Morgunblaðið - 21.05.2009, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
ÞESSI ungi piltur ber það mikla nafn Þorgeir Hávarsson, enda úr Ljósa-
vatnsskarði, frá bænum Hriflu 3, en Framsóknarmaðurinn Jónas kenndi
sig einmitt við Hriflu eins og margir muna. Þorgeir, sem hefur millinafnið
Atli, sat í fyrradag og hjálpaði afa sínum á Grenivík að skera úr netum.
Þemavika er nú í Stórutjarnaskóla og þau systkinin Þorgeir og Ísey Dísa,
kusu frekar að „vinna og gera gagn“ en dvelja við leiki í skólanum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þorgeir sker af netum
FJÖRUTÍU og fimm ökumenn voru
staðnir að hraðakstri á Borgar-
holtsbraut í Kópavogi á mánudag
en þar var staðsett ómerkt lög-
reglubifreið sem er búin mynda-
vélabúnaði.
Á einni klukkustund, eftir há-
degi, fóru 80 ökutæki þessa akst-
ursleið og því óku 56% ökumanna
of hratt eða yfir afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var 46
km/klst en þarna er 30 km há-
markshraði. Þrettán óku á 50 km
hraða eða meira.
Í mars var fylgst með ökutækjum
á sama stað á Borgarholtsbraut og
þá óku 68% ökumanna of hratt eða
yfir afskiptahraða. Í kjölfarið var
bætt úr merkingum en það virðist
duga skammt.
Fyrir ári var lögreglan líka við
hraðamælingar á Borgarholtsbraut
en þá var leyfður hámarkshraði 50
og því ekki hægt að bera niðurstöð-
urnar saman. Það vekur hinsvegar
athygli að þá (apríl 2008) voru nær
allir ökumenn til fyrirmyndar en 89
ökutæki fóru umrædda akstursleið.
Aðeins einu þeirra var ekið of hratt
eða yfir afskiptahraða, samkvæmt
tilkynningu frá lögreglunni.
Lögreglan mun áfram fylgjast
með því að ökumenn virði reglur
um hámarkshraða í Kópavogi sem
og annars staðar.
Margir óku allt of
hratt í Kópavogi
KONA á þrítugsaldri var dæmd í
Hæstarétti í gær í tólf mánaða
fangelsi fyrir rán í Litlu kaffistof-
unni í desember 2007.
Ránið framdi hún í félagi við
karlmann, sem í héraðsdómi var
dæmdur í 20 mánaða fangelsi en
ránsfengurinn var 7.500 krónur. Í
héraðsdómi var konan dæmd í 16
mánaða fangelsi. Var hún jafn-
framt svipt ökuréttindum í átján
mánuði fyrir akstur undir áhrifum
ávana- og fíkniefna.
Huldi andlit sitt
Í niðurstöðu Hæstaréttar kemur
fram að konan huldi andlit sitt og
ógnaði starfsmanni Litlu kaffistof-
unnar með hnífi. Þá var hún einnig
sakfelld fyrir nytjastuld og að hafa
í tvígang ekið óhæf um að stjórna
ökutæki, örugglega vegna áhrifa
ávana- og fíkniefna. Með brotun-
um rauf konan skilorð sem hún
hafði fengið fyrir umferðarlaga-
brot og brot gegn valdstjórninni.
Konan hafði áður verið dæmd í
skilorðsbundið fangelsi fyrir ráns-
brot en var ekki fullra 18 ára er
hún framdi það brot. Henni höfðu
einnig verið gerðar sektir fyrir
auðgunar- og umferðarlagabrot.
Háttsemi konunnar við ránið var
talin ógnandi og því metin henni
til refsiþyngingar. Hins vegar voru
ekki miklir fjármunir teknir og
hún játaði brot sín að mestu leyti.
Henni var jafnframt gert að
greiða starfsmanni í Litlu kaffi-
stofunni 150.000 krónur í miska-
bætur.
Fékk árs fang-
elsi fyrir rán
MJÖG mikill áhugi er í Hollandi á
landsleik Íslands og Hollands í und-
ankeppni heimsmeistarakeppn-
innar í knattspyrnu sem leikinn
verður á Laugardalsvellinum laug-
ardaginn 6. júní.
Vegna þessarar miklu eft-
irspurnar hefur Icelandair bætt
þremur flugferðum við daglega
áætlun sína til Amsterdam og er
fullbókað í þær. Gera má ráð fyrir
að á annað þúsund aðdáendur liðs-
ins komi með Icelandair dagana
fyrir leikinn og setji svip á borgina
þessa helgi, en hollenskir knatt-
spyrnuaðdáendur eru þekktir fyrir
að klæðast og skreyta sig hinum
skæra appelsínugula einkennislit
landsliðsins.
Liðin léku fyrri leikinn í und-
ankeppninni í Rotterdam í október
síðastliðnum og þá sigruðu Hol-
lendingar 2-0. Icelandair er að-
alstuðningsaðili íslenskra knatt-
spyrnulandsliða.
Þrjár aukaflugferðir
á landsleik hér
„FORNLEIFASTOFNUN Íslands
vísar á bug ásökunum forstjóra
Framkvæmdasýslu ríkisins um
meinta misnotkun á markaðs-
ráðandi stöðu og aðra vafasama
viðskiptahætti,“ segir í yfirlýsingu
frá Adolf Friðrikssyni, sem barst
blaðinu í gærkvöldi.
„Svo virðist sem umfjöllun
Morgunblaðsins um meint brot
FSÍ á samkeppnislögum og ásak-
anir um siðferðilega hæpnar
starfsaðferðir sé byggð á bréfi
forstjóra Framkvæmdasýslu ríkis-
ins til ýmissa aðila innan stjórn-
sýslunnar. Fornleifastofnun voru
ekki kynntar þessar bréfasend-
ingar og hefur því ekki haft tæki-
færi til að gera grein fyrir sinni
hlið málsins gagnvart þeim aðilum
sem bréfið var sent.
Framkvæmdasýsla ríkisins setti
fram alvarlegar ásakanir á hendur
FSÍ í bréfi til stofnunarinnar síð-
astliðið vor. Beiðni FSÍ um skýr-
ingar á málatilbúnaði Fram-
kvæmdasýslunnar ásamt
upplýsingum um réttarstöðu
stofnunarinnar, hefur enn ekki
verið svarað. Í umfjöllun Morg-
unblaðsins kemur enda fram að
forstjóri Framkvæmdasýslunnar
hafi ákveðið að svara ekki beiðn-
inni – í trássi við skyldur sínar
samkvæmt stjórnsýslulögum. For-
stjórinn lét auk þess undir höfuð
leggjast að gera viðeigandi stjórn-
völdum, þ.e. Samkeppniseftirlit-
inu, grein fyrir grunsemdum sín-
um svo rétt og sanngjörn
málsmeðferð mætti hefjast þar
sem FSÍ nyti þeirrar réttar-
verndar sem stjórnsýslureglur
gera ráð fyrir. Þess í stað kaus
forstjóri Framkvæmdasýslunnar
að senda túlkun sína á málinu í
bréfi til ýmissa aðila innan stjórn-
sýslunnar, en í bréfinu fléttar
hann saman óskyldum málum, eig-
in hugleiðingum, og vafasömum
ályktunum. Þessar hugrenningar
hafa nú verið birtar athugasemda-
laust í fjölmiðlum, og án þess að
öðrum málsaðilum, sem undir
þungum ásökunum liggja, hafi
verið gefinn kostur á að tjá sig
eða leiðrétta rangfærslurnar.
FSÍ harmar að opinber embætt-
ismaður beri út óhróður um
starfsfólk hennar og vegi að heiðri
stofnunarinnar og erlends háskóla.
Samkeppniseftirlitið hefur nú tek-
ið Alþingisreitsmálið til skoðunar
og fagnar Fornleifastofnun því að
það mál sé þar með komið í réttan
farveg.“
Fornleifastofnun vísar
ásökunum á bug
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
tíu mánaða fangelsisdóm héraðs-
dóms yfir manni fyrir peningafals
en hann falsaði tuttugu 2.000
króna seðla og notaði til þess ljós-
ritunarvél.
Maðurinn, sem er á fimmtugs-
aldri, er síbrotamaður en hann var
jafnframt dæmdur fyrir fíkniefna-
lagabrot með því að hafa haft í
vörslu sinni 2,19 grömm af am-
fetamíni sem lögregla fann við leit
á honum.
Nota átti peningana
í pókerspili
Lögreglan handtók manninn í
apríl 2007. Við leit á honum fund-
ust 20 tvö þúsund króna seðlar
sem lögreglan taldi að væru fals-
aðir. Í frumskýrslu var haft eftir
manninum að þeir væru ljósrit-
aðir.
Við yfirheyrslu kvaðst hann
hafa ætlað að nota þessa peninga í
pókerspili ásamt félögum sínum
og staðfesti hann þann framburð
fyrir dómi. Aldrei hefði verið ætl-
un hans að nota peningana í við-
skiptum eða til að blekkja með.
Hann ítrekaði að hann hefði skýrt
lögreglu frá þessu strax á vett-
vangi.
Lögreglan fann einnig á honum
amfetamín sem hann kannaðist við
að eiga. Í forsendum héraðsdóms
kom fram að peningarnir líktust
mjög raunverulegum seðlum og
allnokkurrar aðgæslu væri þörf til
að átta sig á að þeir eru falsaðir.
Þar sem hann hefði viðurkennt að
hafa ætlað að nota seðlana í pen-
ingaspili þótti dómnum sannað að
ásetningur hans stóð til að koma
þeim í umferð, „enda vart á hans
valdi að ráða því hvað um þá yrði
eftir að aðrir hefðu unnið seðlana
af honum í spilum“.
Fangelsisdómur fyrir pen-
ingafals og fíkniefnabrot