Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 16
16 Kvikmyndir MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009 You ain’t seen nothin’ yet B-B-B-Baby, you just ain’t seen nothin’ yet Here’s something that you never gonna forget …“ Randy Bachman, Bachman Tur- ner Overdrive (Not Fragile ’74) S vo mörg voru þau orð kan- adíska rokkarans, sem áttu eftir að verða enn fleygari aldarþriðjungi síðar og kaldhæðnislegur samnefnari fyrir versta fleipur, óráð- síu, fjárglæfrastarfsemi, sukk og svínarí sem dunið hefur yfir land og þjóð. Skilið hana eftir hnípna og blanka, á barmi örvæntingar af mátt- vana reiði út í kvalara sína. Mönnum (vonandi) til einhvers hugarléttis verða rifjuð upp nokkur eftirlætis dæmi um hvernig Hollywood hefur tekið á hinum ólíkustu loddurum og svikahröppum og þar er engin elsku mamma á ferð. Þessi óþurftarfén- aður telur allt frá sölumönnum Kína- lífselixírs, snákaolíu og öðru gagns- lausu gumsi við öllum meinum, til harðsvíraðra svindlara sem hafa prettað blásaklausan almúgann, sett stór og smá fyrirtæki í þrot, þó ekki heilu þjóðfélögin, eins og virðist vera að gerast hér í öðrum hvorum frétta- tíma. Myrt með köldu blóði ef aðra leið er ekki að finna að gullinu. Við skulum samt rétt vona að þó að blóðið svelli, sjáum við réttætinu fullnægt hérlendis frammi fyrir dómstólunum og ekki verði gripið til svæsnari sókn- arvopna en búsáhalda, mjólkurafurða með súrkeim og málningarglundurs (mæli með íslenskri framleiðslu.) Tjara og fiður Ungir sem aldnir lesendur meist- ara Marks Twain minnast útreið- arinnar sem þeir fengu, klækjaref- irnir „Hertoginn“ og „Kóngurinn“, í klassíkinni Stikilsberja Finni, þegar upp komst um lævíslegt ráðabrugg þeirra til að sölsa undir sig arf sem þeir áttu ekkert tilkall til. Sá rauð- hærði og raungóði Stikilsberja Finn- ur sá til þess að skrattakollarnir voru gripnir glóðvolgir, beraðir, makaðir tjöru frá toppi til táar og að því loknu velt upp úr fiðri. Þetta þótti ungum lesenda ærið krassandi hirting í „den“ og mátulega niðurlægjandi fyrir skúrkana, þar sem þeir höfðu ekki gerst mannsbanar. Að sjálfsögðu birtist refsingin í allri sinni groddalegu dýrð í þeim kvikmyndagerðum bókarinnar sem ég hef séð. Fyrst og fremst The Ad- ventures of Hucleberry Finn (’39), gerð af Richard Thorpe, með korn- ungum Mickey Rooney í titilhlut- verkinu. Hucleberry Finn (’74), er minnisstæðust fyrir leik Harveuys Korman og Davids Wayne í hlut- verkum svikahrappanna og sama er að segja um The Adventures of Huck Finn (’93), með liðónýtum Finni í höndunum á Elijah Wood, en kóngsi og hertoginn hinir staffírugustu, túlkaðir af gæðaleikurunum Jason Robards Jr., og Robbie Coltrane. Þar fyrir utan hafa verið gerðir tugir kvikmynda, sjónvarpsmynda og -þátta um Finn og félaga hans við Mississippi-móðuna miklu, það er jafnvel til rússnesk útgáfa, en ekki er vitað hvort þar er gripið til tjöru. Sú tjöru-og-fiður mynd sem skarar fram úr í minningabankanum er tví- mælalaust hin stórskemmtilega en hálf-gleymda The Flim-Flam Man (’67). Nánast klassísk gamanmynd um Mordecai Jones (George C. Scott), reyndan og roskinn bragðaref sem ætlar sér aldrei um of á flæking sínum um Suðurríkin, þar sem hver auðtrúa sál verður að gæta síns lausafjár eins og sjáaldurs auga síns þar sem karl er á ferð, oftast sem laumufarþegi í járnbrautarlestum. Karlinn er meistaraloddari, hraðlyg- inn, útsjónarsamur og háll sem áll hefur hann sannfærandi orðatiltæki jafnan á takteinum, eins og „Þú getur ekki gabbað heiðarlegan mann.“ Suðurríkjabúarnir falla umvörp- um fyrir sjarma og slægvisku hrappsins en oftast sökum þess að þeir ætla sjálfir að féfletta Jones, sem kann sitt fag utanbókar. Þar sem Jomes er tekinn að reskjast ákveður hann að fá í lið með sér liðhlaupann Curley (Michael Sarzzin), ungan og frískan strák en ekki al-samvisku- lausan, en sá gamli er fljótur að leggja honum lífs- reglurnar, „Þú get- ur selt mönnum alla skapaða hluti, ef þeir halda að þeir séu stolnir.“ Jones getur verið óforskammaður, svífst einskis ef hagnaðarvonin er góð og tjöru- og fiðurbað verður ekki umflúið. Blekkingaslóðin endar að lokum í dýflissunni og Curley lofar stúlkunni sinni (Sue Lyon), bót og betrun þegar hann sleppur út. Fjölmörg fyndin og eftirminnileg atriði standa enn ljóslifandi fyrir hug- skotssjónum, t.d. þegar gamli skálk- urinn á síðasta orðið þegar hann kemst undan á flótta á gamla Ford, með enn einu kænskubragðinu. Skellir ökutækinu upp á járnbraut- arteina, hleypir vindi úr dekkjum; felgurnar smellpassa þá á teinana, og hverfur löggæslumönnum eins og byssubrenndur út á óravíddir slétt- unnar. Það leggst allt á eitt að gera The Flim-Flam Man ógleymanlega. Til að byrja með er leikstjórinn enginn ann- ar en Irwin Kershner, fjölhæfur og bráðflinkur leikstjóri sem vann m.a. það einstæða afrek einn sinna starfs- bræðra, að leikstýra bæði Star Wars- mynd (einni þeirri bestu, The Empire Strikes Back), og James Bond-mynd (Never Say Never Again.) Kvik- myndatöku annaðist Charles Lang, sautjánfaldur óskarstilnefningahafi, sem hann vann fyrir Vopnin kvödd. Og á að baki listaverk eins og hina svart/hvítu Some Like it Hot, eftir Billy Wilder. Nafn handritshöfund- arins William Rose er einnig skráð feitu letri í söguna fyrir snilli á borð við The Ladykillers – þá upp- runalegu, frá ’55, vel að merkja. Tón- listin var ekki í síður færum höndum meistara Jerrys Goldsmith og leik- ararnir voru flestir á réttu róli. Scott er óborganlegur sem hrapp- ur af gamla skólanum. Gervið lætur hann eldast um helming og honum tekst að gera þennan siðspillta skálk furðu heillandi í klókindum sínum og krimmavisku. Hann er jú að spila á lesti mannskepnunnar, taumlausa græðgi og siðblindu. Sarzzin (They Shoot Horses, Don’t They), naut á þessum tíma skamm- vinnrar frægðar og er leikur hans helsta ástæða þess að myndin varð ekki samstundis sígild. Sue Lyon er borubrattari sem sveitastúlkan sem kemur liðhlaup- anum á réttan kjöl. Lyon, sem var á þessum tíma spáð frægð og frama eftir minnisstæða tilburði í titilhlutverki Lolitu, eftir Stanley Kubrick, átti þó eftir að falla, líkt og Sarazzin, í gleymsku og dá. Lenti í slagtogi við morðingja sem hún giftist þeg- ar gripurinn slapp út, þau skildu og svo fór um ein fern hjónabönd smá- stirnisins til viðbótar. Á hinn bóginn úir og grúir myndin af stórkostlegum aukaleikurum á borð við Slim Pickens, Henry Morg- an, Jack Albertson, Albert Salmi og gamli góði Strother Martin lætur sig ekki vanta. Aldeilis óviðjafnanlegur mannfagnaður Óráðsía af ýmsum toga Annað uppáhald úr röðum hrappa- mynda er The Grifters (’90), gerð af breska leikstjóranum Stephen Fre- ars eftir einni af gæðabókum Jims Thompson (The Getaway). Ein besta mynd Frears (The Queen, Dangero- us Liaisons), fjallar um mæðginin Roy (John Cusack) og Lily (Anjelica Huston), sem þekkjast lítið sem ekk- ert. Bæði stunda þau sömu iðjuna, að plata fé út úr meinleysingjum. Þegar Roy mistekst vafasamt ráðabrugg og er barinn til óbóta kemur Lily honum til hjálpar, einhvers staðar djúpt und- ir niðri bærast einskonar móðurtil- finningar í hennar þrýstna barmi. Af- skiptasemin kemur henni í bölvun, sama máli gegnir um Myru (Annette Bening), vinkonu Roys, sem gest ekki að „tengdamömmu.“ Kaldhæðin mynd, skemmtilega óforskömmuð, vel leikin gerð og skrifuð af innsæi og þekkingu á hálum heimi forhertra og lánlausra klækjamanna. Campell, sonur Georges C. Scott, fer með aðalhlutverk Joes Ross, ungs manns á uppleið í The Spanish Priso- ner (’97), sem er að fullgera snjalla hugmynd sem á að geta fært honum drjúgan skilding. Hann vill fá eitt- hvað fyrir sinn snúð en óttast að yf- irmaður hans (sá óviðjafnanlegi Ben Gazzara), losi sig við hann. Hann kynnist Jimmy Dell (Steve Martin), efnuðum ókunnugum manni og þeir stofna með sér félag. Þegar yfirmað- urinn hyggst hlunnfara Ross leitar hann hjálpar hjá Dell en kemst að því að sá er ekki allur þar sem hann er séður. Alríkislögreglan kemur að málinu og að lokum er það Ross sem situr í súpunni svo virðist sem allir hafi verið að gabba hann og hann á aðeins eina veikburða von um út- gönguleið. Ein besta mynd leikritaskáldsins, handritahöfundarins og leikstjórans Davids Mamet er margslungin flétta, hugvitssamlega byggð upp og skyn- samlega leyst úr flækjunni. Frábær skemmtun með úrvalsleikurum. Vandræði í paradís og víðar Fégræðgi og losti spinnast oft saman í illsnúinn örlagavef í myndum um siðblint og gírugt rakkarapakk. Slíkar perlur af mönnum er að finna í Body Heat (’81), bestu og útsmogn- ustu sögufléttu höfundarins og leik- stjórans Lawrence Kasdan. Sögu- sviðið er sólarparadísin Flórída í bullandi hitabylgju, þar sem Ned (William Hurt), lítilsigldur löggepill, hangir inni á loftkældum bar í leit að kúnna og kvenkyns félagsskap. Hann þarf ekki lengi að bíða því skyndilega stendur þokkadísin Matty (Kathleen Turner), frammi fyrir honum, freist- ingin uppmáluð. Holdlegur munaður er frá djöflinum, segir Þórbergur í Íslenskum aðli, og Kasdan er ekki frá því þar sem lostafulla Matty hverfur á braut en Ned finnur hana aftur og ástin og frygðin blómstra en ljón er í veginum, sem er Edmund, maður hennar (Richard Crenna). Hann er moldríkur og verða skötuhjúin ásátt um að koma karli fyrir kattarnef og lifa í bílífi til æviloka. Allt gengur að óskum þangað til að Ned verður þess áskynja að hann hefur verið hafður að ginningarfífli og Matty er gufuð upp. Þá er best að smyrja og hlaða hólkinn. Body Heat er mynd sem er hrein- lega svitastorkin af kláða í fé og fýsn- ir, glæpasamlegu ráðabruggi, mann- drápum, svikamyllum og öðrum ófögnuði þar sem enginn stendur uppi með pálmann í höndum. Fyrir utan aðalleikarana í sínum bestu hlutverkum á lífsleiðinni ber hér fyrir sjónir spaugilegan Ted Danson og sjálfan Mickey Rourke í einu fyrsta hlutverkinu sem vakti á honum at- hygli. Í Night and the City (’50), telur smábófinn og svikahrappurinn Harry Fabian (Richard Widmark) sig hafa fundið pottþétta leið til að hagnast ríkulega, nokkuð sem þess- um lítilmótlega Lundúnakrimma hef- ur mistekist hingað til. Fabian kynn- ist Gregorius (Stanislaus Zbyszko), heimskunnum glímumanni sem jafn- framt er faðir Kristos (Herbert Lom), sem rekur glímuhöll í borg- inni. Hinn seinheppni Fabian hyggst snúa á allt og alla og sitja uppi að lok- um með fulla vasa fjár, en ekki er allt gull sem glóir. Útsmognar áætlanir, vinátta og ástasambönd fara veg allr- ar veraldar í einni af þekktustu klass- ík Grikkjans Jules Dassin (Never on Sunday), á meðan hann vann á Vest- urlöndum. Widmark er egghvass sem glæframaðurinn lánlausi og Gene Tierney er fullkomin skreyting í svart/hvítu, gjörspilltu andrúmsloft- inu. Hollywood tjargar hrappana Óreiðumenn, lygamerðir og svikahrappar hafa löngum fengið það óþvegið á hvíta tjaldinu Sæbjörn Valdimarsson saebjoen@heimsnet.is Makleg málagjöld EINS og í bókinni um Stik- ilsberja-Finn eftir bandaríska rithöfundinn og háðfuglinn Mark Twain (1835-1910) fengu skúrkarnir í samnefndri kvik- mynd makleg málagjöld. Þeir voru beraðir, makaðir tjöru frá toppi til táar og að því loknu velt upp úr fiðri. Dæmi voru um að almenningur beggja vegna Atlantsála viðhefði slíkar að- farir þegar honum blöskraði, t.d. máttu opinberir embætt- ismenn í Pennsylvaniu sæta áþekkri meðferð 1794 þegar viskýið hækkaði óhóflega (sjá teikningu). Áhorfendum efalít- ið til hugarhægðar hafa óþokkar og svikahrappar hvíta tjaldsins oft þurft að gjalda syndir sínar dýru verði, þótt ekki væru þeir allir tjargaðir og fiðraðir. Ýmsum öðrum hugvitssamlegum aðferðum hefur verið beitt, t.d. í The Grifter, The Flim-Flam Man, Body Heat, The Spanish Prisoner o.fl. ‘‘HOLLYWOOD HEFUR TEKIÐ Á HINUMÓLÍKUSTU LODDURUM OG SVIKAHRÖPP-UM OG ÞAR ER ENGIN ELSKU MAMMA ÁFERÐ. Úrþvætti Richard Wid- mark er trúverðugur sem úrþvættið Fabian í Night and the City (1950). Mark Twain.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.