Morgunblaðið - 21.05.2009, Qupperneq 21
Daglegt líf 21ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
Unnið er baki brotnu á Þórssvæðinu
í Glerárhverfi um þessar mundir
enda aðeins um það bil 50 dagar þar
til Landsmót Ungmennafélags Ís-
lands hefst. Nýja stúkan er að verða
tilbúin, búið að setja sætin á sinn
stað og útsýnið er ágætt. Ég rann-
sakaði það í gær. Nú styttist í að
gerviefnið verði sett á hlaupabraut-
irnar.
Brautskráning nemenda frá Verk-
menntaskólanum á Akureyri fer
fram í Íþróttahöllinni laugardaginn
kl. 10. Alls verða brautskráðir um
160 nemendur að þessu sinni, heldur
fleiri en síðustu ár. Seinna sama dag,
eða milli kl. 16 og 18 verður mótt-
taka í VMA, í tilefni af 25 ára afmæli
skólans.
Söngleikurinn Hárið er eflaust í
uppáhaldi hjá mörgum norðanmann-
inum. Rétt er að benda á að í tilefni
fimm ára afmælis tónlistarskólans
Tónræktarinnar flytja nemendur og
kennarar músík úr verkinu í Sjall-
anum á laugardaginn kl. 16 og 19.
Rokkstjarnan Magni Ásgeirsson
verður gestasöngvari og fer með
hlutverk sögumanns.
Eigendur Tónræktarinnar eru hjón-
in Sigríður Birna Guðjónsdóttir og
Björn Þórarinsson, Bassi.
Gamalt fólk á mínum aldri, og aðrir
aðdáendur góðrar tónlistar, taki eft-
ir: Hljómsveitin Dúndurfréttir verð-
ur á Græna hattinum annað kvöld og
býður þá upp á lög úr smiðju Pink
Floyd, Deep Purple, Led Zeppelin
og Uriah Heap. Yngra fólk velkomið
líka.
Stemningin á Akureyrarvelli var
frábær þegar KA og Þór mættust í
1. deild karla í fótbolta á föstudaginn
var. Áhorfendur hátt í þúsund; allir
komu brosandi í góða veðrinu, KA-
menn fóru brosandi heim en við
Þórsarar læðumst með veggjum í
smátíma. En virkilega ánægjulegt
var að heyra hve líflegir stuðnings-
mannahópar liðanna eru.
Stuðningsmenn Akureyrarliðanna
eru ákaflega vanafastir og hafa alltaf
verið. Einn sat alltaf á sama stein-
inum þegar hann kom á völlinn í
gamla daga, en þegar steinninn var
fjarlægður hætti karlinn auðvitað
koma á völlinn. Nú sitja KA-menn
langflestir í stúkunni en Þórsararnir
sitja eða standa á grasinu og í klöpp-
unum norðan við stúkuna.
Hann var þreyttur og líklega þyrst-
ur, einn félagi minn eftir körfubolta-
tímann í gær. „Ef ég gæti kallað
fram eitthvað eitt frá æskuárunum,
þá væri það Cream Soda.“ Fyrir þá
sem ekki þekkja var það (ótrúlega
vondur) gosdrykkur, framleiddur í
Sana á Akureyri fyrir býsna mörg-
um árum.
„Stundum fór maður út í sjoppu,
bað um eina Cream Soda og sagðist
ætla að kaupa innihaldið,“ sagði
þessi sami vinur minn og lygndi aft-
ur augunum. Að kaupa innihaldið
þýddi að hann hugðist drekka úr
flöskunni á staðnum. Þá þurfti ekki
að eiga viðskipti aftur með því að
selja glerið.
Fyrstu vikuna í ágúst verður haldið
vinabæjamót í Álasundi í Noregi fyr-
ir 16-20 ára þar sem hittist fólk frá
vinabæjunum Akureyri, Álasundi,
Randers í Danmörku, Västerås í Sví-
þjóð og Lahti í Finnlandi. Til móts-
ins er boðið 16 fulltrúum frá hverju
landi og hægt er að sækja um að fara
utan. Nánari upplýsingar er að hafa
á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Skólaslit Tónlistarskólans á Ak-
ureyri verða annað kvöld kl. 18 í Ak-
ureyrarkirkju með tónleikum.
Jasstríóið TYFT kemur fram á
Græna hattinum í kvöld kl. 21. Það
hefur nýverið sent frá sér fjórða
geisladisk sinn hjá Skirl Records í
New York, og hefur af því tilefni ver-
ið á tónleikaferð um Evrópu und-
anfarnar tvær vikur. Tríóið skipa
Hilmar Jensson á gítar, Andrew
D’Angelo á saxófón og Jim Black á
trommur. Þeir félagar hafa leikið
saman í ýmsum sveitum í 15 ár en
starfrækt TYFT frá árinu 2000.
Langflestir nefndu Akureyri í ný-
legri rannsókn þar sem spurt var
hvað gerði Norðurland að spennandi
áfangastað fyrir ferðafólk. Rann-
sóknin var gerð fyrir Ferða-
málastofu að áeggjan Markaðs-
skrifstofu Norðurlands.
Ég hefði bara sagt veðrið og fegurð
fólksins … Svörin voru margvísleg,
39,4% sögðu höfuðstað Norðurlands
helsta aðdráttarafl landshlutans en
21,9% Mývatn.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Á vellinum Nokkrir Þórsarar mát-
uðu sætin í nýju stúkunni í gær.
Ragnheiður Ásta Pétursdóttirsendir Vísnahorninu vísu, sem
henni kom í hug þegar hún heyrði í
blessaðri lóunni:
Syngur lóa sætt í mó
saman blómin þegja.
Enn í næði ætla þó
eitthvað henni að segja.
Benedikt Gröndal Jónsson,
dómari í landsyfirrétti og
stiftamtmaður, orti á sínum tíma:
Syngur lóa suður í mó
sætt um dáin blóm.
Alltaf er söngurinn sami
með sætum fuglaróm.
Sumarkoman fór ekki framhjá
Valdimari Gunnarssyni, kennara í
Menntaskólanum á Akureyri:
Fæ ég lítt sofið
af fugls jarmi
utan við opinn glugga.
Gaukar hneggja,
gjalla stelkar
rindill tístir í tré.
Jaðrakan vælir
en vellur spói,
dýrðarsöng syngur lóa.
Mávar og gæsir
garga álengdar,
við hlið mér konan hrýtur.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af fuglum og sumri
Eftir Gunnlaug Auðun Árnason
Stykkishólmur | Það stendur mikið
til í Stykkishólmi um hvítasunnuna.
Þá verður opnuð kynningarsýning á
Eldfjallasafni í Stykkishólmi.
Á sýningunni verður alþjóðasafn
af listaverkum, fornum og nýjum,
sem sýna eldgos, og einnig munir,
forngripir, minjar og steintegundir
úr einstöku safni Haraldar Sigurðs-
sonar prófessors, sem hefur stundað
eldfjallarannsóknir í yfir fjörutíu ár
um allan heim.
Kynningarsýningin er undirbún-
ingur að stofnun Eldfjallasafns í
Stykkishólmi í náinni framtíð, þar
sem skoðaðir verða margir þættir
eldfjalla og virkni þeirra í ljósi lista,
vísindanna, bókmennta og umhverf-
isáhrifa.
Á Eldfjallasafni verður kynning
flutt daglega af Haraldi Sigurðssyni
á íslensku og ensku, um eldgos og
áhrif þeirra, ásamt fræðslu um jarð-
fræði sem hentar fólki og nem-
endum með litla eða enga þekkingu
á þessu sviði.
Haraldur Sigurðsson er fluttur
heim í Stykkishólm eftir langa veru
erlendis þar sem hann stundaði
kennslu og rannsóknir sviði eldgosa
og eldfjallafræði. Á langri starfsævi
varð hann einn af virtustu fræði-
mönnum heims á þessu sviði.
Haraldur vinnur þessa dagana öll-
um stundum við að setja upp sýn-
inguna. Sér til halds og trausts hefur
hann reynda sýningahönnuði, bróð-
ur sinn Steindór Sigurðsson og
Vigni Jóhannsson frá Akranesi.
Á sýningunni verða yfir 100 lista-
verk frá flestum heimsálfum, gömul
og ný sem sýna eldgos frá ýmsum
hliðum. Munirnir á sýningunni eru
aðeins sýnishorn af safni Haraldar.
Haraldur segir að söfnunaráhug-
inn hafi vaknað fyrir meira en 30 ár-
um. „ Ég gerði mér grein fyrir því að
listaverk sem sýna eldgos geta gefið
einstakar upplýsingar fyrir eldfjalla-
fræðinga um túlkun gossins. Auðvit-
að túlka listamenn það sem þeir sjá á
sinn eigin hátt, en samt sem áður
eru listaverk nytsamlegar upplýs-
ingar fyrir vísindamennina,“ segir
Haraldur eldfjallafræðingur.
Bærinn tók hugmyndinni vel
og þá fór boltinn að rúlla
Hann segir að það sé dálítið langt
síðan hann hafi áttað sig á því að
safnið var að vaxa honum yfir höfuð.
„Ég sá að ég gæti ekki hýst safnið
sjálfur, til þess vantaði mig nægilegt
húsnæði. Þá vaknaði hugmyndin um
eldfjallasafnið. Mér fannst eðlilegt
að eldfjallalandið Ísland væri besti
staðurinn fyrir þetta safn. Ég bauð
íslenska ríkinu að gjöf safn mitt árið
2005, en því var dræmt tekið. Ég leit
alltaf til Stykkishólms með þetta
verkefni. Eftir að ég flutti í Hólminn
ræddi ég hugmyndina við bæjaryf-
irvöld og þau fengu áhuga á verkinu.
Stykkishólmsbær kostar uppsetn-
ingu sýningarinnar og eins og áður
sagði er kynningunni ætlað að verða
hvati og áróður til þess að koma upp
viðeigandi safni í framtíðinni. Það er
markmiðið. Stykkishólmsbær hefur
boðið 2.200 fermetra lóð sem hentar
mjög vel fyrir framtíðar eld-
fjallasafn,“ segir Haraldur.
Sýningin er haldin í gamla sam-
komuhúsinu í Stykkishólmi. „Það fer
vel á því, “ segir Haraldur. „Húsið
var byggt árið 1901 og flestir Hólm-
arar eiga þaðan ánægjulegar minn-
ingar, eins og frá skemmtunum, bíó-
ferðum, ganga í kringum jólatré,
leika á sviði og nú síðast ungling-
arnir sem tóku þátt í starfi æsku-
lýðsmiðstöðvarinnar.“
Það sýnir best áhuga þessa dug-
mikla eldfjallafræðings að Haraldur
ætlar að fylgja sýningunni vel eftir.
Hann mun sjálfur vera á sýningunni
fimm daga vikunnar og leiða gesti
um sýninguna og fræða þá um það
sem fyrir augu ber. Hina tvo dagana
verður boðið upp á fræðsluferðir um
Snæfellsnes þar sem Nesið er skoð-
að og fjallað um jarðfræði og eldfjöll
og sögu undir handleiðslu Haraldar
Sigurðssonar sem er einn mesti sér-
fræðingur á þessu sviði.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Auðunn Árnason
Grjót er ekki bara grjót Vignir Jóhannsson, Haraldur Sigurðsson og Steinþór Sigurðsson koma fyrir ýmsum berg-
tegundum á eldfjallasýningunni sem verður opnuð í Stykkishólmi um hvítasunnuhelgi.
„Ísland er besti stað-
urinn fyrir safnið“
Haraldur Sigurðsson eld-
fjallafræðingur vinnur
að því að setja upp eld-
fjallasafn í Hólminum
BANN við reyk-
ingum á sam-
komustöðum í
Bandaríkjunum
hefur ekki fækk-
að störfum í
þjónustugeir-
anum, að því er
fram kemur í
nýrri rannsókn
sem Elizabeth
Klein við ríkisháskólann í Ohio fór
fyrir.
Rannsóknin náði til átta borga í
Minnesota þar sem takmarkanir á
reykingum á samkomustöðum eru
misjafnlega strangar og voru tvær
borgir þar sem engar kvaðir eru á
reykingum hafðar til samanburðar.
Fimmtán ríki Bandaríkjanna
hafa innleitt reglugerðir sem tak-
marka reykingar á vinnustöðum,
veitingastöðum og á börum.
Fækkar
ekki störfum
Á útleið
Lóritín®
– Kröftugt ofnæmislyf
Notkun: Lóritín er ætlað til meðferðar á einkennum ofnæmiskvefs og langvarandi ofsakláða af óþekktum toga. Skömmtun:
Fullorðnir og börn (>12 ára): 1 tafla á dag. Börn 2-12 ára (<30 kg): ½ tafla (5 mg) á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2
ára. Töfluna má taka hvenær sem er, án tillits til matmálstíma. Hefja ætti meðferð hjá sjúklingum með verulega skerta
lifrarstarfsemi með minni skammti. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða hjálparefnum. Varúðarreglur: Gæta skal
varúðar ef Lóritín er gefið sjúklingum með mikið skerta lifrarstarfsemi. Lyfið inniheldur laktósa. Langvarandi notkun getur leitt
til aukinnar hættu á tannskemmdum vegna munnþurrks. Notkun Lóritíns á meðgöngu og við brjóstagjöf er ekki ráðlögð
nema í samráði við lækni. Í einstaka tilfellum finnur fólk fyrir syfju sem getur haft áhrif á
hæfni þeirra til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Lóritín þolist almennt vel en
algengustu aukaverkanirnar hjá börnum á aldrinum 2-12 ára eru höfuðverkur,
taugaveiklun og þreyta. Algengustu aukaverkanirnar hjá 12 ára og eldri eru svefnhöfgi,
höfuðverkur, aukin matarlyst og svefnleysi. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.
Desember 2005.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
I
/
S
ÍA
-
9
0
2
5
-
A
c
ta
v
is
7
0
4
0
0
3
Njóttu
sumarsins