Morgunblaðið - 13.06.2009, Page 25
140 bæir um allt land bjóða upp á gistingu,
máltíðir og afþreyingu.
Fjölbreytt gisting: Heimagisting, gistihús,
sveitahótel, sumarhús og tjaldsvæði.
Verið velkomin!
Bændur selja búvörur beint frá býli.
Fjölbreytt framboð af íslenskum mat
við allra hæfi.
Verði þér að góðu!
Bændahöllinni
107 Reykjavík
sími 563-0300
www.beintfrabyli.is
www.bondi.is
Síðumúli 2
108 Reykjavík
sími 570-2700
www.sveit.is
Komdu í heimsókn til bænda og kynntu þér
nútímabúskap og fjölbreytta starfsemi í
íslenskum sveitum.
Fyrir börn og fullorðna á öllum aldri!
Velkomin
í sveitina
Allt sem þú þarft að vita um
gistingu, mat og afþreyingu í
sveitinni
Bæklingurinn liggur frammi á öllum
helstu áningarstöðum á landinu.
Pantið bækling á www.uppisveit.is
Morgunblaðið/Kristinn
Þemadagur Þegar nemendur Háskóla unga fólksins fengu fyrirlestur um Alþingishúsið hafði kennarinn óskipta athygli þeirra. Á eftir var nestið borðað.
Leyndardómar læknisfræðinnar, stjörnuskoðun og sjónvarpsþáttagerðer aðeins brot af því sem um 300 nemar í Háskóla unga fólksins fenguað kynnast nú í vikunni. Í eina viku á hverju ári fær Háskóli Íslands
annan svip, stressaðir háskólanemar á þrítugsaldri hafa flögrað út í sumarið
en í stað þeirra koma fróðleiksfús ungmenni í tugatali. Reyndar var slegið
aðsóknarmet þetta sumarið enda mörg og fjölbreytt námskeið í boði. Á milli
námskeiða þar sem fróðleiksfýsninni hefur verið fullnægt, brugðu nemend-
urnir á leik á grænum flötum umhverfis háskólann. Þar var tekið í spil, sipp-
að, spilaður fótbolti og farið í snú-snú svo fátt eitt sé nefnt.
Að loknum skóladegi í gær var svo glæsileg lokahátíð og formleg braut-
skráning nemendanna. Tóku þeir sjálfir þátt í undirbúningi hátíðarinnar.
Heppnaðist hún vel og mátti sjá á nemendunum að þeir væru sáttir, sælir og
fróðari eftir námsdvölina í Háskóla unga fólksins. Það er því líklegt að ein-
hverjir eigi eftir að snúa aftur að ári. sunna@mbl.is
Lækningar Sigurður Guðmundsson, fyrrverandi landlæknir, fræddi nemana um leyndardóma
læknisfræðinnar og mannslíkamans.
Í hléi Á milli námskeiða nutu nemendurnir þess að leika sér við háskólann.
Forvitin börn og unglingar
urðu fróðari á einni viku
Mettur magi Nauðsynlegt er háskólanema að fá holla og góða næringu og ekki skemmir fyrir
að neyta hennar undir berum himni. Góða veðrið lék við nemendur í vikunni.
Daglegt líf 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200