Morgunblaðið - 06.04.2009, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 06.04.2009, Qupperneq 21
Umræðan 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009 L A U S N I R F Y R I R H E I M I L I Ð Við vinnum með þér að lausnum fyrir heimilið. Greiðslujöfnun lána er ein af þeim. Pantaðu ráðgjöf á landsbankinn.is, í útibúinu þínu eða í síma 410 4000 E N N E M M / S ÍA / N M 3 7 4 6 7 Landsbankinn býður upp á nokkur úrræði fyrir heimili sem eiga við greiðsluerfiðleika að etja. Við aðstoðum þig við að velja lausn sem kemur til móts við þínar þarfir. NÚ ER liðið hálft ár síðan kreppan skall á okkur, enn er- um við að vinna úr henni og verðum að um nokkurt skeið. Áhrifin eru marg- vísleg og ekkert okk- ar fer varhluta af þeim því mið- ur. Íslenskur almenningur er róm- aður fyrir aðlögunarhæfni og sveigjanleika, eiginleika sem eiga að verða til þess að ef til vill komumst við fyrr upp úr þessum dal en ætla mætti. En undanfarið hef ég velt því fyrir mér hvort aðlögunarhæfnin geti gengið út í öfgar og orðið til þess að við gleymum að gera eðlilegar kröf- ur. Enginn efast um að það aðhald og sá samdráttur sem orðið hefur á flestum sviðum sé nauðsyn- legur, einnig í menningu og list- um. Líkt og aðrir fjölmiðlar hef- ur Morgunblaðið leitað allra leiða til niðurskurðar og sparnaðar, hið sama má segja um listasöfn og sýningarstaði sem flest hafa misst styrktaraðila sína og þurft að laga sýningaráætlanir sínar að breyttum aðstæðum. Aðgerðir Morgunblaðsins fól- ust meðal annars í því að í októ- ber síðastliðnum var að mestu leyti hætt að kaupa efni frá lausafólki og þess í stað leitast við að birta einungis efni skrifað af fastráðnum blaðamönnum. Rit- stjóra Lesbókarinnar var síðan nýverið sagt upp störfum og rit- stjórn hennar er nú á höndum ritstjóra menningarefnis Morg- unblaðsins sem auk þess að bæta því verkefni ofan á önnur störf hefur ekki tök á að veita aðkeyptu efni farveg í Lesbókinni. Öll listgagnrýni hefur verið skorin niður. Nú þekki ég ekki tölur um list- gagnrýni á sviði tón- listar, leiklistar og kvikmynda, en í stað þess að fjalla um átta til tíu myndlistarsýn- ingar í viku hverri hefur síðan í október aðeins verið fjallað um eina til tvær á viku. List- gagnrýnendur geta auk þess ekki fjallað um myndlistarsýningar ut- an Reykjavíkur, því aksturs- og ferðakostnaður hefur verið skor- inn niður. Undanfarna mánuði hef- ur því engin myndlistarsýning ut- an Reykjavíkursvæðisins fengið listgagnrýni og gildir þá einu hver á í hlut. Morgunblaðið hefur um langt skeið haft sérstöðu meðal fjöl- miðla vegna menningarumfjöll- unar sinnar. Nú sýnist mér hætta á að aðlögunarhæfni okkar verði til þess að við sættum okkur við óboðlegt ástand. Það er brýnt að muna eftir því að ástand dagsins í dag er í hæsta máta óeðlilegt og því fyrr sem hægt er að reisa við sjálfsögð menningarleg gildi, því betra. Ég skora á hina nýju eigendur Morgunblaðsins að velta vel fyrir sér stöðu og framtíð Morgunblaðs- ins sem menningarblaðs og blaðs allra landsmanna. Morgunblaðið – menningarblað? Ragna Sigurð- ardóttir vill meiri menningar- umfjöllun í Morg- unblaðinu »Nú sýnist mér hætta á að aðlögunarhæfni okkar verði til þess að við sættum okkur við óboðlegt ástand. Ragna Sigurðardóttir Höfundur er rithöfundur og myndlist- argagnrýnandi hjá Morgunblaðinu. „HVAÐA verðmiða viltu setja á sjálfstæði þjóðarinnar?“ Ég hef spurt ýmsa Evrópu- sambandssinna að þessu í gegnum tíðina en aldrei fengið nein skýr svör og hvað þá einhverja ákveðna upphæð. En þeir sem vilja hefja viðræður um inngöngu Íslands í Evrópusam- bandið eru með því að segja að þeir séu reiðubúnir að semja um sjálf- stæði og fullveldi landsins eins og hverja aðra verzlunarvöru. Og þeir sem eru tilbúnir að verzla með eitt- hvað hljóta að hafa a.m.k. einhverja hugmynd um það hvaða verð þeir vilja fá fyrir það. Ef Ísland gengi í Evrópusam- bandið yrði sjálfstæði Íslands og fullveldi fyrir bí. Íslenzkt lýðræði yrði einfaldlega tekið úr sambandi. Ákvarðanir um flest okkar mál, og sífellt fleiri, yrðu teknar af öðrum en lýðræðislega kjörnum fulltrúum okkar. Stjórnmálamönnum sem kosnir væru af kjósendum annarra þjóða en þó einkum embætt- ismönnum sambandsins sem enginn kýs. Þessir aðilar hefðu engan hvata né ástæðu til þess að taka sérstakt tillit til íslenzkra hags- muna eða tillit yfirhöfuð. Þegar Evrópusambandssinnum er bent á þetta bregðast þeir iðu- lega við með því að spyrja hvort einhverjum detti í hug að ríki Evr- ópusambandsins séu ekki sjálfstæð og fullvalda. Þeir hafa hins vegar aldrei getað fært nein rök fyrir því að svo sé í raun og í sjálfu sér aldr- ei gert neina tilraun í þá veru. Sem er mjög skiljanlegt. Það er einfald- lega ekki náttúrulögmál að ríki séu sjálfstæð og fullvalda og mannkyns- sagan er full af dæmum um ríki sem hafa glatað sjálfstæði sínu og fullveldi um lengri eða skemmri tíma. Raunveruleikinn er einfaldlega sá að það er leitun í dag á málaflokk- um innan ríkja Evrópusambandsins sem stofnanir sambandsins hafa ekki meiri eða minni yfirráð yfir. Hvaðan komu þessi gríðarlegu völd yfir málefnum ríkjanna? Varla hafa þau orðið til úr engu? Nei, um er að ræða völd sem eitt sinn voru stór hluti af fullveldi og sjálfstæði ríkjanna en eru það ekki lengur. Ef ríki Evrópusambandsins væru í reynd sjálfstæð og fullvalda er ljóst að stofnanir sambandsins væru svo gott sem valdalausar. Þetta horfði síðan enn verr við Íslandi en öðrum ríkj- um Evrópusambands- ins værum við þar inn- anborðs þar sem við yrðum alltaf með langfámennustu ríkj- um sambandsins. Sé miðað við stöðuna í dag yrðum við það fá- mennasta. Innan Evr- ópusambandsins er íbúafjöldinn mæli- kvarði á vægi ein- stakra ríkja sambands- ins og þar með möguleika þeirra á að hafa einhver áhrif innan þess. Því fleiri íbúar, því meira vægi. Og öfugt. Það er væntanlega öllum ljóst að sá mæli- kvarði myndi seint verða okkur Ís- lendingum mjög hagstæður. Staðreyndin er einfaldlega sú að það er ekki hægt að setja verðmiða á sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar. Um er að ræða ómetanleg verð- mæti og einhverja dýrmætustu auð- lind okkar ef ekki hreinlega þá dýr- mætustu. Frelsið til þess að ráða okkar málum sjálf í samræmi við okkar eigin hagsmuni og það sem við teljum réttast hverju sinni. Það verður seint úrelt heldur er um sí- gild verðmæti að ræða sem hlúa þarf að og standa vörð um. Sjálf- stæði Íslands er einfaldlega ekki til sölu, hvort sem viðskiptin fara fram í evrum eða einhverju öðru. Sjálfstæðið er ekki til sölu Hjörtur J. Guð- mundsson skrifar um sjálfstæði þjóð- arinnar »Ef Ísland gengi í Evrópusambandið yrði sjálfstæði Íslands og fullveldi fyrir bí. Ís- lenzkt lýðræði yrði ein- faldlega tekið úr sam- bandi. Hjörtur J. Guðmundsson Höfundur er stjórnarmaður í Heims- sýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evr- ópumálum. – www.heimssyn.is@ Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.