Morgunblaðið - 18.08.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009
veiðideild
skot veiðikvöld
Húsgagnahöllinni, sími: 585 7239
Í kvöld
þriðjudaginn 18. ágúst
frá 19:30 til 21:30
verðum við með opið hús fyrir alla
skot- og stangveiðimenn í verslun
okkar í HÚSGAGNAHÖLLINNI.
20-50%
afsláttur
Léttar veitingar í boði.
Allir velkomnir.
ÞAÐ sem af er árinu hafa 3.732
ökutæki verið nýskráð samanborið
við 15.345 ökutæki eftir jafnmarga
daga á síðasta ári. Þetta er 75,7%
fækkun milli ára.
Það sem af er árinu hafa 47.356
eigendaskipti verið gerð á ökutækj-
um samanborið við 69.809 eig-
endaskipti eftir jafnmarga daga á
síðasta ári. Þetta er 32% fækkun
milli ára.
Morgunblaðið/Ómar
Nýskráningum
fækkar um 76%
VÍKINGAFUNDUR er nú haldinn
hér á landi og er þetta í annað sinn
síðan 1956 sem fundurinn er hald-
inn á Íslandi.
Víkingafundir eru fjölþjóðlegar,
þverfaglegar ráðstefnur innan vík-
ingaaldarfræða. Fyrri hluti ráð-
stefnunnar fer fram í Háskólatorgi
HÍ en síðari hlutinn í Snorrastofu í
Reykholti. Dagskrá ráðstefnunnar
og aðrar upplýsingar má nálgast á
heimasíðu hennar www.vik-
ingcongress.com
Víkingar funda
EIN Af skrifstofum Sameinuðu
þjóðanna (OCHA) hefur tekið í
notkun samskipta- og upplýs-
ingagátt frá íslenska hugbún-
aðarfyrirtækinu TM Software
fyrir samræmt hjálparstarf á
hjálpar- og hamfarasvæðum.
Lausnin byggist á íslensku hug-
viti og hefur meðal annars ver-
ið nýtt af stjórnvöldum í
Mexíkó fyrir hjálparstarf vegna
inflúensufaraldurs (H1N1) þar í
landi.
Ágúst Einarsson fram-
kvæmdastjóri TM Software seg-
ir að verkefnið sé mikil við-
urkenning fyrir íslenskt hugvit.
SÞ velja íslenska
upplýsingatækni
Hvaða samningar
hafa verið gerðir?
Reykjanesbær hefur samþykkt
að selja Geysi Green Energy
34,7% hlut sinn fyrir 13 milljarða.
Geysir Green á fyrir 32% hlut.
Geysir Green hefur þá selt Magma
10,8% hlut í fyrirtækinu. Orku-
veita Reykjavíkur hefur samþykkt
að ganga til viðræðna við Magma
Energy um kaup á 32% hlut henn-
ar og sveitarfélögin Sandgerði og
Hafnarfjörður hafa ennfremur
samþykkt að selja Magma þá litlu
hluta sem þau eiga í HS Orku.
S&S
FRÉTTASKÝRING
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
„ÞEGAR þú átt 0,3% hlut í svona
stóru fyrirtæki eins og HS Orku og
getur af þeim sökum ekki haft mikil
áhrif á starfsemi þess, þá má segja
að aðgangsmiðinn á aðalfundinn sé
óþarflega dýr. Við í bæjarráði höfum
ekki tekið neina afstöðu hingað til
hvort við ætlum að selja hlut okkar
en ég reikna með að við leggjumst
yfir það mál núna í vikunni,“ segir
Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í
Garði.
Hann segir að ráðgjafarfyrirtækið
Arctica Finance hafi haft samband
við sveitarfélögin sem eiga HS Orku
í vor og spurt hvort eignarhlutar
þeirra væru til sölu. „Við tókum
enga afstöðu þá en nú verður þetta
skoðað,“ segir Ásmundur.
Á föstudag ákvað stjórn Orku-
veitu Reykjavíkur að ganga til við-
ræðna við kanadíska fyrirtækið
Magma Energy um kaup fyrirtæk-
isins á hlut Orkuveitu Reykjavíkur í
HS Orku. Orkuveita Reykjavíkur
keypti 16,5% hlut í Hitaveitu Suð-
urnesja árið 2007 og skuldbatt sig
jafnframt til að kaupa um 15% til
viðbótar af Hafnarfjarðarbæ. Því er
um að ræða um 32% hlut í fyrirtæk-
inu. Magma Energy á fyrir um 11%
hlut í HS Orku sem fyrirtækið
keypti af Geysi Green Energy í júlí.
Samkvæmt þeim samningi mun
Magma jafnframt geta aukið hlut
sinn um 5% þegar auknu hlutafé
verður veitt inn í HS Orku. Ef fyr-
irtækið kaupir hlut Orkuveitu
Reykjavíkur mun Magma Energy
því samtals eiga 43% hlut í HS Orku
og eiga möguleika á að auka hann
upp í 48% með frekara hlutafé.
125 milljónir fyrir 0,3%
Á fimmtudag í síðustu viku sam-
þykkti bæjarráð í Sandgerði jafn-
framt að taka tilboði Magma Energy
upp á 125 milljónir króna í 0,3% hlut
bæjarfélagsins í HS Orku. Sama dag
samþykkti bæjarráð Hafnarfjarðar
að taka tilboði Magma Energy í
0,7% hlut Hafnarfjarðarbæjar í HS
Orku.
Sveitarfélagið Vogar á um 0,1%
hlut í fyrirtækinu en að sögn Ró-
berts Ragnarssonar, bæjarstjóra,
hefur enn ekki verið ákveðið að selja
hlutinn. „Ég geri þó ekki ráð fyrir
öðru en að við fundum um þetta mál
í vikunni.“ Grindavíkurbær á um
0,5% hlut og Jóna Kristín Þorvalds-
dóttir bæjarstjóri segir að ekki hafi
enn verið tekin afstaða til hvort selja
eigi hlutinn. „Ég tel þó eðlilegt að
við skoðum það mál.“ Gangi öll þessi
kaup eftir er ljóst að HS Orka stefn-
ir hraðbyri í að verða í einkaeigu er-
lendra og innlendra aðila. Magma
Energy og Geysir Green Energy
munu þá eiga um helmingshlut hvort
á móti öðru.
Í samtali við Morgunblaðið þann
8. júlí sagði Ross Beaty, forstjóri
Magma Energy, að fyrirtækið ætl-
aði sér ekki að verða ráðandi aðili í
HS Orku.
Morgunblaðið/Ómar
Orka Orkuveita Reykjavíkur hefur nú samþykkt að ganga til viðræðna við Magma Energy um kaup á 32% hlut í HS
Orku. Hafnarfjarðarbær og Sandgerðisbær samþykktu jafnframt í liðinni viku að taka tilboðum fyrirtækisins.
Magma kaupir upp hluti
sveitarfélaga í HS Orku
Tilboðum kanadíska jarðvarma-
fyrirtækisins Magma Energy hef-
ur verið tekið í Sandgerði og í
Hafnarfirði og í vikunni verður
tekin ákvörðun um hvort selja
eigi hluti Voga og Garðs.
Kanadíska fyrirtækið gæti eignast tæplega helmingshlut á móti Geysi Green
Rangt föðurnafn
Rangt var farið með föðurnafn
Kristínar Huldar Sigurðardóttur,
forstöðumanns Fornleifaverndar
ríkisins, í Morgunblaðinu í gær og
sunnudag. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Rangt ártal
Í frétt um andlát Sigríðar Ármann í
Morgunblaðinu í gær var ranglega
farið með hvaða ár Sigríður stofnaði
Ballettskóla Sigríðar Ármann. Hún
stofnaði skólann árið 1952.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
LEIÐRÉTT
NÝ ÍSLENSK rannsókn sýnir að
80% af íslenskum frumkvöðlun
stofna fyrirtæki til að nýta eigin
reynslu og þekkingu. Erlendar
rannsóknir benda til þess að líkur á
að ný fyrirtæki lifi og nái árangri
aukist til mikilla muna ef tækifærin
byggjast á reynslu og þekkingu
frumkvöðla. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá Klaki sem rekur Við-
skiptasmiðjuna – Hraðbraut nýrra
fyrirtækja.
80% stofna fyrirtæki