Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 30
30 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009
Sudoku
Frumstig
4
8 7 2
6
2 1 7
6 7 5 1
3 6 9
8 7
4 7 5 3
2 4
3 7 8
9 4
2 6
6 5
8 9
8
8 2 6
4 7 6 1
3 5 7
2
2 8
7 9 3
5 8 2
6 1
3 5
1 6 9
5 7 4 1
4 3 7 8
9 8 3 5 6 7 2 4 1
1 6 4 2 9 8 7 3 5
7 2 5 1 4 3 6 8 9
3 5 6 4 8 2 1 9 7
4 1 9 7 5 6 3 2 8
8 7 2 3 1 9 4 5 6
2 3 8 9 7 1 5 6 4
6 4 1 8 2 5 9 7 3
5 9 7 6 3 4 8 1 2
1 8 5 6 2 3 4 9 7
3 7 4 8 9 1 2 5 6
2 6 9 7 5 4 8 3 1
6 3 7 9 1 2 5 8 4
9 5 8 4 3 6 7 1 2
4 2 1 5 8 7 9 6 3
5 1 2 3 4 8 6 7 9
7 9 3 2 6 5 1 4 8
8 4 6 1 7 9 3 2 5
2 5 8 9 1 6 7 4 3
1 3 4 7 2 5 6 9 8
7 9 6 3 4 8 1 2 5
8 4 3 5 6 2 9 7 1
9 6 7 1 3 4 8 5 2
5 1 2 8 7 9 3 6 4
3 8 5 4 9 7 2 1 6
4 2 9 6 8 1 5 3 7
6 7 1 2 5 3 4 8 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla út
í reitina þannig að í hverj-
um 3x3-reit birtist tölurnar
1-9. Það verður að gerast
þannig að hver níu reita
lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og
aldrei má tvítaka neina tölu
í röðinni.
Í dag er mánudagur 6. apríl, 96. dagur
ársins 2009
Orð dagsins: Varpið allri áhyggju yðar
á hann, því að hann ber umhyggju fyr-
ir yður. (1Pt. 5, 7.)
Víkverji hefur mikið yndi af ferða-lögum og verður yfirleitt ást-
fanginn af þeim löndum sem hann
ferðast til. Hann heillaðist t.a.m. af
Grikklandi þegar hann dvaldi þar í
haust en verður að viðurkenna að
hann varð fyrir vonbrigðum með
Aþenu. Hann ætlar að forðast þá
borg eins og heitan eldinn það sem
eftir er ævinnar. Byggingarnar á
Akrópólis eru vitaskuld mikil-
fenglegar og vert er að skoða elsta
borgarhlutann eina dagstund eða
svo. Aþena er að öðru leyti orðin for-
ljót og bílaumferðin, mengunin og
mannmergðin á götunum er yfir-
gengileg.
x x x
Aþena hefur þanist út síðustu ára-tugina vegna mikillar fólks-
fjölgunar og borgaryfirvöld hafa
gengið svo langt í því að þétta byggð-
ina að segja má að hver fermetri sé
gernýttur. Græn svæði hafa vikið
fyrir byggingum og forljótum bíla-
stæðum.
Víkverji skilur því vel gremju
Aþeninga sem hafa fengið sig full-
sadda á þessum skefjalausu fram-
kvæmdum og gerðu uppreisn í síð-
asta mánuði. Íbúar bóhema-
hverfisins Exarcheia tóku sig til eina
helgina og breyttu einu bílastæða-
ferlíkjanna í almenningsgarð. Eftir
að hafa safnað peningum og áhöldum
til framkvæmdanna kom fólkið sam-
an til að fjarlægja malbikið og setti í
staðinn upp bekki, plantaði trjám og
skreytti garðinn með blómabeðum.
x x x
Þótt óneitanlega sé ólíku saman aðjafna finnst Víkverja að yfirvöld
sumra bæjarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu hafi gengið of langt í
því að leggja græn svæði undir bygg-
ingar, fyrirferðarmikla vegi og fer-
lega ljót bílastæði. Þetta sést til að
mynda glöggt þegar skoðaðar eru
loftmyndir af Kópavogi.
Vonandi verður ástandið ekki svo
slæmt að fólk þurfi að taka fram fyrir
hendurnar á yfirvöldum líkt og
Aþeningar, rísa upp með haka og
skóflur að vopni til að setja niður
blóm þar sem malbikið hefur þanist
út. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 viðbragðs-
fljótur, 8 í ætt við, 9 sál-
ir, 10 greinir, 11 skyld-
mennið, 13 líffærið, 15
foraðs, 18 annmarki, 21
ástfólginn, 22 dóni, 23
bárur, 24 ánamaðkur.
Lóðrétt | 2 þvinga, 3
bækurnar, 4 púkann, 5
sárs, 6 kvenfugl, 7 and-
vari, 12 myrkur, 14 fisk-
ur, 15 harmur, 16 gamli,
17 húð, 18 mjó, 19
bleyðu, 20 sjá eftir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kvars, 4 fúlum, 7 ávalt, 8 loppu, 9 tól, 11 skap,
13 snös, 14 útlit, 15 spöl, 17 ófær, 20 aða, 22 rollu, 23 fíf-
an, 24 kætin, 25 seiga.
Lóðrétt: 1 kláfs, 2 apana, 3 sótt, 4 full, 5 læpan, 6 maurs,
10 óglöð, 12 púl, 13 stó, 15 skræk, 16 örlát, 18 fífli, 19
renna, 20 auðn, 21 afls.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. c4 g6 2. e4 Bg7 3. d4 d6 4. Rc3 Rf6 5.
f3 O-O 6. Be3 c5 7. Rge2 Rc6 8. d5 Re5
9. Rg3 e6 10. Be2 exd5 11. cxd5 h5 12.
O-O Rh7 13. Dd2 h4 14. Rh1 f5 15. Rf2
Bd7 16. Kh1 a6 17. a4 He8 18. Hg1 g5
19. exf5 Bxf5 20. Hae1 Hc8 21. Rce4
Rf7 22. Bd3 He5 23. Bc2 Dd7 24. g3
Kh8 25. gxh4 gxh4
Staðan kom upp í Evrópumóti ein-
staklinga sem lauk fyrir skömmu í
Budva í Svartfjallalandi. Sigurvegari
mótsins, rússneski stórmeistarinn Ev-
geny Tomashevsky (2.664), hafði hvítt
gegn landa sínum og kollega Anton
Shomaev (2.567). 26. Hxg7! Kxg7 27.
Hg1+ Kh8 28. f4! Hxe4 29. Bxe4
Bxe4+ 30. Rxe4 Df5 31. Dc3+ og
svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Kvart og kvein.
Norður
♠964
♥962
♦ÁG54
♣1085
Vestur Austur
♠87532 ♠--
♥ÁK103 ♥DG874
♦103 ♦KD987
♣D4 ♣632
Suður
♠ÁKDG10
♥5
♦62
♣ÁKG97
Suður spilar 4♠.
„Menn voru að vinna þetta unn-
vörpum, meira og minna af slysni. Það
er agalegt að lenda í þessu.“ Sá sem
hér vælir, örmagna yfir heimsku
mannanna og óréttlæti heimsins, sat í
vestur að morgni sunnudagsins fyrir
viku, í 7. umferð Íslandsmótsins. Hann
spilaði út ♥Á, síðan kóng gegn 4♠.
Suður trompaði síðara hjartað og lagði
niður ♠Á. Úps! Sleginn út af laginu af
5-0 legunni tók suður hvatvíslega á
♣Á-K, en þegar drottning vesturs féll
önnur kviknaði áhugi sagnhafa á ný.
Vestur trompaði þriðja laufið og spilaði
hjarta, en sagnhafi henti tígli og lagði
síðan upp: tíu slagir.
Vissulega á vestur heimtingu á smá
gráti, en spilaði suður ekki rétt, eftir
sem áður? Reyndar ekki. Hann hefur
ráð á því að fara inn í borð á ♦Á til að
svína í laufi. Og það er betri íferð.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er auðvelt að segja: bara að
ég hefði vitað það sem ég veit núna.
Vertu umfram allt heiðarlegur í garð
ykkar beggja.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Stundum er ekki nóg bara að heyra
það sem sagt er heldur þarf líka að taka
með í reikninginn hvernig hlutirnir eru
settir fram. Bráðum veistu lausnina.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú átt það til að hafa of miklar
áhyggjur. Enginn kemst hjá afleiðingum
verka sinna eða getur falið þær fyrir
sjálfum sér.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Heppnin er með þér í dag og þú
hittir fólk sem er alveg frábært að vinna
með. Sýndu öðrum tillitssemi.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ljónið kennir öðrum að bera virð-
ingu fyrir sér þegar málefni hjartans eru
annars vegar. Aðgæsluleysi getur reynst
þér dýrkeypt því oft er erfitt að vinna
aftur það sem tapast hefur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ferð á fallegan stað þar sem
smáatriðum er veitt athygli, og þú tekur
þátt í stórri sýn einhvers annars. Njóttu
þess vel að slappa af.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Samband við vin skiptir þig miklu í
dag. Forystu þinnar er krafist. Þú spáir í
hvenær á að setjast í helgan stein og
hvernig þú ætlar að spara til efri áranna.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft að fá útrás fyrir
sköpunarþrá þína svo þú kafnir ekki.
Flýttu þér hægt því flas er ekki til fagn-
aðar. Taktu á þig rögg og leystu þau
mál, sem bíða afgreiðslu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú lærir best af reynslunni,
en hún þarf ekki að vera eigin reynsla.
Lestu vel smáa letrið og leitaðu þér að-
stoðar með vandasöm úrlausnarefni.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Gerðu þér grein fyrir þörf
þinni fyrir hvíld og slökun. Trú þín á að
niðurstaðan verði góð hleypir í þig krafti
og sjálfstrausti.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú átt ekki að brjóta allar
brýr að baki, heldur sinna viðhaldi á
þeim, ef svo má að orði komast. Hafið
þetta allt í huga, þegar aðstæður krefj-
ast.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er sóun á tíma og orku að
ætla að standa á máli sínu í dag, ekki
síst við ljón eða bogmann. Gefið þeim
líka nægan tíma til að melta málin.
Stjörnuspá
6. apríl 1979
Helgarpósturinn kom út í
fyrsta sinn. Hann var í upphafi
vikulegt fylgirit Alþýðublaðs-
ins en síðan sjálfstætt blað. Út-
gáfunni var hætt 1988.
6. apríl 2000
Vatneyrardómurinn. Meiri-
hluti Hæstaréttar dæmdi út-
gerð Vatneyrar til að greiða
sektir fyrir að hafa farið til
veiða án aflaheimilda. Héraðs-
dómur Vestfjarða hafði áður
sýknað útgerðina. „Kvótakerf-
ið stenst stjórnarskrá,“ sagði
DV. Í ritstjórnargrein Morg-
unblaðsins var sagt að Hæsti-
réttur hefði „kveðið upp
grundvallardóm um nokkra
lykilþætti fiskveiðistjórn-
unarkerfisins og þar með eytt
að verulegu leyti ákveðinni
réttaróvissu“.
6. apríl 2008
Kári Steinn Karlsson, 22 ára,
setti Íslandsmet í 10.000 metra
hlaupi á móti í Kaliforníu,
hljóp á 29 mínútum og 28,05
sekúndum, og sló 32 ára gam-
alt met Sigfúsar Jónssonar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Jóna Vigdís Gunnarsdóttir og Re-
bekka Sif Gunnþórsdóttir héldu
tombólu í Þorlákshöfn og söfnuðu
2.514 kr. sem þær færðu Rauða
krossinum.
Hlutavelta
ÁSGEIR Tómasson fréttamaður er í vinnunni á
fréttastofu Ríkisútvarpsins á 55 ára afmælisdag-
inn. Ekki er venjan að vera með tilstand á vinnu-
staðnum þótt stimpilklukkan láti vita með því að
spila afmælissönginn. Ásgeir reiknar þó með því
að verða í góðum félagsskap Boga Ágústssonar
fréttamanns sem einnig á afmæli í dag.
Ásgeir verður á vaktinni á Útvarpinu að kvöldi
kosningadags. Rás 2 er með kosningaútvarp alla
nóttina þar sem kosningatölum er komið á fram-
færi ásamt viðtölum og öðrum upplýsingum og lög
leikin á milli. „Ég þarf að hafa til góðan stafla af
tónlist og af því ég er kominn svolítið úr æfingu í dagskrárgerð þarf
að gefa mér tíma til að velja lögin.“ Hann segist vera komin með
nokkur, þar á meðan tvö Rolling Stones-lög.
Ekki kemur á óvart hvaða lög urðu fyrst fyrir valinu enda Ásgeir
áhugamaður um rokk og Rolling Stones. Hann gerði átta þætti um
hljómsveitina fornfrægu í fyrra og komst þó aðeins yfir tvö fyrstu ár-
in. Hann á því enn eftir að gera 40 ára sögu skil. „Ég var hafður að
háði og spotti innan Útvarpsins út af þessu og er farinn að óttast að ég
verði að þessu þangað til ég verð sextíu og fjögurra.“ helgi@mbl.is
Ásgeir Tómasson fréttamaður 55 ára
Sessunautar á afmælisdegi
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is