Morgunblaðið - 21.05.2009, Side 36
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
Fólk
SÆNSKI tónlistarmaðurinn Promoe hefur verið
iðinn að sækja Íslendinga heim undanfarin ár og
þá iðulega til tónleikahalds með hljómsveit sinni
Looptroop.
Hann ætlar að heiðra landann með nærveru
sinni eina ferðina enn næstkomandi föstudags-
kvöld þegar hann heldur tónleika á Nasa við
Austurvöll.
Félagarnir úr Looptroop verða þó fjarri góðu
gamni að þessu sinni en Promoe ætlar þess í stað
að kynna fjórðu sólóplötu sína, Kråksången.
Tónlistin er, líkt og annað úr hans smiðju, undir
áhrifum frá reggae- og hiphoptónlist.
Looptroop aðdáendur þurfa þó ekki að ör-
vænta því Promoe hyggst einnig leika mörg af
þekktustu lögum úr smiðju sveitarinnar á tón-
leikunum í bland við nýtt og gamalt efni frá sjálf-
um sér.
Tónleikarnir fara fram sem fyrr segir á Nasa
annað kvöld og þar mun Promoe koma fram
ásamt góðum gestum.
Miðasala er hafin á midi.is og er aðgöngueyrir
2.000 krónur í forsölu en 2.500 við innganginn.
Upphitun verður í höndum 32C, Introbeats og
Tívoí Chillout og Dj B-Ruff.
Húsið verður opnað klukkan 23 og eru allir
velkomnir, svo framarlega sem viðkomandi hef-
ur náð 20 ára aldri.
Promoe úr Looptroop með tónleika á Nasa
Íslandsvinur Promoe kemur fram á Íslandi í sjö-
unda sinn næstkomandi föstudagskvöld.
www.myspace.com/promoe
www.looptrooprockers.com Tískugúrúinn Karl Berndsen
hefur aldeilis hrist upp í íslensku
kvenfólki í vetur. Mikið er rætt um
þátt hans Nýtt útlit kvenna á milli
og sífellt er vitnað í hann þegar
förðunarbuddan er dregin upp í
vinkvennahópnum.
Heyrst hefur að flest sem Karl
mælir með í þáttunum, notar eða
kynnir gegn greiðslu, rjúki út eins
og heitar lummur í snyrtivöruversl-
unum landsins. Konur hlaupa út í
búð daginn eftir þáttinn til að næla
sér í maskarann eða töfrapennann
sem gerði kraftaverkið hjá Karli.
Lokaþátturinn af Nýju útliti er
nú í tökum og verður hann sýndur
þriðjudaginn í næstu viku. Svo er
bara að sjá hvort sjónvarpsstöðv-
arnar berjast ekki um hann fyrir
næsta vetur enda af nægum efnivið
að taka fyrir Karl.
Verður Karl Berndsen
á RÚV næsta vetur?
Í nýjasta tölublaði kvikmynda-
tímaritsins Empire velur banda-
ríski leikstjórinn Cameron Crowe
10 bestu tónlistaratriði kvikmynda-
sögunnar og í fjórða sæti á listanum
er hljómsveitin Sigur Rós.
Atriðið sem Crowe tiltekur er í
tónleikamyndinni Heima og hann
segir að þegar sveitin leiki lagið
„Hoppípolla“ heyri áhorfandinn
hljómsveitina sameinast landinu og
endar svo umfjöllunina á að segja
„Viva Icelandia!“.
Crowe er ekki ókunnur Sigur
Rós en hann leikstýrði meðal ann-
ars myndinni Vanilla Sky þar sem
þrjú lög hljómsveitarinnar óma
undir heldur súrum aðstæðum Tom
Cruise.
Meðal annarra tónlistaratriða í
kvikmyndasögunni sem hugnast
Crowe er atriðið í Fight Club þegar
Edward Norton og Helena Bon-
ham-Carter fylgjast með háhýsum
hrynja til grunna undir ljúfum tón-
um Pixies, „Where is my Mind?“.
Leikstjórinn Cameron
Crowe velur Sigur Rós
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„MÉR finnst þetta mjög góð hljóm-
sveit, og ég var mjög hrifinn af
fyrstu plötunni þeirra,“ segir tónlist-
armaðurinn Daníel Bjarnason um
hljómsveitina Hjaltalín sem hann
mun stjórna á áhugaverðum tón-
leikum í Íslensku óperunni næst-
komandi miðvikudagskvöld, 27. maí.
Á tónleikunum, sem eru hluti af
Listahátíð í Reykjavík, mun sérstök
kammersveit sem sérstaklega var
sett saman af þessu tilefni koma
fram með Hjaltalín, en samtals
munu um 20 manns flytja tónlist á
sviði Óperunnar þetta kvöld.
„Sveitirnar blandast alveg saman
þannig að þetta verður bara eins og
ein risastór hljómsveit,“ útskýrir
Daníel, en á efnisskrá tónleikanna
verða lög úr smiðju Hjaltalín, bæði
eldri lög sem og lög af óútkominni
plötu sveitarinnar.
„Það verður fullt af nýju efni, en
líka mikið af nýjum útsetningum á
lögum af fyrstu plötu þeirra,
Sleepdrunk Seasons,“ segir Daníel.
Uppselt
Aðspurður segir Daníel ekki hægt
að útsetja hvaða tónlist sem er með
þessum hætti, en hann segir að tón-
list Hjaltalín henti hins vegar ein-
staklega vel.
„Það er einmitt það sem er svo
skemmtilegt við þetta, því þetta er
svo rökrétt. Þetta er öðruvísi en oft
þegar verið er að taka popp-
hljómsveitir og gera útsetningar við
lögin þeirra, þá finnur maður oft að
lögin eru ekki búin til með það í
huga. En tónlist Hjaltalín er svo
mikið hugsuð út frá hljóðfærum og
útsetningum og það er mikið um
svona „orchestral“ pælingar í henni.
Þannig að það er mjög eðlilegt að
gera þetta, en um leið mjög spenn-
andi.“
En er þá tónlist Hjaltalín að fær-
ast nær því að vera
„klassísk“, ef svo má
segja?
„Já og nei. Það sem
við erum að gera fer
kannski svolítið
framhjá þessari spurn-
ingu, hvort þetta sé
klassík eða popp. Það
er ekki eins og þau hafi
verið popparar á sviði
að fikta við klassík
heldur hefur þetta
haldist hönd í hönd hjá
þeim. Þau eru líka að
nota klassísk hljóðfæri.
En það er alltaf erfitt
að ræða þessa skil-
greiningu og segja hvar mörkin
liggja,“ segir Daníel en bætir því
jafnframt við að vissulega verði lögin
sett í annan búning en fólk eigi að
venjast.
„Mér finnst þetta
annars frábær þróun,
að fólk sem er að semja
vinsæla og grípandi
dægurtónlist skuli nota
meira en bara tromm-
ur, gítar og bassa,“ seg-
ir Daníel.
Mikil aðsókn hefur
verið í miða á tón-
leikana, svo mikil að
nokkuð er síðan síðasti
miðinn seldist. Daníel
segir hugsanlegt að
aukatónleikum verði
komið á í ljósi þessarar
miklu eftirspurnar.
„Við ætluðum að
reyna að halda aukatónleika en það
virðist því miður ekki ganga upp
strax í framhaldinu, einfaldlega út af
tíðum utanlandsferðum Hjaltalín. En
við endurtökum þetta vonandi síðar.“
Ekki bara gítar og bassi
Hljómsveitin Hjaltalín og kammersveit undir stjórn Daníels Bjarnasonar með
tónleika á Listahátíð í næstu viku Rökrétt og eðlilegt, að sögn stjórnandans
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjaltalín „Mér finnst þetta mjög góð hljómsveit, og ég var mjög hrifinn af fyrstu plötunni þeirra,“ segir Daníel.
Daníel Bjarnason
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
„VIÐ erum auðvitað komnir í ríkis-
jötuna svo sviðsmyndin verður tals-
vert voldugri en áður,“ segir Dr.
Gunni, Gunnar Lárus Hjálmarsson,
um væntanlega þáttaröð Popp-
punkta sem fer í loftið hjá Sjónvarp-
inu þann 5. júní næstkomandi.
„Ég myndi lýsa henni sem sam-
blandi af Hard Rock Café og
Staupasteini,“ segir dómarinn og
spurningahöfundurinn Dr. Gunni
jafnframt um sviðsmyndina góðu.
Sextán hljómsveitir hafa staðfest
þátttöku að þessu sinni og eiga það
eitt sameiginlegt að hafa aldrei áður
tekið þátt í keppninni.
„Buff fengu reyndar að vera með
aftur þar sem það hafa orðið svo
miklar mannabreytingar hjá þeim,“
segir Dr. Gunni.
Engar Hawaiskyrtur
Felix Bergsson verður spyrill sem
fyrr og segir Dr. Gunni þáttinn vera
með mjög svipuðu sniði og áður.
Doktorinn hyggst þó ekki klæðast
marglitum Hawaiskyrtum líkt og í
fyrri þáttaröðum og ástæðan er ein-
föld: „Það eru engar Hawaiskyrtur
til í verslunum á landinu. Ég held að
það sé lítil stemning fyrir Hawai-
skyrtum í þjóðfélaginu í dag.“
Blanda af Hard Rock Café
og Staupasteini
Sextán hljómsveitir reyna með sér í poppfræðum
Viðureignir í Popppunkti:
Eurobandið – Reykjavík!
Áhöfnin á Halastjörnunni – Sigur Rós
Sprengjuhöllin – Ljótu hálfvitarnir
Electra – Blood Group
Ingó & Veðurguðirnir – Hvannadalsbr.
Baggalútur – Buff
FM Belfast – Jeff Who?
Múm – Árstíðir
Morgunblaðið/Heiddi
Gunni og Felix Hér má sjá þá félaga í nýja settinu. Þátturinn verður með
svipuðu sniði og áður, en Gunni verður þó ekki í Hawaiskyrtum.
Hljómsveitin Hjaltalín er skip-
uð þeim Axeli Haraldssyni,
Guðmundi Óskari Guðmunds-
syni, Hirti Ingva Jóhannssyni,
Högna Egilssyni, Rebekku
Björnsdóttur, Sigríði Thorla-
cius og Viktori Orra Árnasyni.
Kammersveitina skipar,
auk Daníels, einvala lið hljóð-
færaleikara sem allir hafa
skapað sér sess sem fyrir-
taks einleikarar. Má þar t.d.
nefna Melkorku Ólafsdóttur
(flauta), Matthías Nardeau
(óbó), Hrafnkel Orra Egilsson
(selló), Unu Sveinbjarnar-
dóttur (fiðla) og Borgar Þór
Magnason (kontrabassi).
Einvala lið