Morgunblaðið - 26.05.2009, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 26.05.2009, Qupperneq 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson og Þórð Snæ Júlíusson FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ fer formlega með ábyrgð á því ferli, en bæði forsætisráðuneytið og Fjár- málaeftirlitið (FME) koma einnig að því. Heimildir Morgunblaðsins herma að enginn þessara aðila vilji taka við stýrinu í ferlinu og að það valdi miklum töfum á því að hægt verði að gera upp við kröfuhafa bankanna. Þá er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) sagður vera orðinn óþol- inmóður vegna tafanna. Samkvæmt samkomulagi AGS við íslensk stjórn- völd átti að vera búið að klára rétt- látt uppgjör við kröfuhafana og leggja nýju bönkunum til nýtt eigið fé fyrir lok febrúar síðastliðins. Síð- an eru liðnir þrír mánuðir og ljóst að uppskiptingin mun ekki klárast fyrr en í fyrsta lagi seint í júní, enda hef- ur formlegum viðræðum milli stjórn- valda og kröfuhafa verið frestað fram að þeim tíma. Nýju bankarnir þrír hafa verið að vinna að fimm ára viðskiptaáætlunum sem eiga að vera hluti af viðræðunum. Kergja er inn- an þeirra vegna þess að stjórnvöld tala ekki opinskátt um að þau vilji að erlendu kröfuhafarnir eignist hlut í nýju bönkunum, hvort sem það yrði með beinni hlutafjárþátttöku eða skuldabréfi sem væri ígildi eigin fjár. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær hótaði Mats Josefs- son, formaður nefndar um end- urreisn bankakerfisins, að hætta störfum í síðustu viku vegna óánægju með hvernig mál hafa gengið. Áhyggjur af lagalegri óvissu Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hefur hann lýst óánægju sinni með það hversu óskýr pólitísk stefna hefur verið í málefnum nýju bankanna, sem enn hafa ekki fengið eiginfjárinnspýtingu frá ríkinu. Hef- ur Josefsson einnig talið að ekki sé rétt haldið á málum þeirra fyr- irtækja sem bankarnir hafa tekið yf- ir. Josefsson hefur talað fyrir nauð- syn þess að vera með sjálfstætt Tafir á uppskiptingu milli nýju og gömlu valda titringi  Josefsson ekki sá eini sem hefur fengið nóg af töfunum  AGS líka óþolinmóður Morgunblaðið/Kristinn Josefsson Heimildarmönnum Morgunblaðsins ber saman um að Svíinn Mats Josefsson hafi verið hvass á fundum og haft flest á hornum sér. Nokkur titringur hefur verið und- anfarin misseri innan ráðuneyta sem fara með stjórn efnahags- mála vegna þess hve hægt hefur gengið að skilja á milli gömlu og nýju bankanna. eignaumsýslufélag, sem starfar með bönkunum, en bankarnir hafa sjálfir reynt að greiða úr málefnum við- skiptavina sinna, þvert á það sem hann lagði til. Áhyggjur Josefsson beinast meðal annars að því að upp geti komið lagaleg óvissa í ljósi þess að aðskilnaður nýju og gömlu bank- anna er ekki orðinn að veruleika enn. Bankarnir séu á hálum ís þegar kemur að yfirtöku á fyrirtækjum sem eru í rekstri á samkeppnismark- aði án þess að aðskilnaðurinn hafi formlega farið fram. Auk þess hefur Josefsson lýst því yfir að „lítil þekk- ing“ virðist vera á því innan nýju bankanna hversu erfið vandamál þeir glími við. Josefsson hvass á fundum Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hafa embættismenn inn- an ráðuneyta og stofnana, sem hafa setið fundi með Josefsson, ekki verið honum sammála um öll atriði. Auk þess hefur það komið á óvart hversu „hvass“ hann hefur verið, sér- staklega eftir því sem á hefur liðið. Einn heimildarmanna Morgunblaðs- ins, sem jafnframt hefur setið með honum vinnufundi, sagði að Josefs- son vissi augljóslega margt um bankastarfsemi en ætti það til að „æsa sig fullmikið“ þegar málefnin væru til umfjöllunar. Ekki væru allir vanir slíkri hreinskilni þegar kæmi að vinnu sem þessari innan stjórn- sýslunnar. FORKÓLFAR verkalýðsfélaga, ASÍ, BSRB, KÍ og BHM, funduðu í gær til að skerpa stefnuna fyrir fundi með við- semjendum sín- um. Þeir funda annars vegar með ríki og sveit- arfélögum, þar eru samningar lausir, og hins vegar með Sam- tökum atvinnu- lífsins á föstudag í Karphúsinu en samningar á almenna markaðnum gilda til 2010. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir hópinn samtaka: „Mikil ein- lægni er í þessum hópi og vilji til að finna leiðir sem geti verið sam- ræmd stefna í ljósi aðstæðna. En í svona samningi eru útfærslurnar ekki flóknar en engu að síður eru ákveðin markmið sem menn vilja setja sér.“ Gylfi segir ekki tíma- bært að gefa þau upp, þeir beri enn bækur sínar saman. gag@mbl.is Forkólfar skerpa stefnuna Gylfi Arnbjörnsson HAFDÍS Gísladóttir, verkefnastjóri hjá Umboðsmanni barna, hefur ver- ið ráðin aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra. Hafdís er með meistarapróf í op- inberri stjórnsýslu frá félagsvís- indadeild HÍ og er einnig menntað- ur leikskólakennari. Hafdís aðstoðar Svandísi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.