Morgunblaðið - 06.04.2009, Side 17

Morgunblaðið - 06.04.2009, Side 17
Daglegt líf 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009 Handbók með ítarlegum upplýsingum og veiðikortum fylgir. Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is 31 vatnasvæði vítt og breitt um landið fyrir aðeins 6000 krónur Þú ákveður svo hva r og hvenær þú veiðir veidikortid.is Hver seg ir að það sé d ýrt að veiða ? Yfirtökutilboð til hluthafa í Exista hf. Þann 8. desember 2008 skráði BBR ehf. sig fyrir nýju hlutafé í Exista hf. sem nam 50 milljörðum hluta. Í kjölfarið nam eignarhlutur BBR ehf. (77,9%) og Bakkabraedur Holding B.V. (10%) samtals 87,9% af heildarhlutarfé Exista hf., en bæði félögin eru í eigu Lýðs Guðmundssonar og Ágústs Guðmundssonar. BBR ehf. ber því samkvæmt X. kafla laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti að gera öðrum hluthöfum Exista hf. yfirtökutilboð, þ.e.a.s. tilboð um að kaupa hluti þeirra í félaginu. Rétt er að taka fram að Bakkabraedur Holding B.V. eru ekki lengur eigendur að fyrrgreindum eignarhlut í Exista hf. TILBOÐSVERÐ Í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem ríkt hafa á fjármálamörkuðum og þess að lokað var fyrir viðskipti með hlutabréf Exista hf. frá 6. október 2008 allt þar til tilboðsskylda stofnaðist þann 8. desember 2008, fór BBR ehf. þess á leit við Fjármálaeftirlitið að félaginu yrði veitt undanþága frá ákvæðum verðbréfaviðskiptalaga um lágmarksverð í yfirtökutilboði. Fjármálaeftirlitið fékk sérfræðinga PriceWaterhouseCoopers hf. til þess að framkvæma fyrir sína hönd verðmat á Exista hf. Miðaðist verðmatið við 4. desember 2008, sem er sú dagsetning sem verðmat BBR ehf. var miðað við vegna hlutafjáraukningarinnar þann 8. desember 2008 þegar yfirtökuskylda BBR ehf. stofnaðist. Var niðurstaða Fjármálaeftirlitsins, með hliðsjón af framangreindu verðmati, að lágmarksverð í yfirtökutilboði þessu skyldi lækkað og vera að lágmarki 0,02 krónur á hlut. Nánari rökstuðning fyrir ákvörðun Fjármálaeftirlitsins má finna á heimasíðu eftirlitsins (www.fme.is). Með vísan til framangreinds er það verð sem hluthöfum Exista hf. er boðið fyrir hluti sína í yfirtökutilboði þessu 0,02 krónur fyrir hvern hlut, kvaða- og veðbandalausan. Samsvarar það því verði sem BBR ehf. greiddi fyrir hina nýju hluti í Exista hf., sem jafnframt er hæsta verð sem BBR ehf. og Bakkabraedur Holding B.V. hafa greitt fyrir hluti í Exista hf. á síðastliðnum 6 mánuðum. GILDISTÍMI Gildistími yfirtökutilboðsins er frá kl. 9:00 þann 11. apríl 2009 til kl. 16:00 þann 8. maí 2009. TILBOÐSHAFAR Tilboðið tekur til allra hluta í Exista hf. sem ekki eru í eigu BBR ehf. á þeim degi sem tilboðið er sett fram. Hluthafar sem skráðir eru í hlutaskrá Exista við lok dags föstudaginn 3. apríl 2009, þegar hlutaskráin hefur verið uppfærð miðað við þann dag, munu fá sent tilboðsyfirlit, samþykkiseyðublað og svarsendingarumslag, en einnig verður hægt að nálgast gögnin hjá BBR. ehf. að Efstaleiti 5, 103 Reykjavík. Tilboðsyfirlitið verður einnig hægt að nálgast í fréttakerfi NASDAQ OMX ICELAND hf. (http://nasdaqomxnordic.com/Frettir). Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is Umsóknum um dvöl í orlofshúsum stéttarfélaganna ísumar hefur fjölgað mikið frá því í fyrra. Talsmennfélaganna telja víst að eftirspurnin hafi aukist vegna færri utanlandsferða í ljósi efnahagsástandsins. „Ég hef það á tilfinningunni að fólk vilji heldur vera heima,“ segir Margrét Þórisdóttir, orlofs- og starfsmennt- unarsjóðsfulltrúi hjá Bandalagi háskólamanna, BHM. Alls bárust 1.435 umsóknir um orlofshús til BHM í ár. Í fyrra voru umsóknirnar 979 og fjölgunin er því rúmlega 46 prósent, að sögn Margrétar. Færri sækja um íbúðir erlendis „Við höfðum á tilfinningunni að þetta yrði svona og erum þess vegna með meira í boði nú en í fyrra. Ef allir kæmu sér saman um að dreifa sér á vikurnar fengju 788 úthlutun en það er náttúrlega aldrei þannig. Flestir vilja vera yfir mitt sumarið,“ greinir Margrét frá. Hún bætir því við að í ár hafi færri umsóknir borist í or- lofsíbúðir erlendis en í fyrra. Þær hafi þó ekki verið miklu færri. Betri kostur í ljósi ástandsins Hjá Eflingu hefur umsóknum um orlofshús innanlands í sumar fjölgað um 35 prósent miðað við í fyrra. Nú sóttu tæplega 800 um en í fyrra voru umsóknirnar um 550, að sögn Ólafar Björnsdóttur þjónustufulltrúa. „Okkar hópur er ekki að fara utan. Fólk sér fram á að þetta sé betri kostur eins og ástandið er.“ Eftirspurn eftir íbúðum á vegum Eflingar í Kaupmanna- höfn er minni nú en í fyrra. Þá voru íbúðirnar þrjár en eru nú tvær. „Það fylltist samt í fyrstu úthlutun og það komast ekki allir sem vilja,“ segir Ólöf. Í skíðaferðir innanlands Anna Dóra Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri hjá SFR, Stéttarfélagi í almannaþjónustu, segir umsóknir um orlofs- hús í ár hafa verið 830 en þær voru 670 í fyrra. „Fólk fer örugglega minna utan. Við erum með íbúðir fyr- ir norðan sem hafa næstum því verið leigðar út upp á dag frá áramótum, hvort sem það hefur verið helgi eða virkir dagar. Ég held að fólk hafi frekar farið í skíðaferðir norður en til útlanda. Það er meiri hreyfing á fólki innanlands,“ segir Anna Dóra. Hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkur hafa menn enn ekki tekið saman fjölda umsókna um dvöl í orlofshúsi í sumar. „Tilfinningin að það séu fleiri umsóknir er hins vegar sterk,“ segir Lára Júlíusdóttir, þjónustufulltrúi hjá stétt- arfélaginu. Kennarasamband Íslands, KÍ, hefur heldur ekki tekið saman fjölda umsókna en þar telja menn að umsóknir um orlofshús og í skipulagðar gönguferðir séu fleiri en í fyrra, að því er Hanna Dóra Þórisdóttir, framkvæmdastjóri or- lofssjóðs KÍ, greinir frá. Morgunblaðið/Þorkell Í sól og sumaryl Margir vilja vera í orlofshúsi hérlendis í sumarfríinu enda hefur umsóknum fjölgað mikið. Fara frekar í orlofs- húsin en á ströndina BÓKIN „Hver tók ostinn minn?“ er komin út á nýjan leik. Sagan varð feikivinsæl hér á landi en hefur verið ófáanleg um nokkurra ára skeið. Söguhetjur Ostsins eru litlu mennirnir Loki og Lási og mýsnar Þefur og Þeytingur. Lífið hafði leikið við þá þar til osturinn hvarf einn góðan veðurdag eins og dögg fyrir sólu! Félagarnir fjórir standa fyrir kenndir innra með okkur; mýsnar Þefur og Þeytingur fylgja eðlishvöt sinni og fara umsvifalaust að leita osts. Litlu mennirnir Lási og Loki býsn- ast yfir óréttlæti heimsins enda höfðu þeir lifað praktuglega í þeirri fullvissu að velsæld þeirra entist um aldur og ævi. Þeir kvarta sáran. Neikvæðni og for- dómar byrgja þeim sýn og taka frá þeim orku meðan mýsnar finna gnægð osts. Þar kemur þó að Lási tekst á við eigin ótta og þvermóðsku – og fer að sjá spaugilegar hliðar í eig- in fasi. Von um umbun rekur hann áfram. Lási heldur út í völund- arhúsið í leit að osti en Loki situr eftir og krefur heiminn um rétt- læti – meiri ost og engar refjar. Í fréttatilkynningu segir að sag- an eigi vel við á þeim tímum sem við lifum núna. Skyndilega hafi lifibrauðið verið tekið frá mörgum heimilum. Efnahagslífið hafi hrunið og þúsundir manna hafi enga vinnu. Viðbrögð fólks séu með ýmsum hætti en spurningin er hvernig best sé að vinna sig út úr erfiðleikunum. Bók Söguhetjur Ostsins eru Loki og Lási og mýsnar Þefur og Þeytingur. Hver tók ostinn minn? Saga um atburði á breytingatímum Hvenær varð orlofsréttur að lögum á Íslandi? Árið 1942 öðlaðist allt íslenskt launafólk rétt til orlofs samkvæmt lögum, að því er segir á heimasíðu AFLs. Áður en til lagasetningarinnar kom hafði þó verið gert samkomulag við atvinnurekendur um að koma á rétti til orlofs. Með samningnum 1942 fékkst 12 daga sumarleyfi. Hvers vegna voru orlofshús reist? Til þess að tryggja að launafólk hefði aðstæður til þess að nýta orlofið hófu mörg verkalýðsfélög byggingu or- lofshúsa. Víða um land eru orlofsbyggðir verkalýðs- félaga. Félögin hafa einnig byggt eða keypt orlofshús í útlöndum til útleigu fyrir félagsmenn. Verkalýðsfélögin hafa einnig tekið á leigu hús og íbúðir innanlands og utan fyrir til útleigu fyrir félagsmenn. Hvernig eru kaupin fjármögnuð? Kaupin eru fjármögnuð af svokölluðum orlofs- eða or- lofshúsasjóðum. Atvinnurekendum er skylt að greiða ið- gjald í orlofssjóðina. S&S

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.