Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 33
Menning 33TÓNLIST MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009 BRÁK eftir Brynhildi Guðjónsdóttur (Söguloftið) BANDIÐ BAK VIÐ EYRAÐ (HVÍTISALUR) Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið Fim 23/7 kl. 21:00 Tónleikar Sun 12/7 kl. 16:00 Ö Lau 18/7 kl. 16:00 Sun 26/7 kl. 16:00 Lau 8/8 kl. 20:00 Sun 16/8 kl. 16:00 Lau 22/8 kl. 20:00 Sun 30/8 kl. 16:00 Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 landnamssetur@landnam.is bíó að horfa á nýja tónleikamynd Bjarkar. Eins og í öðrum verkefnum Weird Girls treystu stúlkurnar Kitty algjörlega fyrir framkvæmd- inni og mættu á tökustað án þess að vita hvað ætti að mynda eða í hvernig aðstæður og klæðnað þær yrðu settar. Tökur tóku einn dag. Samstarf Weird Girls og Agent Fresco var að frumkvæði hljóm- sveitarinnar er heillaðist mjög af myndbandinu sem hópurinn gerði við lag Emilíönu Torrini. „Hljómsveitin er mjög hrifin. Þeir mættu á tökustað og voru hoppandi um af gleði.“ Kitty á von á stúlkubarni í lok ágúst eða byrjun september og hefur því ákveðið að leggja ekki í önnur verkefni fyrr en eftir fæð- inguna. Þrjú verkefni eru þó þegar á teikniborðinu. „Ætli ég geri ekki næsta verkefni í desember eða jan- úar. Það fer bara eftir því hvernig gengur með barnið.“ biggi@mbl.is UNDRAVERÐI stúlknahópurinn Weird Girls sleppti lausu á netið á föstudag nýju myndbandi sem hóp- urinn gerði fyrir lag Agent Fresco, Eyes of a Cloud Catcher. Þetta er áttunda vídeóverk Weird Girls- listahópsins en að þessu sinni leik- stýrir forstýran Kitty von Some- time sjálf þrátt fyrir að hreyfigeta hennar hafi verið takmörkuð en þá var hún komin sex mánuði á leið. Hún lét þungunina þó ekki aftra sér frá því að taka þátt í dans- atriðum myndbandsins og sker sig úr glimmerlögðum hópnum með fallega bumbu. „Ég sá um að gera tökulistann og danssporin og svoleiðis,“ segir Kitty sem svaraði kalli blaða- manns, þrátt fyrir að vera stödd í Agent Fresco Myndbandið er án efa besta verk Weird Girls til þessa. Ófrísk í glimmergalla Myndband Weird Girls við lag Agent Fresco er tilbúið. Þær eru ólíkar þessar stúlkur– Little Boots nútímalegtrafeindaskotið popp, glamúr og glimmer, Florence & the Mach- ine lágstemmdari músík, íburð- armikið indípopp, og svo er það La Roux með sína kuldalegu nýbylgju, eins og klippt út úr Bravoblaði fyrir tuttugu árum eða svo. Allar eru þær forvitnilegar þessar þrjár, hver á sinn hátt, og allar frábærar söngkonur, en sú síðasttalda virðist ætla að skáka stöllum sínum hvað vinsældir varðar. Fyrir stuttu kom út frumraun La Roux samnefnd henni, og fór beint inn á breska breiðskífulistann og situr sem stendur í öðru sæti listans á uppleið, ekki síst fyrir nýjustu smáskífuna af plötunni, Bulletpro- of, sem hefði eins getað verið á Dare, meistaraverki Human League. Lengi í gang La Roux er listamannsheiti Eleanor „Elly“ Jackson, sem reyndi að hasla sér völl sem þjóðlaga- söngkonan La Roux undir lok síð- ustu aldar en gekk ekki nema miðl- ungi vel. Þegar hún kynntist upptökustjóranum Ben Langmaid fóru hjólin að snúast þó að þau hafi reyndar snúist hægt framan af; það tók þau La Rox og Langmaid hálft fimmta ár að berja saman breið- skífu og fyrstu viðbrögð við tónlist- inni voru ekki til að hrópa húrra fyrir því smáskífan Quicksand sem kom út í fyrra rétt skreið inn á smáskífulistann breska og hvarf jafn skjótt sjónum manna. Þetta setti eðlilega smá strik í reikninginn, stórt strik reyndar því útgáfa þeirra sagði upp plötusamn- ingi í kjölfarið. Þar á bæ naga menn þó sig þó væntanlega handarbökin, því næsta smáskífa, In For the Kill, gekk bráðvel og síðan Bulletproof, sem fór á toppinn í Bretlandi eins og getið er. Breiðskífan hefur svo selst í ríflega 200.000 eintökum sem þykir gríðarlega gott nú á tímum. Ímyndin umdeild Ímynd La Roux geri rsitt til að halda henni í sviðsljósinu. Hún er nefnilega með óvenjulegan fata- smekk, klæðist nánast eins og karl- maður en þó ekki – er einhvers staðar á milli karls og konu, auk- inheldur sem hárgreiðslan er sér- kennileg sem sjá má á meðfylgjandi mynd. Við það bætist svo að hún er ófeimin við að láta í sér heyra og sumar yfirlýsingar heldur glanna- legar, eins og sú að konur í ofbeld- issambandi geti engum um kennt nema sjálfum sér, þ.e. þær sem ekki slíti sambandinu. Allt er þetta til þess fallið að styrkja ímynd hennar; útlit, skoð- anir og mælska leggjast á eitt, en það er samt músíkin sem gerir gæfumuninn og óhætt að spá henni miklum frama á næstu árum. Kuldaleg nýbylgja Stjarna Breska söngkonan Eleanor Jackson sem kallar sig La Roux, þykir mikið efni. TÓNLIST Á SUNNUDEGI Árni Matthíasson Í upphafi árs er til siðs að spá fyrir um hvað- eina, þar á meðal hvaða listamenn eigi eftir að slá í gegn á árinu. Svo bar við í Bretlandi að þar voru menn nokkuð sammála um að þrjár stúlkur myndu slá í gegn árið 2009; Little Boots, Florence and the Machine og La Roux. FLORENCE Welch átti nokkuð hefðbundið tón- listaruppeldi, var söng- elsk og komst í skólakór- inn. Sjö ára gömul var hún farin að syngja í fjöl- skylduboðum og ellefu ára byrjaði hún söng- nám. Sem unglingur stofn- aði hún pönksveit með stöllum sínum en fór síð- an að flytja hefðbundn- ara indípopp með mis- jöfnum árangri. Tónlistin var býsna til- raunakennd, ef marka má það sem finna má á netinu af gömlum uppákomum, en aðaláherslan var á magnaðan sönginn. Fyrir ári eða svo komst Welch svo í samband við þekkt- an plötusnúð breskan sem tók hana og sveitina að sér, slípaði til og kom henni í sviðsljósið. Sýnilegasti afrakstur þess var lagið „Kiss with a Fist“ sem naut talsverðrar hylli í vor, fágað indípopp en ekki svo frumlegt. Laginu var þó vel tekið og mikil eftirvænting hefur verið eftir fyrstu breiðskífunni, Lungs, sem kom út á fimmtudaginn. Florence Welch Sem rekur Florence and the Machine. Florence and the Machine LITTLE Boots er lista- mannsnafn Victoriu Christinu Hesketh sem er búin að vera nokkurn tíma að koma sér í sviðsljósið. Hún hóf sinn söngferil með því að taka þátt í Pop Idol fyr- ir níu árum, þá sextán ára gömul, og hefur verið að síðan. Hún er liðtækur hljóðfæraleikari, verð- launuð fyrir píanóleik sem barn og einnig há- skólamenntuð í tónlist- arfræðunum. Eftir idolkeppnina gerðist Hesketh söngkona í djassbandi en stofnaði svo stúknasveit sem einbeitti sér að rafpoppi og hefur hald- ið sig við þá gerð tónlistar. Á endanum hóf hún svo sólóferil undir nafninu Litte Boots. Rafpoppsveitin Dead Disco gaf út smáskífur og flutt- ist síðan til Los Angeles til að slá í gegn, en þá var He- sketh orðin óánægð með hvert stefndi og gekk úr sveit- inni til að sinna eigin músík undir nafninu Little Boots. Fyrsta breiðskífan, Hands, kom svo út fyrir mánuði og hefur selst vel í Bretlandi. Victoria Christina He- sketh Tók sér nafnið Little Boots. Little Boots Á MEÐAN þau hjónakorn Ozzy og Sharon Osbourne horfðu, líkt og margir aðrir, á minningarathöfnina um Micahel Jackson í sjónvarpinu gerðist sá leiði atburður að sléttuúlfur í nágrenni við heimili þeirra í Los Angeles át hundinn þeirra. Hjónin munu vera miður sín yfir dauða hundspottsins, sem kallaðist Little Bit. Þau geta kannski huggað sig við það að 17 hundar munu nú vera eftir á Osbourne- heimilinu. Sléttuúlfur át hundinn Ozzy og Sharon Osbourne.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.