Morgunblaðið - 21.05.2009, Side 43

Morgunblaðið - 21.05.2009, Side 43
Menning 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 HINIR sérlegu Íslandsvinir í norður-írsku sveitinni Ash hyggjast slá öll met í smáskífufræðum frá og með september en þá munu 26 slík stykki koma út á 12 mánaða tímabili. Ash er lofuð smáskífusveit og ætti því ekki að vera skotaskuld úr því að snara út smellum í tugatali. Til að gefa smá forsmekk er nú hægt að hlaða laginu „Return Of White Rabbit“ niður frítt af opinberri vefsíðu sveitarinnar. Smáskífurnar tuttugu og sex falla undir svokallaða „A til Z röð“ og fyrsta smáskífan mun kallast „True Love 1980“. Leiðtoginn, Tim Wheeler, lýsti því yfir í hitteðfyrra að Ash myndi aldrei gefa út hefðbundna plötu framar og þetta væri hennar tilraun til að prófa eitthvað nýtt í útgáfumálum en dauða plötunnar hefur verið spáð lengi vegna spilastokks- og niðurhalsvæðingar. Smáskífurnar koma út í vínyl-, geisladiska- og niðurhalsformi. Með þessu slá Ash Leeds-sveitinni The Wedding Present við en hún gaf út tólf smáskífur 1992, allar í föstu formi, enda hið svokallaða internet þá ekki til. Já, ótrúlegt en satt. 26 smáskífur á einu ári Mergð Ash-liðar ætla að sturta smáskífum yfir land og lýð frá og með hausti. Vill verða Sinatra Reuters Sinatra? DiCaprio lærir söng. LEIKARINN Leonardo Di Caprio ku eyða frítíma sínum þessa dagana við söngnám en tilgangurinn er að reyna að tryggja sér hlutverk Franks Sinatra í kvikmynd byggðri á ævi söngvarans. Það er Martin Scorsese sem ætlar að færa ævisögu Sinatra upp á hvíta tjaldið en myndin er sögð eiga að einblína á meint tengsl söngvarans við mafíuna. Það væri þá ekki í fyrsta sinn sem þeir Scorsese og DiCaprio leiða saman hesta sína en sá fyrrnefndi hefur leikstýrt leikaranum í mynd- um á borð við The Departed, The Aviator og Gangs of New York. Fleiri leikarar hafa þó verið orð- aðir við hlutverkið, meðal annarra George Clooney og Justin Timber- lake. ÞAÐ þykir kannski óþarfi að árétta að fólk sé á lífi en þess þurfti þó í gær þegar fregnir af meintu andláti leikarans Patrick Swayze bárust sem eldur í sinu um fjölmiðla víða um heim. Swayze berst reyndar við krabba- mein en að sögn talskonu leikarans er hann við ágæta heilsu miðað við aðstæður. Fordæmdi hún frétta- mennsku af þessu tagi og sagði það einkar óábyrgt að birta fregnir um andlát manns sem enn væri í tölu lif- enda. Lái henni hver sem vill. Uppruna sögusagnarinnar má rekja til útvarpsmanna í Flórída sem tilkynntu andlát leikarans síðastlið- inn þriðjudag. „Fregnin“ barst svo til fjölda fjölmiðla og var orðin það útbreidd að talskona leikarans fann sig knúna til að leiðrétta vitleysuna. Patrick Swayze ekki látinn Reuters Á lífi Swayze er sem betur fer lif- andi, þrátt fyrir fréttir um annað. NÝ SENDING MIKIÐ ÚRVAL GIADA BOLIRNIR KOMNIR AFTUR 3.990 VINSÆLU MISSY KJÓLARNIR NÝJIR LITIR 9.900 SÍÐIR HLÝRABOLIR FALLEGIR LITIR 2.290 MARGT FLEIRA HERRAKRINGLAN OPIÐ Í DAG 13–17 /DÖMU & HERRASMÁRALIND OPIÐ Í DAG 13–18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.