Morgunblaðið - 21.05.2009, Side 18
18 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
KYNFERÐISOFBELDI gegn börn-
um, ekki síst drengjum, var „daglegt
brauð“ á munaðarleysingjahælum á
Írlandi og leiðtogar kaþólsku kirkj-
unnar þögðu um það. Er þetta nið-
urstaða viðamikillar skýrslu, sem ver-
ið hefur níu ár í smíðum og nær allt
aftur til fjórða áratugar síðustu aldar.
„Hver nýr dagur var ný skelfing
fyrir börnin, sem alltaf bjuggust við
að vera barin eða beitt kynferðisof-
beldi. Óttinn gegnsýrði þessar stofn-
anir, einkum drengjaheimilin,“ segir í
skýrslunni. Segir þar, að yfirmenn
kirkjunnar hafi vitað af ósköpunum
en þagað yfir þeim. Ekki hafi verið
hlustað á þau börn, sem þorðu að
kvarta, heldur var þeim oft refsað
harðlega.
John Kelly, framámaður í sam-
tökum þeirra barna, sem níðst var á,
sagði á blaðamannafundi rétt áður en
skýrslan var birt, að uppeldisstofnanir
kirkjunnar hefðu verið eins og „gúlög“
þar sem börnin hefðu verið haldin sem
þrælar.
Varaði við „miklu áfalli“
Önnur skýrsla um kynferðislegt of-
beldi kaþólskra presta á börnum er
væntanleg í næsta mánuði. Mun inni-
hald hennar ekki vera skemmtilegra
en þeirrar, sem birt var í gær, enda
sagði Diarmuid Martin, erkibiskup í
Dyflinni, í síðasta mánuði, að fólk yrði
að búa sig undir „mikið áfall“.
Á uppeldisstofnununum urðu
drengirnir einkum fyrir ofbeldi
presta, sem gættu þeirra, en minna
var um kynferðislegt ofbeldi á
stúlknaheimilum þar sem nunnur
voru við stjórnvölinn. Þær voru hins
vegar miklu fremri prestunum í því
að brjóta börnin, stúlkurnar, niður
andlega með skömmum og svívirð-
ingum.
Það var alvanalegt á uppeldisstofnunum kaþólsku kirkjunnar
á Írlandi að beita börn kynferðisofbeldi en um það var þagað
Níðst á börnum
AP
Ljótur lestur John Kelly, einn helsti
málsvari barnanna, með skýrsluna.
HÁTT í þriðj-
ungur þing-
manna á ind-
verska þinginu
hefur verið sak-
aður um afbrot
og sum alvarleg,
m.a. þjófnað og
morð.
ADR, indversk
samtök, sem
berjast fyrir lýð-
ræðislegum umbótum, segja, að 153
af 543 nýkjörnum þingmönnum eigi
glæparannsókn og málaferli yfir
höfði sér. Þar af séu 74 sakaðir um
mjög alvarlega glæpi, þar á meðal
morð. Ljótast er ástandið í Bhara-
tiya-flokknum, helsta stjórnarand-
stöðuflokknum, en 43 þingmenn
hans af 116 hafa verið kærðir, þar
af 10 um alvarlegan glæp.
Anil Bairwal, talsmaður ADR,
sagði, að þingmönnum af þessu tag-
inu hefði fjölgað um 20% í nýaf-
stöðnum kosningum en það já-
kvæða væri þó, að þeim, sem væru
sakaðir um morð, hefði fækkað um
50%.
Hátt í þriðjungur
þingmanna
sakaður um glæp
Skyldu þessir hafa
hreina samvisku?
KÍNA er ekki
lengur það land
þar sem fram-
leiðslukostnaður
er minnstur. Er
hann nú lægri á
Indlandi og í
Mexíkó.
Kemur þetta
fram í nýrri
könnun Alix-
Partners og þyk-
ir nokkurt áfall fyrir Kína. Mun
það hugsanlega verða til að draga
úr fjárfestingu erlendra fram-
leiðslufyrirtækja í landinu.
Annað, sem vekur athygli í
niðurstöðum könnunarinnar, er, að
munurinn á framleiðslukostnaði í
Kína og í Bandaríkjunum hefur
minnkað mikið og er nú aðeins 6%.
„Þeir dagar eru liðnir er fyrir-
tæki gátu sparað sér allt að 30%
með því að flytja framleiðsluna til
Kína,“ sagði Stephen Maurer,
framkvæmdastjóri AlixPartners.
Framleiðslukostnaðurinn er nú
minnstur í Mexíkó og Indland er í
öðru sæti. Þótt framleiðslukostn-
aður í Bandaríkjunum hafi minnk-
að mikið er hann samt enn meiri
en í flestum samanburðarlöndum.
Bilið milli Kína og annarra landa
hefur því almennt minnkað.
svs@mbl.is
Kína ekki lengur
hagstæðasta
framleiðslulandið
Forskot Kínverja
hefur minnkað.
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
MAHMOUD Ahmadinejad, forseti
Írans, tilkynnti í gær að her landsins
hefði skotið á loft meðaldrægri eld-
flaug í tilraunaskyni. Hermt er að
eldflaugin dragi um 2.000 kílómetra
og hægt væri að skjóta henni á Ísr-
ael eða sunnanverða Evrópu.
Ahmadinejad sagði að eldflaug-
inni hefði verið skotið frá borginni
Semnan í norðurhluta Írans og hún
hefði hæft skotmarkið. „Mér var
sagt að eldflaugin gæti farið út fyrir
lofthjúpinn, síðan inn í hann aftur og
hæft skotmarkið.“
Íransferð aflýst
Forsetinn bætti við að eldflaugin
notaði eldsneyti úr föstu efni. Slíkar
flaugar eru nákvæmari en eld-
flaugar sem nota vökvaeldsneyti.
Bandarískur embættismaður
sagði að svo virtist sem eldflaugar-
tilraunin hefði heppnast.
Stjórn Ísraels sagði að eldflaug-
artilraunin hlyti að vera áhyggjuefni
fyrir Evrópuríki þar sem ljóst væri
að Íranar ættu eldflaugar sem hægt
væri að skjóta á sunnanverða álfuna.
„Íranar eru einnig að reyna að þróa
eldflaug sem drægi 10.000 kílómetra
og hægt væri á skjóta á strönd
Bandaríkjanna.“
Gert hafði verið ráð fyrir því að
utanríkisráðherra Ítalíu, Franco
Frattini, ræddi við Ahmadinejad í
Teheran í gær en ráðherrann ákvað
að aflýsa ferð sinni til Írans eftir að
honum var skýrt frá því að íranski
forsetinn vildi að fundurinn færi
fram í Semnan, nálægt eldflaugar-
skotpallinum.
Sögð geta ógnað Evrópu
Íranar skjóta á loft eldflaug sem talið er að dragi til Ísraels
og sunnanverðrar Evrópu Sögð hafa hæft skotmarkið
AP
Nýtt vopn Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, kyssir barn í Semnan þar
sem hann skýrði frá því að her landsins hefði skotið á loft nýrri eldflaug.
TALSMAÐUR Silvio Berlusconis,
forsætisráðherra Ítalíu, sagði í gær,
að dómurinn yfir breska lögfræð-
ingnum David Mills, sem dómstóll í
Mílanó fann sekan um að hafa borið
ljúgvitni og tekið við mútum frá Ber-
lusconi, væri ekkert annað en „vel
tímasett árás vinstrisinnaðra dóm-
ara“ á forsætisráðherrann.
Mills var dæmdur fyrir að hafa
þegið um 77 millj. ísl. kr. fyrir að
ljúga til um aflandsfélög Fininvest,
eignarhaldsfélags Berlusconis, en
sjálfur var forsætisráðherrann ekki
sóttur til saka. Hann nýtur friðhelgi
og sá sjálfur um að koma lögum um
það í gegnum ítalska þingið.
„Þetta var vel tímasett, pólitísk
árás,“ sagði talsmaður Berlusconis
og bætti við, að hann hefði tekið
þessu með stakri ró og af þeirri hóg-
værð, sem hann einkenndi.
Berlusconi seg-
ist ætla að ræða
þessi mál á þingi,
„strax og ég hef
tíma til“, og ætlar
þá að segja skoð-
un sína á sumum
dómurum alveg
umbúðalaust.
Dómurinn yfir
Mills hefur kynt
undir umræðu
um annað mál, sem er vinskapur
Berlusconis við ljóshærða tánings-
stúlku og aðrar ungar stúlkur. Dag-
blaðið La Repubblica krafði Berlus-
coni í gær svara við 10 spurningum
um samband hans við ungar stelpur.
Er tilefnið m.a. yfirlýsing Veronicu
Lario, eiginkonu Berlusconis, en
hún er nú að skilja við hann af þess-
um sökum. svs@mbl.is
Berlusconi sakar
dómara um árásir
Armur laganna
nær ekki til hans.
Ætlar að svara er hann hefur tíma til
NANGA horfir stolt á nýbakaðan son sinn í Boj-
nice-dýragarðinum í Slóvakíu. Nanga er óran-
gútani en þar fer stór trjábýll mannapi sem lifir á
Borneó og Súmötru. Meðalaldur villtra óran-
gútana er 35–40 ár en þeir geta orðið 60 ára í
dýragörðum. Karldýr vega að jafnaði 75 kíló.
Reuters
Móðurást í Slóvakíu
VÍSINDAMENN hafa kortlagt út-
breiðslu alnæmis í Evrópu og kemur
þá í ljós, að
Grikkland, Portú-
gal, Serbía og
Spánn eru mikil
útflutningslönd
sjúkdómsins.
„Frá vinsælum
ferðamannastöð-
um eins og Grikk-
landi, Portúgal og
Spáni dreifist
veiran með fólki,
sem hefur smit-
ast í fríinu, en Serbar eru aftur sjálf-
ir mikið á ferðinni, til dæmis í at-
vinnuleit,“ sagði Dimitrios
Paraskevis, einn vísindamannanna.
Paraskevis sagði, að heilbrigðis-
yfirvöld í Evrópu yrðu að hafa þetta
í huga. Ekki væri nóg að reyna að
draga úr smitlíkum heimafyrir,
heldur yrði líka að beina athyglinni
að því fólki, sem legði leið sína til
landsins. svs@mbl.is
Sól, sjór og
stundum al-
næmissmit
Smitleiðir kortlagðar
Paradís og líka
með höggorminn.