Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009 einfaldlega betri kostur Komdu og njóttu góðra veitinga Ekta danskt smurbrauð m/rækjum og kaffi 499,- laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „ÉG tel ekki sjálfgefið að þarna eigi að endurbyggja hótel í þeirri mynd sem er í dag,“ segir Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætisráðherra þegar leit- að er eftir afstöðu hennar til upp- byggingar Hótel Valhallar að nýju eftir brunann í fyrradag. „Mér var brugðið, eins og öðrum, þegar mér bárust þessar fréttir síð- degis í gær [fyrradag]. Þingvellir eru þjóðgarður og helgur staður í sögu þjóðarinnar, einstakur að mörgu leyti. Valhöll hefur verið stór hluti af sögunni í þjóðgarðinum,“ segir Jóhanna. Þjóðgarðurinn heyrir undir for- sætisráðuneytið. Fulltrúar ráðu- neytisins fylgdust með á Þingvöllum í fyrradag og Jóhanna segir að geng- ið verði vel frá svæðinu og fyllsta ör- yggis gætt. Í gær var fyrirhugað að hefja niðurrif þess hluta húsanna sem eftir stendur. Jóhanna hafði hug á því að skoða aðstæður. Hótel verði ekki í þinghelginni Björn Bjarnason, fyrrverandi al- þingismaður og ráðherra, sem verið hefur formaður Þingvallanefndar frá árinu 1992, telur að ef vilji standi til almenns hótelreksturs í þjóðgarð- inum eigi hann alfarið að vera í höndum einkaaðila og ætlaður stað- ur í Skógarhólum en ekki í þinghelg- inni sjálfri. Kemur þetta fram á vef Björns, bjorn.is. Í stefnumörkun sem gerð var vegna skráningar Þingvalla á Heimsminjaskrá UNESCO kemur fram að endurskoða þurfi forsendur hótelreksturs í Valhöll. Dregið verði úr hótelrekstri en áfram unnt að fá keyptar veitingar auk þess sem hug- að verði að aðstöðu fyrir Alþingi og ríkisstjórn til funda sem og aðra sem kjósa að efna þar til málþinga eða mannamóta. Fyrirhugað er að kjósa nýja Þing- vallanefnd næstu daga. Jóhanna segir að farið verði yfir málið með nefndinni og fleiri kallaðir til. Meðal annars þurfi að taka afstöðu til þeirra hugmynda sem uppi voru í Þingvallanefnd. „Mikilvægt er að vanda þetta mjög,“ segir Jóhanna og leggur áherslu á að ekki verði teknar fljótfærnislegar ákvarðanir um upp- byggingu og bætir því við að pen- ingar vaxi ekki á trjánum þessa dag- ana. Morgunblaðið/Ómar Vatnsöflun Slökkviliðsmenn dældu vatni úr Öxará og Þingvallavatni þegar þeir reyndu að slökkva eldinn í Valhöll. Uppbygging óljós Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir ekki sjálfgefið að hótel verði byggt upp að nýju á Valhallarreitnum FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Bjarnason og Sigtrygg Sigtryggsson EKKI virðist vera nægur stuðn- ingur við tillögur formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins um tvöfalda þjóðaratkvæða- greiðslu um umsókn og aðild að Evrópusambandinu. Verði hún felld kemur tillaga ríkisstjórn- arinnar um aðildarumsókn til at- kvæða. Heimildarmenn Morg- unblaðsins reikna með að hún verði samþykkt, annaðhvort þann- ig að meirihluti þingmanna greiði henni atkvæði eða nægilega marg- ir sitja hjá við atkvæðagreiðsluna til að hún nái samþykki. Umræður hófust í gærmorgun um Evrópusambandsaðild. Er það önnur umræða og voru margir þingmenn á mælendaskrá. Til umræðu er stjórnartillaga með lítils háttar breytingartillögu stjórnarmeirihlutans í utanrík- ismálanefnd. Þá liggur fyrir tillaga Bjarna Benediktssonar og Þor- gerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns og varaformanns Sjálf- stæðisflokksins, um tvöfalda þjóð- aratkvæðagreiðslu. Þá yrði það lagt fyrir þjóðina innan þriggja mánaða hvort sækja ætti um aðild. Fram hefur komið að þingmenn úr öllum stjórnmálaflokkunum utan Samfylkingarinnar eru fylgjandi slíkri atkvæðagreiðslu. Ljóst virð- ist þó að ekki náist meirihluti fyrir tillögunni. Ljóst er að allir 20 þingmenn Samfylkingarinnar styðja tillögu stjórnarinnar um að sækja um að- ild. Siv Friðleifsdóttir og Guð- mundur Steingrímsson, þingmenn Framsóknarflokksins, hafa lýst því yfir á þingi að þau styðji tillöguna. Líklegt er talið, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins, að tveir þingmenn Borgarahreyfingarinnar muni styðja hana. Spurning er hvað þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem hafa hallast að Evrópuaðild, gera að felldri tillögu um tvöfalda þjóð- aratkvæðagreiðslu. Útlit er fyrir að þeir muni flestir greiða atkvæði gegn stjórnartillögunni, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins. Ragnheiður Ríkharðsdóttir sem styður aðild að ESB vill þó ekki gefa upp hvað hún gerir fyrr en umræðan hafi farið fram í þinginu. Gamalgróin andstaða við að- ild er meðal þingmanna VG Þá er spurning um þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Gamalgróin andstaða er þar innanbúðar gegn aðild að Evr- ópusambandinu en ríkisstjórnin sem flokkurinn á aðild að hefur það hins vegar á stefnuskrá sinni að sækja um. Víst þykir að ein- hverjir úr þeirra hópi muni greiða atkvæði gegn tillögunni. Afstaða Ásmundar Einars Daðasonar og Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur hef- ur komið fram í umræðunni og vit- að er að Atli Gíslason, Ögmundur Jónasson, Jón Bjarnason og Þur- íður Backman eru einnig þung í taumi í þessu máli. Ljóst þykir að sjö til átta þing- menn VG af fjórtán þurfa að styðja tillöguna til að hún fái hreinan meirihluta. Þingmaður annars flokks sem rætt var við taldi að forystumenn stjórnarinnar væru búnir að smala nógu mörg- um heim til að tryggja nægan stuðning til að fá tillöguna sam- þykkta, annaðhvort með hreinum meirihluta þingmanna eða hjásetu þeirra tregu. Hjáseta kann að ráða úrslitum um aðild að ESB Ekki nægur stuðningur á Alþingi við tillögu um tvöfalda atkvæðagreiðslu Umræður um aðildartillögu að ESB héldu áfram á Alþingi í gær. Heimildarmenn blaðsins telja lík- legt að aðild verði samþykkt með því að nokkrir þingmenn sitji hjá við atkvæðagreiðsluna. Tveir öflugir dælubílar voru not- aðir til að dæla vatni úr Öxará á eldinn í Hótel Valhöll í fyrradag og tvær sjálfstæðar dælur að auki. „Það var ekkert annað hægt að gera, en að reyna að drekkja þessu,“ segir Snorri Baldursson, varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu. Afkastageta dælanna var sam- tals 13-15 þúsund lítrar á mínútu og reynt var að nýta hana sem best. Dælurnar voru á fullu frá því fyrir klukkan fimm síðdegis og til ellefu um kvöldið þegar eldurinn var að koðna niður en áfram dælt á glæður fram á nótt. Áætla má að yfir 5 þúsund tonn- um af vatni úr Öxará hafi verið veitt yfir eldinn í Hótel Valhöll þennan dag. Það dugði þó skammt því húsið var þannig byggt að ekki var talið mögulegt að bjarga því. helgi@mbl.is Fimm þúsund tonn af vatni úr Öxará DÓMARI í Denia á Spáni hefur úr- skurðað að þrotabú Landsbankans í Lúxemborg geti ekki gengið að eign- um viðskiptavina sem töpuðu fé í við- skiptum við bankann. Samtökin Landsbanki Victims Action Group vænta sömu dómsniðurstöðu í sam- bærilegum málum á Marbella og Mallorca. Vísaði dómari málinu til réttar í Madríd en kom jafnframt í veg fyrir að hægt yrði að ganga að eignunum. Slíkt gæti valdið eigendunum „óbæt- anlegum skaða“. Fjallað var um málið í dagblaðinu Round Town News á Costa Blanca í gærmorgun og því slegið upp á for- síðu með mynd af anddyri Lands- bankans í Austurstræti. Þar segir að lögfræðingar spænsku lögmannastofunnar Martinez Echev- arria Perez og Ferrero telji að hundr- uð lántakenda hafi verið svikin í við- skiptunum og undirbúi nú að hefja málsókn gegn bankanum og ráð- gjöfum hans sem hafi selt þjónustuna á röngum forsendum. En í sem stystu máli gekk samn- ingurinn út á að losa um fé sem bund- ið var í fasteignum viðskiptavina. Gátu þeir þannig fengið fjórðung áætlaðs verðmætis fasteignarinnar greiddan út í hönd en afgangurinn var færður í fjárfestingarsjóðinn Lex Life. Fólkið hefur síðan farið afar illa út úr viðskiptunum, fasteignirnar hafa lækkað í verði og sjóðurinn gufað upp. Segir í Round Town News að við- skipti af þessu tagi hafi verið bönnuð í Bretlandi síðan 1990 en viðskiptavinir voru lokkaðir til þess að bæta lausa- fjárstöðuna með væntingum um að fjárfestingin í sjóðnum myndi standa straum af öllum útgjöldum og jafnvel útvega þeim aukatekjur. Lögfræðingurinn Santiago de la Cruz heldur því fram að viðskiptin hafi verið svik þar sem fjárfestum hafi verið lofað arði sem aldrei hafi verið hægt að standa undir. John Hemus átti í viðskiptum við Landsbankann og kveðst hann fagna niðurstöðunni mjög, enda hafi sam- tökin nú öflugt vopn í baráttunni við bankann. baldura@mbl.is Þrotabú getur ekki gengið að eignum fólks á Spáni Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.