Morgunblaðið - 18.08.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.08.2009, Blaðsíða 26
26 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009 Sudoku Frumstig 1 7 7 3 2 8 5 4 4 6 8 1 7 2 3 2 4 3 6 9 5 8 2 3 7 8 3 6 5 8 5 4 1 7 9 6 2 5 9 8 2 3 3 7 4 6 8 1 9 6 5 6 8 5 3 7 7 3 2 1 8 4 7 1 2 5 3 2 9 8 4 6 3 7 9 8 5 1 2 5 8 9 3 1 2 7 6 4 7 2 1 6 5 4 3 8 9 2 9 7 8 3 1 4 5 6 1 4 8 5 2 6 9 3 7 6 3 5 9 4 7 8 2 1 3 1 2 4 8 9 6 7 5 8 7 4 1 6 5 2 9 3 9 5 6 2 7 3 1 4 8 1 8 7 5 6 2 3 4 9 9 4 6 8 3 1 7 5 2 5 3 2 9 7 4 6 1 8 8 7 3 2 4 6 1 9 5 2 6 9 1 5 3 8 7 4 4 5 1 7 9 8 2 3 6 7 2 8 4 1 9 5 6 3 6 1 4 3 8 5 9 2 7 3 9 5 6 2 7 4 8 1 4 1 8 5 3 7 2 6 9 5 9 7 2 4 6 3 8 1 2 3 6 8 1 9 5 4 7 7 2 5 3 9 4 6 1 8 9 6 4 1 2 8 7 5 3 1 8 3 6 7 5 4 9 2 3 5 1 9 6 2 8 7 4 8 7 2 4 5 1 9 3 6 6 4 9 7 8 3 1 2 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 18. ágúst, 230. dag- ur ársins 2009 Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir hann enn ekki eins og þekkja ber. (I.Kor. 8, 2.) Glöggt er gests augað, segir mál-tækið og að mati Víkverja hafa landsmenn gott af því að heyra hvað útlendingum finnst um þá á hinum ýmsu sviðum og ekki síst þar sem ýmislegt má betur fara. x x x Fólki af íslenskum ættum í Banda-ríkjunum og Kanada er al- mennt mjög umhugað um Ísland og Íslendinga og vill helst ekki heyra hnjóðsyrði um land og þjóð. Margir vilja ekki ræða efnhagshrunið, að- draganda þess og ríkjandi vanda, en hinir sömu þreytast seint á að dásama það sem fyrir augu ber og eru ósparir á hrós íbúunum til handa. Víkverji hefur verið í góðu sam- bandi við marga þessa gesti og hefur ekki komist hjá að heyra gagnrýni hjá þessu ágæta fólki. Hún snýr fyrst og fremst að hundahaldi. Í fyrsta lagi botna sumir þessara erlendu gesta ekki í því að hundar gangi lausir í þéttbýli og í öðru lagi furða þeir sig á að hundahaldarar komist líka upp með að taka ekki upp hundaskítinn, þar sem dýrin gera þarfir sínar. x x x Hann er meinlaus, greyið, og ger-ir ekki flugu mein, segir marg- ur hundaeigandinn, þegar lausagang- an er gagnrýnd. Vel má vera að dýrið sé ekki hættulegt öðrum en lausa- ganga hunda er bönnuð í þéttbýli. Lausir hundar skíta líka hvar sem er og enginn hreinsar upp eftir þá. x x x Hundaskítur á almannafæri áekki að sjást og hundahaldarar eiga ekki að fá að vera í friði með skítinn sinn á gangstígum og nágrenni við þá. Kanadískt vinafólk Víkverja segir að í Kanada komist enginn upp með það að skilja hunda- skítinn eftir og vegfarendur passi upp á að hundahaldarar taki upp skítinn eftir hunda sína. Ekki aðeins með nærveru sinni heldur geri athugasemdir sé reglum ekki fylgt. Er ekki kominn tími til þess að þeir sem málið varðar taki sig taki í þessu efni, hafi hundana í bandi og þrífi upp eftir þá? Svo segja gestirnir. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 fussa, 4 snæða, 7 snúa heyi, 8 skottið, 9 lánað, 11 landabréf, 13 ofnar, 14 úði, 15 líf, 17 heiti, 20 ekki gömul, 22 dáin, 23 skrökvað, 24 krossa yfir, 25 beiskar. Lóðrétt | 1 dreng, 2 fljót, 3 einkenni, 4 fjöl, 5 gluf- an, 6 fugls, 10 borðaður, 12 guð, 13 skelfing, 15 loðskinns, 16 erfið, 18 gramur, 19 eltir uppi, 20 elska, 21 fánýtt skraut. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 belgingur, 8 fögur, 9 gætir, 10 fag, 11 skali, 13 allur, 15 sleif, 18 hræða, 21 róa, 22 kaupi, 23 leiði, 24 burgeisar. Lóðrétt: 2 eigra, 3 garfi, 4 nugga, 5 umtal, 6 ofns, 7 þrár, 12 lúi, 14 lár, 15 sekk, 16 efuðu, 17 Frigg, 18 halli, 19 æðina, 20 alin. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 c6 4. e3 Bf5 5. Rc3 e6 6. Rh4 Bg6 7. Be2 Rbd7 8. O-O Re4 9. Rxg6 hxg6 10. cxd5 exd5 11. Rxe4 dxe4 12. d5 Bd6 13. g3 c5 14. Da4 De7 15. Bb5 O-O-O 16. Bd2 Rf6 17. Dxa7 Bb8 18. Da3 Hxd5 19. Hfc1 Rg4 20. Ba5 Rxh2 21. Hd1 De6 22. Hac1 Rf3+ 23. Kf1 Hh1+ 24. Ke2 Staðan kom upp á alþjóðlegri skákhátíð sem lauk fyrir skömmu í Kaupmannahöfn í Danmörku. Rúss- neski stórmeistarinn Vladimir Mala- khov (2.707) hafði svart gegn sænska kollega sínum Tiger Hillarp-Persson (2.596). 24. …Rd4+! 25. exd4 Dg4+ 26. Kd2 Hxd1+ 27. Hxd1 Hxd4+ og hvítur gafst upp. Borgarskákmótið fer fram í dag í Ráðhúsi Reykjavík- ur. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á www.skak.is Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Afdobl. Norður ♠843 ♥K2 ♦Á10752 ♣ÁK3 Vestur Austur ♠ÁD109 ♠6 ♥106 ♥G984 ♦KG94 ♦D83 ♣DG8 ♣109765 Suður ♠KG752 ♥ÁD753 ♦6 ♣42 Suður spilar 4♠ redoblaða. „Get ég fengið að afdobla?“ Vestur sá hvað verða vildi og reyndi að semja sig út úr vandanum. En reglur eru reglur og „afdobl“ er ekki leyfilegt. Því miður. Suður vakti létt á 1♠, norður krafði í geim með 2♦ og stýrði svo spilinu í 4♠. Vestur taldi sig eiga góða vörn og dobl- aði. „Ég redobla,“ sagði norður, sem hafði frá upphafi sagna verið með nokkra slemmudrauma. Útspilið var ♣D. Sagnhafi drap, tók ♦Á og stakk tígul. Spilaði laufi á blind- an og trompaði aftur tígul. Tók því næst tvo efstu í hjarta og trompaði tíg- ul í þriðja sinn. Spilaði svo háhjarta. Það var á þessum tímapunkti sem vestur vildi taka upp samningana. Skiljanlega, því hann fær aldrei meira en þrjá slagi á tromp, hvað sem hann gerir. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Samningaviðræður sem tengj- ast fjármálum munu sennilega snúast þér í hag. Erfitt er að losna við dag- draumana um þessar mundir. (20. apríl - 20. maí)  Naut Gefðu einhverjum sem á það ekki skilið annað tækifæri. Ef til vill áttu eftir að eiga í djúpum samræðum við þinn innri mann í dag og gætir jafnvel tekið þá ákvörðun að eyða meiri tíma með þér og honum. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er skynsamlegt að hafa fyrirvara á því sem vinir þínir eða aðrir hópar hvetja þig til að taka þér fyrir hendur. Taktu fordómalaust á hlutunum og leystu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Láttu þér ekki til hugar koma að þú vitir allt um starf þitt. Sýndu festu og tillitssemi þegar þú átt hend- ur að verja, þá ganga málin þér í hag. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Allt sem krefst hugsunar höfðar til þín í dag. Gríptu tækifærið, taktu málið í þínar hendur og fylgdu því fast fram til sigurs. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Reyndu að komast að nið- urstöðu varðandi skiptingu eigna og ábyrgðar. Gleymdu ekki persónulegu hlutunum. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Einhverjar breytingar eru að brjótast um í þér. Yndislegt óhóf stendur þér til boða, en það kemur í ljós hvort þú þiggur það. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú ert í innkaupastuði og langar í nýja vinnu eða nýja ást. Gættu þess að sýna öðrum sanngirni þegar þú klífur metorðastigann. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er engin skoðun svo skotheld að hún geti ekki breyst vegna nýrrar vitneskju eða einhvers annars. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Láttu ekkert koma þér á óvart í dag. Gleymdu því bara ekki að þú varst ekki einn um hituna. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þig langar til að finna ein- hvern sem þú getur deilt hugmyndum þínum með. Hugsaðu þig því vandlega um áður en þú lætur ljós þitt skína. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Forvitni þín leiðir þig á ókunnar slóðir þar sem óvænt verk- efni bíða þín. Hafðu léttleikann í fyr- irrúmi. Stjörnuspá 18. ágúst 1966 Jóhannes S. Kjarval tók fyrstu skóflustungu að myndlist- arhúsi á Miklatúni í Reykja- vík. Húsið var kennt við hann og nefnt Kjarvalsstaðir. 18. ágúst 1986 Minnst var 200 ára afmælis kaupstaðarréttinda Reykja- víkur með veglegum hátíða- höldum. Giskað var á að um 70-80 þúsund manns hefðu verið í miðbænum. Á boð- stólum var meðal annars stærsta terta sem sögur fara af hér á landi. Undir miðnætti var mikil flugeldasýning. 18. ágúst 2000 Grófarhúsið við Tryggvagötu, sem hýsir aðalsafn Borg- arbókasafns Reykjavíkur, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og Ljósmyndasafn Reykjavík- ur, var formlega opnað. 18. ágúst 2003 Hrefnuveiðar hófust á ný eftir margra ára hlé, í samvinnu við Hafrannsóknastofnun. 18. ágúst 2008 Andarnefjur sáust á Pollinum á Akureyri og voru þar í meira en mánuð. Flestar voru þær fjórar. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Geir Zoëga, fyrrverandi framkvæmda- stjóri og fyrrum Stórsír Odd- fellowreglunnar, verður áttræður 20. ágúst. Þann dag taka hann og kona hans Sig- ríður Einarsdóttir Zoëga á móti vinum og vandamönum í Odd- fellowhúsinu við Vonarstræti, frá kl. 18 til 20. Blóm og gjafir vinsam- legast afþökkuð. 80 ára Kjartani Eggertssyni, skólastjóra Tónskóla Hörp- unnar var umhugað um tölur þegar blaðamaður minnti hann á afmælið sitt, sem er í dag. „55 er nokkuð falleg tala. En mér finnst ekkert merki- legt að vera 55 ára, ekki eins og að vera 25 ára því það er fjórðungur úr öld. 55 er tala sem höfðar ekki til mín,“ segir Kjartan sem ætlar að þó að halda upp á afmælið með því að bjóða fjölskyld- unni í kaffi. Tónskóli Hörpunnar fagnaði 10 ára starfsafmæli sínu í ár, en skólinn, sem staðsettur er í Grafarvogi, er almennur tónlistarskóli sem þjónar tónlistarkennslu í tíu grunnskólum í Reykjavík. Kjartan segir frá óvæntri veislu sem haldin var í tilefni af fimmtugsafmæli hans. „Þá ætlaði ég að vera að heiman í rólegheitum. Við Svanhvít leigðum sumarbústað á Syðri-Reykjum og vorum í al- gerri einangrun út af fyrir okkur. En Svanhvít kom mér á óvart, því allt í einu birtist öll fjölskyldan. Ég er frekar var um mig og er afmæl- isdagurinn eftirminnilegur því þetta var í fyrsta skipti sem henni tókst að plata mig,“ segir Kjartan en hann og eiginkona hans, Svan- hvít Sigurðardóttir, tónlistarkennari, eiga þrjú börn og eitt barna- barn. gudrunhulda@mbl.is Kjartan Eggertsson skólastjóri er 55 ára í dag Gabbaður í fyrsta skipti Nýirborgarar Reykjavík Eyrún Eva fæddist 15. maí kl. 3.07. Hún vó 3.335 g og var 51 cm löng. Foreldrar henn- ar eru Anika Ýr Böðv- arsdóttir og Örn Þor- steinsson. Reykjavík Ísak Þráinn fæddist 7. ágúst kl. 8.34. Hann vó 4.030 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Valgerður Shamsudin og Ármann Salim A. Shamsudin. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamt upplýsingum á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.