Morgunblaðið - 21.05.2009, Page 16

Morgunblaðið - 21.05.2009, Page 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is Ferðamennska í lækningaskyni er komin til að vera. Þess vegna þarf að veita sjúklingum eins miklar upplýsingar og þekkingu og unnt er til þess að þeir geti ratað í frum- skógi tilboða á netinu um lækn- ismeðferð erlendis. Þessu var slegið föstu á málþingi norrænu lífsið- fræðinefndarinnar sem heyrir undir norrænu ráðherranefndina. Málþingið var haldið í síðustu viku í Sigtuna í Svíþjóð og í því tóku þátt sérfræðingar í heilbrigð- isvísindum, heimspekingar, lög- menn og fulltrúar hagsmuna- samtaka sjúklinga auk fleiri. Ferðamennska í lækningaskyni er orðin að milljarðaiðnaði sem vex hratt um allan heim. Norrænir sjúklingar fara ekki bara í ýmiss konar hefðbundnar aðgerðir og meðferðir til nágrannalanda innan Evrópu, heldur einnig til lækna í fjarlægum löndum sem sumir segj- ast geta læknað nánast hvaða sjúk- dóm sem er. Meðferð sem vekur von Það er ekki síst stofnfrumu- meðferð sem nú vekur von alvar- lega veikra sjúklinga um bata en stofnfrumur hafa þann eiginleika að geta endurnýjað sig og jafnframt myndað sérhæfðar frumur. Beinmergur, sem inniheldur stofnfrumur, hefur í yfir 30 ár verið notaður til meðferðar á blóð- frumuæxlum og um þá meðferð hafa gilt ákveðnar reglur. „Allur annar flutningur á stofn- frumum er enn á rannsókna- og til- raunastigi,“ sagði Outi Hovatta, stofnfrumusérfræðingur við Karol- inska Institutet í Stokkhólmi, á málþinginu. Selja ofan af sér Sérfræðingarnir sem til máls tóku létu í ljós áhyggjur sínar yfir því að stofnfrumumeðferð væri auglýst á glæsilegum heimasíðum stofnana í löndum þar sem ekki gilda skýrar reglur um slíka með- ferð. Talsmenn margra stofnana í þessum löndum segja hvorki alþjóð- legum vísindamönnum hvað gert er við sjúklingana í raun og veru né heldur sjúklingunum sjálfum. Meðferðin kostar oft tugi millj- óna króna og komið hefur fyrir að sjúklingar hafi selt heimili sín til þess að geta greitt fyrir hana. Duglegar í markaðssetningu „Vandamálið er að þessar stofn- anir eru duglegar að markaðssetja sig og þær leika á strengi sem sjúklingurinn skilur og sem hann hefur kannski saknað í opinbera heilbrigðiskerfinu,“ segir Ole Johan Borge, formaður lífsiðfræðinefnd- arinnar í viðtali við Morgunblaðið. Outi Hovatta benti á að aðal- ástæðan fyrir því hvers vegna ræktaðar og sér í lagi fjölhæfar stofnfrumur hefðu ekki enn verið notaðar við klíníska meðferð væri möguleg hætta á að þær geti stuðl- að að myndun krabbameins. Nú færu fram viðamiklar rannsóknir á þessu sviði. Áður en hægt væri að sneiða hjá þessari hættu væri ekki réttlætanlegt að nota slíkar frumur við meðferð á sjúklingum. Óttast að sjúklingum versni Borge bætir því að allir sem þekki til á þessu sviði óttist að frumurnar sem fluttar eru geri ekki það sem vonast er til eða þá að þær myndi æxli eða frumuþyrpingar sem valdi því að ástand sjúklingsins versni. Hann greinir hins vegar jafn- framt frá því að mörgum finnist sem kröfurnar sem gerðar eru í sambandi við stofnfrumurannsóknir á Vesturlöndum áður en hægt sé að gera rannsóknir á mönnum séu of strangar. „Maður getur þá ímyndað sér að sé þröskuldurinn svolítið lægri ann- ars staðar taki menn meiri áhættu þar. En ef sjúklingarnir vita af því kann það að vera ásættanlegt.“ Handbók fyrir sjúklinga Það er mat Borge að handbók fyrir sjúklinga, sem hann segir að alþjóðleg samtök um stofn- frumurannsóknir, ISSCR, hafi sam- ið, sé fyrsta skrefið í viðleitninni til þess að koma til móts við sjúk- lingana. En hann bætir því við að jafnvel með handbókinni geti það orðið erfitt fyrir sjúklinga að vita hvað er viðurkennd meðferð og hvað ekki þar sem menn telji hættu á að þessar stofnanir fari að miða upplýsingar sínar við handbókina. Réð þeim frá að fara Sjálfur kveðst Borge hafa ráðið tveimur sjúklingum, sem hann þekkti til, frá því að fara í stofn- frumumeðferð frá Noregi til út- landa. Hann segir báða sjúklingana hafa farið utan fyrir söfnunarfé en báða komið heim án þess að hafa fengið bata. Að sögn Borge hafa heilbrigð- isyfirvöld á Norðurlöndum ekki rætt þessi mál nóg. Afstaða þeirra gagnvart sjúklingunum sem fara utan til lækninga sé ekki nógu skýr og það sé meðal annars ein af ástæðunum fyrir því að nefndin ákvað að halda málþing um lækn- ismeðferð yfir landamæri eins og sumir vilja kalla það sem nefnt hef- ur verið ferðamennska í lækn- ingaskyni. Ferðast til lækninga  Ferðamennska í lækningaskyni er orðin að milljarðaiðnaði sem vex hratt um allan heim  Norræna lífsiðfræðinefndin fjallaði um nauðsyn upplýsingagjafar Utan til lækninga Veita þarf sjúklingum eins miklar upplýsingar og unnt er til þess að þeir geti ratað í frumskógi tilboðanna á netinu um læknismeðferð. Er ferðamennska í lækningaskyni fjárplógsstarfsemi gagnvart sjúklingum eða heilbrigð viðbót við heilbrigðiskerfi Norðurlanda? Þetta var yfirskrift málþings nor- rænu lífsiðfræðinefndarinnar í síðustu viku. Reuter ÞAÐ eru í raun engin alþjóðleg sam- þykkt viðmið um hvaða kröfur eigi að gera til þeirra sem veita lækn- isþjónustu hingað og þangað um heiminn,“ segir Sigurður Guð- mundsson, fyrrverandi landlæknir. Sigurður, sem nú er forseti fræða- sviðs heilbrigðisvísindasviðs Há- skóla Íslands, var einn frummæl- enda á málþingi norrænu lífsiðfræðinefndarinnar í síðustu viku um ferðamennsku í lækninga- skyni. Sigurður bendir hins vegar á að að minnsta kosti fjórar viðurkenningar- stofnanir, sem taka út heilbrigðis- þjónustu, hafi metið sjúkrahús sem veita þeim sem koma frá öðrum löndum læknisþjónustu. „Sú stærsta, JCI, er bandarísk og er alþjóðlegi hluti stofnunar sem tekur út spítala í Bandaríkjunum. Þessi stofnun hefur metið og „veitt viðurkenningu“ held ég um 60 stofn- unum sem eru í Indlandi og Pakistan og víðar.“ Hinar stofnanirnar eru í Bret- landi, Kanada og Ástralíu, að sögn Sigurðar. Hann segir að þar sem gríðarleg þörf sé á greinargóðum upplýsingum fyrir sjúklinga hafi menn verið sam- mála um að skynsamlegasta skrefið væri að einhver stofnun á Norður- löndum, landlæknisembætti eða önnur, tæki upplýsingarnar saman. „Þar yrði hægt að fá skýrar upp- lýsingar um stofnanir sem ekki væri hægt að segja neitt misjafnt um.“ Sigurði finnst áhugavert að ræða hvort íslenska ríkið eigi að borga sjúklingum að minnsta kosti þá upp- hæð sem kostar að gera aðgerðina heima leiti þeir til erlendra stofnana sem metið er að séu í lagi. „Það mætti setja slíkt sem skilyrði fyrir greiðslu.“ ingibjorg@mbl.is Engin samþykkt viðmið Skynsamlegt að stofnun á Norðurlöndum veiti upplýsingar Vantar upplýsingar Sigurður Guð- mundsson, fyrrverandi landlæknir. Hvað gerir norræna lífsiðfræði- nefndin? Nefndin, sem var stofnuð árið 1989, á að stuðla að samvinnu og skiptum á upplýsingum milli Norðurlandanna í lífsiðfræði. Að sögn Vilhjálms Árna- sonar, prófessors í heimspeki við Há- skóla Íslands sem setið hefur í nefndinni í nokkur ár, hefur hún tals- vert frelsi til þess að taka efni upp að eigin frumkvæði. Vilhjálmur segir nefndina fylgjast vel með umræðu á alþjóðlegum vettvangi á sviði líf- tækni og lífvísinda og þeim málum sem geta vakið siðferðilegar spurn- ingar. Hvaða efni hefur nefndin fjallað um? Nefndin hefur meðal annars haldið sérstakt málþing um stofn- frumurannsóknir og unnið skýrslu um stofnfrumurannsóknir á Norð- urlöndum. Einnig hefur verið haldið málþing um tæknifrjóvgun, stöðu hennar á Norðurlöndum og mismun- andi löggjöf. Siðfræði fiskveiða og lífsiðfræði hafsins hefur jafnframt verið umfjöll- unarefni nefndarinnar, að sögn Vil- hjálms. Frekari upplýsingar um störf nefndarinnar eru á heimasíðunni ncbio.org. S&S SVEITARSTJÓRN Grýtubakka- hrepps lýsir yfir miklum áhyggjum vegna fyrirhugaðrar fyrningar á aflaheimildum í sjávarútvegi. „Út- gerðarmenn sem nú starfa í grein- inni hafa keypt stærstan hluta sinna veiðiheimilda og flestir farið eftir þeim leikreglum sem stjórn- völd hafa sett. Það er því mikið áhyggjuefni verði aflaheimildir teknar endurgjaldslaust.“ Í ályktun frá bæjarráði Fjarða- byggðar, bæjarráði Seyðisfjarðar og meirihluta bæjarstjórnar Tálknafjarðar er einnig lagst gegn fyrningarleið. Morgunblaðið/RAX Vara við fyrningu FRÁ og með deginum í gær og til 27. maí geta landsmenn styrkt MS- félagið með því að kaupa flatkökur frá Ömmubakstri og Gæðabakstri. Fyrirtækin tvö ætla að sýna þann rausnarskap að láta 10 krónur af hverjum seldum flatkökupakka renna til þjónustustarfsemi MS- félagsins. Prentsmiðjan Prentmet gefur félaginu prentun á dreifi- miðum með upplýsingum og fróð- leik um MS-sjúkdóminn sem slíkan. „Flatkökuvika“ til styrktar MS-félagi SVEITARSTJÓRN Skagafjarðar hefur ákveðið að allir unglingar og ungmenni 18 ára og yngri sem sækja um vinnu hjá Vinnuskóla Skagafjarðar skuli fá vinnu. Liðlega 20 ungmenni á aldr- inum 16-18 ára sóttu um og fá vinnu við ýmis fyrirtæki sveitar- félagsins. Þetta er um 30% fleiri en í fyrra Allir fá vinnu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.