Morgunblaðið - 12.07.2009, Qupperneq 30
30 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 2009
Sudoku
Frumstig
8 5 1
9 3 5 4
3 4 2
1 8 6
2 6 3
9 5
1
2 9
5 9 6
9 2 1
5 4 9
1 5 3
3 9 4 1
2 6 7
4 3 5
8
6 9 8 7
9 4 7
8 3
2 7
1 9 8 5
3 5 9 1
7 1 2
1 2
5 7 8
2 8
5 1 8 4 9 2 3 6 7
7 6 4 3 1 5 2 8 9
9 3 2 6 8 7 4 5 1
3 9 1 2 7 8 6 4 5
2 4 5 1 6 3 7 9 8
8 7 6 9 5 4 1 3 2
1 2 9 5 4 6 8 7 3
6 5 7 8 3 1 9 2 4
4 8 3 7 2 9 5 1 6
2 8 3 7 4 1 6 9 5
1 9 7 2 6 5 4 3 8
6 5 4 9 8 3 1 2 7
8 2 5 3 1 6 9 7 4
4 7 9 8 5 2 3 6 1
3 1 6 4 7 9 8 5 2
7 3 1 6 2 4 5 8 9
9 4 2 5 3 8 7 1 6
5 6 8 1 9 7 2 4 3
4 8 6 7 3 9 5 1 2
9 2 7 1 5 8 4 6 3
3 1 5 6 4 2 9 8 7
5 6 4 8 7 3 2 9 1
2 3 8 9 1 4 6 7 5
7 9 1 5 2 6 3 4 8
1 4 3 2 6 7 8 5 9
8 7 2 4 9 5 1 3 6
6 5 9 3 8 1 7 2 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 12. júlí, 193. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: „Ef þér hafið þekkt mig,
munuð þér og þekkja föður minn.
Héðan af þekkið þér hann og hafið séð
hann.“ (Jóh. 14, 7.)
Víkverji var í matarboði í vikunni.Efnahagshrunið og Icesave-
reikningarnir komu til tals í boðinu.
Meðal gesta í boðinu var Breti sem
lék forvitni á að vita hvers vegna svo
hrapallega hefði tekist til í efnahags-
málum á Íslandi.
Einn gestanna tók að sér að út-
skýra það sem hefði gerst og sagði:
„Sko, fyrir nokkrum árum ákvað rík-
isstjórnin að selja bankana. Nokkrir
efnilegir menn fengu að kaupa þá.
Þeir borguðu eitthvað út en fengu
lánað fyrir restinni. Eigendur
Landsbankans fóru t.d. í Bún-
aðarbankann og hittu þar fyrir
ágætan ungan mann sem lánaði
þeim nokkra milljarða. Þeir voru svo
ánægðir með viðskiptin að þeir réðu
unga manninn sem bankastjóra. Síð-
an tóku bankastjórarnir til við að
efla bankana og beittu þar bæði
dirfsku og kænsku. Ekki gekk allt
upp og þegar erlendir bankar voru
farnir að fá efasemdir um ágæti ís-
lensku bankanna fengu stjórnendur
Landsbankans þá hugmynd að afla
lánsfjár erlendis með því að opna
útibú í Bretlandi. Þeir buðu mjög
góð kjör og peningarnir streymdu
inn í bankann. Þetta varð til þess að
þeir opnuðu fleiri útibú. Allt endaði
þetta þó í einu allsherjarhruni. Ríkið
eignaðist þá bankana að nýju og hafa
stjórnendur þess ákveðið að taka að
sér að borga skuldir sem orðið hafa
til meðan þeir voru í eigu einkaaðila.
Þetta eru talsvert háar upphæðir.
Þá má bæta því við að kaupendur
Landsbankans voru ekki búnir að
borga bankann og óska nú eftir því
að fá að borga skuldina með 50% af-
slætti.“
x x x
Bretinn hlustaði undrandi á þessasögu og sagði að mönnum hefðu
sannarlega verið mislagðar hendur á
undanförnum árum. Hann bætti við
að það væri hins vegar nauðsynlegt
að Íslendingar borguðu skuldirnar
vegna Icesave-skuldbindinganna.
Margir Bretar ættu um sárt að
binda vegna fjármuna sem þeir ótt-
uðust að tapa eftir að hafa lagt pen-
ingana inn á Icesave-reikningana. Í
þessum hópi væri bæði gamalt fólk
og líknarfélög. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 flatfiskar, 8
girnd, 9 náðhús, 10 mán-
uður, 11 ok, 13 endast
til, 15 dreggjar, 18 trufl-
un, 21 sníkjudýr, 22
skjögra, 23 heldur, 24
gífurlegt.
Lóðrétt | 2 mauk, 3 fetti,
4 fárviðri, 5 bágborinn, 6
rekald, 7 ósoðna, 12
starfssvið, 14 bókstafur,
15 næðing, 16 sælu, 17
týna, 18 óhamingju-
samur, 19 heiðarleg, 20
rolluskjáta.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 galti, 4 þrótt, 7 matur, 8 ormur, 9 alt, 11 norn,
13 gróa, 14 aldna, 15 skúm, 17 trog, 20 far, 22 efldi, 23
angan, 24 tímum, 25 trana.
Lóðrétt: 1 gaman, 2 lítur, 3 iðra, 4 þrot, 5 ólmar, 6 tyrfa,
10 lydda, 12 nam, 13 gat, 15 skert, 16 útlim, 18 regla, 19
ginna, 20 fimm, 21 raft.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Bg5 Bg7 4. Rbd2
d6 5. e4 O-O 6. c3 b6 7. Bd3 Bb7 8. O-O
Rbd7 9. He1 e5 10. dxe5 dxe5 11. Dc2
De7 12. Bf1 Hfe8 13. a4 a5 14. Rc4 h6
15. Bh4 De6 16. Rfd2 Dg4 17. Bg3 De6
18. f3 Bf8 19. Re3 c6 20. Rdc4 Kg7 21.
Hed1 Ba6 22. b3 Kg8 23. Hd2 Kg7 24.
Had1 Bxc4 25. Rxc4 Bc5+ 26. Kh1 Ha7
27. Rd6 Hf8 28. Bc4 De7 29. Bh4 Be3
30. Hd3 Bg5 31. Bxg5 hxg5 32. Dd2
Rh5
Staðan kom upp á helgarskákmóti
Tímaritsins Skákar á Ísafirði/Bolung-
arvík árið 1980. Margeir Pétursson
hafði hvítt gegn Jóhannes Gísla Jóns-
syni. 33. Rxf7! Rc5 34. Rd8 Rxd3 35.
Re6+ Kh8 36. Rxf8 Dxf8 37. Dxd3 Dc5
38. Dd8+ Kg7 39. Dxg5 og hvítur vann
skömmu síðar.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Pólsk tækni
Norður
♠Á962
♥K953
♦G
♣G1064
Vestur Austur
♠10 ♠DG87
♥10864 ♥D72
♦7532 ♦ÁK1084
♣D982 ♣3
Suður
♠K543
♥ÁG
♦D96
♣ÁK75
Suður spilar 4♠.
Víða í bridstímaritum er að finna
fögur spil með Pólverjanum Andrzej
Wilkosz (f. 1932) við stýrið. Hér varð
Wilkosz sagnhafi í 4♠ eftir opnun aust-
urs á tígli. Út kom tígull upp á kóng og
lauf í öðrum slag.
Wilkosz stakk upp ás, trompaði tíg-
ul, svínaði ♥G, tók ♥Á, stakk tígul og
henti laufi í ♥K. Spilaði síðan laufi.
Austur slær vindhögg með því að
trompa og hann henti því tígli. Wilkosz
drap á ♣K, tók ♠K og ♠Á, spilaði loks
hjarta úr borði og tryggði sér tíunda
slaginn á tromp með framhjáhlaupi.
Wilkosz var í sigurliði Pólverja á
opna heimsmeistaramótinu 1978, en
síðan hefur lítið til hans spurst á al-
þjóðavettvangi. Hann er höfundur
samnefndrar sagnvenju, þar sem opn-
un á 2♦ sýnir veik spil með 5-5 skipt-
ingu í hálit og láglit.
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ykkur hefur tekist að sannfæra
starfsfélagana um ágæti verka ykkar.
Eitthvað dularfullt spilar inn í.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hvað starfsvettvang varðar er
þetta einstakur dagur. Hver veit nema
einhver þeirra eigi eftir að opna þér
dyr.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Áform um að nýta takmarkað
magn peninga til að betrumbæta fast-
eignir eða heimilið eru skynsamleg.
Reyndu að taka hlutunum með ró.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú munt verða mjög upptekinn
við að gera eitthvað sem þú hefur aldrei
gert áður. Hugsaðu um jarðveginn og
reyttu arfa svo blómin sjáist vel frá
glugganum þinum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Bilun í tölvunni eða annars konar
tæknivandamál geta sett strik í reikn-
inginn hjá þér í dag.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Misstu ekki kjarkinn þótt ein-
hver afturkippur komi í það mál sem þú
vinnur að þessa dagana. Hversdagslegt
spjall að þínu mati getur verið alltof op-
inskátt að mati einhvers annars.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er alltaf gaman að leika sér og
umfram allt þarftu að gefa þér tíma til
þess að sinna barninu í sjálfum þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefðir gott af því að
breyta um umhverfi, en að umgangast
nýtt fólk væri enn betra. Málið er að
vera duglegur og jákvæður, og þá
kemstu þangað sem þig dreymir um.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú skiptir öllu máli að finna
réttu aðferðina til að ná viðunandi ár-
angri. Hluti af því að vera seigur er að
viðurkenna þegar kemur að því að
þiggja þarf hjálp.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Í dag er heppilegt að ræða við
aðra um frumspekileg málefni, trúmál
og heimspeki. Bíddu ekki eftir öðrum
heldur taktu strax til þinna ráða.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert þroskaður og tekur
sjálfstæða afstöðu til þess sem gerist í
kringum þig. Gættu þess þó að staðna
ekki.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Fiskurinn kann að skipuleggja
hugmyndafund, allir leggja sitt af
mörkum og enginn fær að gagnrýna
hugmyndirnar sem koma upp. Vertu
góður við þig.
12. júlí 1951
Óskar Halldórsson útgerðar-
maður og börn hans afhentu
íslenska ríkinu vaxmyndasafn
með myndum af átján Íslend-
ingum og fimmtán þekktum
erlendum mönnum. Meðal
annars voru vaxmyndir af
Halldóri Laxness, Ólafi Thors,
Sveini Björnssyni, Churchill
og Hitler.
12. júlí 1975
Sumartónleikar í Skálholts-
kirkju voru haldnir í fyrsta
sinn. Þetta mun vera elsta og
jafnframt stærsta sumar-
tónlistarhátíð landsins.
12. júlí 1997
Safn Ríkarðs Jónssonar mynd-
höggvara var opnað í Löngu-
búð á Djúpavogi, en hann ólst
upp í Hamarsfirði. Safnið var
áður í Reykjavík.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Guðrún Hlín
Bragadóttir
hjúkrunarfræð-
ingur, Geirlandi,
Kópavogi, verð-
ur þrítug í dag,
12. júlí. Hún
verður stödd í
sumarhúsi í
faðmi fjölskyld-
unnar af því tilefni.
30 ára
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
„ÉG ætla að fara tvær ferðir út á sjó að skoða
hvali, en sleppi þriðju ferðinni,“ segir Ásdís Eir
Símonardóttir, sem fyllir aldarfjórðunginn í dag.
Hún fer að jafnaði í þrjár hvalaskoðunarferðir á
dag og hefur gert síðustu sumur, enda skipverji á
Eldingu. Hún segist þó aldrei fá nóg af hvölunum.
Gestirnir á bátnum eru þverskurður af samfélag-
inu, sumir tilfinningasamari en aðrir. Sá eft-
irminnilegasti er að hennar sögn þýskur ellilífeyr-
isþegi sem stóð uppi á dekki og hágrét. Þegar
Ásdís spurði hvort ekki væri allt í lagi sagði mað-
urinn með kökk í hálsi og tár á hvarmi: „Það hefur
verið draumur lífs míns að sjá hvali. Nú sé ég þá.“
Í kvöld ætlar Ásdís Eir út að borða á Fiskmarkaðinn í Austurstræti
með kærastanum sínum, en um næstu helgi slær hún upp heljarinnar
grillveislu í Heiðmörk, ásamt vinkonu sinni, samkvæmt hefð.
Ásdís á sér einnig æskuminningu um eftirminnilegt afmæli í Dan-
mörku. Þá var hefðin að fara í tívolí með foreldrunum og var engin
undantekning gerð á því árið 1993. Þó svo móðir Ásdísar myndi eign-
ast son tveimur dögum síðar fóru þær saman í rennibrautir og rússí-
bana og skemmtu sér konunglega. onundur@mbl.is
Ásdís Eir Símonardóttir er 25 ára í dag
Sjóferðir og sjávarréttir