Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009 15. júlí 1979: „Þá er ekki síður at- hyglisvert, að svokallaðir „verka- lýðsflokkar“ eru komnir í hár sam- an út af því, hvort réttara sé að hækka skatta eða tolla, sem að sjálfsögðu kemur að síðustu út á eitt. Hvort tveggja yrði sótt í vasa skattborgarans. Þá verður olíuvandinn meiri með hverjum deginum sem líður og tal- ið, að um 10 milljarða útgjöld sé að ræða, ef greiða eigi olíuna á fiski- skipin niður til áramóta, en við ákvörðun fiskverðs var útgerð- armönnum heitið, að þeir þyrftu ekki að greiða hærra olíuverð en þá gilti. Eins og fram kemur hjá Sighvati Björgvinssyni, formanni þingflokks Alþýðuflokksins, í Morgunblaðinu í gær stefnir nú í það, að verðbólgan verði komin yfir 50% í árslok, ef ekkert verður að gert. Af ummæl- um hans verður ekki annað ráðið en að enn megi búast við harðvítugri deilu innan ríkisstjórnarinnar um það, til hvaða ráðstafana eigi að grípa í efnahagsmálum og enn sem fyrr er haft við orð að nauðsynlegt sé að marka „frambúðarstefnu“.“ . . . . . . . . . . 16. júlí 1989: „Við Íslendingar höf- um best kynnst því vegna hvalveiða hve skipulega náttúruverndarmenn geta gengið til verks. Það er ekki fyrr en fyrst núna þegar tekist hef- ur að laga stefnu Íslands í hvala- málum að óskum Alþjóðahval- veiðiráðsins og eftir að lýst hefur veri yfir því að hvalveiðum verði hætt frá og með árinu í ár, nema hvalveiðiráðið ákveði annað, að spennan vegna þessa máls fellur. Ætti að vera kappsmál okkar að halda þannig á málum að við eigum samleið með þeim sem vilja vernda lífið í sjónum og koma í veg fyrir mengun hans. Því miður sjást þess merki til dæmis í Bandaríkjunum, að almenningur óttast sjávarafurðir vegna hræðslu við mengun sjávar.“ Úr gömlum l e iðurum Sjávar-útvegurhefur alltaf verið ein af meg- inundirstöðum ís- lensks atvinnulífs þótt lítið hafi verið gert úr þætti hans í góðærinu. Eftir bankahrunið eykst mikilvægi þessa undirstöðuatvinnuveg- ar á ný. Íslendingar þurfa sár- lega á gjaldeyristekjum að halda, en um leið verður að gæta þess að umgengnin við auðlindir hafsins verði með ábyrgum hætti og tryggi arð- bæra nýtingu hennar til fram- tíðar. Jón Bjarnason sjáv- arútvegsráðherra tilkynnti í gær ákvörðun um leyfilegan hámarksafla fyrir næsta fisk- veiðiár og eru viðbrögð úr sjávarútvegi mildari en oft áð- ur. Þar fer hann að mörgu leyti nálægt ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar. Aflamark í þorski minnkar um 12.500 tonn og verður 150 þúsund tonn. Það er í samræmi við ráðgjöf Hafró, en gagnrýnt er að ekki skuli úthlutað 160 tonnum af þorskkvóta eins og gert var í fyrra. Upprunalega var úthlutað 130 þúsund tonn- um af þorski í fyrra, en Einar K. Guðfinnsson bætti síðar 30 þúsund tonnum við. Núver- andi sjávarútvegsráðherra taldi sig greinilega ekki bund- inn af fyrirheitum forvera síns um að ekki yrði farið und- ir þann kvóta – 160 þúsund tonn – næstu tvö fiskveiðiár. Mesti niðurskurðurinn er í ýsu. Kvóti yfirstandandi árs er 93 þúsund tonn, en verður 63 þúsund tonn á næsta ári. Það er næstum því þriðj- ungsniðurskurður. Hafró vildi hins vegar ganga enn lengra og fara niður í 57 þúsund tonn. Þá virðir Jón ekki held- ur ráðleggingar Hafró um ufsa- kvóta. Stofnunin lagði til að kvótinn yrði 35 þúsund tonn, en ákveðið var að úthluta 50 þúsund tonnum. Þetta gerði ráðherra m.a. með vísun í að sjómenn hefðu aðra sýn en fiskifræð- ingar á stofnmat ufsans. Ráðgjöf Hafró mun alltaf verða umdeild og óhjá- kvæmilegt er og eðlilegt að sjómenn telji að þeir þekki hafið og fiskinn allt eins vel og fræðimennirnir. Það segir hins vegar sína sögu að þeir sjá ávallt fleiri fiska í sjónum en Hafró, aldrei færri. Ákvarðanir um að draga úr kvóta eru dýrar. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmda- stjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, segir í Morgunblaðinu í gær að ætla megi að minnkun þorskkvót- ans um rúmlega tíu þúsund tonn leiði til tugmilljarða króna lækkunar tekna. Ekki má hins vegar gleyma að því myndi fylgja miklu meira tap að eyðileggja fiskimiðin. Skynsamlegt fyrirkomulag fiskveiða snýst hins vegar ekki aðeins um úthlutun kvóta. Reyna þarf að gæta þess eftir megni að sjómenn lendi ekki í vandræðum vegna meðafla tegunda, sem þeir hafa ekki heimildir fyrir, en nú er einmitt verið að skoða breytingar á stjórnun veiða á skötusel af þessari ástæðu. Einnig þarf að stuðla að því að auðlindin skili sem mestum verðmætum. Nú á að reyna að knýja fram frekari fullvinnslu afla á Íslandi. Vitaskuld er nauðsynlegt að leita allra leiða til að auka atvinnu, en enginn hefur hag af óarðbærri atvinnusköpun. Vernd fiskimiðanna má ekki víkja fyrir gjaldeyrisþörfinni } Þorskur í sjó Þ að sem gerir mannlega tilveru erf- iða viðureignar en jafnframt það sem gerir hana áhugaverða og spennandi er að hún er háð óvissu á öllum sviðum. Óvissu- þáttinn, eins ráðandi og hann nú er, reynum við hins vegar yfirleitt að forðast að hugsa um enda er hann áminning um að við höfum takmarkað vald yfir lífi okkar og framvindu þess. Vissulega getum við reynt að hafa áhrif á í hvaða farveg við viljum beina jarðvist okk- ar en gangur veruleikans er okkur á hinn bóginn hulinn og ekkert annað stendur til boða en að krossa fingur og vona það besta dag hvern. Óvissan í daglegu lífi er hins veg- ar sjaldan yfirþyrmandi (sem betur fer), það t.d. skiptir mig ekki öllu máli hvort einhver býður mér óvænt í hádegisverð á morgun eða hvort bók sem mig langar í verði uppseld eða ekki. Stærri fyrirbrigði geta á hinn bóginn verið öllu óþægi- legri. Ég á mér t.d. ýmsa drauma en hvort þeir rætast að lokum er háð fullkominni óvissu – ég ræð því ekki þó að ég reyni að sjálfsögðu að hafa á það áhrif. Sennilega er það manninum áskapað að leiða hugann að öðru en óvissu veruleikans. Því miður gerumst við í kjölfarið iðulega sek um að sýna þessu grundvall- aratriði, óvissunni, algjört virðingarleysi. Sagan sýnir að stórir og ófyrirsjáanlegir atburðir gerast og þeir breyta heiminum. Alltof oft gerumst við sek um að lát- ast vita hitt eða þetta sem við höfum ekki og getum ekki haft minnstu hugmynd um. Slíkt getur haft skelfilegar afleiðingar. Í bók sinni The Black Swan fjallar Nicholas Nassim Taleb um óvissu og stórbrotin áhrif hins ófyr- irséða. Hann beinir máli sínu m.a. að hinum ýmsu sérfræðingum sem stöðugt komu fram í fjölmiðlum og fullyrtu að áhættugreiningar þeirra sýndu að engin hætta væri á að bankakerfi Vesturlanda riðaði til falls. Og það vissu þeir. Það sama á að einhverju leyti við um íslenska sérfræðinga og stjórnendur í bönkum – að minnsta kosti staðhæfðu þeir einatt í fjölmiðlum að allt væri hér í himna- lagi þegar efasemdir um íslenska bankakerf- ið fóru vaxandi erlendis. Þeir vissu hins veg- ar ekkert hvað átti eftir að gerast. Alþingi Íslendinga stendur nú frammi fyr- ir að taka risa-ákvörðun um mál sem háð er algjörri óvissu á nánast öllum sviðum. Því dýpra sem kafað er í Icesave-málið því vandasamara er að komast að niðurstöðu. Fyrir liggur að vextirnir verða fastir 5,5%. Bókstaflega allt annað er háð þvílíkri óvissu að hverjum hugsandi manni sundlar við tilhugsunina um mögulegar afleiðingar fyrir framtíð þjóðarinnar. Því miður er það svo að fyrrnefnd bók Talebs eykur mönn- um hvorki trú né bjartsýni í þessum efnum. Hvernig er komið fyrir þjóð sem siðlausir og óhæfir peninga- og stjórnmálamenn hafa dæmt slíka stöðu og stendur frammi fyrir valkostum hinnar algjöru óvissu? haa@mbl.is Halldór Armand Pistill Angist þjóðar og óvissa FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is Í VIKUNNI var greint frá því að tæplega fjórðungur ís- lenskra kvenna í nánu sam- bandi hafi orðið fyrir ein- hvers konar ofbeldi af hálfu maka síns. Þar er um vandamál að ræða sem ekki má gera lítið úr, og í siðuðum samfélögum ætti raunar ekki að líðast. En þegar kemur að umræðu um heimilisofbeldi gleymist, að karlmenn eru ekki ávallt í hlut- verki árásarmanns. „Ofbeldi gegn körlum er vafalaust falið vandamál og hefur verið, og er enn, gert hlægilegt eða um það fjallað eins og það sé ekki til í alvörunni,“ segir Ingólfur V. Gíslason, lektor í fé- lagsfræði við Háskóla Íslands. Hann segir það hins vegar mun minna hafa verið rannsakað og því séu því sem næst engin úrræði þeim til handa. „Á heildina litið er staðan enn sú að körl- unum er sagt – beint og óbeint – að þetta sé vandamál sem þeir verði sjálfir að takast á við.“ Skilgreina ofbeldi ekki eins Í niðurstöðum rannsóknar Erlu Kolbrúnu Svavarsdóttur og Brynju Örlygsdóttur má sjá að rúmlega átján prósent þeirra kvenna sem tóku þátt höfðu orðið fyrir andlegu ofbeldi af hálfu maka síns, 3,3% líkamlegu og 1,3% kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt þeim rannsóknum sem komið hafa fram er mun algengara að karlmenn séu beittir andlegu ofbeldi en líkamlegu. Hvort það sé í jafn miklum mæli og konur er hins vegar vandi um að spá. Kynin skilgreina nefnilega ofbeldi ekki á sama hátt. Það sást einna best á niðurstöðum könnunar dómsmálaráðuneytis frá árinu 1996. Þar sögðust mun fleiri konur hafa beitt karla sínu ofbeldi en karlar sögðust hafa orðið fyrir. „Þær athuganir sem ég man eftir á andlegu ofbeldi benda til að ekki sé mikill munur á því sem kynin verða fyrir en hins vegar munur á því hvernig þau túlka það. Almennt séð gildir auðvit- að að það er upplifun þolanda sem ræður því hvort um ofbeldi er að ræða. Hins vegar er alveg hugsanlegt að karlar frekar en konur reyni að dylja það að orð eða tákn særi þá. Það er jú ekki „karlmannlegt“ að taka slíkt inn á sig,“ segir Ingólfur. Upplifa sömu afleiðingar Afleiðingar heimilisofbeldis á karl- menn eru nánast óþekktar, enda lítið vita um umfang og þar afleiðandi þörfina fyrir aðstoð. Ingólfur telur að afleiðingarnar séu ekki ólíkar milli kynja. „Þeim mun lengur sem ofbeld- ið varir þeim mun líklegra er að raun- veruleikaskynið brenglist þannig að þolanda, karli eða konu, finnist hann eiga ofbeldið að einhverju leiti skilið. Það er hluti afleiðinganna, sem ekki virðast vera mikið öðruvísi hjá körl- um en konum, skert sjálfsálit, brengl- uð raunveruleikasýn, ótti og mann- fælni.“ Í aðgerðaráætlun ríkisstjórn- arinnar vegna heimilisofbeldis er gert ráð fyrir verkefni sem sérstaklega beinist að því að skoða það ofbeldi sem karlar verða fyrir af hendi maka. Það verkefni er hins vegar ekki kom- ið í gang. Morgunblaðið/Árni Torfason Heimilisofbeldi Það getur meira að segja reynst þrautin þyngri að finna sviðsettar myndir af heimilisofbeldi þar sem konan er í hluti geranda. Heimilisofbeldi gegn körlum óþekkt stærð Ofbeldi í nánum samböndum hefur verið töluvert rannsakað á undanförnum árum. Einblínt hef- ur verið á konur sem fórnarlömb og eftir sem áður er ofbeldi gagnvart körlum falið vandamál. Hvernig er andlegt ofbeldi skilgreint? Almennt má segja að andlegt ofbeldi feli í sér niðurlægjandi hegðun sem hefur það að mark- miði að ná stjórn á eða völdum yf- ir maka, eða leiðir til slíkra yf- irráða. Hvaða þættir má nefna sem andlegt ofbeldi? Niðurlægjandi athugasemdir, ógnanir og hótanir, stöðugt eft- irlit, s.s. með því að skoða farsíma og tölvupóst. Einnig að neita þátt- töku í heimilisstörfum, ásakanir um geðveiki, svívirðingar, þvinga- nir til ákveðinna athafna og sífelld gagnrýni. Hversu útbreytt er andlegt ofbeldi? Umdeilt er hversu útbreitt það er og fer eftir hvaða skilgreining er notuð. Samkvæmt nið- urstöðum rannsókna eru und- antekningarlítið þær konur sem beittar eru líkamlegu ofbeldi einn- ig beittar andlegu ofbeldi. (Heimild: Ofbeldi í nánum sam- böndum (2008)) S&S Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.