Morgunblaðið - 21.05.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ATHYGLI umheimsins beinist að
Íslandi nú um stundir og þið hafið því
einstakt tækifæri til þess að koma
ykkur á framfæri. Þið þurfið hins
vegar að hafa hraðar hendur, vegna
þess að augnaráð heimsins færist
hratt yfir,“ segir David Hoskin frá
fyrirtækinu Eye-for-Image í Dan-
mörku. Hann var meðal fyrirlesara á
málþingi sem bar yfirskriftina „Að
tala fyrir Íslands hönd“ og haldið var
í Salnum í gær. Að málþinginu stóðu
Útflutningsráð, Almannatengslafélag
Íslands og Ferðamálastofa í sam-
starfi hinna ýmsu samtaka atvinnu-
rekenda.
Vörumerkið Ísland enn ólaskað
Að mati Hoskins hefur Ísland sem
vörumerki ekki beðið hnekki vegna
efnahagshrunsins síðasta haust.
„Ástæðan fyrir því er fyrst og fremst
sú að Ísland var sem vörumerki fyrir
hrunið ekki sérlega þekkt eða
sterkt,“ segir Hoskin og nefnir máli
sínu til stuðnings að í hugum flestra
tengist Ísland nú annars vegar fisk-
veiðum og hins vegar fjármál-
um.„Fyrir utan þetta tvennt vita
menn á heimsvísu afar lítið um Ís-
land. Þið þurfið þess vegna að koma
ykkur saman um hvað þið viljið
standa fyrir og tala síðan einni röddu.
Vegna smæðar landsins hafið þið ein-
stakt tækifæri til þess að stilla saman
strengi ykkar og koma skýrum skila-
boðum á framfæri erlendis, en það
þarf að gerast hratt,“ segir Hoskin og
mælir með því að farið verði í al-
þjóðlega markaðsherferð á Íslandi.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Hoskin lykilatriði að koma á framfæri
jákvæðum sögum frá Íslandi. „Þið
hafið t.d. kjörið tækifæri til þess að fá
athygli út á nýjan forsætisráðherra
ykkar, fyrstu vinstri stjórn landsins,
umræðuna um hugsanlega aðild Ís-
lands að ESB, þá staðreynd að konur
komi í auknum mæli að endurreisn
fjármálakerfisins og ekki síst tækni-
nýjungar sem tengjast fyrirtækjum á
borð Össur hf. sem vakið hefur
heimsathygli fyrir smíði sína á gervi-
fótum spretthlauparans Oscars Pi-
storiu sem er mögnuð saga sem fang-
ar alla,“ segir Hoskin og tekur fram
að sögurnar þurfi jafnt að höfða til
hugar og hjarta almennings.
Í viðhorfskönnun þeirri sem kynnt
var á málþinginu kom fram að Danir,
Bretar og Þjóðverjar tengja Ísland
fyrst og fremst við náttúru og menn-
ingu. Aðspurður segir Hoskin mik-
ilvægt að vernda náttúruna hérlendis
til þess að halda í sérstöðuna sem Ís-
land hefur sem áfangastaður ferða-
manna. Einnig sagðist hann þeirrar
skoðunar að það hefði verið rétt
ákvörðun að klára tónlistarhúsið sem
fyrst og gera það starfhæft með
menningarviðburðum sem dregið
gætu ferðamenn til landsins.
Samhengið ræður merkingunni
Andrés Jónsson, formaður Al-
mannatengslafélags Íslands, tók í er-
indi sínu undir með Hoskin að mik-
ilvægt væri að fara í
almannatengslaherferð á heimsvísu.
Sagðist hann þeirrar skoðunar að
lykilatriði væri að fá erlenda sérfræð-
inga á sviði kynningarmála til þess að
halda utan um slíka herferð þar sem
þeir hefðu reynsluna og samböndin.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir,
sendiherra í Ósló, fór í erindi sínu yfir
þær gullnu reglur sem allir fulltrúar
landsins þurfa að hafa að leiðarljósi,
hvort heldur þeir eru sendiherrar,
stjórnendur fyrirtækja, listamenn
eða almennir borgarar. Sagði hún
lykilatriði að hlusta á viðmælendur
sína, vera reiðubúinn að taka til máls,
þekkja eigin hagsmuni sem og hags-
muni viðmælandans.
Sigríður ræddi reynslu sína af því
að tala fyrir Íslands hönd í jafnólíkum
menningarheimum og í Afríku ann-
ars vegar og Noregi hins vegar.
Spurð hvort hún teldi að hægt væri
að senda ein samræmd skilaboð frá
Íslandi út til allra landa heims sagði
Sigríður vissulega hægt að samræma
meginskilaboðin, en að samhengi
hlutanna réði ávallt merkingunni og
því þyrfti um leið að taka tillit til að-
stæðna á hverjum stað.
Morgunblaðið/Ómar
Geysir Samkvæmt nýrri viðhorfskönnun í Bretlandi, Danmörku og Þýskalandi er íslensk náttúra helst það sem laðar ferðamenn til landsins.
Einstakt tækifæri Íslands
Sökum smæðar landsins geta Íslendingar auðveldlega stillt saman strengi sína
og talað einni röddu á heimsvísu Kallar eftir alþjóðlegri ímyndarherferð
!"##
"##$#%
!"## &"#%'
(")!"##*+
,%(")
ÍMYND Íslands er enn sterk í huga
Breta og þeir hafa mikinn áhuga á
að sækja landið heim þrátt fyrir
bankahrunið í haust. Þetta var
meðal þess sem fram kom í máli Ge-
off Saltmarsh á málþinginu í gær.
Saltmarsh starfar hjá The Salt-
marsh Partnership í Bretlandi sem
hefur m.a. unnið fyrir Ferða-
málastofu við að markaðssetja Ís-
land fyrir breska ferða- og fjöl-
miðlamenn.
„Við sáum bankahrunið fyrst og
fremst sem tækifæri fyrir Ísland,
en ekki hættulegt ástand. Ísland
var jú á forsíðum allra dagblað-
anna, þótt af rangri ástæðu væri,“
segir Saltmarsh og bendir á að fyr-
irtækið hafi strax í kjölfar hrunsins
spýtt í lófana og markaðssett Ísland
sem aldrei fyrr með þeim árangri
að Bretum sem ferðast til Íslands
hefur fjölgað um 20%. „Ísland talar
fyrir sig sjálft,“ segir Saltmarsh og
bendir á að árið 2008 hafi fyr-
irtækið staðið fyrir 40 kynning-
arferðum fyrir fjölmiðlafólk og allt
stefni í það slíkar ferðir verði enn
fleiri á þessu ári.
Ísland talar
fyrir sig sjálft
Morgunblaðið/RAX
ÓMAR Stefánsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs
Kópavogs, telur ekki að meirihlutasamstarf Framsóknar
og Sjálfstæðisflokks sé í hættu að svo stöddu. „Það er
engin stjórnarkreppa í Kópavogi,“ sagði Ómar.
Bæjarmálaráð framsóknarmanna í Kópavogi fundaði í
fyrrakvöld vegna viðskipta bæjarins við fyrirtæki dóttur
Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra. Viðskiptin námu um
50 milljónum króna á tíu árum. Endurskoðendum bæj-
arins hefur verið falið að taka saman skýrslu um þessi
viðskipti. Ómar reiknar með að henni verði skilað innan
hálfs mánaðar. Gunnar bæjarstjóri sagði í samtali við
mbl.is að skýrslan mundi hreinsa sig og dóttur sína af
ásökunum pólitískra andstæðinga sinna.
Ómar sagði að upplýsingarnar um fyrrnefnd viðskipti
hefðu komið sér á óvart. Einkum hve margir sviðs- og
deildarstjórar bæjarins ákváðu að eiga viðskipti við fyr-
irtækið. Ómar sagði það vera á þeirra ábyrgð en ekki
bæjarstjórans. Hann kvaðst sjálfur hafa talið að viðskipt-
in einskorðuðust við frágang ársskýrslu. Ómar staðfesti
að langflestir reikningarnir væru undir 500 þúsund krón-
um hver, en greiðsla þeirra fær aðra meðferð í bæj-
arkerfinu en greiðsla hærri reikninga. gudni@mbl.is
„Það er engin stjórnar-
kreppa í Kópavogi“
Oddviti Framsóknar telur meirihlutasamstarf ekki í hættu
Morgunblaðið/Ómar
Kópavogur Endurskoðendur undirbúa skýrslu.
ÞRÁTT fyrir að viðhorf til Íslands
hafi á heildina litið versnað vegna
bankahrunsins í haust er viðhorfið
til Íslands sem áfangastaður fyrir
ferðamenn jákvætt. Þetta kemur
fram í nýrri viðhorfskönnun sem
ParX Viðskiptaráðgjöf IBM gerði í
Bretlandi, Danmörku og Þýska-
landi fyrir Útflutningsráð Íslands
og Ferðamálastofu.
Ísland enn vinsæll
áfangastaður
NÁTTÚRAN er sá þáttur sem al-
menningur í Bretlandi, Danmörku
og Þýskalandi tengir helst við Ís-
land. Þannig nefna 43-55% þátttak-
enda náttúruna sem það fyrsta sem
kemur upp í hugann þegar Ísland
er nefnt. Að sama skapi er náttúran
meginástæða hugsanlegrar Ís-
landsheimsóknar, en 27-59% svar-
enda segja svo vera. Næstvinsæl-
asta ástæðan fyrir Íslandsferð er
menning almennt en hana nefndu
14-41% svarenda.
Náttúran og menn-
ingin trekkja helst
15%
afsláttur
NICOTINELL
Munnsogstöflur
með bragði!
Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni þegar reykingum er hætt. Til að ná sem bestum árangri skal ávalt fylgja
leiðbeiningum í fylgiseðlinum með lyfinu. Skammtar eru einstaklingsbundnir og eru ákvarðaðir eftir því hversu mikið var reykt.
Munnsogstöflur: skammtar mega þó aldrei vera stærri en 30 stykki á dag af 1 mg og mest 15 stykki á dag af 2 mg. Leita skal til læknis eða
lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall
nýlega, óstöðuga eða versnandi hjartaöng, alvarlega hjartsláttaróreglu eða heilablóðfall nýlega eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Börn
undir 18 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði. Lesið allan fylgiseðilinn áður en
byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
®