Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009                          ✝ Eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur og afi, HJALTI E. HAFSTEINSSON bifreiðarstjóri, lést á Landspítala Hringbraut mánudaginn 6. júlí. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 14. júlí kl. 13.00. Þórdís E. Sigurðardóttir, Rannveig Einarsdóttir, Jón S. Þorbergsson, Sigurður Hrannar Hjaltason, Herdís Anna Ingimarsdóttir, Pálmi Gunnlaugur Hjaltason, Hafsteinn Eyjólfsson og barnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RUNÓLFUR SÆMUNDSSON, Skólavörðustíg 20, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 15. júlí kl. 15.00. Daði Runólfsson, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Halldór Björn Runólfsson, Margrét Árnadóttir Auðuns, Anna Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, Borgarbraut 65A, Borgarnesi, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 14. júlí kl. 11.00. Jarðsett verður í Hólmavíkurkirkjugarði sama dag. Þeir sem vilja minnast hennar láti líknarstofnanir njóta þess. Sæunn Andrésdóttir, Guðrún Andrésdóttir, Konráð Andrésson, Margrét Björnsdóttir, Guðleif Andrésdóttir, Ottó Jónsson, Anna María Andrésdóttir, Arnheiður G. Andrésdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, bróðir og mágur, JÓHANN BRIEM fyrrv. framkvæmdastjóri, lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 5. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 14. júlí kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á MS-félagið. Ásta Kristín Briem, Páll Jóhann Briem, Haraldur Páll Briem, Vera Nily, Birna Jóna Jóhannsdóttir, Þór Kristjánsson, Kristín Briem, Sigurjón H. Ólafsson, Sigrún Briem, Jón Viðar Arnórsson, Jóhanna Björk Briem, Guðmundur Þorbjörnsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG JÓNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Háteigskirkju fimmtudaginn 16. júlí kl. 13.00. Guðlaugur Bergmundsson, María K. Jónsdóttir, Jón Bergmundsson, Guðrún Þ. Ingimundardóttir, Hlöðver Bergmundsson, Jóhanna S. Óskarsdóttir, Ingibjörg Bergmundsdóttir, Harald B. Alfreðsson, Katrín Björk Bergmundsdóttir, Egill Grímsson, Sigrún Berglind Bergmundsdóttir, Helgi B. Thoroddsen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Svavar Júlíussonfæddist í Sól- heimatungu við Laugarásveg í Reykjavík 23. apríl 1935. Hann lést á heimili sínu, Lyng- bergi 11 í Hafn- arfirði, 29. júní sl. Foreldrar hans voru Magnea Vilborg Guð- jónsdóttir, f. 6.10. 1903, d. 2.11. 1960 og Júlíus Jónsson skó- smiður, f. 13.7. 1892, d. 6.7. 1964. Systkini Svavars eru Valgerður, f. 1925, maki Haukur Ottesen, f. 1922, Jón, prentari, f. 1928, d. 1988, maki Guðný Valgeirsdóttir, f. 1930, d. 2008, og Selma, f. 1937, maki Óskar Indriðason, f. 1930. Fyrri kona Svavars var Unnur Seinni kona Svavars og lífs- förunautur er Helga Þórðardóttir, f. 30.10. 1940. Dóttir þeirra er Magnea Vilborg, f. 2.8. 1961, maki Ólafur Arnfjörð Guðmundsson. Börn þeirra eru a) Sigríður Arn- fjörð, unnusti Hjörtur Logi Val- garðsson, og b) Svavar Arnfjörð. Dóttir Magneu og Sigurðar Ólafs- sonar er Helga Rán, unnusti Einar Oddsson. Stjúpbörn Magneu eru María Unnur, maki Sigurður Rún- ar Nóason, dætur þeirra Viktoría og Karólína Sjöfn og Gunnar Helgi, f. 1974, d. 1994. Svavar varð búfræðingur frá Hólum í Hjaltadal 1952. Sölustjóri í SAVA, Sameinuðu verksmiðju- afgreiðslunni. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Tálknafjarðar og Kaupfélags Vestur-Barðstrendinga í 20 ár. Skókaupmaður í Skóhöll- inni í Hafnarfirði og ECCO skó- búðinni á Laugavegi í 20 ár. Útför Svavars fór fram í kyrr- þey. K. Sveinsdóttir. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Hólmfríður Sigríður, f. 10.1. 1953, maki Ingimar Ingimarsson. Börn þeirra: a) Ingimar, maki Ásta Andr- ésdóttir, b) Brynhild- ur, dóttir hennar er Alessandra, og c) Róbert. 2) Svein- björg Júlía, f. 18.5. 1954, maki Leifur Steinn Elísson. Bön þeirra: a) Elfa Dögg, maki Ómar Jónsson, börn þeirra Dagur Steinn, Arna Ösp og Jökull Bjarki. b) Unnur Mjöll, maki Einar Gústafsson, dætur þeirra Júlía Lóa og Diljá Sóley. c) Sindri Snær. d) Silja Ýr. 3) Hlynur Ómar, f. 27.8. 1955, sonur hans er Unnar Freyr. Pabbi var mjög ungur búinn að eignast þrjú börn, Fríðu, mig og Hlyn. Tuttugu og eins árs var hann orðinn þriggja barna faðir. Foreldrar okkar skildu svo þegar við vorum innan við 5 ára gömul og samskipti við pabba voru frekar lítil framan af. Hann flutti til Tálknafjarðar og síðar Patreks- fjarðar, ásamt Helgu seinni konu sinni og Möggu systur sem þau áttu saman. Hann tók að sér að vera kaupfélagsstjóri á þessum stöðum og dvaldi þar um árabil. Ég átti því láni að fagna að vera hjá honum og Helgu í þrjú sumur og kynntist ég þá pabba á nýjan hátt. Hann og Helga sýndu mér hlýju og voru mér góð. Ég fékk það hlutverk að gæta Möggu syst- ur. Það var mikil upplifun og æv- intýri að vera hjá þeim, taka þátt amstri dagsins og fá að kynnast pabba í hans nærumhverfi. Þarna sá ég kraftmikinn kaupsýslumann, sem ekki féll verk úr hendi. Hann var afar hugmyndaríkur og gerði margt til þess að gleðja okkur og stytta stundir. Sem dæmi vil ég nefna fyrstu óvissuferðina um Tálknafjörð og nágrenni. Lagt var af stað upp í fjallshlíð með nesti og sundföt. Allt í einu erum við komin að heitri laug, sem kallaður var pollurinn. Allir í pollinn og svo hlaupa niður bratta hlíðina í sjóinn til að kæla sig. Hvílíkt sport sem þetta var og algjörlega ný upp- lifun, ævintýri líkast. Pabbi hafði gaman af að koma okkur á óvart. Á tólf ára afmælinu mínu stóð splunkunýtt tvíhjól í anddyrinu. Pabbi og Helga höfðu keypt það handa mér. Á haustin var berjaferð ófrávíkjanleg. Að- albláber skyldu það vera. Þá minn- ist ég þess hve bjartsýnn pabbi var að leggja af stað með okkur í mánaðar ferðalag. Þá var hring- vegurinn ekki kominn, þannig að fyrst var farið um Vestfirði og svo suður fyrir og þaðan norður í land. Gáski, fjör og glettni einkenndi þessa sumarleyfisferð, sem var mjög skemmtileg og eftirminnileg. Þá var víða komið við og hitti ég marga ættingja úr föðurætt sem ég hefði annars ef til vill aldrei kynnst. Elsku pabbi, það var gaman að þessum stundum í æsku, sem ég geymi í minningunni. Pabbi upplifði síðar margar góð- ar stundir í uppvexti barna okkar Leifs Steins með okkur, við skírn- ir, afmæli, fermingar, brúðkaup o.fl. Einn góðu kosta pabba var hvað hann var oft næmur á aðra og þarfir þeirra. Alltaf hittu gjafir hans í mark. Tilhlökkun til jólanna er alltaf sérstök. Um hádegisbil á aðfangadag brást ekki að pabbi kæmi og fóru fram gjafaskipti og tilfinningaleg nánd. Elsku pabbi, takk fyrir þær stundir sem við og fjölskylda mín áttum með þér um dagana. Þær stundir hefðu að sjálfsögðu mátt vera miklu, miklu fleiri, en það var ekki magnið sem skipti máli í sam- skiptum okkar heldur gæðin. Elsku Helga, Magga og fjöl- skylda. Ykkar missir er mikill. Megi lífið brosa við ykkur á ný. Sveinbjörg Júlía (Böggý). Um það leyti sem sólin sendi fyrstu geisla sína yfir Hafnarfjörð að morgni 29. júní hneig til viðar í síðasta sinn lífssól tengdaföður míns, Svavars Júlíussonar. Hann skildi við þetta líf í faðmi fjöl- skyldu sinnar á heimili sínu umvaf- inn ást og umhyggju sem hann endurgalt í lifanda lífi svo marg- falt. Seint munu mér líða úr minni þessir síðustu dagar þar sem hann háði baráttu við illvígan sjúkdóm sem að lokum hafði betur. Á þess- um dögum sýndi hann sama æðru- leysi og hann gerði í gegnum lífið og þótt kvalinn væri á líkama var hugsun hans fyrst og síðast hjá okkur hinum, að okkur liði ekki illa þegar svona var komið. Kynni mín af tengdaforeldrum mínum, Svavari Júlíussyni og Helgu Þórðardóttur, hófust fyrir 20 árum þegar ég hóf sambúð með dóttur þeirra, Magneu Vilborgu. Þau hjónin tóku mér opnum örm- um og buðu mig velkominn í fjöl- skylduna og á sinn hátt sýndu þau mér og okkur öllum einskæran hlýhug og væntumþykju. Þegar börnin okkar komu, fyrst Sigríður og síðar Svavar, varð til stórfjöl- skylda og eftir að við fluttum árið 1995 til Hafnarfjarðar urðu sam- skipti okkar á daglegum vettvangi og ætíð var haft eitthvert samband daglega. Afi barnanna okkar varð fljótlega mikilvægur þáttur í lífi og leik þeirra, bíltúr í leikskólann, skólann, íþróttaæfingu, ávallt var hann reiðubúinn að fórna tíma sín- um fyrir þau og þannig hafði hann á sama hátt reynst Helgu Rán, dóttur Magneu, á æskuárum henn- ar. Hann fylgdist með uppeldi þeirra og árangri í námi og íþrótt- um, heimili þeirra hjóna varð ann- að heimili barnanna. Á hverjum þriðjudegi til margra ára sótti hann börn okkar í skólann og þá var farið heim til afa og ömmu og deginum varið þar. Leiðsögn þeirra hjóna til barnanna var gerð með þeim hætti að hún mun reyn- ast þeim mikils virði um ókomin ár. Við hlið hans stóð kona hans, Helga Þórðardóttir, og í 52 ár nutu þau samvista hvort við annað og svo var í leik og starfi. Þau störfuðu saman allt frá því að hafa kynnst í fyrirtækinu Sava í Reykjavík og þegar Svavar var ráðinn kaupfélagsstjóri fyrst í Tálknafirði og síðar á Patreksfirði en þá starfaði Helga þar á skrif- stofu og síðar þegar þau fluttu til Hafnarfjarðar og stofnuðu til rekstrar á skóverslun sem þau ráku í áratugi. Þau voru því saman frá morgni til kvölds í öll þessi ár og nutu þess bæði að hafa jafn mikil og rík samskipti sín á milli svo einstakt má telja. Þó svo að við sem eftir sitjum sjáum nú á bak einstökum manni þá mun minning hans lifa meðal okkar um ókomin ár og það er ég viss um að við munum halda afadag á þriðjudegi um ókomin ár. Blessuð sé minning tengdaföður míns og vinar, Svavars Júlíusson- ar. Ólafur Arnfjörð Guðmundsson. Mig langar við fráfall tengda- föður míns, Svavars Júlíussonar, að staldra við, líta til baka og líka fram á veginn, minnast skemmti- legra atvika og góðra stunda. Fyrst hitti ég Svavar, þegar ég var boðinn með kærustunni, dóttur hans í veislu í tilefni af fertugs- afmæli hans. Það skipti ekki tog- um að við náðum strax mjög vel saman, ég þá síðskeggjaður og hippalegur. Sem betur fer vorum við að mestu ósammála um málefni líðandi stundar á áttunda tug síð- ustu aldar. Þess vegna var svo gaman að ræða málin. Svavar var rökfastur og virtist hafa lag á því að tileinka sér upplýsingar sem voru sannar og einhvers virði í umræðunni. Við ræddum hagfræði, þjóðfélagsmál og skemmtum okkur yfir því sem við þá töldum fáfræði annarra, en hefur meira í seinni tíð sýnt sig hafa verið hagsmunagæsla og eigin hagsmunasemi einstakra manna. Svavar las erlend tímarit af áfergju og hafði vitneskju um ýmsar hugmyndir og nýjungar sem ekki rötuðu í íslenska fjöl- miðla og fræddi mig. Svavar og Helga hafa alla tíð sýnt mér og minni fjölskyldu rækt- arsemi. Þau hafa alltaf haft áhuga á lífi okkar og störfum, þroska- ferli, menntun og áhugamálum barnanna. Stundum var langt á milli okkar landfræðilega. Eitt sinn vorum við í stuttu sumarleyfi og stödd bíllaus í Dölunum. Svavar virtist hafa fundið það á sér, hringdi og bauð okkar að koma vestur á Patró og þau létu sig ekki muna um að sækja okkur og skila síðan aftur. Þau óku samtals í um 20 klukkutíma af þessu tilefni. Það fór afar vel um okkur í nýja bíln- um þeirra og ekki síður á heimili þeirra. Þá sáu þau í fyrsta sinn eitt barna okkar á öðru ári. Telpan leitaði strax í fang afa síns og þá heyrði ég Svavar segja að þarna sýndi sig frumuskilningurinn. Ég hef síðar oft hugleitt þetta hugtak og séð það víðar í virkni. Svavar átti það til að hringja til þess að frétta af dóttur sinni og barna- börnum. Þegar ég svaraði ræddum við stundum saman svo lengi að hann bað bara að heilsa hinum. Okkar samband var þannig. Svavar Júlíusson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.