Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009 HEIMSFRUMSÝNING! SACHA BARON COHEN SNÝR AFTUR Í EINHVERRI SNARKLIKKUÐUSTU OG FYNDNUSTU MYND SÍÐARI ÁRA MYND SEM ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF „BETRI EN BORAT. HHHH COHEN ER SCHNILLINGUR!“ – T.V. KVIKMYNDIR.IS „Þið sem að héldu að The Hangover væri það fyndnasta sem komið hefur út árið 2009, bíðið bara og sjáið hvað Brüno gerir af sér“ – T.V. - kvikmyndir.is ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA á allar 3D sýningar merktar með grænu850 krrSPARBÍÓ SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI BRUNO kl. 2D - 4D - 6D - 8D - 9D - 10D - 11D - 12D 14 DIGITAL TRANSFORMERS 2 kl. 3D - 6D 10 DIGITAL THE HANGOVER kl. 4 - 6 - 8- 10:20 12 HANNAH MONTANA kl. 2 L CORALINE m. ísl. tali kl. 13D (síðasta sýning) L DIGTAL 3D BRUNO kl. 2 - 4 - 6 - 8D - 8:30 - 10:10D - 10:30 14 DIGTAL ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L BRUNO kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LÚXUS VIP THE HANGOVER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 8:30 - 10:20 - 10:50 12 TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5:30 - 8 - 10:50 10 DIGTAL ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:303D - 3:403D - 5:503D L DIGTAL 3D Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is HANN er kannski ekki svo þekktur utan síns sviðs en gospelsöngvarinn, lagahöfundurinn og presturinn Andraé Crouch er vissulega mikils metinn í tónlistarbransanum. Ein- hverjir sáu hann og kór hans ef til vill syngja á minningarathöfninni um Michael Jackson er sjónvarpað var um allan heim í vikunni. Lag Andraé, „Soon and very soon“, var einmitt not- að sem upphafsatriði minningarhátíðarinnar. Nú gefst Íslendingum tækifæri á að sjá hann á tónleikum hér en hann kemur fram í Örkinni við Kirkjulækjarkot í Fljótshlíð ásamt Gospelkór Reykjavíkur og Gospelkór Fíladel- fíu undir stjórn Óskars Einarssonar 2. ágúst næstkomandi. „Hann kom til Íslands árið 1997 eftir að ég hitti umboðsmann hans fyrir algjöra tilviljun í Noregi,“ svarar Óskar, aðspurður um hvernig hann hafi komist í samband við þennan merka mann. „Ég lýsti þá yfir áhuga yfir því að fá hann hingað og það gekk eftir. Ég er búinn að halda upp á þennan tónlistarmann frá því að ég var krakki. Ég hef lifað og hrærst í hans tónlist alla mína ævi.“ Guðdómleg ferilskrá Ferilskrá Andraé er hreint út sagt guð- dómleg. Hann var góðvinur Michaels Jackson og útsetti m.a. fyrir hann kórsöng í laginu „Man in the Mirror“. Slíkt hið sama gerði hann fyrir „Like a Prayer“ en þá með Madonnu. Sem góðvinur Quincys Jones sá hann um allar söngútsetningar í Óskarsverðlaunamyndinni The Colour Purple er skartaði Whoopi Gold- berg í aðalhlutverki.“ „Eftir þessa komu hans árið ’97 höfum við haldið góðu sambandi. Ég fór út til Los Ang- eles með kórinn minn þar sem við héldum saman tónleika. Svo kom hann í fyrra. Eftir það vildi hann endilega fá okkur til þess að syngja með sér á tónleikahátíð í Noregi sem er núna í ágúst. Í framhaldi af því vildum við slá tvær flugur í einu höggi og fá hann aftur hingað.“ Meira um Michael Jackson Óskar hefur ekki rætt við Andraé eftir að Jackson vinur hans dó. Hann las þó um það í blöðunum að poppkóngurinn hefði leitað til hans tveimur vikum fyrir dauða sinn með hug- myndir um frekara samstarf um það sem átti að verða næsta plata popparans. „Jackson vildi fá Andraé til þess að hjálpa sér við að gera tón- listina á nýju plötunni andlegri. Hann fór víst tvívegis heim til Jacksons nokkrum vikum fyr- ir dauða hans. Hann hefur því greinilega verið kominn aftur yfir á gospelnóturnar. Crouch er mikill lærifaðir og allir líta mikið upp til hans sem eru í þessum bransa um allan heim.“ Miðasala á tónleika Crouch og Gospel- kóranna tveggja er hafin á hljomar.is. Reuters Söngvarinn Andraé Crouch. Gospelsöngvari Jacksons Kór Andraé Crouch sést hér syngja á minningarathöfninni um Michael Jackson. Gospelsöngvarinn Andraé Crouch heldur tónleika á Íslandi um Verslunarmannahelgina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.