Morgunblaðið - 21.05.2009, Side 37
Menning 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA byrjaði allt í einhverri
vitleysu fyrir rúmu ári síðan þegar
við ákváðum að syngja tónlist
Queen. Það gerðum við í tvígang
við góðar und-
irtektir, og í kjöl-
farið fór ég að
hugsa hvað við
gætum tekið
næst,“ segir Stef-
án Þorleifsson,
stjórnandi kórs
Fjölbrautaskóla
Suðurlands, sem
mun flytja lög
Gunnars Þórð-
arsonar á tónleikum á Selfossi í
kvöld. Tónleikarnir verða í íþrótta-
húsinu Iðu og eru þeir haldnir í
samvinnu við hátíðina Vor í Ár-
borg. Dagskráin samanstendur af
lögum eftir Gunnar Þórðarson, en
hann og Engilbert Jensen munu
heiðra tónleikagesti með nærveru
sinni og leika með kórnum.
„Gunnar Þórðarson varð fyrir
valinu sökum hans snilli og frum-
leika í lagasmíðum,“ segir Stefán
þegar hann er spurður hvernig
honum datt þetta í hug. En er þetta
ekki stórt stökk, að fara úr Queen
yfir í Gunnar Þórðarson? „Það er
allavega mjög ólíkt, og það er líka
markmiðið með þessum kór. Fyrir
áramót sungu krakkarnir til dæm-
is kirkjutónlist og í haust munu
þau syngja nútímatónlist þar sem
notast verður við tölvur og aðra
tækni. Þannig að við erum alltaf að
fást við ólíkan tónlistar-bálk.“
Poppið skemmtilegt
Aðspurður segir Stefán að þessi
tónlist hafi ekki verið sungin af
kórum áður, og hann hafi því varið
drjúgum tíma í útsetningar.
Það er hljómsveitin Karma sem
leikur undir, en eins og áður segir
munu þeir Gunnar og Engilbert
leika undir í nokkrum lögum.
„Engilbert tengist líka einni
stúlkunni í kórnum fjölskyldu-
böndum, og þau ætla að syngja dú-
ett. Svo munu fleiri kórfélagar
syngja sóló í einstökum lögum,“ út-
skýrir Stefán, en á meðal laga sem
munu hljóma á tónleikunum má
nefna „Heyrðu mig góða“, „Lífs-
gleði“, „Akstur á undarlegum
vegi“, „Ástarsæla“ og „Er hann
birtist“.
Alls munu 43 krakkar syngja á
tónleikunum, en allir eru þeir nem-
endur skólans, utan eins, sem er
fyrrverandi nemandi. En finnst
krökkunum ekki skemmtilegast að
syngja popp á borð við þetta?
„Jú það er alveg ljóst, enda alveg
ástæðulaust að þau syngi það sama
og kórar eldri borgara eru að
syngja,“ segir Stefán að lokum og
hlær.
Frá Queen til
Gunna Þórðar
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Gunni Þórðar Á meðal laga sem munu hljóma í kvöld má nefna „Heyrðu
mig góða“, „Lífsgleði“, „Akstur á undarlegum vegi“ og „Ástarsæla“.
Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands flytur lög Gunnars Þórð-
arsonar á tónleikum í kvöld „Varð fyrir valinu sökum hans
snilli og frumleika í lagasmíðum,“ segir stjórnandinn
Tónleikarnir verða í íþróttahúsinu
Iðu í kvöld og hefjast kl. 20. Miða-
verð er 2.500 og 2.000 kr. í for-
sölu. Frítt er fyrir börn yngri en 16
ára í fylgd með fullorðnum. For-
salan er í Bókasafni Árborgar á
Selfossi.
Stefán
Þorleifsson
Kór FSu Meðlimir kórsins eru allir nemendur í skólanum, utan eins.
PETER Bradshaw, kvikmynda-
gagnrýnandi breska dagblaðsins
Guardian, fer afar hörðum orðum
um nýjustu kvikmynd Quentin Tar-
antino, Inglorious Basterds, og
kallar hana „brynvarinn kalkún“.
Myndin sé hrein hörmung. Ein
stjarna af fimm er niðurstaðan en
myndin var frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Cannes.
Myndin segir frá bandarískri
herdeild sem er send inn á mitt yf-
irráðasvæði Þjóðverja í seinni heim-
styrjöldinni til þess að drepa eins
marga þýska hermenn og hún
mögulega getur og brjóta niður
liðsandann í hernum. „Nýja myndin
er eins og risavaxinn, brynvarinn
kalkúnn frá helvíti,“ segir Brads-
haw, allar vonir Tarantino-
aðdáenda um að nú kæmi meist-
araverk frá honum hafi orðið að
engu.
Bradshaw segir myndina hvorki
fyndna, spennandi, raunsæja eða
skemmtilega. Brad Pitt hafi aldrei
leikið eins illa, með fast glott á and-
litinu líkt og steypu hafi verið
sprautað vinstra megin í kjálkann á
honum. Þó nefnir Bradshaw að
Michael Fassbender hafi staðið sig
vel sem og Christoph Waltz. En
það bjargi málunum ekki því mynd-
in sé svo ferlega leiðinleg.
Dýrðleg endurkoma
Menn eru mun jákvæðari hjá
breska ríkisútvarpinu BBC, tala um
dýrðlega endurkomu Tarantino og
finna myndinni það helst til foráttu
að vera of löng og að Pitt fái ekki
nógu margar mínútur á hvíta tjald-
inu. Þó svo myndin nálgist ekki
snilldarverkið Pulp Fiction sé hún
engu að síður dýrðlega kjánaleg og
subbuleg endurkoma hins þekkta
leikstjóra á Cannes.
Brynvarinn kalkúnn frá helvíti
Steypukjálki Pitt hefur aldrei leikið eins illa, að mati Bradshaw.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Ó, þú aftur - afmælissýning leikhópsins Hugleiks (Smíðaverkstæðið)
Í Óðamansgarði - ópera í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík
Dreams 2009 - alþjóðleg döff leiklistarhátíð (Kassinn)
Kardemommubærinn (Stóra sviðið)
Fös 22/5 kl. 20:00 Ö
Sun 24/5 kl. 20:00
Fös 22/5 kl. 20:00 Ö
Mán 25/5 kl. 20:00 [The Hunt of King Charles - Finnland]
Þri 26/5 kl. 20:00 [Lostin - Ísland/Tékkland]
Fim 28/5 kl. 20:00 [Mistero Buffo - England/Singapúr]
Fös 29/5 kl. 20:00 [Lostin - Ísland/Tékkland]
Lau 30/5 kl. 20:00 [The Dreamboys - Svíþjóð]
Mið 27/5 kl. 20:00
Fim 28/5 kl. 20:00
Lau 23/5 kl. 20:00 Ö
Fös 29/5 kl. 20:00
Fim 4/6 kl. 18:00 U
Fös 5/6 kl. 18:00 U
Lau 6/6 kl. 14:00 U
Lau 6/6 kl. 17:00 U
Sun 7/6 kl. 14:00 U
Sun 7/6 kl. 17:00 U
Sun 24/5 kl. 14:00 U
Þri 26/5 kl. 18:00 U
Mið 27/5kl. 18:00 U
Fös 29/5 kl. 18:00 U
Lau 30/5 kl. 14:00 U
Lau 30/5 kl. 17:00 U
Lau 13/6 kl. 14:00 U
Lau 13/6 kl. 17:00 U
Sun 14/6 kl. 14:00 U
Sun 14/6 kl. 17:00 U
Sun 30/8 kl. 14:00
Sun 30/8 kl. 17:00
Sýningar haustsins komnar í sölu
Aðeins tvær sýningar
Í samstarfi við Draumasmiðjuna
Snarpt sýningatímabil - miðaverð aðeins 1.500 kr.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Einleikjaröð – Sannleikurinn (Litla sviðið)
Lau 23/5 kl. 19:00 ný aukaU
Lau 23/5 kl. 22:00 ný aukaU
Lau 20/6 kl. 19:00 ný sýning
Lau 27/6 kl. 19:00 ný sýning
Fös 3/7 kl. 19:00
Lau 11/7 kl. 19:00
Lau 18/7 kl. 19:00
Ökutímar (Nýja sviðið)
Fim 21/5 kl. 20:00 U
Fös 22/5 kl. 19:00 aukas U
Lau 23/5 kl. 19:00 aukas Ö
Sun 24/5 kl. 20:00 aukas
Mið 27/5 kl. 20:00 9kort U
Fim 28/5 kl. 20:00 10kort U
Fös 29/5 kl. 19:00 Ö
Umræður með höfundi að lokinni sýningu 22. maí.
Söngvaseiður – sýningar haustsins eru komnar í sölu!
Við borgum ekki (Nýja sviðið)
Uppsetning Nýja Íslands.
Fös 5/6 kl. 20:00 fors.
Lau 6/6 kl. 19:00 frums.U
Lau 6/6 kl. 22:00
Mið 10/6 kl. 20:00
Fim 11/6 kl. 20:00
Fös 12/6 kl. 20:00
Lau 13/6 kl. 20:00
Sun 14/6 kl. 20:00
Fim 21/5 kl. 16:00 U
Fim 21/5 kl. 20:00 9kort U
Fös 22/5 kl. 20:00 10kort U
Lau 23/5 kl. 20:00 U
Sun 24/5 kl. 16:00 U
Mið 27/5 kl. 20:00 ný aukasU
Fim 28/5 kl. 20:00 U
Fös 29/5 kl. 20:00 U
Lau 30/5 kl. 20:00 U
Mán 1/6 kl. 16:00 ný aukaU
Mið 3/6 kl. 20:00 U
Fim 4/6 kl. 20:00 U
Fös 5/6 kl. 20:00 ný aukasU
Lau 6/6 kl. 16:00 U
Lau 6/6 kl. 20:00 U
Sun 7/6 kl. 16:00 U
Fim 11/6 kl. 20:00 U
Fös 12/6 kl. 20:00 ný aukasU
Lau 13/6 kl. 14:00 U
Sun 14/6 kl. 16:00 U
ATH sýningar í haust
Fös 4.sept. kl. 19.00 aukas
Lau 5. sept. kl. 19.00 aukas
Sun 6. sept. kl. 19.00 aukas
Fim 10. sept.kl. 19.00 aukas
Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust.
Einleikjaröð – Djúpið (Litla sviðið)
Fös 5/6 kl. 20:00 frums.
Lau 6/6 kl. 16:00
Fim 11/6 kl. 20:00
Fös 12/6 kl. 20:00
Fim 18/6 kl. 20:00
Fös 19/6 kl. 20:00
Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone!
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Fúlar á móti ATH! sýnt í Íslensku Óperunni Sími 511 4200
Takmarkaður sýningafjöldi
Fös 22/5 kl. 20:00 Ný sýnÖ
Fim 28/5 kl. 20:00 Ný sýnÖ
Fim 4/6 kl. 20:00 Ný sýn Ö
Fös 5/6 kl. 20:00 Ný sýn Ö
Lau 6/6 kl. 20:00 Ný sýn
Sun 7/6 kl. 20:00 Ný sýn Ö
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
■ Föstudagur 22. maí kl. 19.30
Á suðrænum slóðum
Stjórnandi: Rumon Gamba
Einsöngvari: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
Brett Dean: Amphitheatre
Ottorino Respighi: Gosbrunnar Rómarborgar
Joseph Haydn: Arianna a Naxos
Benjamin Britten: Phaedra
Edward Elgar: In the South
■ Fimmtudagur 28. maí kl. 19.30
Tónleikar á Listahátíð
Stjórnandi: Gennadíj Rosdestvenskíj
Einleikari: Viktoria Postnikova
Dímítrí Sjovstakovtsj: Sinfónía nr. 7
Wolfgang Amadeus Mozart: Píanókonsert í c-moll, k-491