Morgunblaðið - 21.05.2009, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.05.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 UTANRÍKISÞJÓNUSTAN, Út- flutningsráð og Ferðamálastofa hafa hafið samstarf um kynningu á Íslandi sem ferðamannastað í sam- ræmi við áætlanir um kynningu Ís- lands erlendis. Stefnt er að því að sendiráð Íslands verði héðan í frá formlegur upplýsingaveitandi ferðamála erlendis. Samstarfið endurspeglast m.a. í að skrifstofur Ferðamálastofu í Kaupmannahöfn og Frankfurt verða lagðar niður og verkefni þeirra flytjast að stórum hluta til sendiráðanna. Morgunblaðið/Kristinn Loka skrifstofum MANNRÉTTINDASKRIFSTOFA fagnar þeirri áherslu sem lögð er á mannréttindamál í nýjum stjórn- arsáttmála. Mannréttindaskrifstofa fagnar því að mannréttindafræðsla verði efld á öllum skólastigum. Skrif- stofan fagnar áformum um að lög- gjöf um málefni hælisleitenda verði endurskoðuð. Í því samhengi ítrek- ar skrifstofan hvatningu sína um að Ísland gerist aðili að samningum Sameinuðu þjóðanna um rík- isfangslausa. Skrifstofan fagnar einnig áformum um að sett verði heildstæð lög um fjölmiðla þar sem ritstjórnarlegt sjálfstæði er tryggt. Fagna áherslum í mannréttindamálum „ÞAÐ er einlæg von borgarfulltrúa Vinstri grænna að Fríkirkjuvegur 11, sem og aðrar opinberar eignir sem auðmenn hafa notað ímyndað fjármagn til að kaupa, komist sem fyrst í hendur almennings aftur.“ Þetta segir í bókun fulltrúa VG í borgarráði. Í bókuninni er bent á að Novator hafi átt Fríkirkjuveg 11 í rúmt ár. Engin starfsemi virðist vera í húsinu og ástæða sé til að hafa áhyggjur af því að húsið liggi undir skemmdum. Borgin eignist aftur Fríkirkjuveg 11 LOKAHÖND er nú lögð á tvöföldun hjóla- og göngustígs frá Ægisíðu í Elliðaárdal með aðgreindum stíg- um fyrir hjólandi og gangandi. Í framtíðinni verður lögð sérstök áhersla á að aðskilja umferð hjól- reiðamanna og gangandi. Áform eru m.a. uppi um að leggja sér- stakan hjólastíg beggja vegna Hofs- vallagötu. Þá liggja einnig fyrir teikningar að tvöföldun stíga fyrir gangandi og hjólandi í Fossvogi. Morgunblaðið/Ómar Hjól Margir hjóla þessa dagana. Klára að tvöfalda hjóla- og göngustíg Ljósmyndaklúbburinn Blik á Suð- urlandi opnar í dag sína fyrstu ljós- myndasýningu. Hún er haldin að Austurvegi 35-37 á Selfossi, í tengslum við hátíðina Vor í Árborg. Sýningin verður sett í dag, kl. 11, og opin fram á sunnudag. Blik er klúbbur áhugaljósmynd- ara og hefur starfað í eitt ár. Blik opnar sýningu Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is VIÐ getum ekki skipað ríkjum að taka við flóttamönnum eða hæl- isleitendum, aðeins hvatt þau til að grafa ekki undan þeirri stofnun sem hefur það hlutverk að reyna að halda utan um þessi mál á al- þjóðavettvangi,“ segir Hanne Marie Mathisen. Hún er norsk og stýrir samskiptamálum hjá skrifstofu Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNHCR, fyrir Norð- urlöndin og Eystrasaltslönd í Stokkhólmi. Mathisen er stödd hér á landi í boði Rauða krossins og Mannrétt- indaskrifstofu Íslands og hefur meðal annars heimsótt palestínskar konur á Akranesi. „Ég var snortin af því að hitta palestínsku konurnar sem fengu hér hæli. Við lítum á stefnu Íslend- inga í málum þeirra sem mikla fyr- irmynd, hvernig þeim var fenginn samastaður og þeim útvegaðar stuðningsfjölskyldur til að aðstoða þær við að koma sér fyrir og aðlag- ast. Ég hitti eina sem sagðist finna fyrir svo miklu frelsi og létti. Hún sagði mér að kona í búð hefði faðmað sig þegar hún fékk að vita að hún væri ein af Palestínukon- unum!“ Hún sagðist vona að framhald yrði á þessu verkefni enda þótt ákveðið hefði verið að taka ekki við fleiri Palestínukonum á þessu ári. Hún var spurð um hungurverkfall Alsírbúa sem beðið hefur um hæli hér og svarar að sér sýnist það taka óvenju langan tíma fyrir yf- irvöld hér að fara yfir umsóknir. „Umsækjanda sem er í óvissu og biðstöðu í heilt ár finnst að hann sé ekki velkominn. Fái hann hæli hefst aðlögun en hann er frá upp- hafi mjög ósáttur og tortrygginn. Það er hvorki gott fyrir hælisleit- andann né Íslendinga. En komi í ljós að hann fullnægi ekki skilyrð- unum er best að hann yfirgefi land- ið sem fyrst.“ Á síðustu árum hafa komið upp harðar deilur víða á Norðurlönd- unum vegna aðstæðna flóttamanna og hælisleitenda. „Við sjáum að Norðurlöndin eru að taka upp harðari stefnu,“ segir hún. „Segja má að þetta hafi byrj- að í Danmörku, Svíar fylgdu í kjöl- farið og þá Norðmenn og nú virð- ast Finnar líka vera að huga að svipuðum breytingum. Við höfum áhyggjur af þessari breyttu afstöðu vegna þess að við álítum að það sé skylda allra að fullnægja alþjóð- legum skuldbindingum. Ekki sé nóg að fylgjast með því hvað grannþjóðirnar geri. Norðurlöndin eru staðall Ég segi oft: ef okkur mistekst hér á Norðurlöndum mun okkar mistakast alls staðar. Það er mik- ilvægt að sum ríki hafi mjög traust kerfi vegna hælisleitenda vegna þess að þá verða þau eins konar staðall fyrir önnur ríki. Ég er ekki að segja að allt sé til fyrirmyndar á Norðurlöndunum en við vinnum að því að festa í sessi góð vinnubrögð og lagfæra þau göt sem við sjáum.“ Hún segir aðspurð að ljóst sé að auk þess sem lög og reglur séu ólík milli landa skipti miklu hvernig þau eru túlkuð og hver framkvæmdin sé. Hún geti verið væg eða ströng. „Þegar upp er staðið er það hvert ríki sem tekur ákvarðanir í málum hælisleitenda og flótta- manna,“ segir Hanne Marie Mathi- sen. Erfiðara að fá hæli á Norðurlöndunum  Fulltrúi Flóttamannahjálpar Samein- uðu þjóðanna segir aðstæður Palestínu- kvenna á Akranesi til fyrirmyndar Morgunblaðið/Eggert Að skilja aðra Mathisen heimsótti í gær börn í Vogaskóla en þau tóku þátt í verkefni sem gengur út á að reyna að skilja kjör flóttamanna, m.a. með hlutverkaleik. Guðrún Ögmundsdóttir setur hér í gang tölvuleik, með henni eru Sólveig Hildur Björnsdóttir, starfsmaður Rauða Krossins og Guðrún Guðmundsdóttir frá Mannréttindaskrifstofu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gestur Hanne Marie Mathisen, fulltrúi UNHCR í Stokkhólmi. STUTT Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Salou frá kr. 79.900 - með fullu fæði Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Salou vinsælasta áfangastaðar Costa Dorada strandarinnar sunnan Barcelona. Þar er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Stórkostlegar strendur, fjölbreytt aðstaða, úrval veitinga- staða og litríkt næturlíf. Í boði er gisting á Hotel Marinada, góðu hótel í Salou, sem er vel staðsett í nágrenni við verslunargötur, ströndina og göngugötuna. Herbergi eru með loftkælingu, síma, sjónvarpi, öryggishólfi, baðherbergi með hárþurrku og svölum eða verönd. Einnig veitingastaður, bar, líkamsræktaraðstaða, leikjasalur, góður sundlaugagarður og fjölmargt annað. Gríptu tækifærið og bókaðu strax - aðeins 11 herbergi í boði! M bl 11 12 31 3 Verð kr. 79.900 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í herbergi á Hotel Marinada *** með fullu fæði í 7 nætur. Aukavika kr. 17.000. Verð, m.v. 2 fullorðna og 1 barn kr. 86.900. Aukavika kr. 22.000. Verð m.v. gistingu í tvíb. kr. 92.900. Aukav. kr. 27.000. Ótrúlegt sértilboð Hotel Marinada* * * vikuferð m/fullu fæði 12. júní Aðeins 11 herbergi í boði! Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Frábær aðstaða · Fullt fæði · Loftkæling · Svalir/verönd · Glæsilegur garður · Sundlaugar / barnalaug · Nuddpottur · Leiktækjaherbergi · Mini-golf · Borðtennis · Barnaklúbbur (4-12 ára) · Barnaleiksvæði · Þráðlaust internet (Wi-Fi) · Veitingastaður · Barir ... og fleira og fleira

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.