Morgunblaðið - 06.04.2009, Síða 33
Menning 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Þú ert hér – „...skemmti mér konunglega“ MK, Mbl.
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Mið 6/5 kl. 20:00 U
Fim 7/5 kl. 20:00 U
Fös 8/5 kl. 20:00 U
Lau 9/5 kl. 20:00 U
Sun 10/5 kl. 20:00 U
Mið 13/5 kl. 20:00 U
Fim 14/5 kl. 20:00 U
Fös 15/5 kl. 20:00 U
Lau 16/5 kl. 16:00 U
Sun 17/5 kl. 16:00 U
Sun 17/5 kl. 20:00 U
Mið 20/5 kl. 20:00 U
Fim 21/5 kl. 16:00 U
Fim 21/5 kl. 20:00 U
Fös 22/5 kl. 20:00 U
Lau 23/5 kl. 20:00 U
Sun 24/5 kl. 16:00 U
Mið 27/5 kl. 20:00
Fim 28/5 kl. 20:00 U
Fös 29/5 kl. 20:00 U
Lau 30/5 kl. 20:00 U
Mán 1/6 kl. 16:00 Ö
Mið 3/6 kl. 20:00 U
Fim 4/6 kl. 20:00 U
Fös 5/6 kl. 20:00
Lau 6/6 kl. 16:00 U
Lau 6/6 kl. 20:00 U
Sun 7/6 kl. 16:00 U
Fim 11/6 kl. 20:00 Ö
Fös 12/6 kl. 20:00
Lau 13/6 kl. 14:00 Ö
Sun 14/6 kl. 16:00 Ö
Milljarðamærin snýr aftur (Stóra sviðið)
Fló á skinni (Stóra sviðið)
Þú ert hér (Nýja sviðið)
Einleikjaröð- Sannleikurinn (Litla sviðið)
Einleikjaröð - Rachel Corrie (Litla sviðið)
Einleikjaröð - Óskar og bleikklædda konan (Litla sviðið)
Tryggðu þér miða í tíma!
Lau 18/4 kl. 19:00 Ö Sun 19/4 kl. 20:00 Sun 26/4 kl. 20:00
Fös 17/4 kl. 19:00 U Fös 24/4 kl. 19:00 Ö Lau 25/4 kl. 19:00
Fös 17/4 kl. 20:00
Lau 18/4 kl. 20:00
Mið 22/4 kl. 20:00
Fim 23/4 kl. 20:00
Fim 16/4 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 19:00
Fös 17/4 kl. 19:00 U
Fös 17/4 kl. 22:00 Ö
Mið 22/4 kl. 19:00 Ö
Mið 22/4 kl. 22:00 Ö
Fös 24/4 kl. 19:00 U
Fös 24/4 kl. 22:00
Lau 25/4 kl. 19:00 Ö
Lau 25/4 kl. 22:00
Fim 30/4 kl. 19:00
Fim 30/4 kl. 22:00
Lau 18/4 kl. 22:00 Sun 19/4 kl. 20:00
Krassandi leikhúsveisla! Sýningum lýkur í apríl
Yfir 140 uppseldar sýningar. Sýningum lýkur í apríl
Nýtt leikverk rifið beint úr íslenskum veruleika
Uppsetnng Ímagyn í samstarfi við Borgarleikhúsið
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Fúlar á móti (Samkomuhúsið)
Fim 9/4 kl. 13:00 U
Fim 9/4 kl. 14:30 U
Fim 9/4 kl. 16:00
Lau 11/4 kl. 13:00 Ö
Lau 11/4 kl. 14:30 U
Tenórinn (Samkomuhúsið)
Fös 10/4 kl. 20:00 Ö
Skoppa og Skrítla í söngleik (Rýmið)
Mið 8/4 kl. 19:00 U
Fim 9/4 kl. 19:00 U
Fim 9/4 kl. 21:30 Ö
Lau 11/4 kl. 19:00 U
Lau 11/4 kl. 21:30 Ö
Fim 16/4 kl. 20:00 Ö
Fös 17/4 kl. 20:00 U
Lau 18/4 kl. 19:00 U
Lau 18/4 kl. 21:30 Ö
Fös 24/4 kl. 19:00
Lau 25/4 kl. 20:00 Ö
Snörp kynslóðaskipti kraft-birtust á fjölsóttu gulu sin-fóníutónleikunum á fimmtu-dag í túlkun Pauls
McCreesh á óratóríu Haydns, Sköp-
uninni, frá 1798. Þetta fræga meist-
araverk, er ásamt Messíasi Händels
kvað tíðfluttust allra óratóría í heimi,
hefur hér á landi lengst af verið í
sæmilegum friði fyrir endurmati
„sagnréttrar“ upprunatúlkunar –
HIP („Historically Informed Per-
formance“) á alþjóðsku.
En ekki lengur! Því þó að
strengjadeild SÍ væri að venju stál-
strengd en ekki girnistrengd, og
pákusettið eitt hljóðfæra haft í 18.
aldar tindilgerð með tilheyrandi
kökudósahljómi, þá var ljósára fjar-
lægð á milli fyrri settlegra róm-
antískra hraðavala og þeirra sem nú
bar fyrir eyru.
Að vísu kom furðumargt vel út, og
betur en maður þorði að vona miðað
við fyrri reynslu kórsöngvara í róm-
aðri uppfærslu dr. Róberts Abra-
hams Ottóssonar 1973. En víða hálf-
uppsprengdur hraðinn (a.m.k. hjá
því sem maður átti að venjast) hafði
líka í för með sér snert af eirðarlausri
ýtni sem skildi stundum eftir lítið
svigrúm til að staldra betur við á
hæfilegum stöðum.
Í uppfærslu gestastjórnanda með
staðbundnum „ad hoc“ kór bauð
hraðinn m.ö.o. ákveðinni flaust-
urshættu heim – ekki sízt í söngflúri.
Sem betur fór útheimti Sköpun Ha-
ydns minna af slíku en aðalfyrirmynd
hans, Messías Händels, enda þótt
einsöngvararnir virtust á köflum
eiga fullt í fangi á flennireiðinni.
Þrátt fyrir hana stóðu Hljómeyki og
Kór Áskirkju sig með tápmiklum
glæsibrag. Jafnframt var óvenjulegt
að heyra sungið á ensku. En þótt
textinn greindist þannig verr en
venjulega (líka fyrir þá sök að tón-
leikaskráin birti aðeins inntakságrip
á íslenzku), var samt talsverð til-
breytni fólgin í enskunni, jafnvel þótt
þýzkan hafi að mínu viti enn vinning-
inn, enda skýrara söngmál þrátt fyrir
alkunna enskufíkn nútímans.
Engu að síður var þessi tímamóta-
uppfærsla iðulega stórskemmtileg og
skilaði á köflum jafnvel nýrri innsýn,
t.a.m. í „dýrakafla“ nr. 21 þar sem
hvetjandi stjórn McCreesh laðaði
fram kostulega leiktúlkun á heillandi
fánulýsingum Haydns. Raddgerðir
einsöngvaranna hentuðu að vísu mis-
vel í hópsöng þar eð skær og oft
sléttbeittur sópran Rebeccu Botto-
nes átti ekki alltaf saman við titraðri
raddir Gilchrists og Logesar.
En heildin sveik engan. Hér gat að
heyra Sköpun Haydns í daggferskri
endurmynd er höfðaði jafnt til nýrra
hlustenda sem hinna eldri. Fyrir ut-
an að varpa óvenjusterku ljósi á
Händel-fyrirmyndir Vínarmeist-
arans – einkum í nr. 26, halelújakórn-
um „Vollendet ist das Grosse Werk“,
eða á máli kvöldsins Achieved is the
glorious work.
Sköpun á flennireið
Háskólabíó
Sinfóníutónleikar
bbbmn
Haydn: Sköpunin. Einsöngur: Rebecca
Bottone, James Gilchrist T, Stephan Lo-
ges B. Kór: Hljómeyki og Kór Áskirkju
(kórstj.: Magnús Ragnarsson) ásamt
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi:
Paul McCreesh. Fimmtudaginn 2. apríl
kl. 19.30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Beitt Söngrödd Rebeccu Bottone
var „skær og sléttbeitt“.
Marta María Jónsdóttirog Magnús Helgasoneiga það sameiginlegtað starfa á fleiri en einu
myndrænu sviði, en bæði hafa tölu-
verða reynslu af hreyfimyndagerð
auk listnámsins. Marta María hefur
unnið við hreyfimyndagerð á al-
þjóðavettvangi og hefur menntað sig
í faginu, en Magnús hefur m.a. gert
kvikmyndainnsetningar í samvinnu
við tónlistarmenn. Í Gallerí Ágúst
sýna þau stór málverk og Marta
María auk þess teikningar.
Málverk Magnúsar Helgasonar
eru abstrakt verk sem byggjast á
sterkum litum og vinnuaðferðum er
minna á vinnuaðferðir hinna ungu
og villtu á tímum nýja málverksins,
eða athafnamálara um miðja síðustu
öld. Þau eru stór og kraftmikil en
skortir nokkuð á í frumleik og per-
sónulegri sýn til að verða eft-
irminnileg.
Marta María sýnir einnig stór
málverk, í myndum hennar koma
saman ólíkir þættir sem skapa
marglaga verk. Í teikningunum
verða línur til á hálf-ósjálfráðan
máta, línan dregur hönd listakon-
unnar áfram án þekkts áfanga-
staðar. Teikningar af þessum toga
hafa verið nokkuð vinsælar hjá
yngri listamönnum, sérstaklega hjá
konum, en ná langt aftur á tutt-
ugustu öld, til teikninga súrreal-
istanna, einnig má sjá svipaðar línur
birtast í teikningum Alfreðs Flóka
og hefur aðferðin endurómað m.a. í
verkum Gabríelu Friðriksdóttur og
Siggu Bjargar Sigurðardóttur.
Teikningar Mörtu Maríu eru þó
óhlutbundnari en hjá þeim sem hér
voru nefndir og einkennast líka af
endurteknu mynstri sem minnir á
mandölur. Þriðji þáttur verkanna er
síðan litaflæði. Það eru því línan,
mynstrið og flæðið sem saman skapa
endanlega niðurstöðu. Þetta samspil
er áhugavert og að mínu mati í þró-
un. Nú um stundir á sér stað mikil
gerjun í málverkinu, ekki síst í
tengslum við miðla eins og veggjalist
og hreyfimyndir og Marta María
kemur hér nokkuð sterk inn á sviðið.
Mynstur og flæði
Gallerí Ágúst
Málverk, Marta María Jónsdóttir og
Magnús Helgason
bbbnn
Til 2. maí. Opið mið. til lau. frá kl. 12-17.
RAGNA
SIGURÐARDÓTTIR
MYNDLIST
Morgunblaðið/Heiddi
Sameiginlegt Marta María Jónsdóttir og Magnús Helgason eiga það sam-
eiginlegt að starfa á fleiri en einu myndrænu sviði. Í Gallerí Ágúst sýna þau
stór málverk og Marta María auk þess teikningar.
Síðustu tónleikar TríósReykjavíkur á þessumvetri fóru fram á sunnu-dag við góða aðsókn að
vanda. Dagskráin var fjölbreytt,
spannaði tvær aldir og bauð auk
nýs íslenzks verks eftir Karólínu
Eiríksdóttur og hins sívinsæla Sil-
ungakvintetts einnig upp á tvær
sjaldheyrðar dúóáhafnir.
Dúó Rossinis fyrir selló og
kontrabassa (ásamt kvintetti Schu-
berts frá öndverðri 19. öld) var
skemmtilega sönghæft; lagrænt
mótað af glettnum snemmróm-
antískum óperustíl og ljómandi vel
flutt í þokkaþýðum samleik djúpu
strengjahljóðfæranna. Dúó Bohus-
lavs Martinus fyrir fiðlu og víólu
frá miðri 20. öld tjaldaði m.a. at-
hygliverðri mótorískri krossrytmík
og þjóðlegum áhrifum (stundum
m.a.s. djasskenndum), er komust
vel til skila í líflegri túlkun Guð-
nýjar Guðmundsdóttur og Helgu
Þórarinsdóttur.
Hið nýja tvíþætta Tríóverk Kar-
ólínu [14’] var víða spennandi
áheyrnar í fyrra tilbrigðaþættinum,
enda tjábrigðin gizka víðfeðm og
inn á milli m.a.s. brydduð púls-
rytmískum þráfrumum. Það missti
þó nokkuð niður tilfinningu fyrir
markvissri framvindu í styttri en
átakameiri seinni þættinum („And-
lit í skýjum“) þar sem maður sakn-
aði ekki sízt sannfærandi niðurlags,
því endirinn kom að minni vitund
fyrir líkt og klippt hefði verið á í
skyndi. Verkið virtist samt hið
bezta flutt og hlaut hlýjar und-
irtektir áheyrenda.
Hinn 40 mín. langi Silunga-
kvintett Schuberts fyrir píanó,
strengjatríó og kontrabassa er það
alþekkt og elskað verk að það gerir
sig nánast í hvaða túlkun sem er,
þökk sé ómeðvitaðri þáþrárgöfgun
hlustenda. En til að jafnkunnug
klassísk stórsmíð rísi eftirminnilega
upp úr öðrum lifandi flutningi þarf
að koma til nákvæmari og innlifaðri
samstilling en hér var að heilsa;
t.a.m. í líkingu við spilamennskuna
sem heyra mátti á tónleikum
Kammermúsíkklúbbsins 15. febr-
úar s.l. Vissulega var oft dável leik-
ið, enda stóð ekki á þakklæti tón-
leikagesta að leikslokum. En
eldvakra herzlumuninn vantaði.
Fjölbreytt
kammerkvöld
Hafnarborg
Kammertónleikar
bbbnn
Rossini: Dúó. Martinu: Þrír madrígalar.
Karólína Eiríksdóttir: Tríó (frumfl.).
Schubert: Silungakvintettinn. Tríó
Reykjavíkur ásamt Helgu Þórarins-
dóttur, víóla, og Richard Korn, kontra-
bassi. Sunnudaginn 29. marz kl. 20.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Beethoven var fyrstur á tón-leikum Bryndísar HölluGylfadóttur og GerritsSchuil á laugardaginn,
sónata í g moll op. 5 nr. 2. Hún byrj-
aði vel, sellóhljómurinn var safarík-
ur og fallega mótaður, og píanóið
lungamjúkt. Annar kaflinn var líka
frábær, svo dillandi rytmískur að
unaður var á að hlýða. Helst mátti
finna að nokkurri ónákvæmni í loka-
þættinum, píanóröddin var dálítið
loðin, en þó var rétti andinn alltént
til staðar í tónlistinni.
Schumann var næstur á dag-
skránni, Fantasiestücke op 73. Þar
var sellóleikurinn einstaklega hríf-
andi, allir meginþræðir verksins
voru skýrir og fínleg blæbrigði mót-
uð af kostgæfni. Píanóleikurinn var
líka oft góður og þótt hnökrar kæmu
fyrir var tilfinningaólgan sannfær-
andi, og heildarsvipurinn því sterk-
ur.
Seinni sónatan eftir Beethoven, í
A dúr op. 69, var þéttari en sú fyrri,
sellóleikurinn var guðdómlega fag-
ur, djúpur og ástríðuþrunginn. Pí-
anóleikurinn var líka öruggur, og
raddir beggja hljóðfæranna í prýði-
legu jafnvægi. Kannski hefði þó
meiri skýrleiki í píanóspilinu gert
verkið enn áhrifameira.
Lokaverkið á efnisskránni, Ada-
gio og Allegro op. 70 eftir Schu-
mann, var svo frábær endir á
skemmtilegum tónleikum. Þar var
skotið upp flugeldum, allskonar
hraðar tónahendingar og hlaup
flugu um og heppnaðist það ávallt
fullkomlega. Gott að komast upp til
himna eftir að hafa þar á undan kaf-
að um undirdjúpin!
Frá undirdjúpum til himna
Kirkjuhvoli – Vídalínskirkju
Kammertónleikar
bbbmn
Verk eftir Beethoven og Schumann.
Flytjendur: Bryndís Halla Gylfadóttir og
Gerrit Schuil. Laugardagur 28. mars.
JÓNAS SEN
TÓNLIST