allar lausnirnar. Þau einfaldlega geta það ekki. Og gildir þá einu hvaða flokkar taka við stjórnartaumunum eftir kosningar í vor Stjórnvöld sitja nú uppi með flesta banka landsins – beint eða óbeint – og innan þeirra ógrynni af fyrirtækjum sem ýmist eru í vanda eða komin í þrot. Þetta er ekki óskastaða fyrir stjórnvöld – en staðreynd engu að síð- ur, sem ytri aðstæður og/eða slæmar ákvarðanir stjórnenda þessara fyr- irtækja hafa valdið. En það á ekki að bjarga öllum þessum fyrirtækjum. Mörgum þessara fyrirtækja hefur verið illa stjórnað í áraraðir. Þau hafa valdið vandræðum úti á markaðnum og skekkt samkeppnina undanfarin misseri. Þessi fyrirtæki eiga því að fara í þrot. Fyrirtæki hafa alltaf – og munu alltaf verða gjaldþrota. Það er bara gangur lífsins. Það væri mjög óeðlilegt í kreppu, ef það á að bjarga öllum. Gagnsæi er hinsvegar gríðarlega mikilvægt þeg- ar þessi mál eru annars vegar. Það verður að vera kristaltært að sömu sjónarmið verði látin ráða þeg- ar kemur að ákvörðunum um björgun eða brot- lendingu fyrirtækja. Allar ákvarðanir varðandi fyr- irgreiðslur og sölumeðferð verða að vera hafnar yfir allan vafa á meðan þessi fyrirtæki eru í eigu stjórnvalda. Við, sem erum í rekstri, gerum a.m.k. þá höfuðkröfu að fyrirtæki sem hafa hagað sér með óábyrgum hætti, komi ekki hvítskúruð út á mark- aðinn aftur í eigu sömu eigenda – í samkeppni við okkur enn á ný – eftir að hafa gengið í gegnum skuldaskúringarvélar bankanna. En hversu hæfir eru núverandi eigendur bank- anna til að vega og meta fyrirtæki og markaðinn í heild? Búa stjórnvöld yfir nægri reynslu af rekstri fyrirtækja? Ef litið er til nýafstaðinna prófkjöra er ljóst að þekking á íslensku viðskiptalífi verður skelfilega lítil á Alþingi eftir kosningarnar í vor. Það gerir hlutverk viðskiptalífsins sjálfs í endur- reisninni enn mikilvægara. Því miður virðist sem það hvarfli vart að fólki með víðtæka viðskipta- og rekstrarreynslu að fara í stjórnmál. Virðast margir líta á almenna þingmennsku sem frekar illa launað en annasamt starf sem þar að auki krefjist þess að menn afsali sér öllu einkalífi. Þetta er mjög alvar- leg staða. Það er ákaflega slæmt, að fólk með reynslu og þekkingu af viðskiptalífinu gefi ekki kost á sér í framboð. Þingheimur er með allt of einsleitan bakgrunn og hljóta allir stjórn- málaflokkar að hafa áhyggjur af því. Það hlýtur að vera kominn tími til, að kerfið sé hugsað upp á nýtt – með það fyrir augum að auka virkni og framleiðni alls þingheims. Á Alþingi á að sitja okkar hæfasta og besta fólk á hverjum tíma – og þá verða kjörin og aðstaðan að vera með þeim hætti, að okkar hæf- asta fólk sækist eftir að sitja þar. Þannig er það ekki í dag. En kapp er best með forsjá. Það hljótum við að hafa lært. Endurnýjun – bara endurnýjunarinnar vegna – er hættuleg. Á tímabili var tónninn í þjóð- félagsumræðunni sá að allir sem á einhvern hátt hefðu komið nálægt einhverju yrðu að víkja. En með því væri þjóðfélagið að kasta á glæ gríð- arlegum mannauði og þekkingu. Endurnýjun verð- ur að eiga sér stað samhliða reynslu – annars verð- um við stöðugt að finna upp hjólið. Þar að auki verður það að teljast afar ólíklegt að á þessu litla landi leynist „99 hreinar meyjar“ sem legið hafa í dvala undanfarin ár; fólk sem hefur ekki staðið í neinum framkvæmdum en getur nú skyndilega stigið fram og leyst okkar vanda. Við erum öll pikk- föst í þessu ástandi og verðum öll að leggja okkar af mörkum – hvort sem við tókum þátt í hinum svo- kölluðu veisluhöldum eða ekki! Það getur enginn verið stikkfrí. Skilaboðin til stjórnvalda eru því skýr: Við verðum að vinna að því saman að koma ís- lensku þjóðinni út úr kreppunni. Við höfum hvorki tíma né orku í að tortryggja hvert annað. Við þurf- um að forgangsraða verkefnum; bjarga þeim fyrir- tækjum og störfum sem nú þegar eru til staðar – og hefjast síðan handa við að skapa ný störf. Það er nefnilega til lítils að hamast við að skapa ný störf á einum stað, ef við missum jafnharðan út álíka mörg störf annars staðar. Við verðum að stoppa hrunið og treysta undirstöðurnar áður en við getum farið að byggja upp á ný. Lögmálið á bak við fyrirtækjarekstur er ekkert sérlega flókið. Það þarf að afla meira en eytt er. Þetta er afar einfalt reikningsdæmi – sem getur hins vegar reynst fjári snúið þegar á hólminn er komið. Nú er staðan þannig að allt of margir óhag- stæðir þættir í þessu reikningsdæmi eru utan vald- sviðs viðskiptalífsins sjálfs; himinháir vextir, dauð- vona króna, gjaldeyrishömlur, verðbólga og skertur kaupmáttur, svo eitthvað sé nefnt. Það þarf því vart að koma á óvart við að fyrirtæki grípi til uppsagna og lækki laun og starfshlutfall við þessar aðstæður. Laun eru einn stærsti gjaldalið- urinn – og oft sá eini sem fyrirtækin hafa á valdi sínu. Þau eru ekki skilin eftir með marga aðra val- kosti. Ég met stöðuna þannig að við séum í boðhlaupi – öll í sama liði – þar sem stjórnvöld eiga fyrsta sprettinn. Í sínum spretti verða þau að lækka vexti og verðbólgu, koma jafnvægi á krónuna og losa um gjaldeyrishöftin. Þá mun ekki standa á íslenskum fyrirtækjum að taka við kyndlinum, hefja fram- kvæmdir og ráða fólk til starfa. Þriðja sprettinn tekur síðan almenningur í landinu. Lokasprettinn á hins vegar æskan og framtíðin og hún mun vonandi koma okkur sigri hrósandi í mark. Ísland á að vera í fremstu röð – og þangað eigum við öll að stefna! Eftir Margréti Kristmannsdóttur » Fyrir hönd þeirra hundraða atvinnurekenda sem leggja metnað sinn í að skapa störf, borga mannsæmandi laun og veita viðskiptavinum sínum góða þjónustu frábið ég mér að vera skipað á bekk með þeim sem stjórnast hafa af allt öðrum hvöt- um í sínum rekstri. Margrét Kristmannsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Pfaff og formaður SVÞ og FKA. Endurreisn atvinnulífsins BLOG.IS Lára Hanna Einarsdóttir | 5 apríl Sjokkerandi Silfur Ætli stór hluti áhorfenda Silfursins þurfi ekki áfallahjálp núna. Það kæmi mér ekki á óvart. Reyndar kom fátt fram sem ekki hefur verið sagt áður af ýmsum Íslend- ingum, bæði á netinu og annars staðar. Ég nefni t.d. Jón Steinar á blogginu sínu og fleiri og fleiri. Og hægt hefur verið að horfa á myndir eins og Zeitgeist og ýmis myndbrot á YouTube um alls konar svona mál víða um heim. Meira: larahanna.blog.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.