Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.07.2009, Blaðsíða 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009 FRÁBÆRT KAUPTÆKIFÆRI – ESJUMELUR, KJALANESI Húsavík – GOTT ORÐSPOR – TRAUST VIÐSKIPTI Gott 452 fm iðnaðarhúsnæði á einni hæð auk tveggja millilofta sem er í báðum endum hússins. Milliloftin eru ekki skráð hjá Fasteignamati ríkisins. Fm tala hússins er því meiri en segir hér að ofan. Eignin skiptist í stóran sal og starfsmannaað- stöðu. Kaffistofa er á léttu millilofti í vesturenda hússins en milliloft í austurenda. Lofthæð er frá ca 4 m og upp í ca 7 m. Stórar innkeyrsludyr er á vesturenda hússins með ca 4 m lofthæð en að auki er ein með ca 3 m lofthæð og tvær aðrar minni. Í dag er rekin gluggasmiðja í húsinu. Lóð er 3000 fm og því gott athafnasvæði í kringum húsið. Byggingareitur er 1.200 fm og því hægt að byggja við húsið ca 750 fm, ef ekki meira miðað við það sem aðrir hafa gert á þessu svæði. Verð 52,5 millj. Nánari upplýsingar veita Elías 898-2007 og Reynir 895-8321. Elías Haraldsson lögg. fasteignasali Reynir Björnsson lögg. fasteignasali BORGARTÚN 29 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net REYNIR BJÖRNSSON ELÍAS HARALDSSON L Ö G G. FA S T E I G N A S A L A R FREYJUGATA 43 – REYKJAVÍK Þetta er eitt sögulegasta hús íslenskrar byggingarlistar en eignin er fyrsta húsið sem Einar Sveinsson arkitekt og húsa- meistari Reykjavíkur til margra ára teiknaði að loknu námi sínu. Húsið er kórrétt byggt eftir formúlu fúnksjónalis- mans en fáir ef einhver hafa til jafns við hann haft áhrif á útlit borgarinnar, bæði einstakar byggingar og skipulag. Húsið er 346 fm. Nánari upplýsingar veitir Jason Guðmundsson, lögfr. og lögg. fasteignasali 899 3700 Jason Guðmundsson, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali  | Síðumúla 13 | www.miklaborg.is569 - 7000 Reykjavík Sími 588 9090 Síðumúla 21 • 108 Reykjavík www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali Góð 147 fm íbúð á 6. og efstu hæð í lyftu- húsi með einstaklega fallegu útsýni yfir sjó- inn. Tvennar svalir eru á íbúðinni. Glæsilegt útsýni til norðurs yfir Akrafjall og Esju. En frá svölum í suðri, sem eru eins og aukaher- bergi við íbúð má sjá fjallahringinn til suðurs. Einungis ein önnur íbúð er á sömu hæð og stigagangur er lokaður. Bílastæði í bílskýli fylgir og rúmgóð geymsla í kjallara. Verð 57 milljónir. OPIÐ HÚS sunnudaginn 12. júlí frá kl. 15-17 Eiðistorg 5, 6.hæð, íbúð 602 SAMGÖNGU- RÁÐHERRANN þarf að forgangsraða verk- efnum. Eftir honum er haft að Vaðlaheið- argöng og samgöngu- miðstöð í Vatnsmýri komi fyrst í forgangs- röðinni vegna þess að gögn um þessi mann- virki „séu svo gott sem tilbúin“. Getur verið að þetta sé eina röksemdin fyrir því að ráð- herrann vill skipa málum með þess- um hætti? Þegar um takmörkuð fjárráð er að ræða og aðeins hægt að framkvæma hluta þess sem menn vilja þarf að forgangsraða eins og ráðherrann er að gera. For- gangsröðunin á að fara fram með þeim hætti að fyrst er stillt upp þeim markmiðum sem stefnt er að. Þá þeim verkefnum (valkostum) sem til greina koma. Næst eru skil- greindar þær forsendur sem skipta máli, s.s. kostnaður, stefnumörkun (t.d. fjölgun starfa), áhætta, ávinn- ingur, tímarammi, umhverfisáhrif o.s.frv. Síðan er hverri forsendu gefið vægi m.t.t. hvað hún er mik- ilvæg fyrir þau markmið sem stefnt er að og metið tölulega hversu vel viðkomandi verkefni uppfylllir hverja forsendu. Það verkefni sem fær hæst samanlagt heildarskor er það verkefni sem best styður markmiðin og á því að skipa for- gang, það sem kemur næst í skori kemur næst og svo koll af kolli. Hvað undirbúnings- gögnin eru langt á veg komin getur vissulega verið hluti af ákvörðun ráðherrans. Samt hlýtur að vera rangt eftir ráðherranum haft að tuga milljarða ákvörðun sé tekin á einni forsendu! Ef ráð- herrann á hinn bóginn telur að Vaðlaheiðargöng skipi forgang vegna þess að þau eru í hans kjör- dæmi á hann bara að segja það hreint út. Forgangsröðun 101 Eftir Þórð Víking Friðgeirsson » Forgangsröðunin á að fara fram með þeim hætti að fyrst er stillt upp þeim mark- miðum sem stefnt er að. Höfundur er verkfræðingur og lektor við Tækni- og verkfræðideild HR. Þórður Víkingur Friðgeirsson VEIÐISKAPUR er sport, beitan er valin af innsæi, fiskurinn þreyttur og síðan dreginn að landi. Þar fær hann síðan náð- arhöggið. Við vorum skuldlaus þjóð og því nokkuð sjálfstæð. Í dag erum við skuldug og ósjálfstæð þjóð. Við bitum á agnið, af- brot okkar var að láta glepjast en núna situr öngullinn fastur og það er sárt. Það er verið að þreyta okkur núna. Stýrivext- irnir lækka ekki neitt af ráði. Af- leiðingin er að fleiri fyrirtæki komast í þrot. Atvinnulausum fjölgar. Þar með er kominn ásætt- anlegur grundvöllur fyrir launa- lækkunum. Af þeim sökum minnka tekjur ríkisins verulega, bæði beinir og óbeinir skattar minnka. Þar með er einnig kominn grundvöllur fyrir launalækkun op- inberra starfsmanna og síðan verulegur niðurskurður hjá hinu opinbera. Til að tryggja þetta ástand til frambúðar munum við samþykkja Icesave samninginn í sumar.Við verðum að framleiða eins mikið af vörum sem gefa gjaldeyri og við getum. Ál og fisk. Það viljum við gera til að standa í skilum. Það vilja líka þeir að við gerum sem voru svo góðhjartaðir að lána okkur til að bjarga okkur frá vandræðunum, sem öngullinn veldur okk- ur. Því vinnur veiði- maðurinn ötull að því að hámarka afrakstur veiði sinnar. Fljótlega mun þjóð- in framleiða eins mik- ið og hún getur. Þjóð- inni mun verða greitt eins lágt kaup og framast er unnt til að halda framleiðslukostn- aðinum niðri. Það mun hámarka afraksturinn úr verksmiðjunni Ís- landi. Það mun gera okkur kleift að greiða niður lánin og taka ný. Í stað þess að hagnaður okkar, vegna vinnu okkar, fari í okkar vasa mun hann streyma óhindrað í vasa lánardrottna okkar. Nú er okkur bent á að með auk- inni stóriðju muni okkur ganga betur að greiða skuldir okkar. OECD er búið að gefa línuna. Til stóriðju þarf lán. Lánveitendurnir skella okkur í ruslflokk lánshæf- ismatsins til að stilla af vaxtabyrði okkar, sér í hag. Síðan mun hver stóriðjan af annarri fylgja í kjöl- farið og við höfum ekkert um mál- ið að segja. Lánardrottnarnir stjórna og stýra, þannig er það hjá gjadþrota heimilum og eins er það hjá gjaldþrota þjóðum. Eina spurningin sem út af stendur er hvort eða hvenær þeim þóknast að veita okkur náð- arhöggið. Sennilega munu þeir ekki gera það. Mun arðvænlegra er að setja okkur í kvíar til há- marks nytja. Að velta því fyrir sér hvað Davíð, Ingibjörg Sólrún eða Geir gerðu er tímasóun. Jafn glórulaust er að velta sér upp úr því hvað Jóhönnu dettur í hug. Önglar hafa þá náttúru að sitja fastir. Veiðimaðurinn á næsta leik. Niðurstaðan er sú að íslensk þjóð er komin í kvíar lánardrottna sinna. Við munum strita og púla þangað til síðasta lánið er greitt og það mun taka okkur marga áratugi. Hver er sinnar gæfu smiður… Þeir fiska sem róa Eftir Gunnar Skúla Ármannsson » Að velta því fyrir sér hvað Davíð, Ingi- björg Sólrún eða Geir gerðu er tímasóun. Jafn glórulaust er að velta sér upp úr því hvað Jó- hönnu dettur í hug. Gunnar Skúli Ármannsson Höfundur er læknir. KOSNINGALÖGUM ætti ekki að breyta nema að vel athuguðu máli. Nú hefur ríkisstjórnin hins vegar lagt fram tillögu að breytingu á þeim að illa at- huguðu máli í frumvarpi til laga um persónukjör. Vegna þess að breytingarnar eru óhæfar ætla ég ekki að ræða þær að svo komnu máli því ég er að vona að þess gerist ekki þörf; frum- varpið verði dregið til baka. Ókunn tunga Breytingatillögurnar eru víða óskilj- anlegar sökum þess að þær eru sett- ar fram á tungumáli sem hvergi þekkist á byggðu bóli svo mér sé kunnugt. Lafhægt er að nefna mörg dæmi þessa. Þó ætla ég aðeins að benda á eitt. Það er úr fjórða lið þrettándu greinar; breytingar á lög- um um kosningar til sveitarstjórna. Þar segir: „Flokkun kjörseðla: Per- sónuleg atkvæði listans skulu flokk- uð í bunka eftir nöfnum þeirra fram- bjóðenda sem tilgreindir eru númer 1 í talnaröð á viðkomandi kjör- seðlum. Hafi frambjóðandi ekki verið tilgreindur númer 1 á neinum kjör- seðli skal hann fá tóman bunka í upp- hafi.“ Hugtakið tómur bunki er óþekkt í málinu. Sé þetta tilraun við nýyrða- smíði er hún misheppnuð því að það er hvergi til tómur bunki; trúlega er illmögulegt að skapa hann vegna lög- mála eðlisfræðinnar. Munnfleipur Það hlýtur að vera æskilegt að ís- lensk lög séu á íslensku. Þau þurfa að vera íbúunum skiljanleg. Þetta frum- varp er óskiljanlegt vegna málfarsins og þess að hugsunin sem það er smíðað úr er í froðu. Kannski skýrist það af því að til þess að hafa „yfirum- sjón með gerð frumvarpsins“, eins og segir í opinberum gögnum, var val- inn sami maður og síðustu áratugi hefur verið látinn krafla svo í kosn- ingalögum að þau hafa stórlega versnað í hvert sinn sem hann hefur klórað í þau. Ég bið dómsmálaráð- herra, sem leggja mun frumvarpið fyrir alþingi og mæla mun fyrir því, að draga það til baka, með þeim rök- um að það sé ógreinilegt, þvælið og ekki á íslensku; það er munnfleipur. Krónutala Einnig vil ég biðja ráðherrann að upplýsa hve mikið ráðuneyti, alþingi og aðrir aðilar, ef einhverjir eru, hafa greitt fyrir vinnu við gerð frum- varpsins, til hvaða einstaklinga og hversu mikið til hvers og eins. Loks eru hér spurningar sem hafa verið að þvælast fyrir mér í margar vikur í kreppunni: Hverjir fóru til Suður- Ameríku á vegum hins opinbera, allir með taldir, til þess að hleypa nýju varðskipi af stokkunum? Hvaða nauðsyn bar til þess að viðkomandi héldu í ferðina? Hvað kostaði ferðin og uppihaldið og hvað var hverjum og einum greitt í dagpeninga frá dómsmálaráðuneytinu, Landhelg- isgæslunni og öðrum opinberum að- ilum? Hvernig reiknast vinnutap þeirra hér heima? Ráðherra góður, ég biðst undan tómum bunka af svör- um. ÚLFAR ÞORMÓÐSSON, rithöfundur. Tómur bunki Frá Úlfari Þormóðssyni Úlfar Þormóðsson Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.