Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 27
Ég sé ýmsa kosti í mínum börn- um sem þau hafa erft frá móðurafa sínum. Þar er hugmyndaauðgi svo mikilvæg, að hafa skoðanir og fylgja þeim eftir, standa með sjálf- um sér og vera heiðarlegur í einu og öllu. Fyrir þessa kosti erum við þakklát. Eiginleikar erfast, en þá þarf líka að rækta. Það er þar sem við lítum fram á veginn. Mínar bestu þakkir fyrir sam- fylgdina. Við söknum þín, en varð- veitum minninguna. Leifur Steinn Elísson. Þegar við kveðjum fólk sem er okkur náið reikar hugurinn um minningarnar sem ylja á sorgar- og saknaðarstund. Okkur eldri systurnar í barnahópi Sveinbjarg- ar Júlíu langar að minnast afa með nokkrum orðum. Upp í hugann koma minnisstæðar ferðir í amer- íska kagganum hjá Svavari afa og Helgu, það var ævintýraför að sökkva sér í rauða plussáklæðið og njóta ferðarinnar. Afi bauð okkur stundum í ísbíltúr sem er nú alltaf gaman. Einnig minnumst við helg- arheimsókna til afa og Helgu í Álfaskeiðið, þá var fyrsta verkið að kíkja í nammiskúffuna sem var alltaf búið að fylla á fyrir okkur. Afi og Helga bjuggu lengi á Pat- reksfirði og eru minningabrot það- an við leik og gróðursetningu á radísum. Við fengum hvert okkar tækifæri til að kynnast afa svolítið þegar við eltumst, Elfa Dögg við vinnu í Skóhöllinni og Unnur Mjöll með sameiginlegum áhuga á list- um. Mörgum sumrum og jólaleyf- um eyddi Elfa Dögg við vinnu í verslun þeirra afa og Helgu í Hafnarfirði. Þar gafst tækifæri til að kynnast annarri hlið á afa sem var slunginn viðskiptamaður. Á þessum tíma lærði Elfa allt um skó, sá áhugi hefur haldist alla tíð. Unnur Mjöll fór stundum með afa og Helgu á listasýningar og kaffi- hús sem þau höfðu öll ánægju af. Þá var oft rökrætt um samtímalist og umræðurnar fjörugar. Afi var mjög gjafmildur og sýndi börnum okkar áhuga, hans verður saknað í afmælisveislum og á tímamótum í lífi okkar. Minning Svavars afa mun lifa í hjörtum okkar. Elsku Helga, Magga, Óli, Helga Rán, Sigríður og Svavar, missir ykkar er mikill, megið þið finna styrk í sorginni. Elfa Dögg S. Leifsdóttir og Unnur Mjöll S. Leifsdóttir. Ástkær bróðir minn hefur kvatt þessa jarðvist. Við hittumst öll aft- ur á öðru tilverustigi. Í 72 ár hef ég fengið að vera í samvistum við hann. Ég þakka af alhug fyrir hverja stund. Þegar ég fæddist var Svavar tæplega tveggja ára og þriggja mánaða. Hann stillti sér upp við vöggu mína og varði og gætti systur sinnar. Það hefur hann gert öll þessi ár. Hann fædd- ist í Sólheimatungu við Laugarás- veg. Hann var kvaddur í Áskirkju, sem er hinum megin götunnar. Hann ólst upp í Sólheimatungu og á skósmíðaverkstæði föður okkar í Aðalstræti. Þar var mikil menning- armiðstöð svo segja má að hann hafi drukkið í sig alheimsvisku frá bernsku. Hann var alla tíð mjög fróðleiksfús og með afburða náms- gáfur. Hann tamdi fyrsta hestinn 12 ára gamall og reið honum einn til Þingvalla. 16 ára gamall fékk hann undanþágu til að hefja nám í bændaskólanum að Hólum. Hann útskrifaðist þaðan með hæstu ein- kunn sem hafði verið tekin í skól- anum. Það liðu tugir ára áður en því var hnekkt. Á námsárunum kynntist hann fyrri konu sinni Unni Kolbrúnu. Bæði voru mjög ung og komu frá afar ólíku um- hverfi. Hann var því aðeins 21 árs þegar þau skildu að samvistum með þrjú ung börn. Þetta var hon- um mjög erfitt æviskeið en eftir standa glæsileg 3 börn og fagur ættbogi frá þeim. Svavar var sölustjóri hjá Sam- einuðu Verksmiðjuafgreiðslunni og þar kynntist hann seinni konu sinni Helgu. Þau hafa unnið hlið við hlið síðan og staðið fast saman í blíðu og stríðu eða í 52 ár. Einka- barn þeirra er Magnea Vilborg. Þessi litla fjölskylda fluttist til Tálknafjarðar þar sem hann gerð- ist fljótlega kaupfélagsstjóri. Seinna gerðist Svavar kaupfélags- stjóri á Patreksfirði. Ég hef heyrt að þetta tímabil sé oft nefnt gull- aldartímabilið á Patreksfirði. Eftir 20 ár fluttu þau í Hafn- arfjörð. Það hafði verið lengi ósk Svavars að setja upp skóverslun. Fyrst ráku þau hjónin Skóhöllina í Hafnarfirði en síðan Ecco-skó- verslunina á Laugavegi. Svavar gekkst undir hjartaskurð. Oft er sagt að ekkert sé svo illt að ekki boði nokkuð gott. Vegna veikinda Svavars var hann meira heima við og gaf það kost á að samvera við yngsta barnabarnið og nafna hans varð meiri og fengu þessir sál- arbræður að njóta hvor annars á dásamlegan og undraverðan hátt. Það er mikil hamingja að Svavar fékk að njóta þess að fylgja nafna sínum til fermingar í vor. Svavar elskaði ættboga sinn allan. Guð blessi þau öll og styðji. Vallý systir okkar hefur verið Svavari og mér sem önnur móðir alla tíð. Hann átti alltaf skjól á heimili hennar og Hauks. Kærleikur þeirra á milli hefur verið náinn og sterkur. Fjöl- skylda Helgu hefur verið mjög ná- in og virk vinátta hefur einkennt samskipti þeirra. Svavar uppgötv- aðist með illvígt mein í febrúar. Hann naut umönnunar Helgu alla tíð en síðustu vikurnar voru ákaf- lega erfiðar. Helga lét útbúa líkn- ardeild á heimili þeirra. Hjúkr- unarteymið sem kom heim var eins og líknarenglar. Helga vakti yfir honum nótt og dag fram að síðasta andartaki með aðstoð dóttur sinn- ar og tengdasonar. Ég bið Guð um að blessa ástvini hans alla. Selma Vinur minn til margra ára, Svav- ar, er genginn. Hann var fæddur sama dag og sama ár og ég. Bæði naut, þrjósk en heiðarleg. Við Axel, maðurinn minn, kynnt- umst Svavari og Helgu í síðustu kreppu. Þau komu að vestan þar sem hann var kaupfélagsstjóri á Pat- reksfirði og síðar í Tálknafirði. Þegar þau hjónin fluttu aftur til Reykjavíkur, keyptu þau skóversl- unina Skóhöllina í Hafnarfirði. Þá hófust kynni okkar. Við með skóbúð í Vestmannaeyjum, og þau og nokkrir kaupmenn í kringum landið hófum samvinnu við Euro- skó í Noregi. Til að kaupa sameig- inlega inn, fá lægri frakt og minni innkaup fyrir hverja verslun. Við fórum tvisvar á ári til Moss í Noregi. Góður hópur, kynntumst vel og áttum góðar stundir saman. Við fórum einu sinni á ári í heimsókn í hvert bæjarfélag, eina helgi, skoðuðum plássin og skemmtum okkur stórkostlega. Svavar var alltaf hrókur alls fagnaðar. Hann skipti æði oft um skoðun, enda sannur framsóknar- maður. Svo skemmtilega vildi til að Magnúsína, kaupmaður í Keflavík, átti líka sama afmælisdag og við, en nokkru yngri. Var mikið grín gert að þessum þremur nautum. Eftir nokkur ár var aftur hægt að versla meira, kreppan hvarf og hver hugsaði um sig. Helga og Svavar urðu góðir vin- ir okkar. Þau settu upp skóbúð í Bæjarhrauninu í Hafnarfirði og um árabil áttu þau Ecco-skóbúðina á Laugaveginum. Loks seldu þau verslunina og settust í helgan stein. Ekki alls fyrir löngu keyptu þau sér ein- býlishús í Setbergslandinu í Hafn- arfirði og voru þau afskaplega ánægð með sig og sína. Þau áttu húsbíl sem þau fóru um landið á og kunnu svo sannarlega að njóta lífsins. Og nú er hann allur, hefði átt að fá minnst 10 ár í viðbót. Svona er lífið. Ég sakna þessa góða drengs. Hann var sannur vinur vina sinna. Ég bið Helgu og fjölskyldum þeirra blessunar. Góði guð vaki yfir þeim. Hann hvíli í friði. Sigurbjörg Axelsdóttir. Kær vinur og æskufélagi, Svav- ar Júlíusson, er látinn, en vinátta okkar hófst í tíu ára bekk í Laug- arnesskóla fyrir tæpum 65 árum síðan. Svavar var hár vexti og líkam- lega sterkbyggður, kappsamur eldhugi og skarpgreindur og fljót- ur að átta sig á aðalatriðum hvers máls. Foreldrar hans höfðu skilið er við kynntumst og var hann mest hjá föður sínum, Júlíusi skósmið, sem var með verkstæði á bak við Markaðinn í Aðalstræti og voru ófáar ferðir okkar þangað. Júlíus var mikill hestamaður og sótti til hans fjöldi þekktra hestamanna og gátum við Svavar oft fylgst með heimspekilegum umræðum á verk- stæðinu, en tíðum var skotist yfir á Hótel Skjaldbreið eftir kaffi og bakatil í Björnsbakarí eftir bakk- elsi. Svavar kynntist hestamennsk- unni hjá föður sínum og var hann hvert sumar í sveit, fyrst hjá Jóni bónda á Garðsauka við Hvolsvöll og síðan hjá Haraldi Thorarensen á Móeiðarhvoli. Þar var ég sam- tíma Svavari í tvö sumur er við vorum 14 og 15 ára gamlir og sá Svavar um allan heyskap og mjalt- ir með aðstoð frá mér og kaupa- konu, en bóndinn tók ekki þátt vegna fötlunar. Er Laugarnesskóla lauk fóru flest skólasystkinin í landspróf en Svavar hélt á Búnaðarskólann á Hólum þar sem hann útskrifaðist sem búfræðingur 17 ára gamall eftir tveggja ára nám, yngstur en fremstur sinna skólasystkina. Þar hitti hann fyrri eiginkonu sína og hélt með henni vestur á land og starfaði við byggingarframkvæmd- ir á Straumnesfjalli. Eignuðust þau fljótlega þrjú mannvænleg börn en eftir að þau fluttu til Reykjavíkur slitnaði upp úr hjóna- bandi þeirra. Svavar hafði þá ráð- ist til starfa hjá Sameinuðu verk- smiðjuafgreiðslunni SAVA á Bræðraborgarstíg 7 sem lager- stjóri, en þar voru til húsa sjö saumastofur og verksmiðjur. Þá- verandi sölustjóri, Oliver Steinn, sneri aftur í bóksöluna og tók Svavar við starfi sölustjóra aðeins 21 árs gamall, en tveir sölumenn voru fyrir í fullu starfi. Þar starf- aði ung stúlka Helga Þórðardóttir og tókust með þeim ástir og bjuggu þau saman í yfir 50 ár. Eft- ir nokkurra ára starf í SAVA fluttu þau til Tálknafjarðar með einkadóttur sína þar sem Svavar starfaði hjá Alberti kaupfélags- stjóra. Eftir lát hans árið 1967 tók Svavar við starfi kaupfélagsstjóra þar til þau hjón fluttu suður árið 1982. Fljótlega eftir komuna í bæinn keyptu þau hjónin Skóhöllina í Hafnarfirði, en eftir að Svavar fór í gegnum hjartaaðgerð nokkrum árum seinna seldu þau verslunina. Er Svavar hafði náð sér hófu þau hjónin rekstur á ný með stofnun Ecco búðarinnar við Laugaveg og blómstraði sá rekstur næstu árin. Árið 2005 seldu þau hjónin síðan rekstur Ecco búðarinnar og fóru að njóta lífsins og ferðast um land- ið á nýlegum húsbíl sem þau höfðu eignast. Það var síðan seint á árinu 2007 að Svavar greindist með krabbamein og barðist hann við það með hléum, þar til yfir lauk nú í júnílok. Þökkum við Nanna órofa tryggð og samfylgd í lífinu og sendum við Helgu, börnum og systrum Svav- ars og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Bjarnar Ingimarsson. Það er komið að kveðjustund. Margs er að minnast og margt ber að þakka. Svavar var greindur maður sem hafði hlýtt og gott við- mót, var glaðsinna og hafði kímni- gáfu. Það fylgdi því jafnan ferskur andblær að hitta Svavar, þar sem gaman var að spjalla við hann um menn og málefni. Hafði hann gam- an af því að ræða þjóðfélagsmálin í sinni víðustu mynd og gaman var að hlusta á hann segja frá, þar sem hann hafði góða frásagnar- gáfu. Þegar ég var níu ára gömul, bjó ég hjá þeim hjónum í fjóra mánuði. Á þessum tíma sýndu þau mér mikla ást og alúð, þessi samheldna fyrirmyndarfjölskylda. Þessi tími átti eftir að vera mér afar dýr- mætur. Elsku Helga mín, Magga mín og aðrir aðstandendur, ég votta ykk- ur mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Svavars Júlíussonar Elín Bragadóttir. Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009 Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM OG FYLGIHLUTUM Sendum myndalista Selhellu 3 Hafnarfirði Sími 517 4400 • www.englasteinar.is Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, tengda- sonar, afa og langafa, GÍSLA S. GÍSLASONAR hafnarstjóra, Neskaupstað. Sérstakar þakkir til Friðbjörns Sigurðssonar læknis, starfsfólks á deild 11B Landspítalanum við Hringbraut og starfsfólks á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Guðrún María Jóhannsdóttir, Jóhann Pétur Gíslason, Sigríður Þorgeirsdóttir, Gísli Gíslason, Bergrós Guðmundsdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason, Guðrún Smáradóttir, Heimir Berg Gíslason, Sólrún Hansdóttir, María I. Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, VALGERÐAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Skógarbæ, Árskógum 2, Reykjavík. Þorsteinn A. Jónsson, Martha Á. Hjálmarsdóttir, Helgi Jónsson, Jónína Sturludóttir, Þórður Jónsson, Jytte Fogtmann, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs bróður okkar, mágs og frænda, GUÐMUNDAR HALLDÓRS ATLASONAR flugumsjónarmanns, Boðagranda 7, Reykjavík, sem jarðsunginn var frá Háteigskirkju í Reykjavík mánudaginn 29. júní. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki gjörgæsludeildar Landspítalans í Fossvogi, Reykjalundar og hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar. Lárus Atlason, Nanna Guðrún Zoëga, Atli Helgi Atlason, Ingibjörg Gréta Gísladóttir, Dóra Elín Atladóttir Johnsen, Birgir Bárðarson og frændsystkini.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.