Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is SKULDABRÉF Stoða/FL Group, sem Glitnir keypti úr tveimur sjóð- um sínum með stuðningi Geirs H. Haarde og Árna Mathiesen í lok september síðastliðins, eru að mestu töpuð. Bréfin voru á sínum tíma keypt fyrir 11,9 milljarða króna en samkvæmt frumvarpi að nauðasamningum sem Stoðir/FL Group hafa lagt fram munu þeir sem eiga óveðtryggða kröfu á félag- ið fá eina milljón króna greidda upp í kröfuna og fimm prósent af af- gangi hennar breytt í almenn hluta- bréf í félaginu. Það þýðir að 95 pró- sent af kröfunni, mínus ein milljón króna, eru að öllum líkindum töpuð. Tapið mun lenda á skilanefnd Glitn- is, og þar með erlendum kröfuhöf- um bankans. Árni Tómasson, formaður skila- nefndar Glitnis, staðfestir að skuldabréfin muni breytast í al- mennar kröfur. „Endurgjaldið mið- ast þá við nauðasamningafrumvarp- ið sem þýðir í raun að fimm prósent af kröfunum koma til baka. Það sem er eftir er einhver vonarpeningur sem ræðst á því að það gangi mjög vel að selja eignir félagsins.“ Þriðjungur í sjóðum Glitnis Stoðir/FL Group gáfu alls út skuldabréf að andvirði 65 milljarða króna. Um 75 prósent allra skulda- bréfa félagsins eru án veða og fá endurgjald miðað við nauðungar- samningana, eða fimm prósent af kröfu sinni. Mikið af þessum bréf- um rataði inn í peningamarkaðs- sjóði íslenskra fjármálafyrirtækja. Þar af var þriðjungur allra útgef- ina skuldabréfa Stoða/FL Group í sjóðum Glitnis, en félagið var lang- stærsti einstaki eigandi Glitnis þeg- ar bankinn féll. Milduðu högg sjóðsfélaga Líkt og sagt var frá í Morgun- blaðinu 8. janúar ákvað stjórn Glitn- is að kaupa út öll skuldabréf Stoða/ FL Group úr tveimur sjóðum bank- ans, Sjóði 1 og Sjóði 9, á fundi þann 30. september 2008. Ríkið hafði þá tilkynnt að það ætlaði að eignast 75 prósent hlut í bankanum til að hann gæti starfað áfram. Það dugði hins vegar ekki til og Glitnir féll viku síð- ar. Heildarvirði skuldabréfa Stoða/ FL Group í sjóðunum tveimur var á þeim tíma 22 milljarðar króna, en ákveðið var að Glitnir fengi að kaupa þau út á 11,9 milljarða króna. Þetta var gert til þess að hægt væri að opna aftur fyrir viðskipti í sjóð- unum án þess að sjóðsfélagar tækju á sig of stórt tap vegna falls Stoða/ FL Group. Glitnir ákvað því að nið- urgreiða tapið í þeirri von að það væri ekki endanlegt. Nú hefur hins vegar komið í ljós að fjármunirnir eru að mestu tapaðir. Stoðabréfin úr Sjóði 9 að mestu töpuð  Glitnir keypti skuldabréf Stoða/FL Group úr Sjóði 9 á 11,9 milljarða króna  Samkvæmt nauðasamn- ingum félagsins verður hægt að endurheimta fimm prósent af kröfunni  Restin er „vonarpeningur“ Morgunblaðið/Heiddi Vonarpeningar Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis. Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is SAMRÆMD vísitala innkaupastjóra fyrirtækja heimsins, svonefnd PMI- vísitala, hækkaði í marsmánuði síð- astliðnum. Gildi vísitölunnar hefur ekki verið hærra í fimm mánuði eða frá því í októbermánuði síðastliðn- um. Í erlendum fjölmiðlum er þeirri spurningu víða varpað fram hvort þetta sé til vitnis um að botni krepp- unnar sé náð. Ekki er að sjá að sér- fræðingar fullyrði að svo sé. Engu að síður er þetta þó almennt talið vera jákvæð vísbending um að von geti verið á bata í efnahagslífinu. Vísitala innkaupastjóra, PMI-vísi- talan (Purchasing Managers Index), byggist á fimm þáttum. Þar er um að ræða nýjar pantanir fyrirtækja, birgðastöðu þeirra, framleiðslu, af- hendingu á vörum og ástandi starfs- mannamála hjá fyrirtækjum. Þessir þættir eru vegnir mismunandi eftir áætluðu mikilvægi þeirra og til að mynda einnig eftir árstíma. Vísitalan er þannig uppbyggð að gildi yfir 50 stigum táknar, að framleiðan eykst. Gildi undir 50 stigum þýðir hins veg- ar að framleiðslan sé að dragast saman. Það er JP Morgan-fjármála- fyrirtækið sem tekur vísitölurnar saman. Í frétt Reuters-fréttastof- unnar segir að varðandi hækkun PMI-vísitölunnar í marsmánuði muni mest um hækkun hennar á evrusvæðinu, í Bandaríkjunum og Bretlandi. PMI-vísitalan fyrir heiminn í heild mældist 37,2 stig í marsmánuði, sem þýðir að framleiðslan dróst saman í mánuðinum, enda er hún undir 50 stigum. Samdrátturinn var þó ekki eins mikill og í febrúar en þá mældist vísitalan 35,8 stig. Síðast var vísital- an yfir marsgildi hennar í október. Jákvæð þróun Haft er eftir David Hensley, sér- fræðingi hjá JP Morgan, í frétt Reu- ters, að þótt PMI-vísitalan fyrir marsmánuð sé enn vel undir hinu æskilega 50 stiga marki, þá geti hún bent til þess að framleiðslufyrirtæki hafi náð botninum. Þá er haft eftir Juergen Michels, hagfræðingi hjá Citigroup í London, að engar beinar upplýsingar hafi komið fram sem segi að botni krepp- unnar sé náð. Hins vegar gefi PMI- vísitalan ákveðna von. Í meðfylgjandi töflu er sýnd PMI- vísitalan í mars fyrir nokkur ríki heims. Ekki liggja fyrir upplýsingar um þessa vísitölu fyrir Ísland.                 !  " #$% &   '( ) '' * '+ , '- + ') . '. - '* , '- ( .* +       "/  &0   12 !34 12 5 6  %  7  !   " 8  9 : '' ; '' . .) ) .) < '- ' ') - .. ; )* -       "/  &0   12 !34 12   94    7   ++ +< .+ .< '+ '<    Fyrsta hækkun í fimm mánuði  Sérfræðingar telja að hækkun svonefndrar vísitölu innkaupastjóra (PMI) í mars sé jákvæð  Óljóst hvort botninum sé náð Þann 30. september 2008 voru haldnir tveir stjórnarfundir hjá Glitni. Sá fyrri var haldinn klukkan átta að morgni. Á honum var meðal annars lagt til að Lárus Welding, þáverandi forstjóri Glitnis, fengi heimild til til að kaupa, fyrir hönd bankans, öll skuldabréf úr sjóðum Glitnis sem útgefin voru af Stoð- um/FL Group, Baugi Group og öðr- um félögum þeim tengdum fyrir allt að 35 milljarða króna. Í fundargerð, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, segir að „Lárus útskýrði að málið hefði verið stuttlega rætt við forsætisráðherra [Geir H. Haarde].“ Stjórnarmenn neituðu hins vegar tillögunni og töldu að ný stjórn skipuð fulltrúum hins nýja meirihlutaeiganda, íslenska rík- isins, ætti að taka þessa ákvörðun. Fundað á ný um kvöldið Annar fundur var haldinn um kvöld- ið og þá var tillaga um uppkaup lögð fram á ný, en þó í eilítið breyttri mynd. Nú átti bara að kaupa Stoða/FL Group bréfin með afslætti út úr sjóðunum, en bók- fært virði þeirra var þá 22 millj- arðar króna. Í fundargerð stjórn- arinnar segir orðrétt að „Lárus [Welding] mælti sterklega með því að þetta [uppkaup á bréfum Stoða] yrði samþykkt og minntist á að þessi lausn væri studd af bæði for- sætisráðherra og fjármálaráð- herra.“ Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, hefur síðar sagt að hann hafi hvorki gefið tilmæli né fyrirmæli í málinu heldur hafi hann og Árni Mathiesen, þáverandi fjár- málaráðherra, ekki gert at- hugasemdir við fyrirætlanir bank- ans þegar þær voru kynntar fyrir þeim á sínum tíma. Síðan ofan- greind uppkaup áttu sér stað hefur Baugur Group verið úrskurðaður gjaldþrota. Því bendir flest til þess að litlar sem engar endurheimtur verði hjá þeim sem áttu skuldabréf án veða útgefin af Baugi. Lagt til að öll bréf Stoða/FL Group, Baugs og tengdra félaga yrðu keypt fyrir 35 milljarða Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is IBM LOTUS-hópvinnuhugbúnaður- inn naut á sínum tíma mikillar hylli hér á landi, sumir gengu svo langt að segja að hvergi í heiminum hefði notkun verið eins almenn, en held- ur hefur hallað á Lotus síðustu ár, sérstaklega hjá þeim sem aðallega eða eingöngu hafa notað Lotus fyr- ir tölvupóst. Lotusphere til Íslands Árlega er haldin vestur í Ameríku mikil Lotus-ráðstefna, Lotusphere, en til að bregðast við niðurskurði og samdrætti brá Nýherji, sam- starfsaðili IBM, á það ráð að fá fyr- irlesara hingað til lands og halda ís- lenska Lotusphere. Sú ráðstefna var svo haldin í Salnum í Kópavogi í síðustu viku. Hafi menn efast um stöðu Lotus hér á landi segir sitt að nánast var fullsetið í Salnum, fullt niðri og reytingur uppi, svo menn eru enn að nota Lotus og enn spenntir fyrir nýjungum á því sviði. Fyrsti fyr- irlesarinn, Jason Dumont, var líka að kynna sitthvað skemmti- og for- vitnilegt, þar á meðal Lotus Sam- etime og Symphony. Sametime er rauntímaspjall sam- tvinnað Lotus Notes og gerir fólki kleift að ná sambandi við sam- starfsfélaga sína, hvort sem það er um tölvu, landlínusíma eða farsíma og Symphony er ókeypis hugbún- aður, byggður á opnum stöðlum, með ritvinnslu, töflureikni og glærusmið. Sítenging er málið Dumont sagði þróun Sametime undirstrika að Lotus-bændur legðu enn höfuðáherslu á samvinnu og að nú þegar sítenging sé málið, allir séu alltaf tengdir netinu hvort sem það er í gegnum netsnúrur, farsíma eða annað þráðlaust net, sé Sam- etime leið til að nýta þá möguleika sem sítengingin gefur. Hann fór fögrum orðum um stöðu Lotus á markaði, benti á að síðasta ár hefði verið mjög gott og að síðustu átján mánuði hafi markaðshlutdeild No- tes/Domino aukist á kostnað keppi- nautanna, meðal annars vegna þró- unarvinnu innan IBM; helsti keppinauturinn, Microsoft, byggi á gamalli og um margt úreltri hefð. Í ljósi þess hve starfsemi fyr- irtækja er orðin dreifð kemur hóp- vinnubúnaður á við Lotus með Sametime-viðbót að góðum notum, en fróðlegt var líka að sjá hvernig beinlínis er gert ráð fyrir því að fólk geti nota netspjall innan Lotus, en eins og Dumont benti á þá er fólk vant því að nota netspjall og samskiptasíður (t.a.m. Facebook) og finnst því eðlilegt að nota slíkt tól þegar í vinnuna er komið, ekki síst þegar svo er komið víða að fólk situr ekki á sömu skrifstofu og er jafnvel ekki í sama landi. Að sama skapi skapar samtvinnun síma og nets tækifæri til að skapa eitthvað nýtt, til að nota þessa möguleika á nýjan hátt. Fróðlegt var að sjá að með Sametime stefnir Lotus inn í samtvinnun síma og hugbúnaðar. Sparaðu diskapláss Ýmislegt fleira bar á góma í fyr- irlestrinum, til að mynda sú stað- reynd að hægt sé að spara umtals- vert diskapláss og þar með kostnað, við það að uppfæra í nýjustu útgáfu Lotus, enda spari betri gagnasnið afrita helming af plássi samanborið við það sem áður var. Að sama skapi sé stýring skilvirkari og betri. Þess má og geta að nú er Lotus fáanlegt fyrir Makka og Ubuntu og einnig er til Lotus Suite fyrir Blackberry. Uppfærsla Jason Dumont kynnti nýjungar í Lotus-hugbúnaði. Lotus hugbúnaðurinn sækir fram í Salnum Fullsetið var á Lotusphere-ráð- stefnu Nýherja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.