Morgunblaðið - 13.06.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009
Þar kom að því að ASÍ setti starfs-og stjórnarmönnum lífeyris-
sjóðanna siðareglur um boðsferðir
og önnur fríðindi.
Þar segir að þeim sé „óheimilt aðþiggja boðsferðir af viðskipta-
vinum, innanlands sem utan, hvort
sem um er að ræða skemmtiferðir,
svo sem veiðiferðir og golfferðir,
eða kynnisferðir
vegna einstakra
fyrirtækja eða
viðskiptakosta.“
Óskaplegaverður nú líf-
ið bragðdauft í
híbýlum lífeyris-
sjóðanna, hugsar
ef til vill einhver með sér eftir þessa
lesningu.
En svo kemur smáa letrið. Tekið erfram að undanteknar séu ferðir
sem talið er að hafi upplýsingagildi
fyrir lífeyrissjóðinn eða gera hann
hæfari til að sinna hlutverki sínu.
Í slíkum tilvikum skal metið af yfir-manni eða sjóðstjórn eftir atvik-
um hvort svo sé, enda greiði lífeyris-
sjóðurinn sjálfur kostnað við ferð-
ina,“ og enn kemur smáa letrið til
sögunnar, „nema annað sé sér-
staklega ákveðið og formleg heim-
ild veitt til.“
Það á sem sagt að fara eftir þess-um siðareglum „nema annað sé
sérstaklega ákveðið og formleg
heimild veitt til“.
Hvað felst í þessum undanþágum?Hefur það „upplýsingagildi fyr-
ir lífeyrissjóðinn“ ef blandað er sam-
an veiðiferð og fyrirlestri, eins og
tíðkast hefur? Verður lífeyrissjóð-
urinn „hæfari til að sinna hlutverki
sínu?“
Breyta siðareglurnar einhverju?
Nema annað sé ákveðið …
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 11 skúrir Lúxemborg 19 heiðskírt Algarve 33 heiðskírt
Bolungarvík 10 heiðskírt Brussel 20 léttskýjað Madríd 36 léttskýjað
Akureyri 10 skýjað Dublin 12 skýjað Barcelona 23 léttskýjað
Egilsstaðir 7 alskýjað Glasgow 17 léttskýjað Mallorca 27 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 9 skýjað London 20 heiðskírt Róm 28 léttskýjað
Nuuk 7 heiðskírt París 22 léttskýjað Aþena 33 léttskýjað
Þórshöfn 9 skýjað Amsterdam 17 léttskýjað Winnipeg 16 skýjað
Ósló 13 skúrir Hamborg 14 léttskýjað Montreal 20 skýjað
Kaupmannahöfn 13 skúrir Berlín 14 léttskýjað New York 23 léttskýjað
Stokkhólmur 13 súld Vín 17 skýjað Chicago 21 skýjað
Helsinki 18 skýjað Moskva 28 skýjað Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
13. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3.49 0,9 9.51 3,1 15.49 1,0 22.10 3,3 2:59 23:58
ÍSAFJÖRÐUR 5.48 0,5 11.35 1,7 17.38 0,6 23.54 1,9 1:33 25:33
SIGLUFJÖRÐUR 1.42 1,2 8.04 0,3 14.19 1,1 20.01 0,5 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 0.54 0,7 6.42 1,8 12.50 0,7 19.10 1,9 2:15 23:41
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á sunnudag
Hæg breytileg átt eða hafgola,
skýjað með köflum og víða
skúrir. Hiti 5 til 14 stig, svalast á
annesjum N- og A-lands.
Á mánudag
Hæg breytileg átt eða hafgola,
skýjað með köflum og víða
skúrir. Vaxandi suðaustanátt og
fer að rigna SV-lands seint um
daginn. Fer hægt hlýnandi.
Á þriðjudag
Stíf austanátt með rigningu, en
úrkomulítið NA-lands. Hiti 8 til
16 stig.
Á miðvikudag (lýðveld-
isdagur)
Útlit fyrir áframhaldandi aust-
læga átt með vætu.
Á fimmtudag
Snýst líklega til skammvinnrar
norðanáttar og kólnandi veður í
bili.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðaustlæg átt eða hafgola,
3-10 m/s. Skýjað með köflum
og stöku skúrir, einkum síðdeg-
is, en víða bjart NV-lands. Hiti 5
til 15 stig, svalast austast á
landinu.
SKÁKBÓKA- og tímaritasafn
skáksnillingsins Bobby Fisc-
hers seldist á 61.000 dollara eða
tæpar 8 milljónir íslenskra
króna hjá uppboðsfyrirtækinu
Bonham.
Er þetta í takt við áætlanir
fyrirtækisins, sem hafði reikn-
að með að 50-80 þúsund doll-
arar fengjust fyrir safnið. Ekki
kemur fram á vef fyrirtæksins,
hver kaupandinn var.
Einar S. Einarsson, fyrrverandi formaður
Skáksambands Íslands, telur sig þekkja til safns-
ins. „Ef um sömu hluti er að ræða sem okkur
bauðst að fá senda hingað til lands síðla árs 2005,
fyrir lítið sem ekki neitt auk flutningskostnaðar,
er um að ræða 15 kassa, með um 400 skákbókum
og 500 tímaritum auk þess verðmætasta í þessu
safni sem er handritið að hinni frægu bók hans My
60 Memorable Games, með nóteringum hans,“
segir Einar.
„Því miður vildi Bobby ekki sjá þetta góss aftur,
sem hann taldi að hefði verið ólöglega frá honum
tekið, svo ekkert varð úr,“ bætir Einar við.
Eins og fram hefur komið virðist mikill áhugi á
öllu því sem viðkemur hinum látna snillingi, sem
lést hér á landi í janúar 2008. sisi@mbl.is
Munir Fischers seldust á 8 milljónir
Í HNOTSKURN
»Munirnir sem boðnir voru upp voruhaldlagðir af bandarískum stjórnvöld-
um 1992, eftir að Fischer tefldi frægt ein-
vígi við Boris Spasskíj í Júgóslavíu.
»Með því að tefla í Júgóslavíu braut hannviðskiptabann á landið að mati banda-
rískra yfirvalda. Fischer sneri ekki aftur til
heimalands síns Bandaríkjanna eftir ein-
vígið.
Bobby Fischer
ÁSMUNDUR Helgason hefur verið
dæmur til að greiða 400.000 krónur í
sekt fyrir að hafa sem nafngreindur
höfundur birt auglýsingar á áfengi í
tímaritinu Mannlífi í maí 2008.
Annars vegar var um að ræða aug-
lýsingu fyrir Peter Lehmann-vín á
blaðsíðu 13 í tímariti útgefnu 22. maí
og hins vegar auglýsingu fyrir Ball-
antine’s-viskí á blaðsíðu 77 í sama
tölublaði.
Ákærði hefur ekki áður sætt refs-
ingu svo kunnugt sé og þótti hæfileg
refsing því 400.000 kr. sekt til ríkis-
sjóðs ellegar 24 daga fangelsi verði
sektin ekki greidd innan 4 vikna.
Laufey Kristjánsdóttir, fulltrúi
lögreglustjórans á höfuðborgar-
svæðinu, sótti málið af hálfu ákæru-
valdsins, en lögreglu barst ábending
um meint brot frá Foreldrasamtök-
um gegn áfengisauglýsingum.
Sekur um áfengislagabrot
Rýmum fyrir nýjum vörum
Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið.
Sími 533 2220 www.lindesign.is
Rúmfatnaður, púðar, dúkar, baðsloppar, lök ásamt mörgu
öðru með 20–50% afslætti.
Útsölunni lýkur í dag.
Íslensk hönnun á frábæru verði!