Morgunblaðið - 18.08.2009, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.08.2009, Blaðsíða 15
– meira fyrir áskrifendur Glæsilegt sérblað um heilsu og lífstíl fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 28. ágúst Heilsa og lífstíll Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Í blaðinu Heilsa og lífstíll verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífstíl haustið 2009. Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16 mánudaginn 24. ágúst. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 netfang: kata@mbl.is Meðal efnis verður : • Ný og spennandi námskeið í heilsuræktarstöðvum • Flott föt í ræktina • Andleg vellíðan • Afslöppun • Dekur • Svefn og þreyta • Matarræði • Skaðsemi reykinga • Fljótlegar og hollar uppskriftir • Líkaminn ræktaður heimafyrir • Ásamt fullt af fróðleiksmolum og spennandi efni ÚR BÆJARLÍFINU MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009 Þær eru ekki margar helgarnar í Vestmannaeyjum sem ekki er eitt- hvað um að vera frá hvítasunnu fram í september þegar lundakarlar halda sitt árlega lundaball. Þó ekki hafi þeir ástæðu til að fagna mikilli veiði þetta árið mun árshátíð þeirra örugglega verða með miklum glæsi- brag og verða vel sótt.    Það er staðreynd að stór hluti ferða- mennsku í Eyjum byggist á fram- taki einstaklinga og félaga, ekki síst ÍBV, og viðburðir á þeirra vegum draga til sín þúsundir gesta sem sumir dvelja þar í allt að viku. Allt byrjar þetta með sjóstöng, djasshá- tíð og golfmóti á hvítasunnu. Þá taka við stór knattspyrnumót barna, fleiri golfmót og goslokahátíð sem allt er eins og litlar bæjarhátíðir.    Hápunktur ferðavertíðarinnar er Þjóðhátíðin sem aldrei hefur verið fjölmennari en í ár. Páll Scheving, formaður þjóðhátíðarnefndar er mjög sáttur hvernig til tókst. Hann telur að Vestmannaeyingar geti vel tekið á móti fleiri þjóðhátíðargestum en ráðast þurfi í enn frekari úrbætur í Dalnum.    Nú standa Eyjamenn frammi fyrir því að taka á móti enn fleiri gestum á næsta ári þegar Landeyjahöfn verð- ur komin í gagnið. Páll sér engin vandkvæði á því. „Hátíðin fór vel fram og við réðum við þetta og ráð- um við meira. Við reiknuðum með 13 til 14 þúsund manns og gerðum ýms- ar ráðstafanir til að taka á móti fleira fólki en við höfum haft á þjóðhátíð til þessa,“ sagði Páll.    Bæjarsjóður Vestmannaeyja var gerður upp með rúmlega 400 millj- óna króna afgangi á síðasta ári og sér þess merki í þriggja ára áætlun sjóðsins sem samþykkt var fyrir skömmu. Þar var ákveðið að ljúka smíði knattspyrnuhúss, þar sem bú- ið er að grafa grunn, endurnýjun upptökumannvirkja, gerð hafn- arkants fyrir stórskip, byggingu menningarhúss og fleira. Alls er gert ráð fyrir framkvæmdum fyrir 1313 milljónir á árunum 2010 til 2011.    „Þar við bætast svo framkvæmdir fyrir 439,5 milljónir króna á yf- irstandandi ári þannig að fram- kvæmt verður fyrir 1752,5 milljónir til ársins 2010,“ sagði Elliði Vign- isson þegar hann fylgdi áætluninni úr hlaði. Verður þetta að teljast mik- ið á krepputímum fyrir bæjarfélag sem rétt losar 4000 íbúa.    Nú er senn að ljúka víðtæku rann- sóknaverkefni á humri og krabba, Crustasea-verkefnið en það er unnið víða um heim, m.a. hér í Vest- mannaeyjum. Hér snýst verkefnið um veiðar á humri og flutningi hans til kaupenda erlendis. Niðurstaða rannsóknarinnar sýnir að veiðar í gildrur eru mun vistvænni en þær togveiðar sem nú eru stundaðar og skila auk þess betri nýtingu á aflan- um. Þá er allt að 97% lifun í humri sem sendur er lifandi út með flugi.    Páll Marvin Jónsson, fram- kvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja hefur verið einn þeirra sem hafa unnið að rannsókn- inni. „Þetta er þriðja árið sem við er- um að vinna í þessu verkefni. Mark- miðið af okkar hálfu er að kanna þessa aðferð, að flytja út lifandi humar,“ sagði Páll Marvin en verk- efnið er unnið í sex löndum.    Í sumar var hér fjölmennur hópur franskra sjónvarpsmanna við tökur á einum þekktasta náttúrulífsþætti Evrópu, Ushuaia Nature. Þátturinn er unninn af stærstu sjónvarpsstöð Frakklands, TF1 en verður sýndur víðar í Evrópu. Alls sjá þáttinn um 70 milljónir en þáttagerðarmenn- irnir töldu að Vestmannaeyjar fengju veglegan sess í þættinum.    Auróra Friðriksdóttir var verk- efnastjóri þáttagerðarinnar í Vest- mannaeyjum en sjónvarpsfólkið franska dvaldi á Íslandi í um þrjár vikur. Þar af voru þau í sex daga í Eyjum. Auróra segir þáttinn gríð- arlega vinsælan og gerð hans ein- kennist af mikilli fagmennsku. Njóti þeir svipaðrar virðingar og nátt- úrulífsþættir David Attenborough.    Mikill ferðamannastraumur hefur verið til Eyja í sumar og verulegur hluti þeirra Íslendinga sem hingað koma, er gagngert kominn til að leika golf. Að hluta til eru þetta áhrif kreppunnar enda hefur verðlag er- lendis nánast tvöfaldast í íslenskum krónum á einu ári.    Það fer ekki fram hjá nokkrum manni að Vestmannaeyjabær hefur tekið miklum stakkaskiptum til hins betra síðasta árið. Á það bæði við um framkvæmdir á vegum bæjarins og ekki síður hafa einstaklingar tekið til hendinni við endurbætur og lag- færingar á húsum sínum. Af hendi bæjarins er það ekki síst miðbærinn sem hefur fengið andlitslyftingu og er framkvæmdum ekki lokið segir Gunnlaugur Grettisson, forseti bæj- arstjórnar. Hann er mjög ánægður með þátt bæjarins en segir ennþá ánægjulegra að sjá vakningu meðal bæjarbúa í að fegra í kringum sig. VESTMANNAEYJAR Ómar Garðarsson fréttaritari Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Hátíð Veðrið lék við Eyjamenn og gesti á þjóðhátíðinni. Kristrún Jóhanna Úlfarsdóttirog Eysteinn Óskar Einarsson gengu í það heilaga 7. ágúst í Garðakirkju. Af því tilefni samdi faðir brúðgumans, Einar Þor- grímsson, heilræðavísur og þar á meðal: Verið góð og grandvör saman, gæsku sýnið – hafið gaman. Kyssið oft og knúsið börnin, því kærleikur er besta vörnin. Davíð Hjálmar Haraldsson býr á Akureyri og fylgdist af áhuga með hátíðinni Ein með öllu um versl- unarmannahelgina: Ryðjast yfir regnþung ský. Reiðir gestir sýta kamrana sem kveikt var í, kvartandi nú flýja, því allir vilja skjólið til að skíta. Hjálmar Freysteinsson sá einnig ástæðu til að yrkja um þennan at- burð, en upplýsir jafnframt að lýs- ingarorðið „gegt“ sé stytt útgáfa af hinu vinsæla lýsingarorði geð- veikt. Ýkt og gegt hér ástin brann með afleiðingum þeim að sótugir um sitjandann sumir sneru heim. VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Af kærleika og kömrum VETRARTÍSKAN tekur á sig ýms- ar myndir og ólíkar eru þær frá ári til árs. Nokkur drungi var yfir tískusýningu kólumbíska hönn- uðarins Alvarez nýverið á tískusýn- ingunni Colombiamoda. Málmáferð á klæðnaði var fyrirferðarmikil og förðun í stíl. Reuters Dulúð í vetur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.