Morgunblaðið - 13.06.2009, Page 15
Mótmælum
lágtekjusköttum
Eiga öryrkjar og aldraðir að greiða óreiðuskuldir?
www.obi.is
VIÐ STÖNDUM FYRIR RÉTTLÆTI
– EKKERT UM OKKUR ÁN OKKAR!
Kjörorð ÖBÍ
Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir
þungum áhyggjum af bágri stöðu öryrkja og
ellilífeyrisþega sem þurfa að treysta á hið opin-
bera til að geta framfleytt sér og sínum. Fatlað
fólk og eldri borgarar nutu ekki hins svokallaða
góðæris þar sem uppbygging velferðarkerfisins
var ekki í samræmi við velmegun í samfélaginu.
Staða fyrrgreindra hópa er mjög þung vegna
aukins kostnaðar á nauðsynjum, eins og mat,
lyfjum, læknisþjónustu og húsnæði. Mjög
margir geta ekki látið enda ná saman.
Aðalstjórn ÖBÍ krefst þess að sá stöðugleika-
sáttmáli sem unnið er að á vettvangi ríkisstjórnar,
Samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingar
taki einnig til öryrkja og ellilífeyrisþega. Það gengur
ekki að 44 þúsund einstaklingar verði hafðir fyrir
utan það samkomulag.
Við Íslendingar verðum að hafa kjark til að fara í
gegnum þessa erfiðleikatíma með því að verja
velferðarkerfið með öllum tiltækum ráðum.
Aðför að velferðarkerf inu myndi valda
óafturkræfum skaða.
Að mati aðalstjórnar er nú rétti tíminn fyrir
íslensk stjórnvöld að endurskoða gildi okkar og
setja fólk í forgang.
Aðalstjórn ÖBÍ mótmælir því harðlega að sérstakir
lágtekjuskattar verði lagðir á lífeyrisþega.
Ályktun aðalstjórnar ÖBÍ þann 10. júní 2009.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA