Morgunblaðið - 21.05.2009, Page 25
Umræðan 25BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
FYRSTA sinn í sögu þjóðarinnar
hefur pólitískri stjórnsýslu verið
umpólað, frá hægri, til vinstri.
Hvað það þýðir fyrir þjóðina
efnahagslega, eða stjórn-
sýslulega, er alveg óskrifað blað.
Það myndi þó teljast vinstri-
stefnulegt að meginþungi krepp-
unnar yrði látin leggjast á breiðu
bökin. En eins og almenningur
veit þá eru allar ríkisstjórnir
íhaldsstjórnir, hvort heldur þær
tilheyra hægri eða vinstri stjórn-
málaflokkum. Aðalbreytingin
felst í stjórnsýslulegum áherslum
sem valda því, á hverjum íhaldið
bitnar harðast.
Ríkisstjórnin hefur lofað að
verja lægstu laun, en á bara að
verja grunnlaunin?
Láglaunastéttir þjóðfélagsins
hafa orðið að láta sér lynda að búa
við afkomu undir framfærslumörk-
um og það í góðærinu margfræga,
grunnlaun verkamanna eru rétt
um 70% af framfærslu og þetta
30% bil hafa þeir brúað með 30-
40% viðbótartekjum af yfirvinnu.
Missi þetta fólk yfirvinnuna og
verði síðan fyrir verulegri kaup-
máttarrýrnun á grunnlaunum, fær
það nú ekki mikið í sinn hlut fyrir
aðstoð við uppbyggingu þjóð-
félagsins. Þessa stöðu má þakka
atvinnurekendum og verkalýðsfor-
ustunni því þeir hafa sett lág-
launafólk í þessa aðstöðu í góð-
ærinu, en jusu stórum fjárfúlgum
í eigin vasa á kostnað þjóðfélags-
ins og milljörðum í vasa auð-
manna. Það er aftur á móti
ástæðulaust að minnast á afkomu
aldraðra, því ríkisvaldið hefur
lengi kvartað undan því hvað þeir
lifi lengi.
Útgerðarmenn, sem fengu fría
úthlutun á kvóta, gerðu aflaheim-
ildina að leigu- og söluvöru til að
afla sér vasapeninga á kostnað
annarra útgerðarmanna. Nú vill
ríkisstjórnin banna þetta pen-
ingaplokk, sem löngu er tíma-
bært. En útgerðarmenn kvarta
sáran að fá ekki að plokka áfram,
en viðurkenna nú loksins að út-
gerðin sé á hausnum, sem stafar
einmitt af veiðigjaldi, og afleið-
ingin er fiskverðshækkun sem
valdið hefur verðþenslu í þjóð-
félaginu. Þjóðin á fiskinn í sjón-
um og útgerðarmenn hafa aldrei
haft neina heimild til að selja að-
gang að henni. Veiðiheimildir
eiga alltaf að vera fríar.
Allir flokkar hafa staðfest það
að þjóðin beri fulla ábyrgð á
gjörðum ríkisstjórnar og einnig
atvinnurekenda með ábyrgðinni á
bankahruninu og fyrirtækjum í
landinu, þar á meðal útgerðinni.
En þjóðin má ekki eiga nein fyr-
irtæki að mati atvinnurekenda,
bara bera ábyrgð á skuldum
þeirra. En beri þjóðin ábyrgð á
skuldunum, hlýtur hún að eiga
fullan rétt á því að fylgjast með
allri viðskipta- og atvinnu-
starfsemi í þjóðfélaginu og eiga
rétt á að stöðva þá starfsemi sem
stofnar þjóðarhag í hættu.
Framsóknar- og sjálfstæð-
ismenn mega ekki gleyma því að
þeir byggðu upp það kerfi sem olli
bankahruninu og fyrrverandi for-
menn þeirra tóku einræð-
isákvörðun um að tengja okkur
stríðsrekstri, því tel ég að þjóðfé-
lagið eigi það inni hjá flokkunum
að þeir vinni heilsteyptir að end-
urreisn efnahagsins með rík-
isstjórninni, en séu ekki sívælandi
eins og hvítvoðungar sem vantar
pelann sinn. Það er nægur tími til
atkvæðaveiða, því langt er til
kosninga.
GUÐVARÐUR JÓNSSON,
Valshólum 2, Reykjavík.
Vinstri sveiflan
Frá Guðvarði Jónssyni
REKSTUR bæjarsjóðs Mosfells-
bæjar á árinu 2008 gekk vel – ekki
síst ef miðað er við aðstæður í þjóð-
félaginu á síðasta
ársfjórðungi.
Rekstr-
arafgangur af A-
hluta að und-
anskildum fjár-
magnsgjöldum
var 414 milljónir
króna. Fjár-
magnsgjöld voru
tæpar 439 millj-
ónir og því nem-
ur rekstrarhalli
A-hluta bæjarsjóðs um 25 millj-
ónum á árinu 2008.
Þakkir til starfsmanna
Mosfellsbæjar
Ég vil nota þetta tækifæri og færa
öllu starfsfólki, á þeim fjölmörgu
stofnunum sem tilheyra Mos-
fellsbæ, þakkir fyrir þá ráðdeild
sem sýnd hefur verið á því sam-
dráttarskeiði sem við göngum nú í
gegnum.
Brugðist var við af mikilli ábyrgð
og hagsýni strax í október þegar
ljóst var í hvað stefndi í kjölfar
bankahrunsins. Þau viðbrögð skila
sér í ársreikningnum og er það
starfsfólki Mosfellsbæjar að þakka
hve vel tókst til með rekstur stofn-
ana bæjarins á síðasta ári þrátt fyr-
ir miklar verðlagshækkanir og
krefjandi rekstrarumhverfi.
Notuðum góðærið til
að greiða niður lán
Mosfellsbær hefur ekki, frekar en
önnur sveitarfélög, farið varhluta af
efnahagsástandinu. Þrátt fyrir að
hafa verið vel í stakk búið til að
bregðast við utanaðkomandi erf-
iðleikum ollu fjármagnsgjöld því að
rekstrarniðurstaða A-hluta var nei-
kvæð. Samt sem áður er lánasafn
Mosfellsbæjar að stórum hluta í ís-
lenskri mynt og því ekki um veru-
legt gengistap að ræða eins og hjá
mörgum öðrum sveitarfélögum.
Mosfellsbær er ekki skuldsett
bæjarfélag og notaði góðærið til að
greiða niður lán. Ekki höfðu verið
tekin langtímalán síðan árið 2004.
Þetta var gert meðal annars til þess
að búa svo um hnútana að hægt yrði
að mæta hremmingum kæmu þær
upp.
Ljóst er að rekstrarumhverfi
sveitarfélaga er mjög erfitt um
þessar mundir og eru mörg sveit-
arfélög mjög illa stödd. Nýverið
hafa stór sveitarfélög birt ársreikn-
inga sína og mörg þeirra hafa því
miður verið að skila nokkurra millj-
arða rekstrarhalla.
Þetta sýnir hversu starfsum-
hverfið er viðkvæmt og hve nauð-
synlegt er að gæta aðhalds, útsjón-
arsemi og varfærni á tímum sem
þessum.
Ástandið krefjandi
og samvinna nauðsynleg
Það er ánægjulegt fyrir íbúa Mos-
fellsbæjar að fjárhagsstaða bæj-
arsjóðs sé sterk þrátt fyrir að-
stæður í þjóðfélaginu og að
sveitarfélagið sé í stakk búið til að
takast á við tímabundin áföll.
Hinu ber þó ekki að leyna að
ástandið er krefjandi og að tekjur
sveitarfélaga, þar með talið Mos-
fellsbæjar, eru að lækka verulega
vegna aukins atvinnuleysis og lækk-
andi tekna íbúa.
Því er nauðsynlegt að taka erf-
iðar ákvarðanir á tímum sem þess-
um og hluti af þeim birtist í fjár-
hagsáætlun ársins 2009 sem unnin
var sameiginlega af öllum flokkum í
bæjarstjórn. Ljóst er að rekstur
ársins 2010 verður einnig erfiður og
því er verk að vinna.
Hið sama er uppi á teningnum í
öðrum sveitarfélögum. Í þessu ár-
ferði þurfa sveitarfélög og íbúar að
standa saman og hjálpast að við að
takast á við það krefjandi ástand
sem framundan er.
Mosfellsbær hefur, eins og önnur
sveitarfélög, þurft að draga úr
framkvæmdum, ekki vegna skuld-
setningar, heldur vegna hás vaxta-
stigs. Það er því grundvallaratriði
nú um stundir að vextir lækki svo
hjól atvinnulífsins fari að snúast á
ný, fólkið fái vinnu og sveitarfélög
og ríki fái tekjur.
Sveitarfélögin á landinu hafa sýnt
töluverða samstöðu í kjölfar banka-
hrunsins og miðla sín á milli af
reynslu sinni af aðferðum við hag-
ræðingu og læra þannig hvert af
öðru. Hópar fulltrúa sveitarfélag-
anna á ýmsum sviðum funda reglu-
lega um ástandið og aðgerðir vegna
þess og hafa þeir fundir reynst vel í
þeim úrræðum sem sveitarfélögin
þurfa að grípa til.
Þrátt fyrir að sveitarfélögin komi
misilla út úr efnahagsástandinu,
eins og sést á ólíkum niðurstöðum
ársreikninga, eiga þau það samt
sem áður sammerkt að þurfa öll að
bregðast við ástandinu. Öll þurfa
þau að hagræða því samdráttur í
tekjum sveitarfélaga er alls staðar
mikill. Samstaða og samvinna er því
nauðsynleg á tímum sem þessum.
HARALDUR SVERRISSON,
bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Mjög ásættanleg rekstrarniður-
staða Mosfellsbæjar árið 2008
Frá Haraldi Sverrissyni
Haraldur
Sverrisson
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl 4, mánud. 18.
maí.
Spilað var á 11 borðum. Með-
alskor 216 stig. Árangur N-S.
Auðunn Guðmundss. – Björn Árnason 279
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 246
Björn Svavarss. – Jóhannes Guðmannss.
231
Árangur A-V.
Guðjón Kristjánss. – Ragnar Björnsson
271
Friðrik Jónss. – Tómas Sigurjónss. 253
Hilmar Valdimarss. – Óli Gíslason 251
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl 4, fimmtud. 14.
maí.
Spilað var á 13 borðum. Með-
alskor 312 stig. Árangur N-S.
Albert Þorsteinsson – Bragi Björnss. 403
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 363
Jón Lárusson – Ragnar Björnss. 335
Árangur A-V.
Birgir Sigurðsson – Þröstur Sveinss. 370
Helgi Hallgrímsson – Jón Hallgrímss. 365
Elías Einarsson – Höskuldur Jónsson 357
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 19. maí var spilað á
14 borðum.Úrslit urðu þessi í N/S:
Júlíus Guðmundss. – Óskar Karlss. 372
Ásgeir Sölvason – Helgi Sigurðss. 365
Sigurður Hallgrímss. – Anton Jónss. 358
Magnús Oddss. – Oliver Kristóferss. 346
A/V
Bragi V. Björnss. – Guðrún Gestsd. 371
Kristján Þorlákss. – Jón Sævaldsson 350
Hulda Mogensen – Anna Garðarsd. 349
Björn Björnss. – Sigríður Gunnarsd. 332