Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 23
Umræðan 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009 Vesturröst Laugaveg 178 S: 551 6770 www.vesturrost.is BYSSUSKÁPA- TILBOÐ 3 byssur • 5 byssur 8-12 byssur Þú vilt betri yfirsýn. Þess vegna er Vöxtur fyrir þig. Vöxtur - Vildarþjónusta Kaupþings Kynntu þér málið á www.kaupthing.is eða í síma 444 7000. ÍS L E N S K A S IA .I S K A U 45 51 3 04 /0 9 Í VETUR hefur snjórinn glatt margan landann með legu sinni yfir fjöll og firn- indi og oftar en ekki hvatt margan áhuga- manninn um útiveru og ferðamennsku til farar. Íslensk náttúra býður ferðalöngum upp á ævintýri í fögru og stór- mögnuðu umhverfi. Hægt er að ferðast á marga vegu og er vélsleði eitt af þeim farartækjum sem tekin eru fram þegar snjór þekur jörð. Þó nokkuð hefur borið á því að vélsleðamenn hafi komið af stað snjóflóðum og er það ógn sem bæði fjallafólk og vélsleðamenn þurfa að varast. Snjóflóðahætta stjórnast af þremur þáttum; landslagi, stöð- ugleika snjóþekjunnar og fólki. Til að gera ferðalög hættuminni þarf sá sem ferðast að spyrja sig; hvern- ig er landslagið, er líklegt að snjó- flóð falli? Er snjórinn stöðugur? Hverjar eru afleiðingarnar ef snjó- flóð fellur hér? Landslag hefur töluvert um snjó- flóðahættu að segja, hlíðar þar sem vindur hefur skafið burt snjóinn eru yfirleitt öruggari hendur en hlémegin fjalla. Breiðir dalbotnar eru gjarnan öruggari en umliggj- andi hlíðar. Hryggir eru yfirleitt öruggir fyrir snjóflóðahættu, en þó ber að vara sig á hengjum sem kunna að vera öðrum megin við hrygginn. Gott er að ferðast um flata hluta brekkunnar og halda sig frá bröttum hlíðum. Þar sem ekki er hægt að forðast brattar hlíðar skal fara um þær eins ofarlega og hægt er. Haldið ykkur frá íhvolfum brekkum ef hætta er á snjóflóðum. Snjóflóðum má skipta upp í lausasnjóflóð, upptök þeirra flóða eru á einum punkti, og flekaflóð, en það er þegar að fleki af snjó brotn- ar og rennur af stað niður brekk- urnar. Snjórinn er þá tiltölulega samloðandi og liggur ofan á snjó sem er með litla samloðun eða ligg- ur á veiku lagi. Snjóflóðahætta er oft meiri í aukinni hæð vegna þess að þar snjóar meira og vindur er sterkari. Einnig hefur stærð brekk- unnar áhrif, stór brekka getur bor- ið meiri snjó og myndað stærra snjóflóð. Veður hefur töluvert með snjó- flóðahættu að gera og því er mik- ilvægt að fylgjast með veðurspá síðustu daga, taka veðrið þann dag eða þá daga sem ferðast á. Flest snjóflóð falla í hríðarveðri eða skaf- renningi. Merki um yfirvofandi snjóflóðahættu; nýfallið snjóflóð er skýrasta dæmið um yfirvofandi snjóflóðahættu. Skaf- renningur eða áköf of- ankoma, brestir eða sprungur í snjóþekju, snögg hitastigsaukn- ing eða hiti yfir frost- marki, rigning og snjóboltar sem rúlla. Ef einhver lendir í snjóflóði er mikilvægt að kalla og vekja at- hygli ferðafélaganna, eftir það er mikilvægt að verja vitin, gerðu allt sem þú getur til að halda þig á yfirborði snjóflóðsins, hvort sem það er með sundtökum eða að krafla sig áfram. Eftir að snjóflóðið stöðvast er yf- irleitt erfitt að hreyfa sig þannig að gott er að reyna að búa til sem mest rými þegar þú finnur að flóðið er að stöðvast. Ekki berjast um, það eyðir aðeins orku og dýrmætu súrefni. Haldið ró ykkar, staðföst trú á björgun eykur lífslíkur þess sem grafinn er í snjóflóðinu. Mik- ilvægt er að allir séu með og kunni að nota helstu snjóflóðaöryggistæki en það eru snjóflóðaýlir, skófla og snjóflóðastöng. Skjót og hröð viðbrögð þeirra sem ekki lenda í snjóflóðinu skipta sköpum fyir lífsmöguleika þeirra sem í því lenda. Mikilvægt er, til að þau tæki og tól sem við ætlum að nota þegar og ef einhver lendir í snjóflóði virki sem best, er að vera búin að fara á námskeið og vita hvernig tækin virka og hvað er best að gera. Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur, í samvinnu við Landsamband íslenskra vélsleða- manna, gefið úr öryggisbæklinga fyrir vélsleðafólk um snjóflóða- hættu og vélsleða. Komum heil heim. Öryggi á vélsleðum Sæunn Ósk Kjart- ansdóttir skrifar varnaðarorð og upplýsingar um vél- sleða og snjóflóð » Snjóflóðum má skipta upp í lausa- snjóflóð, upptök þeirra flóða eru á einum punkti, og flekaflóð, en það er þegar að fleki af snjó brotnar og rennur af stað niður brekkurnar. Sæunn Ósk Kjartansdóttir Höfundur er starfsmaður á slysa- varnasviði Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.