Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 193. DAGUR ÁRSINS 2009 Heitast 16°C | Kaldast 9°C  Austlæg átt, 3-10 m/s eða hafgola. Skýj- að að mestu SA- og A- lands, annars víða létt- skýjað . »8 SKOÐANIR» Staksteinar: Alþingi höggvi á hnútinn Forystugrein: Þorskur í sjó Pistill: Angist þjóðar og óvissa Reykjavíkurbréf: Lýðræði á tímum efnahagshamfara Ljósvakinn: Fyrirtaks rassahúmor Margmiðlunarmiðstöð í vasann Bonsai á básinn ATVINNA» VEFSÍÐA» Á vefsíðu vikunnar kenn- ir ýmissa grasa. »37 Sjötta myndin um Harry Potter verður frumsýnd hér í vik- unni. Hann hefur tekið talsverðum breytingum. »36 KVIKMYNDIR» Meiri Harry Potter FÓLK» Lady Gaga eyðir öllu í búningana sína. »39 TÓNLIST» Skrýtnar stúlkur gerðu myndband. »33 Sæbjörn Valdimars- son var ánægður með nýjustu mynd Kathryn Bigelow sem segir frá sprengjusveit. »39 Sprengjur og hasar KVIKMYND» reykjavíkreykjavík 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Ekkert stendur eftir í kvöld 2. Reykjalundur-plastiðnaður í þrot 3. Hótelrekstur á ekki að vera í … 4. Feginn að ekki urðu slys … Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sögulegt hlaup Maraþonhlaupararnir leggja í’ann og eins gott að fylgjast vel með því hvað tímanum líður. Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is „ÞETTA er stórkostlegur dagur; sögulegur dagur,“ sagði kynnirinn, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, um það bil sem skotið var af byssu klukkan níu í gærmorgun á hinum nýja og glæsilega íþróttaleikvangi Akureyr- inga á félagssvæði Þórs í Glerár- hverfi. Fyrsta maraþonhlaupið í Eyjafirði var hafið. Þetta er líka í fyrsta skipti sem maraþonhlaup fer fram í tengslum við Landsmót Ung- mennafélags Íslands. Þriðji keppnisdagur landsmótsins hófst klukkustund fyrr þegar fjórir maraþonhlauparar lögðu af stað frá sama stað; þeir sem ætluðu sér að hlaupa vegalengdina á meira en fjór- um og hálfri klukkustund. Gunnlaugur einn keppenda Um er að ræða hið árlega Akur- eyrarhlaup Ungmennafélags Akur- eyrar en það er nú fellt inn í dagskrá Landsmóts UMFÍ sem kynningar- grein. Hlaupið er þó ekki hluti stiga- keppni mótsins. Lengsta vegalengd Akureyrar- hlaupsins til þessa var hálft mara- þon en í tilefni 100 ára afmælis landsmótsins var ákveðið að bjóða upp á heilt maraþon og þeir sem tóku þátt í þeirri keppni voru hvorki fleiri né færri en 50. Á meðal keppenda var Gunn- laugur Júlíusson, sem kom til Akur- eyrar í fyrrakvöld eftir sex daga hlaup frá Reykjavík. Á þeirri leið hljóp hann um það bil eitt og hálft maraþon daglega og ákvað að skella sér rúmlega 42 kílómetra í viðbót í þessari sögulegu keppni. Veðrið lék við maraþonhlaup- arana, sól skein í heiði þegar þeir lögðu af stað, ekki hreyfði vind og næsti hitamælir sýndi 14 gráður. Skemmtiskokkarar í Akureyrar- hlaupinu hlupu svokallaðan Skarðs- hlíðarhring í Glerárhverfinu en hlauparar í 10 km, hálfu og heilu maraþoni hlupu fyrst sama hringinn um bæinn, tveir síðastnefndu hóp- arnir svo aukahring á Oddeyri og síðan lá leiðin suður Drottningar- braut og Eyjafjarðarbraut vestari. Snúið var við í hálfu maraþoni við af- leggjarann upp í Kjarnaskóg en þeir sem ætluðu kílómetrana 42 og 195 metrum betur sneru við skammt fyrir innan bæinn Stokkahlaðir í Eyjafjarðarsveit. Þetta er stórkostlegur dagur Veðrið lék við maraþonhlaup- arana í Eyjafirði GOSPELSÖNGVARINN, lagahöf- undurinn og presturinn Andraé Crouch er væntanlegur hingað til lands til tónleikahalds. Crouch var góðvinur Michaels heitins Jacksons og söng meðal annarra á minningarathöfn um söngvarann sem fram fór í síðustu viku. Lag Crouch, „Soon and very soon“, var einnig leikið í upphafi at- hafnarinnar. Gospelsöngvarinn útsetti kór- söng í lagi Jacksons, „Man in the Mirror“, og hefur auk þess kórút- setningar í lögum á borð við „Like a Prayer“ með Madonnu á feril- skránni. Þá sá hann um útsetningar á tónlistinni í myndinni The Color Purple. Crouch kemur fram hér á landi á tónleikum í Örkinni við Kirkjulækj- arkot í Fljótshlíð um verslunar- mannahelgina ásamt Gospelkór Reykjavíkur og Gospelkór Fíladel- fíu, undir stjórn Óskars Einars- sonar.Gospelsöngvari Andraé Crouch. Gospelsöngvari og góð- vinur Michaels Jacksons ÁÆTLA má að yfir 5 þúsund tonnum af vatni úr Öxará hafi verið dælt yfir eldinn í Hótel Valhöll í fyrradag. Það dugði þó skammt því húsið var þann- ig byggt að ekki var talið mögulegt að bjarga því. „Það var ekkert annað hægt að gera en að reyna að drekkja þessu,“ segir Snorri Baldursson, varaslökkvi- liðsstjóri Brunavarna Árnessýslu. Skiptar skoðanir eru um það hvort rétt sé að byggja upp hótelrekstur á sama stað á nýjan leik. | 2 Öxará dælt á eldhafið Landsmótinu á Akureyri verður slitið í hádeginu í dag á íþrótta- leikvanginum á Þórssvæðinu. Fyrsta mótið var smátt í snið- um, tók aðeins einn dag – 17. júní 1909 – en Jón M. Ívarsson, sögu- ritari UMFÍ, segir reyndar að það hafi alls ekki verið landsmót held- ur fjórðungsmót Norðlendinga. Fyrir löngu er hins vegar komin hefð á að telja það til landsmóta. Forsetinn, Ólafur Ragnar Gríms- son, nefndi fyrsta mótið við setn- ingu landsmótsins í fyrrakvöld; hve merkilegur viðburðurinn var og umfjöllun til merkis um að slík keppni var nýstárleg. Hann vitnaði í blaðið Norðurland, sem sagði um knattspyrnuleik Akureyringa og Húsvíkinga: „Akureyringar unnu 1 sinni í fyrri hluta leiks, en jafn- leikið varð að öðru leyti.“ „Akureyringar unnu 1 sinni í fyrri hluta leiks“ Skoðanir fólksins ’Samgönguráðherrann þarf að for-gangsraða verkefnum. Eftir hon-um er haft að Vaðlaheiðargöng ogsamgöngumiðstöð í Vatnsmýri komifyrst í forgangsröðinni vegna þess að gögn um þessi mannvirki „séu svo gott sem tilbúin“. Getur verið að þetta sé eina röksemd- in fyrir því að ráðherrann vill skipa málum með þessum hætti? ÞÓRÐUR VÍKINGUR FRIÐGEIRSSON ’Fljótlega mun þjóðin framleiðaeins mikið og hún getur. Þjóðinnimun verða greitt eins lágt kaup ogframast er unnt til að halda fram-leiðslukostnaðinum niðri. Það mun há- marka afraksturinn úr verksmiðjunni Íslandi. Það mun gera okkur kleift að greiða niður lánin og taka ný. Í stað þess að hagnaður okkar, vegna vinnu okkar, fari í okkar vasa mun hann streyma óhindrað í vasa lánardrottna okkar. GUNNAR SKÚLI ÁRMANNSSON ’Það hlýtur að vera æskilegt að ís-lensk lög séu á íslensku. Þauþurfa að vera íbúunum skiljanleg.Þetta frumvarp er óskiljanlegt vegnamálfarsins og þess að hugsunin sem það er smíðað úr er í froðu. Kannski skýrist það af því að til þess að hafa „yfirumsjón með gerð frumvarpsins“, eins og segir í opinberum gögnum, var valinn sami maður og síðustu áratugi hefur verið látinn krafla svo í kosn- ingalögum að þau hafa stórlega versn- að í hvert sinn sem hann hefur klórað í þau. Ég bið dómsmálaráðherra, sem leggja mun frumvarpið fyrir alþingi og mæla mun fyrir því, að draga það til baka, með þeim rökum að það sé ógreinilegt, þvælið og ekki á íslensku; það er munnfleipur. ÚLFAR ÞORMÓÐSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.