Morgunblaðið - 26.05.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.05.2009, Blaðsíða 32
32 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2009 Sudoku Frumstig 7 8 6 4 2 5 1 6 7 1 7 9 8 3 2 4 9 7 5 9 1 5 6 4 1 7 6 5 8 4 2 3 9 5 6 7 3 1 4 3 6 9 5 9 8 7 1 4 8 2 7 3 6 8 4 1 5 9 2 2 6 4 2 6 5 3 8 7 3 1 2 7 1 8 9 6 4 5 3 6 9 8 3 5 4 1 2 7 5 4 3 1 2 7 8 9 6 4 2 7 9 6 3 5 1 8 3 6 5 2 8 1 7 4 9 1 8 9 4 7 5 3 6 2 8 5 2 7 4 9 6 3 1 9 3 6 5 1 8 2 7 4 7 1 4 6 3 2 9 8 5 4 9 2 7 8 3 1 5 6 3 1 7 5 4 6 8 2 9 6 5 8 1 9 2 3 4 7 7 2 6 9 5 1 4 8 3 9 4 5 3 7 8 2 6 1 1 8 3 2 6 4 9 7 5 5 7 4 8 3 9 6 1 2 8 3 1 6 2 7 5 9 4 2 6 9 4 1 5 7 3 8 2 9 3 1 6 8 5 4 7 8 7 1 2 4 5 9 3 6 5 4 6 9 3 7 1 2 8 7 8 9 5 1 2 3 6 4 4 3 5 8 9 6 2 7 1 6 1 2 3 7 4 8 5 9 9 6 8 4 5 3 7 1 2 3 2 7 6 8 1 4 9 5 1 5 4 7 2 9 6 8 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 26. maí, 146. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Kunningi Víkverja rak upp stóraugu þegar hann opnaði póst- inn sinn á dögunum. Þar var nefni- lega að finna bréf frá Lögreglustjór- anum á höfuðborgarsvæðinu þess efnis að kunninginn hefði verið stað- inn að of hröðum akstri á götum borgarinnar. Kunninginn hafði raunar ekki verið sjálfur undir stýri þennan örlagaríka dag heldur sonur hans. En það gildir einu. Og hvað skyldi blessaður drengurinn hafa unnið til saka? Rafrænn búnaður lögreglunnar hafði mælt hann á 39 km hraða á klst. þar sem hámarkshraði er leyfð- ur 30 km á klst. Vikmörk eru 3 km á klst., þannig að unga manninum var gefið að sök að hafa ekið á 36 km hraða á klst. Sektin nam kr. 3.750. Brotið er skýlaust og ekki ætlar Víkverji að mæla því bót en í ljósi þess að lögreglan á höfuðborg- arsvæðinu hefur ítrekað kvartað undan manneklu á umliðnum vikum og mánuðum veltir hann fyrir sér hvort hún hafi ekki annað og betra við tímann að gera en sekta menn fyrir „ofsaakstur“ af þessu tagi. x x x Víkverji er harður Arsenal-maðurog býður öllum sem vilja til veislu á heimili sínu í dag í tilefni af því að tuttugu ár eru liðin frá því fé- lagið vann sinn frækilegasta sigur – á Anfield í Liverpool. Michael Thom- as tryggði Arsenal þá Englands- meistaratitilinn með nánast síðustu spyrnu leiktíðarinnar. Elstu menn muna ekki aðra eins dramatík. Mikið verður um dýrðir á heimili Víkverja. Hægt verður að horfa á upptökur frá leiknum og velja á milli lýsingar Arnars Björnssonar í Rík- issjónvarpinu eða Brians heitins Moores á bresku sjónvarpsstöðinni ITV. Má þar heyra hann mæla ein fleygustu orð sparksögunnar: „It’s up for grabs now!“ Einnig stendur gestum til boða að máta eftirlíkingu af treyjunni sem Thomas klæddist þennan dásamlega dag og skoða ljósmynd af skónum sem hann gerði markið í. Ekki þarf að taka fram að stuðn- ingsmenn Liverpool eru sérstaklega velkomnir. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 metn- aðargjarn, 8 í vondu skapi, 9 þakin ryki, 10 ætt, 11 fugl, 13 búa til, 15 æki, 18 vatnsból, 21 guð, 22 bogna, 23 held- ur, 24 þekkta. Lóðrétt | 2 munntóbak, 3 setja takmörk, 4 málms, 5 regn, 6 styrkt, 7 óttast, 12 tangi, 14 elskur, 15 hæð, 16 hindra, 17 stefni, 18 reykjarsvælu, 19 hárið, 20 ill kona. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 húkka, 4 tíkin, 7 mjúkt, 8 gulli, 9 ill, 11 rétt, 13 maga, 14 óarga, 15 barm, 17 trúa, 20 orm, 22 tímar, 23 örðug, 24 renna, 25 kæran. Lóðrétt: 1 humar, 2 klúrt, 3 atti, 4 tagl, 5 kelda, 6 neita, 10 lærir, 12 tóm, 13 mat, 15 bætur, 16 ríman, 18 ræður, 19 angan, 20 orka, 21 mörk. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Bxc6 dxc6 5. O-O Dd6 6. Ra3 b5 7. c3 c5 8. Rc2 Re7 9. a4 Hb8 10. axb5 axb5 11. De2 Rc6 12. Hd1 Dg6 13. d4 cxd4 14. cxd4 exd4 15. Rcxd4 Rxd4 16. Hxd4 Be7 17. Bf4 Hb7 18. b4 O-O 19. Hc1 Bg4 20. Dd3 Bxf3 21. Dxf3 c6 22. h4 h6 23. Dh3 Hb6 24. h5 Df6 25. Dg3 Ha6 26. Hcd1 He8 27. Bd6 Bxd6 28. Hxd6 Dg5 29. Dxg5 hxg5 30. H1d4 Ha1+ 31. Kh2 Hc1 32. Kg3 Hc2 33. Hd7 Ha8 34. Hc7 Ha3+ 35. f3 Haa2 36. Hd8+ Kh7 37. Kg4 Hxg2+ 38. Kf5 Had2 39. Hf8 g4 Staðan kom upp á bandaríska meist- aramótinu í St. Louis. Hinn ungi al- þjóðlegi meistari Robert Hess (2485) hafði hvítt gegn stórmeistaranum Julio Becerra Rivero (2609). 40. Hcc8! g6+ 41. Kf6! hvítur spinnur nú mátnet. Framhaldið varð: 41…Hd6+ 42. Ke7 Kh6 43. f4 He6+ 44. Kxf7 og svartur gafst upp. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Í bláinn. Norður ♠DG109 ♥D2 ♦743 ♣K853 Vestur Austur ♠2 ♠53 ♥ÁKG105 ♥9864 ♦K10 ♦G98 ♣D10942 ♣ÁG76 Suður ♠ÁK8764 ♥73 ♦ÁD652 ♣– Suður spilar 4♠. Vestur vekur á 1♥ og austur stekkur hindrandi í 3♥. Suður lætur sér detta í hug að segja 4♥ til að sýna spaða og láglit, en sú sögn væri betri með fimm- lit í spaða og sjötta tígulinn. Með sexlit í spaða borgar sig frekar að skjóta á 4♠. Allir passa og vestur tekur tvo fyrstu slagina á ♥Á-K, en skiptir síðan yfir í tromp. Hvernig er best að spila? Verkefnið er að vinna úr tíglinum án þess að gefa tvo slagi. Í þessari legu má ekki svína, en hvernig á sagnhafi að vita það? Þrátt fyrir veika sögn sína getur austur hæglega verið með tíg- ulkónginn. Það er rétt, en austur á tæplega bæði tígulkóng og laufás. Laufstöðuna er einfalt að kanna með því að vaða út með laufkónginn. Þegar ásinn sannast í austur er einfalt að spila ♦Á og tígli í bláinn. Stjörnuspá (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Viðkvæmt mál ber á góma og þótt þér sé mikil raun að ræða álit þitt á því verðurðu að gera það. Fáðu einhvern til þess að fara í gegnum málin með þér, þá færðu betri yfirsýn. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú munt verða margs vísari ef þú heimsækir nágranna, börn eða vini í dag. Láttu ekki ummæli annarra í þinn garð skemma fyrir þér daginn. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þeir sem leita ráða hjá þér hafa stundum á orði að þú ættir að gerast launaður ráðgjafi. Vertu opinn fyrir nýj- um tækifærum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Reyndu að hafa alla þræði í hendi þér áður en þú ræðst í framkvæmdir sem þig dreymir um. Stilltu þig um að tengj- ast þeim sem er ófær um að binda sig. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ert fólki sannur innblástur, en hverfur svo á braut á réttri stundu. Gættu þess að leggja traust þitt á verðug verkefni og jákvæðar hugsanir. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Hver er ríkur? Sá sem nýtur þess sem hann á. Sættu þig við það, þótt erfitt sé, og taktu til hendinni við ný verkefni. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Um þessar mundir gengur þér allt í haginn og þú nýtur þess fjárhagslega eða félagslega. Þú færð hins vegar ekki þau yfirveguðu viðbrögð sem þú óskar þér. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Hættu að vorkenna sjálfum þér og líttu á björtu hliðarnar og það sem þú ert og hefur. Notaðu kvöldið fyr- ir sjálfan þig. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Nú skapast stund milli stríða. Allir hafa gott af því að sjá að það er ekki allt sjálfgefið í þessum heimi. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Velgengni þín gæti valdið öf- undsýki hjá öðrum. Minjagripir eiga sér- stakan sess í hjarta þínu. Einhver sér- stakur verður á vegi þínum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Láttu þig ekki dreyma um að ganga á svig við lög og reglur, þótt í litlu sé. Ef þú leynir einhverju áttu það á hættu að ná ekki takmarkinu og verða þar með fyrir vonbrigðum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Alheimsorkan gefur þér ný gler- augu til að sjá heiminn með. Með orðum geturðu fengið fólk til að fylgja þér til enda veraldar, svo þú verður að nota það vald ansi varlega. 26. maí 1056 Fyrsti íslenski biskupinn, Ís- leifur Gissurarson, var vígður sem biskup í Skálholti. 26. maí 1962 Stór skriða féll úr fjallinu fyr- ir ofan Laugarvatn. „Heyrðust drunur í lofti, svo að miklum mun meira gekk á en í Heklu- gosinu 1947,“ sagði íbúi á staðnum. Skriðan var 320 metra breið og fór meðal ann- ars yfir tjaldstæði en ekki urðu skemmdir á húsum. 26. maí 1968 Hægri umferð var tekin upp eftir mikinn undirbúning. Morgunblaðið sagði að allt hefði gengið „svo snurðulaust að fullyrða má að til fyr- irmyndar sé“. Hér á landi hafði verið vinstri umferð í tæp sextíu ár. Til stóð að skipta í hægri umferð rúmum aldarfjórðungi áður, en hætt var við það vegna hernámsins. 26. maí 2003 Sameining Búnaðarbanka Ís- lands og Kaupþings var sam- þykkt á hluthafafundum. Nafn bankans var fyrst Kaupþing Búnaðarbanki en breyttist í KB banki í ársbyrjun 2004 og í Kaupþing banki í mars 2005. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Torfi Ólafsson, fyrrverandi deildarstjóri í Seðlabanka Ís- lands og for- maður félags kaþólskra leik- manna, er níræður í dag, 26. maí. Hann er að heiman á afmælisdaginn. 90 ára „FJÖLSKYLDAN er að plana óvissuferð að vinnu lokinni,“ segir Jón Bender verslunarmaður, sem er fertugur í dag. Hann veit því ekki hvernig hald- ið verður upp á afmælið að þessu sinni, enda er það leyndarmál. Óvissuferðir eru kannski ekki hefð í fjölskyldunni en þær hafa þó verið farnar áður, í tilefni af afmælum barna Jóns og eiginkonu hans, Guðrúnar Ragnarsdóttur. Þau eiga þrjú börn, Elísabetu Soffíu, Ragnar Þór og Sófus Mána. Reyndar tók Jón forskot á sæluna um helgina, en þau hjónin héldu veislu fyrir fjölskyldu og vini á laugardag heima hjá sér í Grafarvogi. Jón rekur fyrirtækið Bender ehf., sem selur skrifstofuhúsgögn og verslunarinnréttingar. „Þetta er áskorun. Þetta er eitthvað til að læra af,“ segir Jón aðspurður hvernig sé að starfa í þeirri grein núna. „Það er minna að gera, en við erum þó ekki farin að kvarta.“ Eitt helsta áhugamál Jóns er körfuknattleikur, auk þess sem hann stundar golfið þegar tími gefst. Í vetur tók hann upp þráðinn og fór aftur að dæma körfuboltaleiki, enda fullgildur dómari í íþróttinni. Hann segir ánægjulegt hversu hlýjar móttökur hann hafi fengið hjá leikmönnum og þjálfurum í vetur. onundur@mbl.is Jón Bender er fertugur í dag Óvissuferð að vinnu lokinni Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.