Morgunblaðið - 21.05.2009, Síða 3

Morgunblaðið - 21.05.2009, Síða 3
Fyrir 2 til 12 (ýmist sem aðalréttur eða forréttur) Peking pönnukökurnar henta vel sem spariréttur en eru einnig fyrirtaks skyndimatur ef kjúklingaafgangur er til á heimilinu. Þær eru líka fullkomnar í lautarferðina og þá hentar vel að kaupa annað hvort tilbúinn, grillaðan Holta kjúkling eða tilbúna Holta kjúklingastrimla. 1 heill Holta kjúklingur 12 stk Peking pönnukökur (fást í pakka) 1 laukur Salt og pipar 2 gúrkur 2 púrrulaukar 2 stórar lárperur (avocado) 1 bakki af baunaspírum Chezuan wok sósa FARIÐ SVONA AÐ: Skerið gúrkuna, púrrulaukinn og lárperuna niður í strimla. Setjið kjúklinginn í pott og hellið vatni þar til það flæðir yfir kjötið. Grófsaxið laukinn og bætið út í vatnið ásamt salti og pipar. Sjóðið í 45-60 mínútur eða þangað til beinin losna frá kjötinu. Kælið og tætið niður kjötið. Hitið pönnukökurnar á pönnu, setjið meðlætið í skálar og berið fram. Uppskriftin er úr Holtabæklingnum „Umhverfis heiminn í 14 réttum með Áslaugu Snorradóttur“. * Fleiri frábærar kjúklingauppskriftir á www.holta.is * HOLTA byggir á áratugalangri reynslu, leggur mikinn metnað í gæðastjórnun og er stöðugt að auka fjölbreytni í vöruúrvali. Íslenskir neytendur hafa í viðhorfskönnunum valið Holta kjúkling sem vinsælasta ferska kjúklinginn. Peking pönnukökur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.