Morgunblaðið - 13.06.2009, Side 37
Minningar 37
MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009
AÐVENTKIRKJAN Í REYKJAVÍK | Sam-
koma í dag, laugardag, hefst með biblíu-
fræðslu fyrir börn og fullorðna kl. 10.
Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á
ensku. Guðsþjónusta kl. 11. Brynjar
Ólafsson prédikar.
AÐVENTKIRKJAN Í VESTMANNAEYJUM
| Samkoma í dag, laugardag, hefst með
biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna kl.
10.30. Guðsþjónusta kl. 11.30. Jóhann
Þorvaldsson prédikar.
AÐVENTSÖFNUÐURINN Á SUÐ-
URNESJUM | Samkoma í Reykjanesbæ í
dag, laugardag, kl. 11. Farið verður yfir
biblíulexíuna.
AÐVENTSÖFNUÐURINN Í ÁRNESI | Sam-
koma á Selfossi í dag, laugardag, hefst
með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna
kl. 10. Guðsþjónusta kl. 10.45. Eric
Guðmundsson prédikar.
AÐVENTSÖFNUÐURINN Í HAFNARFIRÐI
| Samkoma í Loftsalnum í dag, laug-
ardag, hefst með fjölskyldusamkomu kl.
11. Björgvin Snorrason prédikar. Biblíu-
fræðsla fyrir börn, unglinga og fullorðna
kl. 11.50. Einnig er boðið upp á biblíu-
fræðslu á ensku.
AKRANESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Skagakonan, sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
messar í sumarleyfi sóknarprests.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Umsjón hafa Margrét Ólöf
Magnúsdóttir djákni og sr. Þór Hauks-
son. Barn borið til skírnar. Eftir guðsþjón-
ustuna er boðið upp á grillaðar pylsur og
meðlæti.
ÁSKIRKJA | Sumarferð Safnaðarfélags
Ásprestakalls verður farin sunnudaginn
14. júní frá Áskirkju kl. 10, og ekið að
Sólheimum í Grímsnesi. Hádegisverður
kl. 12 og guðsþjónusta í Sólheimakirkju
kl. 14. Sr. Sigurður Jónsson sókn-
arprestur Áskirkju prédikar og sr. Birgir
Thomsen staðarprestur á Sólheimum
þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Áskirkju
leiða söng, organisti Magnús Ragn-
arsson. Áætluð heimkoma til Reykjavíkur
um kl. 18. Sjá askirkja.is.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Göngumessa.
Gengið frá Breiðholtskirkju kl. 10 til
messu í Fella- og Hólakirkju kl. 11.
Hressing eftir messu og ökuferð til baka.
DALAPRESTAKALL | Messa kl. 11. Org-
anisti Skarphéðinn Þór Hjartarson og
Kirkjukór Bústaðakirkju syngur, prestur
sr. Pálmi Matthíasson. Kaffi á eftir.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl 11. Prest-
ur sr. Gunnar Sigurjónsson, organisti
Helga Þórdís Guðmundsdóttir, félagar úr
kór Digraneskirkju leiða almennan söng.
Sjá digraneskirkja.is
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálm-
ar Jónsson prédikar, sr. Þorvaldur Víð-
isson þjónar fyrir altari, Dómkórinn syng-
ur, organisti er Marteinn Friðriksson. Í
messunni verður barn borið til skírnar.
Hádegisbænir á miðvikudögum. Kvöld-
kirkjan á fimmtudögum.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Hátíðarmessa kl.
14. Vígslubiskup, hr. Jón Aðalsteinn
Baldvinsson prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sóknarpresti. Haldið uppá 35 ára
afmæli kirkjunnar og lok framkvæmda í
henni. Vígsla safnaðarheimilis að messu
lokinni og kaffiveitingar að Hörgsási 4.
15. júní (mánud.). Kyrrðarstund kl. 18.
FELLA- og Hólakirkja | Göngumessur í
Breiðholti. Gengið frá Breiðholtskirkju kl.
10 og um Elliðaárdal að Fella- og Hóla-
kirkju. Guðsþjónusta þar kl. 11. Prestur
sr. Svavar Stefánsson, organisti Guðný
Einarsdóttir. Veitingar á eftir. Rútuferð
fyrir þá sem þurfa að komast til baka í
Breiðholtskirkju og sækja bíla sína.
FRÍKIRKJAN Kefas | Í dag verður vitn-
isburðarstund kl. 16.30. Á samkomunni
verður einnig lofgjörð og fyrirbænir fyrir
þá sem vilja. Kaffi og samvera að sam-
komu lokinni.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta
kl. 14. Börn borin til skírnar.
Hjörtur Magni Jóhannsson predikar og
þjónar fyrir altari, tónlistina leiða tónlist-
arstjórarnir Anna Sigga og Carl Möller
ásamt kór Fríkirkjunnar.
GARÐAKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20 í
kyrrðinni á Garðaholti. Sr. Friðrik J. Hjart-
ar prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti
Jóhann Baldvinsson. Félagar úr Kór Ví-
dalínskirkju leiða sönginn. Rúta fer frá Ví-
dalínskirkju kl. 19.30, frá Jónshúsin kl.
19.35 og frá Hleinum kl. 19.40.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Kammersveit frá Boston: New England
Youth Camber Ensemble, leikur í mess-
unni, stjórnandi er Connie Riitenhouse
Drexler. Sr. Guðrún Karlsdóttir prédikar
og þjónar fyrir altari, organisti er Hákon
Leifsson og kór Grafarvogskirkju syngur.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Alt-
arisganga og samskot til Hjálparstarfs
kirkjunnar. Messuhópur. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur, organisti er Bjarni Jón-
atansson og prestur er sr. Ólafur Jó-
hannsson. Molasopi á eftir.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Djáknamessa kl. 14. Svala Sigríður
Thomsen djákni messar, söngstjóri er
Kjartan Ólafsson.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja, org-
anisti Hörður Áskelsson. Sögustund fyrir
börnin.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Org-
anisti Douglas A. Brotchie og prestur er
Tómas Sveinsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Sam-
koma kl. 17. Hermannavìgsla.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma sunnudag kl. 20. Umsjón hafa Pál-
ína H. Imsland og Hilmar Símonarson.
Trond Are Schelander predikar. Sam-
herjar verða teknir inn. Bæn þriðjudag kl.
20. Kaffisala 17. júní kl. 14-18.
HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Gunnar Jóhannesson. Organisti er
Jón Bjarnason. Tónleikar kl. 14. Örnólfur
Kristjánsson og Jón Bjarnason leika
saman á selló og orgel. Aðgangur ókeyp-
is.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Al-
þjóðakirkjan í kaffisalnum kl. 13. Ræðu-
maður er Helgi Guðnason. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Ræðukona er Guðný
Erla Guðnadóttir. Ath. barnakirkjan er
komin í sumarfrí.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
20. Lofgjörð og fyrirbænir, Friðrik Schram
predikar. Sjá kristur.is
KAÞÓLSKA KIRKJAN |
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og
laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11
og 19.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema
föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl.
10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er
messa kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk | Messa
kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laug-
ardaga er messa á ensku kl. 18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa laugardag kl. 18.
Bolungarvík | Messa kl. 16.
Suðureyri | Messa kl. 19.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
20. Arnór Vilbergsson er við hljóðfærið
og prestur er sr. Sigfús Baldvin Ingva-
son.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson, fé-
lagar úr kór Kópavogskirkju leiða safn-
aðarsöng, organisti er Lenka Mátéová.
Kaffi á eftir.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir. Org-
anisti Aron Axel Cortes. Kammerkór
Langholtskirkju syngur ættjarðarlög.
Kaffisopi eftir messu.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Guðsþjónusta
kl. 11. Kór Lindakirkju leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn Keith Reed. Sig-
ursveinn Þór Árnason syngur einsöng. Sr.
Guðni Már Harðarson prédikar og þjónar
fyrir altari. Guðsþjónustunni verður út-
varpað á Rás 1.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr
Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Org-
anisti Sigrún Steingrímsdóttir. Sr. Sig-
urður Árni Þórðarson prédikar og þjónar
fyrir altari. Kaffi og samfélag eftir messu
á Torginu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík |
Guðsþjónusta kl. 11. Kór Ytri-
Njarðvíkurkirkju syngur undir stjórn Gunn-
hildar Höllu Baldursdóttur organista.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Lesmessa kl.
11 í umsjón sr. Péturs Þorsteinssonar.
Sjá ohadisofnudurinn.is
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni | Guðs-
þjónusta kl. 14. Almennur safn-
aðarsöngur undir stjórn Sigrúnar Stein-
grímsdóttur.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl.
17. Ræðumaður Margrét Jóhannesdóttir.
Lofgjörð og fyrirbæn.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Óskar Hafsteinn Óskarsson þjónar
ásamt Eygló J. Gunnarsdóttur djákna,
stúlkur úr unglingakór Selfosskirkju leiða
söng og organisti er Glúmur Gylfason.
Sjá selfosskirkja.is.
SELJAKIRKJA | Göngumessur Breiðholts-
safnaða kl. 10. Gengið frá Breiðholts-
kirkju til messu í Fella- og Hólakirkju kl.
11. Kvöldmessa í Seljakirkju kl. 20. Sr.
Valgeir Ástráðsson prédikar, kór Selja-
kirkju leiðir safnaðarsönginn.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgistund kl.
11, í umsjón sr. Hans Markúsar Haf-
steinssonar héraðsprests, ritning-
arlestur, útlegging orðsins og bænagjörð.
Sjávarborgarkirkja | Messa kl. 16. Fé-
lagar úr kirkjukór Sauðárkróks leiða
sálmasöng, organisti Rögnvaldur Val-
bergsson. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir.
SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
14. Heimsókn Áskirkjusafnaðar að Sól-
heimum. Sr. Sigurður Jónsson prédikar
og sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari.
Organistar eru Ester Ólafsdóttir og Magn-
ús Ragnarsson.
Kórfélagar úr kirkjukór Áskirkju leiða al-
mennan safnaðarsöng og syngja kórverk.
Ritningarlestra lesa Margrét Svav-
arsdóttir og Guðmundur Karl Frið-
jónsson.
STRANDARKIRKJA | Messa kl. 14. Org-
anisti Hannes Baldursson, kór Þorláks-
kirkju og prestar María Ágústsdóttir og
Bjarni Þór Bjarnason. Sjá kirkjan.is/
strandarkirkja
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Helgi-
stund kl. 20. Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur,
prestur er sr. Bragi J. Ingibergsson.
ÞINGVALLAKIRKJA | Fermingarmessa kl.
14. Ferming og barn borið til skírnar. Ið-
unn og Bergþóra Rúnarsdætur leika á
fiðlu og klarinett, organisti er Guðmundur
Vilhjálmsson og prestur sr. Kristján Valur
Ingólfsson.
Messur á 17. júní
AKRANESKIRKJA | Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 13. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
messar, ræðumaður er Sigurmon Hart-
mann Sigurðsson nýstúdent. Kaffisala
kirkjunefndar í Safnaðarheimilinu Vina-
minni kl. 14.30 til 17.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi |
Þjóðarhátíðarmessa 17. júní kl. 11 f.h.
Fermd verður Brynhildur Ásgeirsdóttir
Skrauthólum 2, Kjalarnesi. Gunnar Krist-
jánsson sóknarprestur.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 13. Skátar standa heiðurs-
vörð, skrúðganga frá kirkju, að guðsþjón-
ustu lokinni, á hátíðarsvæði í
Tjarnargarði.
SAUÐÁRKRÓKSKIRJA | Messa kl. 11.
Kirkjukórinn leiðir söng, organisti Rögn-
valdur Valbergsson, prestur sr. Sigríður
Gunnarsdóttir.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta
kl. 12.30. Kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Gunnhildar Höllu Baldursdóttur org-
anista.
ÞINGVALLAKIRKJA | Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 14. Forseti kirkjuþings, Pétur Kr.
Hafstein, predikar, Margrét Bóasdóttir
syngur stólvers, organisti Guðmundur Vil-
hjálmsson og prestur er sr. Kristján Valur
Ingólfsson.
Orð dagsins: Ríki mað-
urinn og Lasarus.
(Lúk. 16)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Húsafellskirkja, Borgarfjarðarsýslu
Hér kveð ég þig vinur,
því komin er nótt
með kyrrð eftir
strangan dag.
Hún breiðir út faðminn í blíðu og mildi
og boðar þér nýjan hag.
Leiðir þig frjálsan til ljóssins sala
svo langt frá angri og sorg.
Og ferðalúnum finnur þér hæli
í friðarins helgu borg.
(Kristján Hjartarson)
Nú hefur Halli lagt af stað í ferð-
ina stóru, sáttur við allt og alla. Mig
langar til að þakka honum sam-
veruna og minnist ég þess með gleði
hve margar stundir við áttum sam-
an. Alla bíltúrana inn í Fljótshlíð, út
með ströndinni og um bæinn okkar.
Halli hafði mjög gaman af góðum
sögulestri og var í bókasafni
Blindrafélagsins, fékk þaðan snæld-
ur sendar heim. Hann unni líka
góðri tónlist og átti mikið safn
geisladiska. Mest hélt hann upp á
harmonikkulög og karlakórssöng.
Halli fylgdist mjög vel með fram-
Þórhallur
Guðnason
✝ Þórhallur Guðna-son fæddist í
Stöðlakoti í Fljótshlið
12. september 1933.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu Ljós-
heimum á Selfossi 30.
maí 2009 og fór útför
hans fram frá Selfoss-
kirkju 6. júní.
kvæmdum Selfoss-
bæjar og var tíður
gestur í Áhaldahúsi
bæjarins á árum áður
meðan pabbi hans var
þar, og þar átti hann
marga kunningja.
Halli minn, takk
fyrir samveruna og
mig langar til að
kveðja þig með þess-
um erindum Þórunnar
Sigurðardóttur sem
við lásum svo oft og
þér þótti svo falleg.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Ég óska þér Halli minn blessunar
í nýjum heimkynnum.
Kveðja,
Guðbjörg Ólafsdóttir.
Elsku amma; það er
erfitt að trúa því að þú
sért horfin á brott frá
okkur. Það er svo stutt
síðan við sátum saman og þú spurðir
út í framtíðina hjá okkur – hvernig
gengi og hvert við ætluðum. Einhvern
veginn hvarflaði ekki að manni að þú
yrðir ekki til staðar í þeirri framtíð.
Í minningunni virðist líka svo
ósköp stutt síðan heimili ykkar afa
var griðastaður okkar allra. Þar voru
brosin göldruð fram með sælgætis-
mola og tárin hrakin á brott með
blautum þvottapoka. Hvergi í heim-
inum mátti finna ötulli stuðnings-
mann en þig. Þú hafðir þá einlægu trú
að við værum til alls megnug. Hjá þér
var manni ekki bent á að maður hefði
bætt á sig, hjá þér var manni ekki
sagt að fara varlega í kökurnar og hjá
þér var maður ekki skammaður fyrir
að líta upp úr skólabókum. Hjá þér
var maður fullkominn eins og maður
var og átti bara eftir að verða betri.
Með brotthvarfi þínu er höggvið
Guðmunda
Gunnarsdóttir
✝ Guðmunda Gunn-arsdóttir fæddist í
Vestmannaeyjum 30.
júlí 1920. Hún and-
aðist á Hjúkr-
unarheimili Dval-
arheimilisins Áss í
Hveragerði 25. maí
2009 og fór útför
hennar fram frá Sel-
fosskirkju 6. júní.
djúpt skarð í líf okkar
allra. Eitt er þó víst að
minning þín mun lifa
með okkur. Við vitum
að þú munt vaka yfir
okkur og í þeirri vöku
muntu sjá að ansi
mörgum áföngum
verður náð með þig og
afa efst í huga, okkar
sterku stuðningsmenn.
Hvíl í friði amma mín.
Farin ert þú fegurst blóma,
fangbrögðin við sorg ég
tek.
Heitast mun í huga ljóma,
til hinstu stundar skorti ei þrek.
Skammvinnt efnið skýldi mörgum,
skorið til af tímans hjör.
Hugur lyfti hundrað björgum,
heiðskýr minnti á æskufjör.
Ótalmarga einatt gladdir,
einlæg, blíð og skemmtileg.
Á stundinni er stolt þú kvaddir
stóðst þú upp og gekkst þinn veg.
(Sindri Þór Hilmarsson.)
Sandra Dögg og Sindri Þór
Hilmarsbörn.
Nú hefur okkar ástkæra stóra syst-
ir kvatt þennan heim. Hún var okkar
fyrirmynd sem við litum upp til og
stoð og stytta í einu og öllu, sterk
kona sem vildi allt fyrir okkur gera.
Hugsaði frekar um aðra en sjálfa sig,
vinnusöm baráttukona sem stóð í
framvarðarlínu verkalýðsbaráttunn-
ar í sinni heimabyggð um miðja síð-
ustu öld. Hennar hugsjón var jafn-
rétti fyrir alla og þannig hugsaði hún
til okkar og annarra ættmenna sinna,
vildi sjá veg okkar allra sem bestan og
mestan. Því kemur upp í hugann mál-
tækið „sælla er að gefa en þiggja“
þegar við hugsum til Lillu systur okk-
ar, eins og hún var kölluð af okkur
systkinum. Þannig vildi hún frekar
gefa frá sér alla sína krafta en þiggja
frá öðrum aðstoð. Lilla systir okkar
var stolt kona sem kvartaði ekki þótt
á móti blési, heldur hélt ótrauð áfram,
hvort sem var fyrir fjölskyldu og vini
eða barátta fyrir hagsmunum verka-
fólks.
Það er einkennileg tilfinning að vita
til þess núna að Lilla er farin frá okk-
ur, hún sem var okkur svo kær og ná-
læg. Kannski var hún hvíldinni fegin
því líkamlega var hún orðin þreytt en
hugur og hugsun var þó skýr til síð-
asta dags.
Við kveðjum hana nú með söknuði
og þökkum svo mikið fyrir allt það
sem hún gaf okkur.
Hafsteinn Stefánsson, eiginmaður
hennar, lést fyrir tæpum 10 árum.
Hann var hagyrðingur góður. Okkur
langar að enda þessi kveðjuorð með
tilvitnun í eitt ljóða hans:
Við leggjum af stað út í lífið
leitandi systur og bræður.
Og við erum dæmd til að deyja
en dómarinn stundinni ræður.
Við bjástrum í biðsal dauðans
og bíðum þar sólarlagsins.
Ljúft er að leggjast til hvílu
að lokinni vinnu dagsins.
Svava og Þórunn.