Morgunblaðið - 06.04.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á allra síðustu sætunum í helgarferð til
Búdapest 30. apríl. Búdapest er ein
fegursta borg Evrópu og á vorin skartar
hún sínu fegursta og þá er einstakur tími
til að heimsækja borgina. Bjóðum örfá
herbergi á völdum gististöðum á
frábærum sértilboðum. Fararstjórar
Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna
þér sögu hennar og heillandi menningu.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 49.990
Helgarferð
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 3 næt-
ur á Hotel Platanus *** með morgunmat.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 10.000. Sértilboð
30. apríl. Fjölbreytt úrval gistimöguleika í
boði á sértilboði.
Ótrúleg sértilboð – helgarferð á einstökum tíma!
Búdapest
30. apríl
frá kr. 49.990
Flug og gisting
MATVÆLAFRUMVARPIÐ verður
ekki samþykkt fyrir þinglok. Búið er
að tryggja að Evrópusambandið grípi
ekki til aðgerða. Frumvarpið er lög-
festing á matvæla- og fóðurlöggjöf
ESB og gerir m.a. ráð fyrir innflutn-
ingi á hráu kjöti og kjötvörum.
Atli Gíslason, formaður sjávar-
útvegs- og landbúnaðarnefndar, seg-
ir að verið sé að skoða hversu langt sé
hægt að ganga í að setja girðingar
sem tryggja matvælaöryggi. Ákveðin
samningsmistök hafi átt sér stað í
viðræðum við Evrópusambandið.
,,Hinar Norðurlandaþjóðirnar sömdu
til dæmis um undanþágur vegna
salmonellu en það gerðum við ekki.
Við stöndum hér líka vel gagnvart
kamfýlobakter, öfugt við Evrópu-
sambandið. Þar er engin reglusetn-
ing.“ Atli segir að frumvarpið verði
lögleitt á nýju þingi, með texta þess
efnis að við tryggjum okkur gagnvart
þessum sjúkdómum. ,,Við höfum átt
fundi með Evrópusambandinu og
þeir hafa skilning á því að hér er
minnihlutastjórn í skamman tíma.
Þeir gera því ekki kröfur um sam-
þykkt að þessu sinni og munu ekki
grípa til aðgerða. Norðmenn eru líka
skilningsríkir.“ Þá segir hann að
reynt verði að sporna við innflutningi
á hráu kjöti og kjötvörum á allan
mögulegan hátt, til dæmis með sýna-
töku í tolli.
Stöndum berskjölduð
,,Meðan frumvarpið er óafgreitt er
verið að taka áhættu með útflutning
til Evrópusambandsins. Við stöndum
í raun gersamlega berskjölduð,“ seg-
ir Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Hann segist vonast eftir að frum-
varpið verði afgreitt sem allra fyrst
en á meðan verði að reiða sig á að
stjórnvöld séu búin að tryggja að
Evrópusambandið grípi ekki til að-
gerða gagnvart landinu.
sigrunerna@mbl.is
Matvælafrum-
varpið bíður
Lögfræðilegar hliðar skoðaðar Matvæla-
öryggi verði tryggt Ekki gripið til aðgerða
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
SKÝRSLA fjárlaganefndar neðri deildar
breska þingsins kemur til með að auðvelda Ís-
lendingum að komast af hryðjuverkalista
breskra stjórnvalda og mun styrkja málstað
Landsbankans í málsókn hans gegn breskum
stjórnvöldum og hugsanlega málstað íslenskra
stjórnvalda í samningaviðræðum vegna Ice-
save-reikninganna, að mati Steingríms J. Sig-
fússonar fjármálaráðherra. „Ég bind sér-
staklega vonir við að hún auðveldi okkur að ná
af okkur þessari frystingu. Það verður erfitt
fyrir bresk stjórnvöld að viðhalda henni þegar
þeir fá svona þunga gagnrýni frá sínu eigin
þingi,“ segir Steingrímur.
Árni Mathiesen fagnar skýrslunni og segir
hana þungan dóm yfir verkum Alistairs Dar-
lings. Hefði hann sjálfur sem fjármálaráðherra
fengið viðlíka umsögn frá fjárlaganefnd íslenska
þingsins hefði hann talið það verulegt íhugunar-
efni. Skýrslan ætti að teljast þungt högg fyrir
pólitíska stöðu Darlings.
Komið öðruvísi fram við Kaupþing
Annar áhugaverður hluti af skýrslunni er að
sögn Árna gagnrýni nefndarinnar á samskipti
breska fjármálaeftirlitsins (FSA) og fjármála-
eftirlitsins á eynni Mön. „Kaupþing Singer &
Friedlander (KS&F) var auðvitað breskur
banki,“ segir Árni. Starfsstöð hans á Mön hafi,
rétt fyrir fallið, flutt fjármuni yfir í bankann í
Bretlandi, eftir að hafa haft samráð við og leitað
upplýsinga hjá breska fjármálaeftirlitinu. Það
hafi verið til að bæta stöðu KS&F á Mön.
Fulltrúar Manar kvarti mikið yfir því við
nefndina að þeir hafi ekki fengið nægilega góðar
upplýsingar hjá FSA og allt önnur samskipti
verið við þá um KS&F í Bretlandi, heldur en
þegar um var að ræða aðra breska banka, eins
og Bradford&Bingley og Northern Rock.
FSA vildi aldrei bjarga bankanum
„Þetta kemur líka fram í umkvörtunum full-
trúa Guernsey að þegar breska fjármálaeft-
irlitið fjallaði um KS&F í Bretlandi, voru sam-
skiptin allt öðruvísi en þegar um var að ræða
Northern Rock eða Bradford&Bingley, sem
segir manni að FSA umgekkst í þessu tilfelli
breska bankann KS&F öðruvísi en aðra breska
banka,“ segir Árni. Bankinn sé felldur í Bret-
landi örfáum dögum áður en bresk stjórnvöld
leggja upp í björgunaráætlun fyrir breska
banka almennt. „Það þarf enginn að segja mér
að þegar þeir fara inn í KS&F í Bretlandi, hafi
þeir ekki þá þegar verið búnir að skipuleggja
björgunaráætlunina sem þeir voru að leggja í.“
Bresk stjórnvöld hafi semsagt mismunað Kaup-
þing Singer & Friedlander og aldrei ætlað sér
að bjarga honum, eins og öðrum. „Mann grunar
það,“ segir Árni.
Skýrslan þungur dómur yfir Darling
Skýrsla bresku fjárlaganefndarinnar auðveldar Íslandi að losna af hryðjuverkalista og flytja mál sitt
Árni: Breska FSA meðhöndlaði Kaupþing S&F öðruvísi en aðra og vildi líklega aldrei bjarga bankanum
Árni M.
Mathiesen
Steingrímur J.
Sigfússon
Össur
Skarphéðinsson
Í FYRRADAG var afhjúpaður skjöldur með upplýsingum um lágmynd Sig-
urjóns Ólafssonar sem prýðir fjölbýlishúsið Espigerði 2. Þykir húsið sjálft
merkilegt í byggingarsögu höfuðborgarinnar en lágmyndina gerði Sig-
urjón er það var í byggingu, á árunum 1973 til 1974. Á myndinni eru, talið
frá vinstri: Þór Jakobsson veðurfræðingur, Örnólfur Hall arkirekt, Birg-
itta Spur, forstöðumaður Listasafns Sigurjóns Ólafssonar, og Ormar Þór
Guðmundsson arkitekt.
Morgunblaðið/Kristinn
Skjöldur um lágmynd á
Espigerði 2 afhjúpaður
„Ég túlka skýrsluna þannig að stjórnvaldið
sé átalið fyrir að beita hryðjuverkalög-
unum. Það staðfestir það sem núverandi
ríkisstjórn og fyrri
hafa alltaf sagt, að
þetta var óafsak-
anlegt,“ segir Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Þetta
renni stoðum undir þá kröfu að Bretar
dragi beitingu hryðjuverkalaganna til
baka. Skýrslan hljóti að hafa áhrif á Breta
og létta róðurinn. Sömuleiðis segir Össur
skýrsluna geta haft jákvæð áhrif á samn-
inga um Icesave-reikningana, séu Bretar
sanngjarnir. Hann haldi því þó ekki fram
að Bretar hafi verið sanngjarnir hingað til.
Hvorki hann né fjármálaráðherra skrifa
hins vegar undir þá niðurstöðu að Kaup-
þing hefði alltaf fallið, óháð gerðum Dar-
lings og að ekkert mæli gegn fullyrðingum
Darlings um að mismuna hafi átt innláns-
eigendum í bönkunum eftir þjóðerni.
Skrifa ekki undir allt
FISKISKIPIÐ Kristbjörg HF-177
varð vélavana um eina sjómílu suður
af Krýsuvíkurbjargi á laugardags-
morgun. Björgunarskip Slysavarna-
félagsins Landsbjargar, Oddur V
Gíslason frá Grindavík, var sam-
stundis kallað út og jafnframt sigldi
fiskiskipið Gulltoppur GK-24 strax á
vettvang.
Skipverjum tókst þó fljótlega að
koma vélinni aftur í gang og skipið
sigldi hjálparlaust aftur á haf út.
Að sögn Kristjáns Kristjánssonar
skipstjóra, bilaði olíudæla í skipinu
sem varð til þess að vélin stöðvaðist.
„Við létum akkerið falla og leituðum
að biluninni. Okkur tókst svo fljót-
lega að koma vélinni aftur í gang og
gátum siglt aftur út.“
Hann segir þó ekki að mikil hætta
hafi verið á ferðum. „Við vorum
náttúrulega ekki langt frá landi og
það var rólegt og fínt veður. Svo
voru skipin þarna rétt við okkur.
Þetta gekk allt vel.“
haa@mbl.is
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Bilun Kristbjörg HF-177 varð vél-
arvana við Krísuvíkurbjarg.
Gerðu við
og héldu
áfram
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN sem
játaði að hafa kveikt í rútu ásamt
tveimur öðrum hefur beðist lausnar
frá starfi sínu auk þess sem hann er
hættur í Björgunarfélagi Vest-
mannaeyja. Einn mannanna stund-
aði nýliðaþjálfun hjá Björgunar-
félaginu en hættir því í kjölfarið.
Þriðji maðurinn tengist hvorki
slökkviliðinu í Vestmannaeyjum né
Björgunarfélaginu.
Maðurinn var einn þriggja sem
kveiktu í rútu sem stóð við bátaskýli
Björgunarfélags Vestmannaeyja við
höfnina síðastliðið miðvikudags-
kvöld.
Baðst lausnar
frá störfum