Morgunblaðið - 13.06.2009, Qupperneq 42
42 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009
NÝUPPGÖTVAÐ handrit að tón-
verki eftir franska tónskáldið Gabr-
iel Fauré var selt fyrir andvirði 4,2
milljóna íslenskra króna á uppboði í
Sothebys í London í vikunni. Verk-
inu, sem er píanódúett, er lýst sem
stórbrotnu og mjög rytmísku og er
það talið vera samið um 1870.
„Það er sérstaklega spennandi að
geta opinberað almenningi dúett
sem er svo glæsileg tónsmíð, fyrsta
sinni eftir að hann var saminn fyrir
rúmri öld,“ sagði dr. Simon Maguire
yfirmaður nótnahandritadeildar
uppboðsfyrirtækisins við söluna.
Beethoven dýrastur
Handrit Beethovens að eigin verki
var einnig boðið upp hjá Sothebys á
uppboðinu, en þar var um að ræða
stef og hugmyndir að nokkrum
verkum, þar á meðal að Blásara-
oktett opus 103. Það er elsta handrit
Beethovens sem boðið hefur verið
upp á síðari árum, og var það slegið
á andvirði tæpra 35 milljóna ís-
lenskra króna.
Fleiri fornmunir tónlistarsög-
unnar voru boðnir upp þennan dag í
Sothebys, fyrsta nótnaheftið að pí-
anótónlist, sem prentað var á Bret-
landseyjum, og elsta nótnabókin
prentuð á grafískan máta utan Ítal-
íu, frá 17. öld, voru þar á meðal. Í
henni voru verk eftir ensku endur-
reisnarmeistarana William Byrd,
John Bull og Orlando Gibbons, auk
áður óþekktra verka sem ekki hafa
verið borin kennsl á enn. Bókin sú
arna var seld á andvirði 13 milljóna
króna.
Auk dýrgripa í nótum fór einnig á
uppboðinu sendibréf ritað af ítalska
geldingnum Farinelli sem uppi var á
18. öld, en í bréfinu lýsir hann brott-
hvarfi sínu úr óperuheiminum. Þetta
mun vera fyrsta bréfið eftir Farinelli
sem sést hefur á uppboði, og fór það
á liðlega 2,2 milljónir króna.
begga@mbl.is
Tónskáldin
dýr eftir
dauðann
Rissbók eftir Beethoven
slegin á 35 milljónir
Gabriel Fauré Nýr stórbrotinn dúett.
PULP Machineries,
sýning hollenska
listamannsins Klaas
Kloosterboer í Suð-
suðvestri hefur verið
framlengd til 21. júní.
Sýningin er sam-
starfsverkefni við
Gallerí van Gelder í Amsterdam og var opnuð 16
maí sem einn dagskrárliða Listahátíðar í Reykja-
vík. Klaas Kloosterboer er vel þekktur í Hollandi
fyrir verk sín sem oft taka á sig þrívíð form. Hann
notar hefðbundin efni svo sem málningu og striga
í listsköpun sinni en hlutgerir efniviðinn með því
að rífa í sundur og endurbyggja málverks-
skúlptúra. Í huga Kloosterboer er listsköpun
ávallt spurning um að leggja undir sig rými.
Myndlist
Kloosterboer enn
í Suðsuðvestri
Eitt verka Klaas Kloosterboer
Í DAG tekur lista-
konan Guðrún Gunn-
arsdóttir á móti
gestum og leiðir um
sýningu sína Hug-
hrif sem nú stendur
yfir í Galleríi Ágúst,
Baldursgötu 12.
Guðrún verður á staðnum milli kl. 14-16 og eru all-
ir velkomnir í léttar veitingar, spjall og hugguleg-
heit. Sýningin Hughrif samanstendur af nýjum
verkum Guðrúnar en hún er þekktust fyrir þrí-
víddarteikningar sínar úr málmi. Hér tekst Guð-
rún á við nýjan efnivið, svo sem plast og gúmmí,
trjágreinar og hrosshár, með hrífandi árangri.
Allir eru velkomnir í sýningarspjallið, en sýn-
ingin stendur til 27. júní.
Myndlist
Guðrún býður
gestum leiðsögn
Verk Guðrúnar Gunnarsdóttur
MYNDLISTIN og
tungutakið er yfir-
skrift málþings
sem haldið verður í
Listasafni Íslands í
dag frá kl. 11 - 13.
Þar leiða saman
hesta sína Gunnar
J. Árnason, listheimspekingur, Ragna Sigurð-
ardóttir, listamaður og gagnrýnandi og Halldór
Björn Runólfsson, listfræðingur, og fjalla um
efnið í tengslum við sýningu þeirra Hrafnkels
Sigurðssonar og Kristjáns Guðmundssonar. Báð-
ir hafa skapað sér sterkt og persónulegt mynd-
mál, sem lýtur að mörgu leyti svipuðum lög-
málum og formgerð tungumálsins, enda eru þeir
í hópi okkar fremstu hugmyndlistarmanna.
Myndlist
Ræða orðfæri
myndlistarinnar
Kristján og Hrafnkell í safninu
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
„ÞETTA er verk fyrir fimm konu-
stelpur, sjálfstætt framhald af The
Mysteries of Love, verki sem við
gerðum árið 2006 og höfum sýnt víða
í Evrópu, þar á meðal á Íslandi,“ seg-
ir Erna Ómarsdóttir danshöfundur
og dansari um Teach us to outgrow
our madness, dansleikhúsverk sem
verður sýnt í Þjóðleikhúsinu þann 19.
júní.
Erna hefur á síðustu árum hlotið
mikið lof fyrir vinnu sína með heims-
þekktum dans- og leikstjórum og síð-
ustu árin einnig fyrir eigin verk sem
hún hefur sýnt víða. Hún og hinir
flytjendurnir eru stödd í London, þar
sem þau sýndu Teach us … í gær-
kvöldi og aftur í kvöld.
„Fyrra verkið fjallar um ungar
stelpur, eiginlega um unglingaveiki,
og við erum aftur að hugsa um horm-
ónasveiflur, þegar líkaminn fer allur í
rugl. Þetta skiptið erum við meira
með tíðahvörf miðaldra kvenna í
huga. Við flökkum þó á milli, erum
litlar stelpur, unglingar og fullorðnar
konur. Fimm konur sem eru eins og
systur, búa í nánu sambýli.
Við vinnum líka með trans og
tengjum hann við hormónabreyt-
ingar, afl sem kemur inn í líkamann
og byrjar að stjórna án þess að mað-
ur ráði við neitt sjálfur.
Svo eru líka einhver áhrif úr b-
hryllingsmyndum,“ segir Erna og
hlær.
Dans og söngur getur bjargað
„Þetta er einskonar dansleikhús
með konsertívafi. Við syngjum líka.
Ég hef alltaf gaman af að prófa
eitthvað nýtt. Mér finnst alltaf að
fólk eigi að gera meira af því að
syngja og dansa, því það gerir mann
svo glaðan. Það getur bjargað mörg-
um – og kemur manni að minnsta
kosti í gott skap.“
Erna er látlaust á ferðinni og seg-
ist eiginlega búa í ferðatösku. „Það
fylgir vinnunni. Ég er með nokkur
verk á dagskránni og þegar við erum
að vinna er það oft í Frakklandi, á
Ítalíu, í Þýskalandi eða Belgíu. Þegar
maður er í lausamennsku, þá þarf að
vinna svona.
Ég fer til Ástralíu í ágúst, að sýna
verk í Melbourne. En ég er mest að
vinna í Evrópu.“
Síðustu árin hefur Erna einbeitt
sér að því að semja sín eigin verk, í
samvinnu við aðra listamenn.
„Ég vann meira með leikstjórum
og danshöfundum áður, en í augna-
blikinu er ég í meira stuði til að gera
mín eigin verk og nýt þess,“ segir
hún.
Dansleikhúsverk undir stjórn Ernu Ómarsdóttur verður sýnt í Þjóðleikhúsinu
„Líkaminn fer allur í rugl“
Ljósmynd/Roberto Flores Moncada
Tíðahvörf Erna og hinir dansararnir vinna með sambýli kvenna, hormónasveiflur og trans í verkinu.
„ÞAÐ er engin bylting hér, þetta
verður með svipuðu sniði og und-
anfarin ár, létt og skemmtilegt,“
segir Sigurður Flosason saxófón-
leikari sem í dag ýtir úr vör Sum-
ardjassi á Jómfrúnni í fjórtánda
sinn. Fyrstu tónleikarnir í þessari
feikivinsælu tónleikaröð hefjast kl.
15, með tónleikum BT Power-tríós,
en þar er á ferðinni Björn Thorodd-
sen og liðsmenn hans Jón Rafnsson
á bassa og Jóhann Hjörleifsson á
trommur og þeir ætla að spila tónlist
undir formerkjunum Frá Shadows
til Sextetts Óla Gauks.
Borgarbúar hafa kunnað vel að
meta sumardjassinn á Jómfrúnni, og
stemningin sem skapast í bakgarð-
inum í Lækjargötunni á góðviðr-
isdögum er einstök.
„Þetta er ákaflega gaman og
skemmtilegt að spila úti þegar allir
eru jákvæðir og glaðir. En það getur
líka verið erfitt að spila utandyra og
þar er ekki hægt að spila hvað sem
er, til dæmis ekki mjög veika tónlist.
Þessa notalegu útistemningu þekkja
margir til dæmis frá Djasshátíðinni í
Kaupmannahöfn.“
Sjö tónleikar verða á dagskrá
Jómfrúarinnar í sumar og verða þeir
síðustu því 25. júlí. „Þarna verður
allur skalinn í tónlist og djasstónlist-
armönnum; ungir sem aldnir og fjöl-
breytt tónlist. Ég nefni sérstaklega
tónleika í minningu Andrésar Ing-
ólfssonar saxófónleikara, sem Reyn-
ir Sigurðsson slagverksleikari sér
um. Þar spilar hann með mönnum úr
yngri deildinni.“ Sigurður segir auð-
velt að fá fólk til að spila, og færri
komist að en vilji.
Að viku liðinni spilar Smásveit
Reykjavíkur, rytmadeildin úr Stór-
sveitinni með Sigurði og á dag-
skránni verða djassstandardar.
Frítt er inn á alla tónleikana.
begga@mbl.is
Jómfrúin fer í djassham
Morgunblaðið/ÞÖK
Dömsk stemning Þeir kunna að skapa rífandi sumarstemningu, Jakob veit-
ingamaður á Jómfrúnni og Sigurður, sem skipuleggur sumardjassinn þar.
BT Power tríó hefur Sumardjass á Jómfrúnni í dag kl. 15
Mig langar til þess
að setja upp grill og
kalla það Kreppugrillið.
Fólk mætir þá bara með
kjötið sjálft og hendir á. 44
»
Í verkinu Teach us to outgrow our madness stíga fimm
hárprúðar verur dans, syngja og prjóna saman mar-
traðir og drauma í sýningu sem er sögð tryllt og frels-
andi í senn. Verkið hefur fengið lofsamlega dóma. Í
L’Humanité var talað um „óðagot með fullkominni
stjórn“, og í France Info er það sagt „ofsafengin og
frelsandi leikhúsupplifun.“
Erna Ómarsdóttir er listrænn stjórnandi og átti hug-
myndina en verkið er skapað og sýnt af þeim Valgerði
Rúnarsdóttur, Sissel Merete Bjorkli, Ernu, Riina Huht-
anen og Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Auk þeirra dansar
Lovísa Gunnarsdóttir og Margrét Sara Guðjónsdóttir tók þátt í sköpuninni.
Tónlist og textar eru eftir Lieven Dousseleare og Valdimar Jóhannesson.
Prjóna saman martraðir og drauma
Erna Ómarsdóttir