Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009 ostur Ríkur af mysupróteinum Bra gðg óð nýju ng 9% aðeins Prófaðu nýja braðgóða Fjörostinn, fituminnsta kostinn í ostaúrvali dagsins.  Þegar Roger Federer vann opna franska meistaramótið í vor skipaði hann sér á bekk með fimm öðrum karlkyns tennisleikurum sem unnið hafa öll stórmótin fjögur á ferlinum. Hinir eru Fred Perry og Don Budge á fjórða áratugnum, Rod Laver og Roy Emerson á þeim sjöunda og Andre Agassi á tíunda áratugnum. Eitt á Federer þó eftir: Að vinna mótin fjögur á sama almanaksárinu. Það afrek hafa aðeins tveir menn unnið, téðir Budge (1938) og Laver, sem lét sér raunar ekki nægja að gera það einu sinni, heldur tvisvar (1962 og 1969).  Á ferli sem spannaði fimm- tán tímabil, 1988 til 2002, vann Pete Sampras fjórtán stórmót. Honum tókst aft- ur á móti aldrei að vinna opna franska meist- aramótið. Þriðji á listanum er Ástralinn Roy Emerson sem vann tólf stórmót á sjöunda áratug síðustu aldar. Það þykir þó skyggja á afrek hans að at- vinnumenn máttu ekki taka þátt í fjórum stærstu mótunum frá 1963- 67 og Emerson glímdi fyrir vikið ekki við þá bestu á því tímabili. Emerson vann einnig sextán titla í tvíliðaleik og er samanlagður árang- ur hans, 28 titlar á stórmótum, met. Pete Sampras  Svíinn Björn Borg vann ellefu stórmót á sínum ferli. Wimbledon- mótið fimm sinn- um og opna franska sex sinn- um. Borg kunni aftur á móti ekki eins vel við sig utan Evrópu og tókst hvorki að bera sigur úr býtum á opna ástralska né opna banda- ríska meistaramótinu. Ástralinn Rod Laver fór líka með sigur af hólmi á ellefu stórmótum á sjöunda áratugnum. Ýmsir hafa fært fyrir því rök að hann sé í raun besti tennisleikari allra tíma og væri lík- lega sá sigursælasti hefði hann mátt taka þátt á helstu mótum heims allan sinn feril. Laver gerðist atvinnumaður í greininni 1963 og gat fyrir vikið ekki keppt á alslemmumóti aftur fyrr en 1968. Björn Borg Af öðrum góðum Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Þ eir voru þar allir, Pete Sampras, Björn Borg og Rod Laver. Þrjár kynslóðir af séníum. Enginn vildi missa af augna- blikinu þegar sigursælasti tennisleik- ari sögunnar yrði krýndur. Sviðið var aðalvöllurinn á Wimbledon fyrir réttri viku og ef- laust hefur áskorandinn, Andy Roddick, haft aðrar hugmyndir. Alltént þvældist hann fyrir meist- aranum í fjórar klukkustundir og sextán mínútur – þrusaði öllu í hann nema gamla góða eldhúsvask- inum, eins og menn segja þar syðra. En handritið lá þegar fyrir. Á þessum merkisdegi yrði aðeins einn sigurvegari – Roger Federer. Sigurinn á Wimbledon nú var hvorki meira né minna en fimmtándi sigur svissneska seiðmannsins á alslemmu-móti en svo eru fjögur stærstu mótin í tennisheiminum nefnd, Wimbledon ásamt opna franska, ástralska og bandaríska meistaramótinu. Í kaupbæti endurheimti Federer efsta sætið á heimslista tennisleikara sem hann tapaði til Rafa- els Nadals fyrir tæpu ári. Þar á undan hafði kapp- inn vermt toppsætið í 237 vikur í röð – sem er met. Gæti hæglega unnið tuttugu titla Erfitt er að bera tennisleikara saman, einkum milli tímaskeiða, en margir sérfræðingar um íþróttina hafa haldið því fram undanfarin ár að Federer sé sá besti frá upphafi. Nú styður töl- fræðin það sjónarmið. Pete Sampras, sem deildi metinu með Federer, er alltént ekki í vafa en eftir Wimbledon ítrekaði hann þá afstöðu sína að Federer, sem verður 28 ára eftir tæpan mánuð, væri bestur. „Roger er frá- bær leikmaður og ekki síðri manneskja. Hann er nagli.“ Sjálfur gerði kappinn ekki mikið úr afreki sínu eftir úrslitaleikinn. Það var eins og hann áttaði sig ekki ennþá á þýðingu þess. „Ég er undrandi á þess- um árangri, eigi ég að segja alveg eins og er,“ sagði hann. Federer var gömlu hetjunum í stúkunni þakk- látur fyrir að deila deginum með sér. „Í eina tíð fór ég á taugum ef vinir mínir komu að horfa á mig spila, hvað þá foreldrar mínir. Nú læt ég mér hvergi bregða fyrir framan alla þessa merku meist- ara. Mikið vatn hefur runnið til sjávar.“ Þar á hann sannarlega kollgátuna. Meistarinn vottaði Sampras sérstaklega virð- ingu sína enda á Bandaríkjamaðurinn ennþá fleiri Wimbledon-titla í sínu safni, sjö talsins. Federer á sex. Árangur Sampras er met sem hann deilir með William nokkrum Renshaw sem var upp á sitt besta á árunum 1880-90. Hermt er að önnur goðsögn, Jimmy Connors, hafi lamið tennisboltann af alelfi vegna þess að hann hafði illan bifur á honum. Hafi helst viljað senda hann út í hafsauga. Nálgun Rogers Federers er önnur. Hann mundar spaðann af yfirvegun, jafnvel listfengi þegar sá gállinn er á honum. Fáir leikmenn í sögu íþróttarinnar hafa staðið honum á sporði tæknilega. Og ekki er ástríðan minni, tár renna ósjaldan í leikslok, í gleði sem sorg. Vann með því að tapa ekki En leikur Federers hverfist ekki bara um tækni og fegurð. Hann er líka fær um að bíta í skjaldar- rendurnar gerist þess þörf, eins og um liðna helgi. Hann fann að Roddick yrði ekki rúllað upp. Þá var ekki annað að gera en bretta upp ermar og halda einbeitingunni. Á tímabili leit út fyrir að leiknum myndi aldrei ljúka. En loksins þegar Roddick varð á í messunni gekk Federer á lagið. Án miskunnar. Þannig eru meistarar. Eða eins og Simon Barnes, tennisskýrandi The Times, orðaði það svo skemmtilega: „Federer beitti þeirri einföldu taktík að tapa ekki.“ Federer kveðst aldrei hafa leitt hugann að met- um þegar hann var að vaxa úr grasi (og leir) en við- urkennir að hann sé sáttur við sinn hlut. „Það þýðir þó ekki að ég sé hættur. Ég vonast til að koma aft- ur hingað,“ sagði hann í lok móts á Wimbledon og uppskar dynjandi lófatak viðstaddra. Federer hef- ur sloppið blessunarlega vel við meiðsli á ferlinum, þökk sé dúnmjúkum leikstílnum. Öfugt við Nadal sem er mun áleitnari í allri sinni framgöngu. Sjálf- ur gefur hann ekkert upp um næstu markmið en Pete Sampras er spámannslega vaxinn: „Fjórtán alslemmutitlar var mikið á síð- asta áratug, sneiði Roger hjá meiðslum gæti hann hæg- lega unnið tutt- ugu.“ Reuters Hinn endanlegi spaðaás  Svisslendingurinn Roger Federer er orðinn sigursælasti tennisleikari allra tíma eftir fimmtánda sigurinn á stórmóti um liðna helgi  Hann er bestur að mati Petes Sampras Meistari Roger Federer segir Boris Becker og Stefan Edberg hafa verið fyrirmyndir sínar í æsku. Nú byggja ungmenni um heim allan leik sinn á honum. Þrátt fyrir einstaka afrekaskrá er Roger Federer ekki ósigrandi. Það hefur helsti keppinautur hans í seinni tíð, Spánverjinn Rafael Na- dal, margsannað. Þeir félagar hafa mæst tuttugu sinnum og Nadal hefur haft betur í þrettán skipti. Ekki nóg með það. Þeir hafa glímt sjö sinnum í úrslitum á stórmóti og þar hefur Nadal fimm sinnum sigr- að, þrisvar á opna franska meist- aramótinu, einu sinni á Wimbledon og einu sinni á opna ástralska. Sigrar Federers hafa báðir komið á Wimbledon. Það segir allt sem segja þarf um yfirburði þessara tveggja manna að Nadal er eini maðurinn sem unnið hefur Federer í úrslitaleik á stórmóti. Nadal, sem er aðeins 23 ára, hef- ur þegar sigrað á sex stórmótum. Þeir Federer mættust fyrst á meistaramóti í Miami í mars 2004. Federer hafði þá nýlega komið sér makindalega fyrir á toppi heims- listans en Nadal, þá sautján ára, var í 34. sæti. Sú gjá kom þó ekki í veg fyrir að Spánverjinn ynni sannfær- andi sigur á andstæðingi sínum. Tónninn var gefinn. Þeir félagar hafa att kappi í tví- gang á þessu ári, í úrslitaleik opna ástralska meistaramótsins, þar sem Nadal vann, og á meistaramóti í Madríd, þar sem Federer kom fram hefndum. Nadal tók ekki þátt í Wimbledon nú vegna meiðsla. Nadal er af mörgum talinn besti tennisleikari sögunnar á leirvöllum og af ellefu viðureignum þeirra Federers á því undirlagi hefur Spánverjinn unnið níu. Staðan er jöfn á hörðum völlum, 3:3, og Fede- rer hefur haft betur á grasi, 2:1. Federer og Nadal eru sannkall- aðir erkifjendur. Eigi að síður hefur aldrei andað köldu þeirra á milli og frægt er þegar Nadal huggaði fé- laga sinn eftir að hafa lagt hann að velli á opna ástralska meist- aramótinu snemma á þessu ári. Hermt er að Spánverjinn líti á Federer sem fyrirmynd en ekki síð- ur viðmið í sínum leik. Framan af lét Federer samkeppnina sér í léttu rúmi liggja enda fimm árum eldri en Nadal og mun sigursælli. Með hverjum ósigrinum hefur hann þó þurft að kyngja meira stolti. Sér- staklega var ósigurinn á Wimble- don fyrir ári vendipunktur. Þá varð hann að viðurkenna að viðureignir þeirra yrðu „sífellt sérstakari“. Skömmu síðar, þegar Nadal hafði velt honum úr sessi á toppi heims- listans, hældi Federer keppinauti sínum. „Lítið bara á hvað hann þurfti að afreka til að ná settu marki. Þetta líkar mér að sjá.“ Metingur þeirra félaga hefur líka aukið áhuga fólks á tennisíþrótt- inni. Þannig rataði mynd frá Wimbledonleiknum í fyrra á forsíðu Sports Illustrated en svo hátt undir höfði hefur hið virta tímarit ekki gert tennis árum saman. Harðnar á Nadalnum Reuters Litríkur Rafael Nadal frá Spáni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.