Morgunblaðið - 21.05.2009, Qupperneq 35
Menning 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
ÍSverrissal í Hafnarborgstendur nú yfir einkasýningGuðnýjar Guðmundsdótturþar sem sjá má stórar og
risastórar blýants- og vatns-
litateikningar ásamt skúlptúrum úr
leir. Guðný, sem eftir nám hér
heima fór í framhaldsnám til Ham-
borgar, hefur búið í Berlín og
starfað síðastliðin ár. Guðný hefur
áður haldið einkasýningar á Ís-
landi, árið 2004 sýndi hún í Ás-
mundarsafni í sýningaröðinni Pýra-
mídar og árið 2003 var hún með
sýninguna „Þýskur reiðskóli“ í ASÍ.
Á sýningunni nú sem ber hinn
óræða titil Madame Lemoniqe &
Madame Lemonborough er Guðný
að vinna með teikninguna sem
skrásetningu einhvers konar bygg-
ingaeininga sem hverfast um sjálf-
ar sig og minna helst á Nýju Bab-
ylon Constances sem svífa í pörtum
í himingeiminum. Endurtekin verk-
fræðileg þemu birtast reglulega
þar sem óljósar vísanir í flókið
gangvirki er áberandi. Þetta á ekki
síst við verkið The World sem sam-
anstendur af óhemjustórum teikn-
ingum sem þekja vegginn frá lofti
til gólfs og gólfið reyndar líka að
hluta. Veröld Guðnýjar inniheldur
einstaka óvæntar fígúrur og hluti,
en byggist þó aðallega á mek-
anískum strúktúr sem líkist landa-
korti eða minniskorti. Hvort ver-
öldin er að taka á sig form eða að
liðast í sundur er ekki ljóst en arki-
tónískir leirskúlptúrar Guðnýjar
gefa einnig samtímis tilfinningu
fyrir ósnertum absúrd nýbygg-
ingum og yfirgefnum merking-
arhlöðnum rústum.
Sýningin vinnur á við end-
urtekna skoðun. Fagurfræði henn-
ar er ekki auðmelt og hug-
myndafræðilegar vísanir sem gætu
leynst í titlum eða efnistökum
liggja ekki í augum uppi. Eilítill
texti eða viðtal við listakonuna
hefði getað lyft sýningunni veru-
lega upp og komið til móts við
áhorfandann.
Flókin fúnksjón
og afstrakt arkitektúr
Morgunblaðið/Eggert
Mekanískt Veröld Guðnýjar inniheldur einstaka óvæntar fígúrur og hluti,
en byggist þó aðallega á mekanískum strúktúr...“ segir m.a. í dómi.
Hafnarborg
Guðný Guðmundsdóttir, teikningar
og skúlptúr
bbbnn
Sýningin stendur til 21. júní. Opið alla
daga kl. 11-17 og fimmtudaga til kl. 21.
Lokað á þriðjudögum. Aðgangur ókeyp-
is.
ÞÓRA
ÞÓRISDÓTTIR
MYNDLIST
ÞAÐ er gaman fyrir okkursem upplifðum hvern dagsem nýtt djassævintýrifyrir hálfri öld að heyra
unga íslenska stráka leika uppá-
haldsverkin á tónleikum eftir tón-
leika. Það er ekki langt síðan
Snorri Sigurðarson og félagar rifj-
uðu upp fyrstu skífur Ornette Co-
lemans og nú hefur Andri Ólafsson,
nýbúinn að ljúka burtfararprófi frá
FÍH, forgöngu um að flytja alla níu
ópusana af Mingus Ah Um skífu
Mingusar, einu helsta snilldarverki
djasssögunnar og þarna samein-
uðust þrjár kynslóðir og leyfðu
okkur, Mingusgeggjurunum, að
heyra tónlistina jafn ferska og fyrr-
um. Ekki var mikið vikið frá út-
setningum Mingusar og sólistar
flestir á svipuðum slóðum og Ming-
us og hans menn utan Kjartan
Valdimarsson og Óskar Guð-
jónsson, sem hafa skapað sér svo
persónulegan stíl að allt sem þeir
leggja hönd á verður þeirra. Maður
saknaði þó hins geggjaða sál-
arkrafts er Booker Ervin og Ho-
race Parlan lögðu í 6/4 blúsinn tólf
takta „Better Git It In Your Soul“,
en þeir Kjartan og Óskar bættu
það margfalt upp með ótrúlega
heitum og vel byggðum sólóum í
„Fables of Faubus“. Þetta eru best
þekktu ópusar Mingusar að und-
anskildum öðrum 12 takta blúsi
„Goodbye Pork Pie Hat“ sem
Mingus samdi í minningu Lesters
Youngs og Óskar blés jafn glæsi-
lega og John Handy á skífunni
frægu. Eina breyting á hljóð-
færaskipan miðað við skífu Ming-
usar var, að Snorri blés í trompet
það sem Shafi Hadi blés í sax.
Snorri komst vel frá sínu og á betri
básúnusólista en Samúel Jóni eig-
um við ekki kost hérlendis. Ingimar
lauk brottfararprófi frá FÍH í vor
einsog hljómsveitarstjórinn og voru
altósólóar hans misjafnir, en
klarinettusóló hans í „Pussy Cat
Dues“ kom skemmtilega á óvart.
Andri bassaleikari á langt í land
með að drífa hljómsveit áfram eins-
og Mingus gerði og hann lagði ekki
í „slappbassann“ í „Jelly Roll“; óð-
inn til fyrsta stórtónskálds djassins.
Aftur á móti voru sólóar hans vel
unnir og kompið í „Fables of Fau-
bus“ stórfínt. Einsog jafnan er
Matti Hemstock sá klettur er hvert
band getur byggt á og þannig var
það hér – hann minnir um margt á
Sonny Greer í Ellingtonbandinu.
Menn uppgötvuðu fyrst er hann var
hættur hvaða þýðingu músíkalítet
hans hafði fyrir Ellington; Louis
Bellson með alla sína tækni fyllti
ekki í það skarð.
Að lokum skal tekið fram að
flestir voru ópusarnir fluttir með
prýði þó „Open Letter to Duke“
væri á mörkunum. En eitt er víst,
hlustendur voru hrifnir og það var
setið og staðið í hverjum krók og
kima kjallarans og í stiganum alla
leið uppá hæðina – þetta minnti á
tónleikana í Djúpinu er John
Tchicai lék hér fyrst. Andri á heið-
ur skilinn fyrir hugmyndina og ekki
síður að hrinda henni í framkvæmd.
Mingus
fyllir
Múlann
Múlinn á Kaffi Kúltúra
Mingus Ah Um
bbbbn
Andri Ólafsson hljómsveitarstjóri á
bassa; Snorri Sigurðarson trompet;
Samúel Jón Samúelsson básúnu; Óskar
Guðjónsson tenórsaxófón; Ingimar And-
ersen altósaxófón og klarinett; Kjartan
Valdimarsson píanó og Matthías M.D.
Hemstock trommur.
Fimmtudagskvöldið 14. maí.
VERNHARÐUR
LINNET
TÓNLIST
list&ást&list
21. maí - 24. maí 2009
Norræna húsið
HESS IS MORE kl 21:00
Steingrímur Eyfjörd, Ólöf Arnalds, Ásdis Sif Gunnarsdóttir, Björk Viggósdóttir, Magnús Jensson,
Andrea Hörður Harðarsson, Einar Már Gudmundsson, Hulda Hákon, Egill Sæbjörnsson, Sara Riel
Lau Strandby Nielsen, Jakob Riis, Mette Stig
Nielsen, Katerina Mistal,
Johanna Gustafsson Fürst,
Petri Ala-Maunus
P.S. barinn opnar kl 20:00
Ton
lei
kar
Anna Helga Henning, Bård Ask,
Hess Is More, Tuomo Haapala,
Jógvan Sverrason Biskopstø,
Vebjörg Hagene Thoe
Gestgjafar:
Benedikt Erlingsson &
Charlotte Bøving,
Sýningarstjóri: Poul R. Weile