Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 32
32 MenningGENGISVÍSITALA MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009 Þrátt fyrir að liðsmenn Skítamórals séu einungis rétt rúmlega þrítugir fagnar hljómsveitin 20 ára starfsafmæli sínu í vetur. Á toppi síns ferils voru böll sveitarinnar svo vinsæl að dæmi eru um að þjóðvegurinn hafi hreinlega stíflast að balli loknu eins og gerðist eftir ball í Hreðavatnsskála árið 1999. Í tilefni þess að sveitin gaf nýverið út lagið Sönn skoðum við feril sveitarinnar frá upphafi. Gengisvísitala Skítamórals Skítamórall ætlarað fagna 20 ára afmæli sínu í haust með órafmögnuðum tónleikum þar sem fjöldi gesta- leikara kemur við sögu. Lögin verða útsett fyrir strengi og blásturshljóðfæri og tónleikarnir hljóðrit- aðir. Stefnt er á að gefa út tónleikaplötu fyrir næstu jól. 6 Þeir Arngrímur Fannar Haraldsson, Gunnar Ólason, Herbert Viðars-son og Jóhann Bachmann voru einungis 14 ára þegar sveitin var stofnuð á Selfossi í desember 1989. Fyrsta æfingar- húsnæðið var í kjallara gagnfræðaskólans á Selfossi þar sem þeir æfðu þungarokkslög. Hálfbróðir Adda Fannars, Einar Bárðarson, stakk upp á nafninu Skítamórall. Lög Led Zeppelin, Uriah Heep og Deep Purple voru æfð. Fyrsta breiðskífan Súperer unnin í flýti og gefin út af liðsmönnum sjálfum. Árni Matt hér á Morgunblaðinu var ekki hrifinn. Segir m.a. í dómi hans; „Tónlist Skítamórals gengur örug- glega prýðilega í ballgesti, sem gera ekki kröfur um listræna spennu, stígandi og átök. Utan þeirrar umgjarðar eru þau sérkennilega gamaldags og úr takti við það sem hæst ber. Þannig hefur lítið borið á frumsaminni íslenskri tónlist í útvarpi í sumar og bendir ekki til þess að það sé mikið á seyði. Súper Skítamórals er ekki til þess fallin að breyta því.“ Einar Ágúst gekktil liðs við sveitina í kringum útgáfu plöt- unnar Tjútt. Hann kom inn sem ásláttarleikari, gítarleikari og söngvari en með tíð og tíma stal hann sviðsljósinu meira og meira af Gunna Óla. Á fjórðu plötu sveitar- innar var Einar Ágúst orðinn mun fyrirferðar- meiri í fjölmiðlum en Gunni. 321 Lagið Farin kemurút og lagahöfundur þess Einar Bárðarson tekur við umboðs- mennsku sveitarinnar. Á stuttu tímabili var sveitin óneitanlega vinsælasta poppsveit landsins. Platan Nákvæmlega kristallaði vinsældir þeirra með því að fara yfir gullmúrinn. Platan er enn í dag sú eina sem sveitin hefur selt í yfir 5000 eintökum. 4 Skítamórall hættir skyndilega á toppi ferils síns. Aðdáendururðu miður sín en þungarokkararnir fögnuðu. Samkvæmt liðsmönnum var komin gífurleg þreyta innan sveitarinn- ar eftir stöðuga spilamennsku í fimm ár. Einnig virðist vera sem töluverð spenna hafi verið á milli liðs- manna á þessum tíma en enginn þeirra hefur viljað tjáð sig ítarlega um málið. 5 Gr af ík :M or gu nb la ði ð/ El ín Es th er ‘89 ‘90 ‘91 ‘92 ‘93 ‘94 ‘95 ‘96 ‘97 ‘98 ‘99 ‘00 ‘01 ‘02 ‘03 ‘04 ‘05 ‘06 ‘08‘07 ‘09 Goðsögn Fræg að endemum Alræmd Illa þokkuð Óþekkt 700 eintök 1.000 eintök 7.500 eintök 3.000 eintök 2.500 eintök 2.000 eintök Mars’ 92: Komast í úrslit Músíktilrauna en lúta í lægra haldi fyrir Kolrössu Krók- ríðandi. Hætta skömmu eftir það á meðan Addi og Hebbi ferðast um heiminn. Okt´94: Hljómsveitin tekur upp þráðinn á ný og breytir um stefnu. Snemma ´95: Taka upp sitt fyrsta lag í hljóðveri. En það var þeirra útgáfa af Tannpínupúkanum sem kom fyrst út á barnaplötu Gláms og Skráms. Sumar ´95: Fá sitt fyrsta alvöru breik þegar Sálin býður þeim að spila með sér á böllum í pásum. Ágúst ´95: Er ein af aðalsveitunum á Fjölskyldumótinu í Galtalækjarskógi. Snemma ´96: Sveitin hljóðritar í einum grænum fyrstu plötu sína Súper. Árni Matt gefur plötunni falleinkunn í Morgun- blaðinu en sveitin eykur þó hróður sinn á ballmarkaðnum. Snemma ´97: Önnur plata sveitarinnar, Tjútt, kemur út. Ný útgáfa lagsins Sæla verður vinsælt í útvarpi. Skjóttu mig og Gypsy Kings syrpan fylgja í kjölfarið. Haust ´97: Einar Ágúst gengur til liðs við sveitina sem ásláttar- leikari, gítarleikari og söngvari. Vor ‘98: Skítamórall sleppir út laginu Farin eftir Einar Bárðar og verður í kjölfarið vinsælasta hljómsveit landsins. Vor 2000: Einar Ágúst og Telma fara í Eurovision með lagið Tell Me. Einar vekur athygli fyrir að koma fram í pilsi. Lagið endar í 12. sæti. Vor 2000: Skífan kaupir útgáfuréttinn að öllum plötum Skítamórals. Gefa út lögin Ennþá og Með þér á safnplötu Skífunnar sem voru rándýr í vinnslu. Vor 2000: Skítamórall verðlaunuð fyrir Myndband ársins á Hlustendaverð- launum FM957. Haust 2000: Þrátt fyrir gífurlega vel- gengni hættir hljóm- sveitin skyndilega. Þreyta á meðal liðs- manna olli slitunum. Vor 2001: Jóhann Bachmann fer í Írafár og nælir sér í söngkonuna Birgittu Haukdal. Vor 2001: Gunni Óla fer ásamt Kristjáni Gíslasyni í Eurovision með lagið Angel. Dúettinn kallaði sig Two Tricky og þeir enda í 23. sæti. Vor 2001: Gunni Óla stofnar hljómsveitina Plast. Addi Fannar og Hebbi skipta um gír í koverlagasveitinni Boogie Knights. Vor 2003: Skítamórall kemur saman aftur og tekur lagið á Hlustendaverðlaunum FM957. Talað um glæsilega endurkomu. Haust 2003: Sveitin gefur út safnplötu er inniheldur öll vin- sælustu lögin. Nær ekki gullsölu. 2004: Einar Ágúst hættir í Skítamóral fyrir fullt og allt. Segir frá dópneyslu sinni í opinskáu viðtali við DV og hyggur á sólóferil. 2005: Hljómsveitin gefur út fimmtu breiðskífu sína, Má ég sjá, sem fer lítið fyrir. 2008: Skítamórall gefur út ádeilulagið Allt fyrir peninginn korteri fyrir bankahrun. Textinn þykir ekki við hæfi eftir fall íslensk efnahagslífs og lagið fær enga spilun. 2009: Gunnar Þór fyrrum gítarleikari Sóldaggar gengur til liðs við sveitina. Gunni Óla leggur frá sér gítarinn og ein- beitir sér alfarið að söngnum. 2009: Sveitin gefur út lagið Sönn á safnplötunni Sumar á Íslandi og fær sæmilega útvarpsspilun. Haust 2009: Sveitin hyggur á að halda og hljóðrita órafmagnaða tónleika til þess að fagna 20 ára afmælinu. Plata kemur út í haust. Des´89: Hljómsveitin stofnuð á Selfossi sem þungarokkssveit. Einar Bárðar stingur upp á nafninu. Sumar ´98: Langvin- sælasta plata sveitarinnar, Nákvæmlega, kemur út og fer í gull. Sumar ´98: Liðsmenn gera samning við Heklu bílaumboð og fá allir glæsibifreiðir í kjölfarið. Númeraplötur þeirra vöktu athygli en þær voru Skímó 1, Skímó 2 og svo framvegis. Haust ´98: Heimildar- mynd um Skítamóral sýnd á Stöð 2 við góðar undirtektir. Vetur ´98: Mikael Torfason skrifar bók um hljómsveitina sem er full af glans- myndum í stíl við erlendar strákasveitir. Glamúrtímabil Skítamórals nær hámarki. Vor ´99: Skítamórall valinn hljómsveit ársins á Hlustenda- verðlaunum FM957. Sumar ´99: Fjórða breiðskífa sveitarinnar kemur út en hún var samnefnd sveitinni. Langdýrasta plata sveitarinnar sem skilaði af sér slögurunum Fljúgum áfram, Hey, Einn með þér og Svífum. Nær ekki gullsölu. = Hljómsveitin starfar ekki 1 2 3 4 5 6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.