Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 19
Ein langlífasta rokk- hljómsveit heims, The Rolling Stones, tróð fyrst upp í Mar- quee-klúbbnum við Oxford-stræti í London 12. júlí 1962. Að- alstuðboltar og stofnendur sveitarinnar, Mick Jagger og Keith Rich- ards, eru enn að og virðast jafn fráir á fæti og forðum, þótt báðir séu eins rúnum ristir og eðlilegt getur talist fyrir menn á sjötugsaldri. Þótt þeir trylli kannski ekki ungmenni á viðlíka hátt og framan af á ferlinum á hljómsveitin ennþá gríð- arlegum vinsældum að fagna. Jagger og Richards, sem þekktust frá fornu fari, hitt- ust á förnum vegi í London 1960 og ákváðu að stilla sam- an strengi sína. Jagger stundaði nám í London School of Economics og Richards var í listaskóla. Fljótlega tók tónlistin völdin í lífi beggja og þeir stofnuðu hljómsveitina The Little Boy Blue and the Blue Boys ásamt gítarleik- aranum Dick Taylor, sem síðar gekk til liðs við The Pretty Things. Mick Avory, sem átti eftir að gera garðinn frægan með The Kinks, fengu þeir svo til að berja húðirnar. Þáttur Brians Jones Þeir félagar fóru annað slagið að „jamma“, eða spila af fingrum fram eins og það kallast, með Blues Incor- porated, sem var vinsæl hljómsveit í þá daga. Í hljómsveitinni var fjölhæf- ur tónlistarmaður, Brian Jones að nafni, sem var öllum hnútum kunn- ugur í tónlistarlífi Lundúnaborgar. Hann prófaði að spila með á fyrstu æfingum nýgræðinganna í brans- anum og stakk upp á að þeir kölluðu sig The Rolling Stones til heiðurs lag- inu Rollin’ Stone með Muddy Waters. Þá fékk hann píanóleikarann Ian Stewart til liðs við sveitina og Tony Chapman til að grípa í kjuðana. Hljómsveitin var því skipuð þeim Brian Jones, Mick Jagger, Keith Richards, Ian Stewart, Dick Taylor og Tony Chapman þegar hún hljóp í skarðið á tónleikum í Marquee- klúbbnum. Þeim varð til happs að kapparnir í Blues Incorporated höfðu óvart bókað sig á stefnumót við út- varpsstöð á sama tíma og þeir áttu að koma fram á „mikilvægasta vettvangi evrópskrar poppsögu“ eins og segir á vef Marquee-klúbbsins, sem enn er við lýði í Soho-hverfinu. Nýir menn Litlar mannabreytingar hafa orðið í hljómsveitinni í áranna rás. Stewart hætti þó fljótlega í framvarðarsveitinni, en starfaði þó áfram sem hljómborðsleikari og skipu- leggjandi tónleikaferða til dauðadags 1985. Bassa- leikarinn Bill Wyman mætti til leiks skömmu eftir frumraunina í Mar- quee-klúbbnum, en hætti 1992. Charlie Watts festi sig í sessi sem trommuleik- ari sveitarinnar 1963. Brian Jones drukknaði við grunsamlegar að- stæður 1969, en talið er að eiturlyfjanotkun hafi átt þar hlut að máli. Raunar var eit- urlyfjanotkun liðs- manna sveitarinnar á árunum áður á almannavitorði og kom sumum í klandur. Tónlist The Rolling Stones, sem í grunninn var rokk í bland við blús, þótti kröftug og óhefluð og féll í kramið hjá uppreisnargjarnri æskunni. Plötur þeirra hafa selst í 240 milljónum eintaka. Jagger, Rich- ards og Watts ásamt Ronnie Wood, sem bættist í hópinn 1974, láta engan bilbug á sér sjá. Á þessum degi Reuters The Rolling Stones Ronnie Wood, Charlie Watts, Keith Richards og Mick Jagger láta engan bilbug á sér finna. 19 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009 þessa eftirgjöf erlendra kröfuhafa og skuldirnar voru ekki lengur póli- tískt ágreiningsmál heima fyrir. Er- lendir fjárfestar, sem höfðu haldið að sér höndum við fjárfestingar í Mexíkó af ótta við að fé þeirra festist þar, litu á samkomulagið sem loka- stig þessa ferlis og voru tilbúnir til að hefja nýjar fjárfestingar. Vaxta- stigið, sem Mexíkó hafði neyðst til að halda uppi til að koma í veg fyrir að fjármagn flæddi úr landinu, hríð- lækkaði og þar sem ríkið þurfti ekki lengur að greiða háa vexti af lánum réttist fjárlagahallinn fljótt af. Efna- hagsleg staða Mexíkó gjörbreyttist á einu ári eftir að Bradysamning- urinn varð að veruleika.“ (Bls. 34- 35). Þannig sýnir Krugman hvernig erlent fjármagn getur bæði stuðlað að auknum vexti, en jafnframt valdið erfiðri skuldastöðu ef erlend fjár- festing er of mikil. Í ljósi Icesave- skuldbindinga er líka forvitnilegt að sjá hvernig ríki geta risið upp úr öskustónni á undraskömmum tíma með réttum viðbrögðum við gríð- arlegum skuldavanda. Enn eru því margar dyr opnar fyrir Íslendinga í efnahagslegu tilliti ef aðeins hug- myndaauðginni er leyft að reika og prófað er að taka í hurðarhúnana til að sjá hvaða dyr séu opnar. Bókin á fullt erindi við íslenska þjóð og má sjá áhugaverða kafla þar sem Krugman varar við aðstæðum sem hann rekur úr efnahagssögu heimsins sem margar hverjar minna á það sem er að gerast á Íslandi þessa daga. Þar með talið rekur hann spillingu vegna haftastefnu í Argentínu á fjórða áratug síðustu aldar, erlendar lántökur í Mexíkó á síðasta áratug, týnda áratuginn í Japan og verðbólur Alans Greensp- ans en síðast en ekki síst virðist sem Krugman trúi á að hægt sé að nálg- ast hinn svokallaða „ókeypis hádeg- isverð“, nokkuð sem er þvert á það sem þorri hagfræðinga hefur haldið fram. Aftur til kreppuhagfræði: Krísan 2008 eftir Paul Krugman í þýðingu Elínar Guðmunds- dóttur er gefin út af Urði bókafélagi 2009. Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ı Borgartúni 12-14 ı www.reykjavik.is/fer Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar auglýsir til leigu hagabeit og hesthús í landi Víðiness á Kjalarnesi. Landið er um 63 hektarar og hesthúsið ásamt hlöðu er um 430 m2. Landið þarfnast áburðar og húsin viðhalds. Til frekari upplýsinga vísast á vefslóðina www.reykjavik.is/fer, þar er að finna samningsdrög og loftmynd. Sendið fyrirspurnir á netfangið olafur.i.halldorsson@reykjavik.is Hagabeit og hesthús Til leigu Það hefur þurft sendibíl eða stóra kerru til flutninganna á 6 metra löngum sperrum 2” x 9” Hafi einhver séð til þjófanna þá vinsamlega sendið upplýsingar á siggi@pmt.is eða í síma 6981539. LÁNALÍNUR LOKAST Það er lýsing á því hvað gerðist þegar lánalínur lokuðust í Arg- entínu í lok síðasta áratugar í bók Krugmans og er hún þörf áminning um hvernig ástand hagkerfisins getur verið vont, en samt versnað og minnir jafn- framt illþyrmilega á síðasta haust á Íslandi. „Gerum ráð fyr- ir að lánafulltrúi í New York fari á taugum vegna fréttanna frá Rómönsku-Ameríku og ákveði að draga úr áhættu sinni – og að það taki því ekki að útskýra fyrir yfirmanninum það sem Ro- nald Reagan sagði eitt sinn: „Þetta eru allt mismunandi lönd.“ Hann segir argentínskum viðskiptavini að umsamin lánal- ína verði ekki framlengd og að hann verði að greiða upp úti- standandi lán. Viðskiptavin- urinn tekur nauðsynlega upp- hæð í pesóum út úr bankanum sínum í Argentínu, skiptir þeim vandræðalaust í dollara vegna þess að seðlabankinn á nóg af dollurum. En bankinn í Argent- ínu þarf að bæta við lausafjár- forða sinn og innheimtir lán hjá argentínskum kaupsýslumanni. Þar hefjast vandræðin. Til að greiða lánið verður kaupsýslu- maðurinn að ná í pesóa sem hann tekur líklega út úr öðrum banka í Argentínu – sem þá þarf að gjaldfella nokkur lán sem leiðir til frekari úttekta úr bönk- um og samdráttar í framboði lánsfjár. Upphafleg viðbrögð er- lendrar lánastofnunar hafa með öðrum orðum margfeldisáhrif í Argentínu: Sérhver dollari sem ekki fæst að láni í New York veldur því að lán upp á marga pesóa eru gjaldfelld í Buenos Ai- res. Viðskiptalífið fer að hökta og lánalínur lokast.“ 12. JÚLÍ 1962 STEIG ROKKHLJÓM- SVEITIN THE ROLLING STONES FYRST Á SVIÐ Erkirokk- arinn Mick Jagger verður 66 ára sunnudag- inn 26. júlí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.