Morgunblaðið - 13.06.2009, Síða 27
Daglegt líf 27ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009
Hólmarar geta verið ánægðir með
það að atvinnuleysi er ekki mikið í
bænum. Á atvinnuleysiskrá eru 23
einstaklingar skráðir og eru nokkrir
þeirra á bótum að hluta til. Þetta
þýðir rúmlega 2% atvinnuleysi.
Þessar tölur segja okkur að ekki er
þörf að kvarta meðan ástandið helst
svona gott.
Grásleppuvertíðin í Stykkishólmi
hófst 20. maí. Mikil fjölgun er á bát-
um sem stunda þessar veiðar. Gott
verð á grásleppuhrognum freistar
greinilega margra. Þrátt fyrir að
fleiri bátar stundi veiðarnar og mun
fleiri net séu í sjó hefur minna magn
af hrognum verið landað til þessa
miðað við sama tíma í fyrra. Það
þýðir að hver bátur er að fá mun
minni afla. Í Stykkishólmi hefur ver-
ið landað þriðjungi minna af hrogn-
um miðað við sama tíma í fyrra. Nú
hefur verið landað 37 tonnum af grá-
sleppuhrognum en 54 tonn voru
komin á land fyrir ári síðan. Það
kemur greinilega í ljós að þótt sókn-
in aukist fjölgar ekki grásleppunni í
sjónum.
Stykkishólmur er tilvalinn staður að
heimsækja í sumar. Ferðamenn geta
dvalist hér í marga daga og haft nóg
fyrir stafni. Bærinn tekur vel á móti
ferðamönnum. Þrjár merkar sýn-
ingar er hægt að skoða. Eldfjalla-
safn Haraldar Sigurðssonar er nýj-
ast en sýningin er í gamla samkomu-
húsinu. Þar að auki er Vatnasafn
Roni Horn og svo Norska húsið þar
sem minnst er aldarafmælis hafnar-
innar og gestir geta skoðað heimili
heldri manna á 19. öld.
Nýtt þjónustuhús hefur verið tekið í
notkun á tjaldsvæðinu. Það var
byggt í vetur og er tilbúið fyrir gesti.
Með þessu nýja húsi batnar aðstaða
gesta til mikilla muna. Húsið er um
60 fermetrar að stærð og búið flest-
um þægindum sem til er ætlast á
tjaldsvæðum nú til dags. Tjald-
svæðið er á góðum stað mitt á milli
golfvallar og sundlaugarinnar.
Ferjan Baldur er farin að sigla tvisv-
ar á dag yfir Breiðafjörðinn með við-
komu í Flatey. Farið er frá Stykk-
ishólmi kl. 9 og kl. 15. Með tilkomu
nýrrar ferju hefur orðið mikil fjölg-
un ferðamanna og bílaflutninga. Í
fyrra komu oft upp þau tilfelli að
uppselt var í ferðir ferjunnar. Ef
veðráttan verður okkur hagstæð má
búast við því að sama verði upp á
teningnum í sumar. Því er betra að
panta tímanlega fyrir farþega og
bíla.
Stykkishólmsbær mun fjárfesta fyr-
ir um 96 milljónir króna á þessu ári.
Þar er þjónustuhús á tjaldsvæði
stærsti liðurinn. Til gatnagerðar er
áætlað að verja 15 milljónum króna.
Þegar þeim framkvæmdum er lokið
verða allar götur í Stykkishólmi með
bundið slitlag og búið að ganga frá
gangstéttum.
Gamli miðbærinn í Stykkishólmi
hefur vakið athygli ferðamanna. Í
vetur hlaut Stykkishólmsbær Skipu-
lagsverðlaunin fyrir stefnu og fram-
fylgd á deiliskipulagi gamla bæjar-
kjarnans. Bæjaryfirvöld hafa á þann
hátt sýnt það að með verndun menn-
ingarverðmæta í gömlum bæjar-
kjörnum hjálpar til við uppbyggingu
ferðaþjónustu og eykur ánægju bæj-
arbúa.
Miklar framkvæmdir voru í fyrra
í gamla miðbænum sem breyttu
mjög öllu umhverfinu til hins betra.
Nú er verið að leggja lokahönd á
verkið. Verktakar eru mættir til að
hlaða grjótveggi og svo endurbyggja
gamlan brunn sem var staðsettur við
gamla Apótekið. Brunnbotninn
fannst í fyrra þegar unnið var við
jarðvegsframkvæmdir á svæðinu.
Ákveðið var bæði til gamans og fróð-
leiks að endurbyggja brunninn á
sama stað og á hann að minna okkur
á það að ekki var alltaf hægt að fá
vatn úr krana. Það þurfti meira fyrir
því að hafa en það.
STYKKISHÓLMUR
Gunnlaugur Auðunn Árnason,
fréttaritari
Morgunblaðið/Gunnlaugur Auðunn Árnason
Sumar Stykkishólmur laðar til sín margan ferðamanninn yfir sumarið.
Rúnar Kristjánsson áSkagaströnd fór fyrir
nokkru á handverkssýningu
eldri eða „heldri“ borgara í
Víðilundi á Akureyri. Þar
var Jón Hólmgeirsson
fremstur meðal jafningja í
handmenntum:
Í Víðilundi var hann Jón
á vakt með sínum hætti.
Og göfug öll sú gripa sjón
sem gesta augum mætti.
Hann leiddi fólk um listar svið
og lýsti önnum góðum.
Því margt fást hendur hagar
við
á heldri manna slóðum.
Þar leggja fram sín listaverk
þeir landsins góðu hlynir,
sem ráðin hafa reynslu sterk
og rækta þau sem vinir.
Í sköpun verka skapar Jón
þá skurðarlínufléttu,
sem kynnir lífsins trúa tón
í takt við gildin réttu.
Er boðuð var hækkun á
bensíni og brennivíni orti
Hilmir Jóhannesson:
Gerist döpur gleðiferð,
gremjutár á vanga.
Eftirleiðis ef ég verð,
ófullur að ganga.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af víni og
handverki
Markmið með styrkjumog uppbótum vegnabifreiða er að gerahreyfihömluðum ein-
staklingum kleift að stunda at-
vinnu, skóla, sækja reglubundna
endurhæfingu eða læknismeðferð.
Með líkamlegri hreyfihömlun er
átt við sjúkdóm eða fötlun sem
skerðir verulega færni til að kom-
ast ferða sinna þannig að göngu-
geta er að jafnaði minni en 400
metrar á jafnsléttu.
Þar er fyrst og fremst um að
ræða:
Lömun eða skertan hreyf-
anleika í ganglimum af völdum
sjúkdóms eða fötlunar.
Mæði vegna hjarta- eða lungna-
sjúkdóma.
Annað sambærilegt.
Blindir geta átt rétt á uppbót
vegna reksturs bifreiða og vegna
kaupa á bifreið.
Helstu skilyrði til styrkveitinga
eru eftirfarandi:
Umsækjandi eða annar heim-
ilismaður þarf að hafa ökuréttindi.
Bifreiðin þarf að vera skráð á
umsækjanda/framfæranda barns
eða maka (má vera rekstrarleiga
eða kaupleiga)
Eingöngu er heimilt að greiða
uppbót/styrk vegna fólksbifreiða
og sendibifreiða sem eru til al-
mennra nota. Hafa ber í huga
hvort umsækjandi hafi þörf fyrir
sendibifreið vegna fötlunar sinnar.
Allar bifreiðar þurfa að vera til
daglegra nota.
Skilyrði er að Tryggingastofnun
samþykki val á bifreið.
Heimilt er að greiða elli-, ör-
orkulífeyrisþega og örorkustyrk-
þega uppbót vegna reksturs bif-
reiðar sem nú er 10.828 kr. á
mánuði til að mæta kostnaði við
rekstur bifreiðar ef bótaþega er
nauðsyn að hafa bifreið vegna
hreyfihömlunar og sýnt er að
hann geti ekki komist af án upp-
bótarinnar.
Uppbót vegna kaupa á bifreið er
í dag 300.000 kr. en fyrir þá sem
eru að kaupa bifreið í fyrsta sinn
er fjárhæðin 600.000 kr. Heimilt
er að greiða örorkulífeyrisþega,
örorkustyrkþega og ellilífeyr-
isþega uppbót vegna kaupa á bif-
reið sem bótaþega er nauðsyn að
hafa vegna hreyfihömlunar. Enn-
fremur er heimilt að veita uppbót
til kaupa á bifreið til framfæranda
hreyfihamlaðs barns sem nýtur
umönnunargreiðslna.
Þinn réttur
Hverjir eiga rétt á
styrkjum og uppbót-
um vegna bifreiða?
Morgunblaðið/Ómar
Bílar Skilyrði eru fyrir styrkveit-
ingum TR til bílakaupa.
FÆRÐUBRJÓSTSVIÐAEÐA
SÚRT BAKFLÆÐI?...
...Nú færðu Losec Mups* án lyfseðils í næsta apóteki!
Nýtt!
annt um líf og líðan
Notkunarsvið: Losec Mups sýruþolnar töflur innihalda efnið omeprazol sem hemur magasýruframleiðslu. Losec Mups er notað við tilfallandi
brjóstsviða og súru bakflæði. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir omeprazoli eða einhverju öðru innihaldsefnanna eða samhliða lyfjum sem innihalda atazanavir. Gæta
skal varúðar ef þú færð einhver af eftirtöldum einkennum: Verulegt þyngdartap, endurtekin uppköst, kyngingarerfiðleika, blóðuppköst eða blóð í hægðum. Þá skal hafa samband
við lækni. Látið lyfjafræðing vita um önnur lyf sem eru notuð eða hafa nýlega verið notuð. Meðganga og brjóstagjöf: Losec Mups má nota á meðgöngu. Konur með barn á brjósti
eiga að leita ráða hjá lækni áður en notkun hefst. Skömmtun: Ein Losec Mups 20 mg tafla ekki oftar en einu sinni á sólarhring. Ef einkennin hafa ekki horfið eftir 14 daga stöðuga
notkun skal hafa samband við lækni. Gleypa á töflurnar heilar með ½ glasi af vökva. Hvorki má tyggja þær né mylja. Töflurnar má leysa upp í vatni eða einhverjum súrum vökva
(t.d. ávaxtasafa) og taka þannig inn. Það skiptir ekki máli hvort Losec Mups er tekið inn með eða án matar. Algengustu aukaverkanir eru: Höfuðverkur, niðurgangur, ógleði/
uppköst, kviðverkir, hægðatregða og aukinn vindgangur. Lesið vandlega allan fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Mars 2009.
*Omeprazol