Morgunblaðið - 18.08.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.08.2009, Blaðsíða 1
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is FJÁRFESTINGAFÉLAGIÐ Kjalar hf., sem er að stærstum hluta í eigu Ólafs Ólafssonar, hefur gengið frá samkomulagi um sölu á öllum eignarhlut sínum í Iceland Seafood International ehf.. Kaupandi hlutarins er félag í eigu Bretans Marks Holyoake, stærsta eiganda British Seafood Ltd., sem er sterkt félag í sölu og markaðs- setningu á fiskafurðum víða um heim. Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Kjalars, segist vera sáttur við samkomulagið. „Það er jákvætt fyrir Icleand Seafood að tengjast með þessum hætti aðilum með víð- tæka starfsemi í markaðssetningu á sjávarafurðum og styrkir dreifileiðir íslenskra fiskframleiðenda,“ segir Hjörleifur. „Auk þess verður það að teljast mjög jákvætt að erlendir aðilar vilji fjárfesta í íslensku fyrirtæki.“ Gert í góðu samráði við stjórnendur Aðspurður segir Hjörleifur að salan hafi verið unnin í góðu samráði við stjórnendur Iceland Seafood og lán- ardrottna Kjalars. Eignarhlutur Kjalars í Iceland Seafood International fyrir söluna var rúmlega 70%. Aðrir hluthafar í félaginu eru Benedikt Sveinsson, forstjóri þess og framkvæmda- stjórinn Bjarni Benediktsson. Þeir munu áfram eiga sína hluti í Iceland Seafood International og leiða starfsemi félagins. | 13 Iceland Seafood í meirihlutaeigu Breta „Styrkir dreifileiðir íslenskra fiskframleiðenda,“ segir forstjóri Kjalars Morgunblaðið/RAX Aflinn British Seafood Ltd. er sterkt félag í sölu og markaðssetningu á fiskafurðum víða um heim. Þ R I Ð J U D A G U R 1 8. Á G Ú S T 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 222. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «BRJÁLUÐ SALA Á ULL ÍSLENSKA PRJÓNAKONAN VÖKNUÐ TIL LÍFSINS «AFLISTUM Tónlistarsmekkurinn segir til um gáfurnar ÞAÐ er ekki nema von að útlendingarnir dragi upp myndavélarnar og búi sig til að mynda Ham- arsrétt á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu. Ís- lensk náttúrufegurð, glæsileg íslensk fjárrétt og sjálft Atlantshafið lygnt svo langt sem augað eygir. Þessir ferðamenn eru meðal margra sem heimsótt hafa landið í sumar, því þrátt fyrir sam- drátt í ferðamennsku víða um Evrópu hefur ferðamönnum hér fjölgað. Fólk vill enn ferðast en þarf að leita nýrra leiða til að ráða við pen- ingaútgjöldin sem því fylgja. Lönd þar sem gjaldmiðillinn hefur fallið, á borð við Ísland, Tyrkland og Marokkó, njóta aukinna vinsælda vegna þessa. Vatnsnesið er annálað fyrir náttúrufegurð þess og fleira markvert er þar að sjá en Hamars- rétt, eins og til dæmis Hvítserk sem gnæfir upp úr hafinu í Húnafirði, drithvítur og tignarlegur. Íslendingar ræða gjarnan um veður þegar þeir hittast og eitt virðast allir geta verið sam- mála um: Í logni er alltaf gott veður. FÁTT SLÆR ATLANTSHAFIÐ ÚT Í LOGNI Morgunblaðið/Árni Sæberg Lönd þar sem gjaldmiðillinn hefur fallið njóta aukinna vinsælda meðal ferðamanna  VIÐRÆÐUR Mjólku við Kaup- félag Skagfirðinga (KS) og fleiri um að fjár- festa í Mjólku eru á lokastigi að sögn Ólafs M. Magnús- sonar, fram- kvæmdastjóra Mjólku. Þór- ólfur Gíslason, kaupfélags- stjóri KS, stað- festir að viðræður standi yfir. „Kaupfélag Skagfirðinga hefur verið að skoða ýmsa möguleika og þar á meðal þetta.“ »2 Kaupfélag Skagfirðinga sýnir Mjólku áhuga  TILBOÐ Magma Energy, kan- adíska jarðvarmafyrirtækisins, í hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku hljóðaði upp á 6,3 á hlut, en OR keypti sinn hlut á genginu 7,0. Greint var frá því á föstudag að OR hefði samþykkt að ganga til við- ræðna við Magma um kaup á 32% hlut OR í HS Energy. Magma hefur þegar tryggt sér 11% hlut með samningi við Geysi Green Energy. Þá hefur tilboði Magma í 0,7% hlut Hafnarfjarðar- bæjar verið tekið, sem og tilboði í 0,3% hlut Sandgerðisbæjar. »8 Magma bauð 6,3 á hlutinn ÞORKELL Skúli Þorsteinsson, ein- hverfi drengurinn sem fjallað er um í heimildarmyndinni Sólskinsdreng- ur, er nú fluttur til Texas ásamt fjöl- skyldu sinni. Þar sækir hann með- ferð sem gerir honum kleift að eiga samskipti við fjölskyldu sína. Hefur meðferðin gefist vel og segir móðir hans að fjölskyldan fái nú fyrst að kynnast Þorkeli. Þó ekki sé um að ræða neina töfralausn eða skjótar framfarir seg- ir móðir Þorkels son sinn hafa breyst nokkuð nú þegar til hins betra. Meðferðin byggist meðal ann- ars á því að einhverfum er kennt að tjá sig með því að stafa og gerir ráð fyrir að þeir hafi eðlilega greind þó hegðun og annað bendi til að svo sé ekki. | 4 Morgunblaðið/Kristinn Sólskinsdrengurinn Þorkell Skúli. Farinn að geta tjáð sig Sólskinsdrengurinn í einhverfumeðferð British Seafood er alþjóðlegt matvælafyrirtæki sem hefur sérhæft sig í öflun, dreifingu og fram- leiðslu á ferskum og frosnum matvælum á al- þjóðavettvangi. Ein átta matvælafyrirtæki eru þegar í eigu Brit- ish Seafood, m.a. Bloomsbury International Ltd., Evergreen Food Ltd. og Seatek og eru vörumerkin Goldwater, Oceean Catch og Orientan Delight með- al þeirra vörumerkja sem eru í eigu fyrirtækisins. Alþjóðlegt matvælafyrirtæki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.